Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Sjöunda Listasumarið að hefjast Norðlensk mynd- list í Ketilhúsinu LISTASUMAR á Akureyri, hið sjöunda í röðinni, hefst formlega á laugardaginn, 26. júní, með mynd- listarsýningu og tónlist, og síðan rekur hver viðburðurinn annan þar til 29. ágúst, þegar Listasumri lýk- ur, á afmælisdegi Akureyrarbæjar. Það er samsýning norðlenskra myndlistarmanna sem hefst í Ketil- húsinu á laugardag kl. 16. Um er að ræða þemasýninguna Matur. Morgunblaðið/Skapti FINNUR Magnús Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Gilfélagsins, með veggspjald Listasumars 99 - við hlið veggspjalds fyrsta Lista- sumarsins, fyrir sjö árum. Við opnunina dansar Arngrímur Bjarnason spunadansari og ávarp flytur Haraldur Ingi Haraldsson, fráfarandi forstöðumaður Lista- safnsins á Akureyri. Kórinn Voces Borealis syngur. Myndlistarmenn sem verk eiga á sýningunni nota flestar tegundir tækni við verk sín. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Svan- ur Sigfússon, en þátttakendur eru Aðalheiður S. Eysteinsdóttir frá Akureyri, Aðalsteinn Svanur Sig- fússon, Akureyri, Aðalsteinn Þórs- son, Hollandi, Anna María Guð- mann, Akureyri, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Varmahlíð, Anne Kampp, Akureyri, Bjarni F. Ein- arsson, Reykjavík, Erlingur Jón Valgarðsson, Akureyri, Gamli Elg- ur, Eyjafirði, Guðrún H. Bjarna- dóttir - Hadda, Akureyri, Guðrún Þórisdóttir - Garún, Olafsfirði, Gunnar Kr. Jónasson, Akureyri, Hallgrímur Ingólfsson, Akureyri, Hrefna Harðardóttir, Akureyri, Jón Laxdal Halldórsson, Akureyri, Helga Björg Jónasdóttir, Seltjarn- arnesi, Hörður Jörundsson, Akur- eyri, Kristjana F. Arndal, Akur- eyri, Kristján Pétur Sigurðsson, Akureyri, Jóhann Ingimarsson, Akureyri, Jonna, Akureyri, Jónas Viðar, Akureyri, Lárus H. List, Akureyri, Ólafur Þórðarson, Akur- eyri, Óli G. Jóhannsson, Eyjafjarð- arsveit, Sólveig Baldursdóttir, Ak- ureyri, Valva Gísladóttir, Svarfað- ardal, Þórarinn Blöndal, Akureyri, Þórey Eyþórsdóttir, Akureyri og Þráinn Karlsson, Akureyri. Þrjár íyrstu vikur Listasumars eru tileinkaðar unga fólkinu, og á laugardag kl. 17 verður einnig opn- uð sýning í Deiglunni þar sem fram kemur hljómsveitin Toy Machine, ótengd. Myndlistin þar spannar allt frá leikskólaverkum að myndlist framhaldsskólanema. Báðar sýningarnar eru opnar frá kl. 14 til 18 daglega til 13. júlí, en 17. júlí verða opnaðar nýjar myndlist- arsýningar, bæði í Deiglunni og Ketilhúsinu. ______Akureyrarbær______ Húsnæði óskast til leigu_______________ Óskað er eftir 2-3 herbergja íbúð til leigu frá næstu mánaðamótum og helst sem næst miðbænum. Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála í síma 460 1457. Blaðberar Blaðbera vantar á Eyrina og í afleysingar víðsvegar um bæinn. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 4611600. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Kristj án LIKAN af seglskútunni Standard, sem talið er að liggi á botni Polisins á Akureyri. Enn stækkar skipastóll Samherja - eða hvað? SKIPSFLAK sem kafararnir Er- lendur Bogason og Öivind Kaasa fundu á botni Poilsins á Akureyri í desemberbyrjun árið 1996, er að öll- um líkindum í eigu útgerðarfyrir- tækisins Deutsche Fischfang Union, DFFU, dótturfyrirtækis Samherja í Þýskalandi. Erlendur hefur unnið að því að leita upplýsinga um flakið, sem er af seglskútu og hann telur nær öruggt að þessi skúta hafi verið í eigu þýsks útgerðarfyrirtækis sem síðar sameinaðist öðru þýsku fyrirtæki undir merkjum DFFU. Það má því segja að enn eitt skipið hafi bæst í flota Samherja hf. Þýska fyrirtækið Samherji GmbH er að fullu í eigu Samherja hf. en þýska fyrirtækið á 99% hlut í DFFU. Líkan af skútunni, sem talið er að liggi á sjávarbotni Pollsins, er nú staðsett á skrifstofu Samherja á Akureyri en skútan bar nafnið Standard og var á sínum tíma í eigu fyrirtækisins NORDSEE. Finnbogi Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja GmbH sagðist hafa tekið eftir þessu líkani á skrifstofu sinni er hann kom til starfa í Þýskalandi og sagði hann það hafa verið farið að láta á sjá. Gerum tilkall til flaksins „Það var hins vegar með teiknuð- um íslenskum fána og ég héit fyrst að þetta væri eitthvert spaug en síð- an hefur ýmislegt verið að koma í