Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR ÁSMUNDSSON + Sigurður Ás- mundsson, sendifulltrúi hjá ut- anríkisráðuneytinu, fæddist í Reykjavik 27. mars 1932. - Hann lést af völdum krabbameins á heimili sínu föstu- daginn 5. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ásmundur Ás- mundsson, f. 20.12. * 1907, d. 11.3. 1976, og Gróa Ásta Ja- fetsdóttir, f. 10.11. 1902, d. 19.5. 1988. Systkini Sig- urðar eru: Gunnar Jafet, f. 25.8. 1929, Gylfi, f. 13.9. 1936, og Guðrún, f. 27.8. 1940. Hinn 17. ágúst 1957 kvæntist Sigurður Kari Lund Hansen (síðar Karí Karólína Eiríksdótt- ir) sjúkraliða frá Kragerö í Nor- egi. Þau eignuðust fjórar dætur; Eddu Dagmar snyrtifræð- ing, f. 11.12. 1958, gift Sigurði K. Kol- beinssyni viðskipta- fræðingi, f. 11.2. 1960; Birnu Katrínu flugfreyju, f. 26.3. 1961, gift Erlingi Hjaltested húsa- smíðameistara, f. 20.1. 1960; Ellisif Astrid verslunar- maður, f. 17.10. 1968, sambýlismað- ur Hafliði Ragnars- son konditormeistari, f. 1.5. 1969; Sunna Miriam sölumaður, f. 28.4. 1977. Sigurður átti sex afabörn. Útför Sigurðar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánu- daginn 15. febrúar, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Pabbi er dáinn. Pabbi sem mark- að hefur djúp spor í hjörtu okkar og hug. Hann var vinur og leikfélagi, en fyrst og fremst pabbi í dýpstu merkingu þess orðs. Hálfgerður gutti alla tíð sem geymdi barnið í sjálfum sér og við fengum að njóta. Sannkallaður íslendingur sem bar virðingu fyrir landinu, sjálfstæðinu, fánanum. Við systurnar vorum ekki háar í loftinu þegar pabbi leiddi okkur upp að Öxarárfossi eða Lög- bergi. Sagði sögur af fornum hetj- um og kenndi okkur að bera virð- ingu fyrir íslenska fánanum. Hann mátti aldrei snerta jörð. Gjaman fylgdu ljóðlínur skáldsins Jónasar Hallgrímssonar um Fjallið Skjald- breið. ' Hann var mikill sögumaður. Hnyttnar sögur úr Vesturbænum voru hans uppáhald, draugasögur og sögur af sérstöku samferðafólki. Ýmislegt úr Hávamálum hafði hann í hávegum, t.d. „Ijúfur verður leið- ur“. Hann fór mikið í heimsóknir en staldraði stutt við. Tefldi eina skák, gaf börnum pening og sagði þá: „Þú verður að lofa einu,“ og þau horfðu á hann stóreyg. „Ekki setja pening- inn í sparibaukinn, bara kaupa nammi fyrir alltsaman.“ Þetta líkaði litlum eyrum að heyra. Pípukarlinn hann pabbi, veikur, máttfarinn og þreyttur tók síðasta smókinn úr pípunni sinni kvöldið íyrir dauða sinn. Við systumar blés- um reyknum yfir hann og gamli glettnissvipurinn var á sínum stað. Einnig lásum við eitt uppáhalds- kvæðið hans, „Skúlaskeið" eftir Grím Thomsen. Að mörgu leyti minnti það á erfitt en stutt hlaup hans sjálfs undan krabbameininu. Og svo með blóðga leggi, brostin lungu á bökkum Hvítár féll hann dauður niður. Mamma og við systurnar héldum utan um hann þar til bláu augun, blárri en hafið og himinninn lögðust aftur og voru ei meir. Við kveðjum okkar strákslega, gefandi og góða pabba með miklum trega. Hann leiðir nú litlu börnin á himnum í norsku peysunni, með hattinn og pípuna, sumarbústaðarluktina og kannski smá pening í vasa. Far vel, faðir og vinur. Þínar dætur, Edda, Birna, Ellisif og Sunna. Sigurður Ásmundsson, tengda- faðir minn, lést á heimili sínu föstu- daginn 5. febrúar sl. eftir erfiða bar- áttu við krabbamein sem hann greindist með í september á síðasta ári. Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega þjónustu. Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings sem er. Útfarar- stofa íslands er aðstandendum innan handar um alla þá þætti, er hafa ber i huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar Útfararstofu Islands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við útfararþjónustu um árabil. Útfararstofa íslands sér um; Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við prest og aðstandendur. Flytja hinn iátna af dánarstað i líkhús. Aðstoða við val á kistu og Kkklæðum. Undirbúa Ifk hins látna í kistu og snyrta ef með þarf. Útfararstofa ísiands útvegar: Prest. Dánarvottorð. Stað og stund fyrir kistulagningu og útför. Legstað í kirkjugarði. Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara og/eða annað listafólk. Kistuskreytingu og fána. Blóm og kransa. Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum. Líkbrennsluheimild. Duftker ef líkbrennsla á sér stað. Sal fyrir erfidrykkju. Kross og skilti á leiði. Legstein. Flutning á kistu út á land eða utan af landi. Flutning á kistu til landsins og frá landinu. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands - Suðurhlíð 35-105 Reykjavík. Sími 581 3300 - allan sólarhringinn. Fyrstu kynni okkar Sigurðar urðu í Húsafelli um páska 1984. Þá hafði ég nýlega kynnst elstu dóttur hans, Eddu Dagmar, og var, í fyrsta sinn kynntur formlega fyrir foreldr- um hennar og fjölskyldu. Áður fyrr hafði ég lauslega kynnst Sigurði í badmintonhúsi TBR þar sem hann þeytti fjaðrir í allar áttir með sínum nánustu félög- um í svokölluðum „Þursaflokki". Var það oft hin ágætasta skemmtun að fylgjast með tilþrifum þeirra fé- iaga. Það fór fljótt vel á með okkur Sigurði enda líkaði honum vel að sögn þegar ég biðlaði til dóttur hans samvæmt fornum hefðum. Hann samþykkti beiðni mína og við Edda giftum okkur síðar á árinu. Sigurð- ur stjórnaði brúðkaupsveislunni með glæsibrag enda var hann gest- gjafi ásamt Karí. Þau höfðu bæði undirbúið allt mjög vel enda hefði Siggi ekki mátt til þess hugsa að elsta dóttirin nyti ekki dagsins til hins ýtrasta. Þar kynntist ég manni sem vildi vanda verk sín til hins ýtrasta gagnvart sínum nánustu. Eftir að við Edda hófum búskap vandi hann tíðar komur sínar á heimili okkar fyrst á Selvogsgrunn og nú síðast á Sunnuveg. Eftir að frumburður okkar fæddist fjölgaði heimsóknum hans til muna og þótti mér nóg um á tímabili. En þannig var Siggi, hann vildi fylgjast reglu- lega með sínu fólki og vita að öllum liði vel. Oft stoppaði hann stutt við, tróð í eina pípu, þáði gjarnan eitt- hvað fljótandi og var svo farinn í næstu heimsókn fyrr en varði og jafnvel án þess að ná að kveðja alla. Mér er þó efst í huga hversu áhuga- samur hann var að sækja afabörnin sín á sunnudagsmorgnum og fara með þau í barnamessu í Áskirkju svo ekki sé minnst á tíðar ferðir með þær í sundlaugarnar þar sem keyptar voru pyisur og ís í ofanálag. Siggi var sannkallaður eftirlætisafi alira afabama sinna en svo kaus hann að kalla þau. Árið 1987 festu Siggi og Karí sér land í Efstadal, rétt austan við Laugarvatn og reistu þar sumarbú- stað tveimur árum síðar. Siggi naut þá ómetanlegrar aðstoðar Erlings Hjaltested tengdasonar síns við uppbygginguna en Birna og Elii slógu einnig til og byggðu sér bú- stað á sama stað. Þannig lágu leiðir þeirra saman mörgum stundum í Efstadal en hvergi mér vitanlega leið Sigga betur en uppi í bústað. Hringdi hann gjarnan til mín til að segja mér hversu vel honum liði og gilti einu hvort ég var á landinu eð- ur ei. Stundum átti hann það til að fara einn síns liðs með litla tösku sem í voru tannbursti, flatkökur og örlítil brjóstbirta. Hann skildi ekki alltaf tilstandið sem fylgir þvi að taka með sér hafurtask í bústaðinn. Hann vildi bara hafa þetta einfalt og njóta stundarinnar. Eg skildi hann vel þar sem ég hef átt því láni að fagna að njóta sumarbústaðar- veru frá barnæsku, fyrst með for- eldrum mínum og síðar eiginkonu og börnum. Síðustu árin hefur það verið fóst venja að öll fjölskyldan hittist um verslunarmannahelgi í Efstadal til að borða góðan mat og skemmta sér. Við munum halda því áfram þótt Sigga njóti ekki lengur við en aldrei getur það þó orðið eins og áður. Sigurður varð stúdent frá Versl- unarskólanum árið 1953. Eftir það lá leiðin í Háskólann þar sem hann lagði stund á læknisfræði um nokk- urt skeið en sneri sér síðan að öðr- um störfum þar til hann var ráðinn til starfa hjá Sindrastáli árið 1958 af stofnanda