Morgunblaðið - 14.02.1999, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/RAX
PÉTUR Snæbjörnsson er hótelsljóri í Reynihlíð og hefur verið síðástliðin sex ár. Honum er þjónustulundin í blóð borin, byijaði níu ára að dæla
bensíni á bfla og hefur starfað nánast óslitið á einn eða annan hátt við hótelreksturinn síðan.
MEÐ GESTRISNI
ÍBLÓÐINU
eftir Rögnu Söru Jónsdóftur
HÓTEL Reynihlíð í Mý-
vatnssveit heldur upp á
50. starfsár sitt í sumar.
Hótelið hefur verið rekið
af sömu fjölskyldunni í hálfa öld og
meira til, því á bænum Reynihlíð er
löng hefð fyrir gestamóttöku, eins
og í Mývatnssveitinni almennt. I
raun var móttaka gesta og ferða-
manna kvöð á bændum í gamla
daga. Þeir voru skyldugir til að
hýsa ferðamenn, og fylgja þeim yfír
Jökulsá þar sem norður-þingeyskir
bændur tóku á móti þeim. „Það eru
til dæmi þess að fyrri tíðar bændur
hrökkluðust í burt af Reykjahlíð af
því þeir gátu ekki stundað búskap
fyrir ferðamannaánauð," segir Pét-
ur Snæbjömsson hótelstjóri Hótels
Reynihlíðar til að útskýra þá hefð
sem er fyrir komu ferðamanna í
Mývatnssveit.
Afi og amma Péturs hófu form-
legan rekstur gistiheimilis eftir að
hafa tekið á móti gestum í mörg ár,
í nýju íbúðarhúsi sínu árið 1943.
Reksturinn vatt upp á sig og fyrr
en varði var öll fjölskyldan komin á
kaf í bæði gisti- og veitingarekstur.
Arið 1947 hófust þau svo handa við
að reisa nýja og stærri byggingu og
var hún teldn í notkun tveimur ár-
um síðar. I dag er nánast búið að
byggja utan um þá byggingu en á
nokkurra ára fresti hefur verið ráð-
ist í að byggja við eða endurbæta
það sem fyrir er.
Fj ölskyldufyrirtæki
í meira en 50 ár
Hótel Reynihlíð er algerlega
byggt upp á einkaframtaki og hefur
alltaf verið rekið af sömu fjölskyld-
unni. Upphaflega var það rekið af
ömmu og afa Péturs, síðan af
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
► Pétur Snæbjörnsson er fæddur á Húsavík 29. desember árið
1959. Hann lauk matreiðslunámi árið 1980 frá Hótel- og veit-
ingaskóla Islands, meistaranámi í matreiðslu frá Norsk Hotell-
Högskole árið 1984 og hótelstjórnarnámi frá sama skóla árið
1985. Árið 1986 var Pétur veitingastjóri í nokkra mánuði á
Hótel Borg. Hann var hótelsljóri á Hótel Húsavík frá
1986-1989 og kenndi matreiðslu við Hótel- og veitingaskóla ís-
lands frá 1990-1995. Árið 1993 gerðist hann hótelsljóri á Hótel
Reynihlíð þar sem hann starfar enn í dag. Pétur er kvæntur
Maríu Rúriksdóttur og eiga þau tvær dætur, 14 og 9 ára.
HÓTEL Reynihlíð árið 1959, tíu árum eftir að það var byggt.
HÓTEL Reynihlíð eins og það lítur út í dag.
tengdasyni þeirra, Arnþóri Björns-
syni, og nú af Pétri. Aðspurður um
reksturinn segir hann að hann geti
verið mjög sveiflukenndur.
„Við höfum ekki fengið mikið af
styrkjum skal ég segja þér en okk-
ur hefur lánast að haga fjárfesting-
um eftir afkomugetu á hverjum
tíma og höfum getað staðið í skilum
við okkar skuldbindingar. Faró
dreymdi sjö mögur ár og sjö góð ár,
og þannig eru viðskiptin. Það hefur
ekkert breyst frá þeim tíma. En
hins vegar þá hefur þetta fyrirtæki
aldrei verið hætt komið, okkar lán
er hvað það er geysilega mikið að
gera í mjög stuttan tíma. Sem gerir
það að verkum að dæmið gengur
upp,“ segir Pétur. Hótelið er opið
allt árið um kring, þótt vetrar- og
sumarvertíðin ^ séu tvennt ólíkt í
huga Péturs. Á vetuma er umfang
allrar starfseminnar mun minna,
kaffihúsið er að jafnaði lokað en við
höfum það opið um helgar þegar
eitthvað sérstakt stendur til.
Pétur segir að brýnasta verkefn-
ið sem hann standi frammi fyrir
núna sé að skapa meiri umferð á
veturna en verið hefur hingað til.
„Það er mjög nauðsynlegt að auka
nýtingartímann en eins og er
stendur mesti álagstíminn yfir í tvo
mánuði á sumrin. í raun er þörf á
mun stærra gistirými í 30 daga á
ári, en það er ekki nægur tími til
þess að réttlæta þá miklu fjárfest-
ingu sem stækkun gistirýmis felur í
sér. Vandamálið er hve eftirspurn-
artíminn er stuttur og nú vinn ég
að því að nýta fjárfestinguna betur.