ljós. Við vitum þó ekki hvort þetta er skipið en það er margt sem bend- ir tii þess og við verðum því að gera tilkall til flaksins," sagði Finnbogi, sem taldi þetta hið skemmtilegasta mál. Erlendur telur sig hafa upplýs- ingar um að þetta sé skútan Stand- ard og að sagan og stærð skipsins gæfi sterkar vísbendingar þar um. Hann hefur gert ýmsar mælingar á flakinu og sagði að kjölurinn væri HIÐ árlega Pollamót Þórs og Flug- félags Islands fer fram dagana 2. og 3. júlí næstkomandi á íþróttasvæði Þórs á Akureyri. Pollamótið er knattspyrnumót 30 ára og eldri, þar sem keppt er í tveimur flokkum; annars vegar flokki 30-40 ára og hins vegar svokallaðri Lávarðadeild, fyrir 55 metra langur og að heildarlengd- in væri því yfir 60 metrar. Þá er ástand flaksins nokkuð gott miðað við allan þann tíma sem það hefur verið neðansjávar. Óvíst með eignarhaldið Erlendur sagði að komið hafí til tals að reyna að ná upp ankeri skút- unnar og eins að skoða kjölgrjótið, sem gæti einnig gefið frekari vís- bendingar. Flakið er um 100 metra suður frá fjörunni við Veitingahúsið Pollinn og eru um 16 metrar niður að því. Erlendur sagði það mjög skemmtilegt að Samherji skildi tengjast skipinu á þennan hátt en hins vegar væri óvíst með eignar- hald á því. „Það vissi enginn hvar skútan var fyrr en ég fann hana og því var eins farið með hverastrýt- una sem ég fann í Eyjafirðinum," sagði Erlendur. Samkvæmt þýskum gögnum, sem til eru á skrifstofu Samherja á Ak- ureyri, hóf þýska fyrirtækið NORDSEE síldveiðar í hringnót við ísland sumarið 1905. Móðurskip fyrir þessar veiðar var seglskipið Standard, sem smíðað var í Band- aríkjunum árið 1876. Skipið var gert klárt í Norderham og fór ásamt fimm gufuskipum til Islands. Fyrsta ferðin til íslands var mikill viðburður í Norderham og safnaðist mikill mannfjöldi á bryggjuna er skipið lagði úr höfn. Gufuskipin drógu móðurskipið til íslands og til baka aftur að lokinni sumarvertíð hér við land, sem stóð frá 15. júlí til 15. september. Kyrrsett í fyrri heimsstyrjöldinni Móðurskipið Standard lá á Poll- inum en veiðiskipin fóru á miðin og lönduðu afla sínum um borð í móð- urskipið. Þar var síldin unnin og henni pakkað í tunnur. A hverri vertíð var pakkað í 4.000-6.000 tunnur og var stærstur hluti þeirra 40 ára og eldri. Síðasta tækifæri til að tilkynna þátttöku á Pollamótið að þessu sinni er í dag, fimmtudag, en síðustu ár hafa verið um 60 lið á mót- inu. Hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar spilar á lokahófi Pollamótsins sem verður í íþróttahöllinni. fluttur til Svíþjóðar en Standard kom með afganginn til Norderham, þar sem síldin var réykt. Mjög mikil eftirspurn var eftir íslands- síldinni í búðum NORDSEE, sem var þekkt undir nafninu „laxsíld." Er fyrri heimsstyrjöldin skall á árið 1914 var sfldveiðum með hringnót hætt. I byrjun stríðsins, í ágúst árið 1914 var Standard kyrr- sett á Akureyri en í óveðri árið 1917 losnaði skútan frá, rak á land og skemmdist. Fleiri skipsflök í firðinum Erlendur hefur fundið fleiri skipsflök í Eyjafirðinum, eitt í Krossanesvíkinni og annað við Þórsnes, sem er nokkru norðar. Þá er skipsflak vestan við seglskútuna á Pollinum og telur Erlendur að þar geti verið hinn svokallaði barkur, sem strandaði í fjörunni við Strand- götu fyrr á öldinni. Þá er skipsflak við Hrísey, sem Erlendur telur lík- legt að geti tengst þeim ósköpum sem gengu yfir í gjörningaveðrinu svokallaða árið 1884. Gengið og hjólað FERÐAFÉLAG Akureyrar býður upp á tvær ferðir á laug- ardaginn, 26. júní. Annars veg- ar er um að ræða reiðhjólaferð og hins vegar gönguferð. Hjólað verður frá Akureyri fram í Hörgárdal þar sem verður grillað og borðað saman og síðan er hjólað heim aftur. Ferðin er nokkuð krefjandi en sögn tilvalin fyrir vana hjól- reiðamenn. Gönguferðin verður frá Vík- urbæjum á Árskógsströnd inn með Eyjafirði að ósum Hörgár. A leiðinni verða mannvistar- leifar skoðaðar, og komið við á Hjalteyri. Fararstjóri verður Þórir Haraldsson kennari við Menntaskólann á Akureyri. Upplýsingar og skráning í ferðir er á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar að Strandgötu 23, s. 462 2720. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 16 til 19. Pollamót Þórs á Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.