og eiganda fyrirtækisins, Einari Ásmundssyni, sem var föð- urbróðir Sigga. Einar hafði mikið dálæti á Sigga enda var hann að sögn þeirra sem ég hef talað við bæði skemmtilegur samstarfsfélagi auk þess að vera sá maður sem Ein- ar gat ávallt treyst á. Árið 1986 söðlaði Siggi um þegar hann var ráðinn deildarstjóri hjá varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins en þar starfaði hann í fimm ár þar til hann flutti sig um set innan ráðu- neytisins þegar hann var skipaður sendifulltrúi árið 1991. Árin í ráðu- neytinu reyndust Sigga vel og þar kynntist hann fjölda góðra starfs- manna, eignaðist góða vini ásamt því að eiga samskipti við fjölmarga erlenda aðila. Sigurður var vin- margur enda alþýðlegur, heiðarleg- ur og viðmótshlýr svo ekki sé minnst á sérstaka kímnigáfu hans sem átti sér fáa líka. Eg veit að stórt skarð er höggvið í vinahóp Sigga, sérstaklega hjá hans nánustu vinum og gömlu skólabræðrum, skák- og badmintonfélögum. Sigurður naut mikillar velvildar og virðingar frá fjölskyldu Karí í Noregi. Eftir að þau giftu sig þar árið 1957 voru þau hjón tíðir gestir í Kragerö (200 km sunnan Óslóar) og ferðuðust óhikað þangað ár eftir ár með dæturnar á sjöunda og áttunda áratugnum. Við Edda höfum haft mikil og góð samskipti við fjölskyid- una á undanfornum árum og dvalið þar nokkrum sinnum. Eg veit að norska fjölskyldan saknar Sigga sárt. Þannig hafa foreldrar Karíar svo og öll sjö systkyni hennar heim- sótt Island á síðastliðnum -30 árum og átt einstakar stundir með Sigga hér heima sem og í Noregi. Ekki síst öidruð tengdamóðir hans, Miri- am Lund Hansen, einstök kona sem ég veit að hefur ávallt litið á Sigga sem einn sona sinna. Gamla konan hefur fylgst náið með að undan- fömu. Það var henni mikil harma- fregn þegar henni var tilkynnt and- látið. Sigurður háði hetjulega barátta við krabbamein í brisi sem hann greindist með í lok september sl. Hann vissi mæta vel hvert stefndi en vildi samt ekki gefast upp. Mér verður ávallt minnisstætt af hversu mikilli karlmennsku og reisn Siggi tók ótímabærum örlögum sínum. Þegar endaiokin nálguðust áttum við tal saman. Hann bað mig að ganga frá vissum málum fyrir sig því hann vildi skilja við með „hreint borð“. Þetta endurspeglaði aðaleinkenni Sigga sem voru nám- kvæmni og heiðarleiki. Fjölskyidan tók ásamt hjúkrunarfólki virkan þátt í að útvega alia þá hjálp og að- hlynningu sem hægt er að fá á heimili Sigga og Karí síðustu mán- uðina. Þáttur heimahlynningar Krabbameinsfélagsins var þar mjög mikilvægur en mér er sagt að það hafi gefið Sigga fleiri lífdaga hversu vel Karí og dæturnar hlúðu að honum. I desember sl. átti Edda 40 ára afmæli. Siggi var óvenju hress á þessum degi og tók þátt í afmælinu ásamt öðrum gestum. Hélt hann þar eftirminnilega ræðu til dóttur sinnar en slíkur var siður hans þegar hann fagnaði áföngum í lífí nákominna ættingja eða vina. Eg veit að sá dagur var honum mikils virði ekki síst fyrir þær sakir að fá að hitta allan vinahóp okkar fjöl- skyldunnar ásamt Thorvald mági sínum sem kom sérstaklega til landsins til að fagna frænku sinni og ekki síður til að hitta Sigga. Eft- ir afmælið tók að halla undan fæti og um jólaleytið, aðeins 2 vikum síðar, var heilsunni tekið að hraka. Að vanda var honum boðið í ára- mótahóf okkar Eddu á gamlárs- kvöld ásamt fjölskyidunni og for- eldrum mínum. Hann var orðinn of veikur til að njóta kvöldsins með okkur. Á miðnætti kom Siggi út á svalir á Sunnuvegi og fagnaði ára- mótunum með okkur. Öllum var ljóst að það væri hann að gera í síð- asta skipti. Flestir áttu erfitt en Siggi tók öllu með meiriháttar æðruleysi. Hann var í hópi sinna nánustu og betra var ekki hægt að hafa það. Allir stöppuðu í hann stálinu og hvöttu til dáða í hinni ill- vígu glímu. í slíkri báráttu er mik- ilvægt og gott að finna hlýja strauma frá þeim sem manni þykir vænst um. Að leiðarlokum kveð ég góðan dreng og þakka honum ógleyman- legar