Það geri ég á tvo vegu, annars veg-
ar með langtímaverkefni og hins
vegar með skammtímaverkefni sem
spennandi verður að sjá hvernig
tekst til með,“ segir Pétur.
Skammtímaverkefni Péturs eru
ferðir sem hótelið, í samstarfi við
ferðaskrifstofuna Arctic Ex-
perience, mun standa fyrir í maí og
september á þessu ári. Um er að
ræða fjögurra daga ferðir þar sem
flogið er með breska ferðamenn frá
London til Keflavíkur, og þaðan
beint í Mývatnssveit. Gist er á hót-
elinu og er m.a. farið í hvalaskoðun
frá Húsavík og fjölbreytt náttúra
skoðuð í Mývatnssveit. Auk þess-
ara ferða er fyrirhuguð ferð um
næstu áramót þar sem 100 manns
frá Bretlandi munu njóta áramót-
anna í einstakri náttúrufegurð Mý-
vatns.
Jarðgufuböðin
endurvakin
Langtímaverkefni Péturs bygg-
ist á endurvakningu aldagamallar
hefðar sem skapar aukna afþrey-
ingu fyrir ferðamenn. Baðfélag Mý-
vatnssveitar hefur hug á að endur-
vekja jarðgufuböð sem lengi hafa
verið talin hafa góð áhrif á húð,
öndun og stoðkerfí líkamans. „Ef
okkur tekst að endurvekja þessa
hefð þá erum við komin með
dægradvöl sem hægt er að stunda
yfir veturinn óháð veðri. Auk þess
standa vonir til að með jarðgufu-
virkjun í Bjarnarflagi, sem Lands-
virkjun hefur sýnt mjög mikinn
áhuga undanfarið, verði hér komið
á fót baðaðstöðu við lón sem yrði í
mótvægi við Bláa lónið á Reykja-
nesi. Við teljum þennan kost einna
bitastæðastan til þess að skapa við-
skipti yfir vetrartímann,“ segir Pét-
ur.
Baðfélagið hefur þegai- komið
upp gufubaði á jarðhitasvæðinu við
Námaskarð og sækja þangað bæði
ferðamenn og sveitungar, en baðið
er með öllu náttúrulegt. Pétur set-
ur aðgengi ferðamanna að Mý-
vatnssvæðinu og viðskipti við hótel-
ið í beint samhengi enda eðlilegt að
taka mið af því hvernig hægt er að
auka ferðamannastraum í sveitina
við markaðssetningu á hótelinu.
Einn liður í því að auka viðskipti
á veturna hefur verið skipulögð
dagskrá um páskana þar sem farið
er í gönguferðir, skíðagöngu og
fleira, en hótelið hefur staðið fyrir
slíkri dagskrá sl. fjögur ár. I fyiTa
var einnig boðið upp á sérstaka
menningardagskrá og hyggst Pét-
ur halda því áfram. Segir hann að
þátttaka sé vaxandi í þessum við-
burði, upphaflega hafi tíu manns
tekið þátt en á síðasta ári voru þeir
orðnir stjötíu.
Þrátt fyrir nægar hugmyndir um
hvernig megi efla ferðamennsku í
Mývatnssveit í nánustu framtíð
hefur Pétur ekki setið auðum hönd-
um fram að þessu og í raun hefur
eftirspui-n eftir gistirými utan
hinna hefðbundnu ferðamánuða
aukist jafnt og þétt á síðustu árum.
Að sögn Péturs eru allar helgar
bókaðar frá jólum og fram yfir
páska í ár. „Það er í auknum mæli
að verða eftirsóknarvert að vera
með árshátíðir og fundarhöld hér á
hótelinu. Tímamir era að breytast
og samgöngur hafa batnað gífur-
lega og það er gott að halda fundi
hér. Hér er ró og næði og menn ná
yfirleitt mjög góðum árangri á
fundum hér því það er engin trafl-
un, auk þess sem allir eru á staðn-
um,“ segir Pétur.
Sveitakaffihús
sló í gegn
Hótel Reynihlíð tekur stakka-
skiptum á sumrin. Þá iðar allt af lífi
og um 50 manns koma til starfa á
hótelinu. í gamla veitingasalnum,
sem byggður var árið 1949 og held-
ur enn upprunalegu útliti, eru sæti
fyrir 120 manns. Þar er boðið upp á
dýrari veitingar og betri þjónustu.
Úti í Gamla bæ er hins vegar hægt
að fá léttari veitingar á vægara
verði. Þar rekur hótelið kaffihús
þar sem krárstemmning ríkir á
kvöldin.
„Árið 1996 breyttum við Gamla
bænum í kaffihús og endurgerðum
garðinn þar í kring. Frá 1971 hafði
verið rekin sjoppa og bensínsala í
húsinu, en svo ákváðum við að
breyta. Frá 1971 hafði verið bar
inni á hótelinu þar sem fólk kom
saman og gat fengið sér drykki.