og jafnframt lærdómsríkar samverstundir. Þótt við værum ekki alltaf sammála um aðferðir við lausn vandamáia lífsins og Sigurði fyndist oft nóg um dirfsku mína og daglegar athafnir í viðskiptum varð okkur aldrei sundurorða í þau tæp- lega 15 ár sem við þekktumst. Við virtum hvor annars skoðanir. Nú þegar Sigurður er horfinn á fund feðra sinna stendur samheldin fjöl- skylda eftir sem lætur ei deigan síga, stendur saman sem einn mað- ur við hlið Karí í hennar þungbæru sorg og styrkir hana og aðstoðar eftir fremsta megni. Afabörnin hafa flest kynnst Sigga það vel að minningin verður þeim ógleymanleg um aldur og ævi. Yngsti sólargeisli afa síns, Sigurður Erik 2 ára, mun án efa þiggja meiri vitneskju um afa sinn þegar fram líða stundir. Söknuður dætra minna er mikill en þær eru á ólíkum aldri og skilja því hlutina misvel. Þó enginn geti komið í stað afa Sigga eiga þær, eins og hin barnabörnin sem betur fer öll annan afa og tvær ömmur. Þessa dagana er það m.a. hlutverk okkar tengdasona Sigurðar að hug- hreysta börnin ásamt þvi að standa þétt við hlið eiginkvenna okkar og elskulegrar tengdamóður. Ekkert líf er án dauða og öll stöndum við á fætur á ný því í fyll- ingu tímans ná öll sár að gróa. Þannig er lífið, sífelld barátta við sambland gleði og sorgar, árangurs og erfiðleika. Allt leitar í og úr jafn- vægi til skiptis. Eg kveð tengdafóður minn með miklum trega og mun sakna hans sárt. Hann hefur markað djúp spor í líf mitt og dætra minna. En sökn- uður Eddu minnar er meiri en orð fá lýst. Svo náið var samband þeirra feðgina og ég veit hvers virði það er. I dag er mér þó það mikilvægast að hann hefur átt stærstan þátt í að gera konuna mína að þeirri heiðurs- manneskju sem ég kynntist íyrir tæpum 15 árum. Eg ber þó kistu hans að gröf, ánægður yfir því að hann hefur fengið þá hvíld sem hon- um bar og við þiggjum öll frá al- mættinu sem eins konar laun fyrir lífið hér á jörðu. Ég trúi því að við taki annað tilvistarstig þar sem æðri hlutir gerast og hlakka til end- urfunda við hann. Karí hefur ávallt verið hans styrka stoð í lífmu. Frammistaða hennar á undanförnum vikum er ekki bara aðdáunarverð heldur okk- ur öllum góð leiðsögn í því lífi sem framundan er. Ég votta henni mína dýpstu samúð svo og mágkonum mínum Bimu, Ellisif og Sunnu. Guð styrki ykkur allar. Einnig sendi ég systkinum Sigurðar; Gunnari, Gylfa og Guðrúnu, ásamt fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég óska þess að sá sem öllu ræður umvefji Sigurð Ás- mundsson þeim mjúku höndum sem hann umvafði aðra í sínu lífi. Það eru laun réttlætisins. Blessuð sé minning hans. Sigurður K. Kolbeinsson. Mín fyrstu kynni af Sigurði Ás- mundssyni voru þegar ég var 10 ára. Ég var með kústskaft í hendi og var að elta stelpu sem sennilega hefur verið að stríða mér. I sama mund og ég ætlaði að slá til hennar kom þessi ógnvekjandi maður að mér fannst, þreif mig upp á herðun- um og gerði mig svo hræddan að ég vogaði mér ekkert slíkt framar í kringum Kleppsveg 142. Nokkrum árum síðar keypti faðir minn söluturn þar rétt hjá og vann ég þar á kvöldin. Fór ég þá aftur að hitta þennan mann. Satt best að segja var ég hálfhræddur við hann til að byrja með. Vandaði ég mig sérstaklega við að gefa honum til- baka, því hann var fljótur að leið- rétta vitleysur sama á hvorn veginn þær voru. Ekki grunaði mig þá að ég ætti eftir að verða tengdasonur þessa manns með pípuna. En það varð nú raunin. Það var gott að eiga Sigurð sem tengdafóður, hann var skemmtileg- ur og mikill húmoristi og úr hinum vandræðalegustu augnablikum gat hann gert grín að öllu saman með fleygum setningum. Ég kunni margt að meta í fari Sigurðar. Eitt af því var að segja meiningu sína umbúðalaust sama hver átti í hlut. Sigurður setti það sem skilyrði fyrir inngöngu tengdasona í íjöl- skylduna að þeir kynnu að tefla. Það voru ófáar skákirnar sem við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.