Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 53^ FÓLK í FRÉTTUM MYNDBOND Heilbrigð of- sóknarkennd Óvinur ríkisins (Enemy of the State)_ S p e n ii u m y n d ★★★ Framleiðsla: Jerry Buckenheimer. Leiksljórn: Tony Scott. Handrit: David Marconi. Kvikmyndataka: Dan Mindel. Tónlist: Trevor Rabin og Harry Greg- son-Williams. Aðalhlutverk: Will Smith, Gene Hackman og Jon Voight. 126 mín. Bandarísk. Sam-myndbönd, júní 1999. Aidurstakmark: 16 ár HÁTÆKNIN teygir óteljandi anga sína inn í líf nútímamannsins á hverjum degi allt hans líf og engin leið er að vita hverjir eru að fylgjast með okk- ur. Samsæriskenn- ingar varðandi tölvunet og gervi- tungl eru vinsælar og margar þeirra komast á hvíta tjaldið. „Enemy of the State“ er ekta stórhasarmynd sem nærist á þessari ofsóknarkennd. Petta er mjög dæmi- gerð mynd að flestu leyti og fátt sem kemur á óvart í sögunni. Þó tekst þokkalega að byggja upp spennu og leikarahópurinn vinnur ágætlega með sæmilega skrifaðar persónur. Will Smith er orðinn einn af stóru gaurunum í hasargeiranum og Hack- man og Voight kunnuglegir í hlut- verkum sínum. Jerry Bruckheimer og Tony Scott eru sannir atvinnu- menn í hasarmyndagerð og bregst ekki bogalistin hér, þótt myndin sé helst til löng og risti ekki dýpra en sem nemur stundarafþreyingu. Guðmundur Ásgeirsson Þetta er svolítið hættu- ÞAÐ þurfa ekki margar hljómsveitir að glíma við innbyrðis hrepparíg eins og sunnlenska sveitin Á móti sól, sem verður með útgáfutónleika á diskinum 1999 á Gauknum í kvöld. Björgvin Hreiðarsson söngvari er úr Reykjavík, Stefán Þórhalls- son trommari er frá Hveragerði, Heimir Eyvindarson hljómborðs- leikari er frá Selfossi, Sævar Helgason gítarleikari er frá Hvera- gerði og Þórir Gunnarsson bassa- leikari er frá Selfossi. „Þótt við æf- um í Reykjavík halda menn auðvit- að með sínum byggðarlögum," seg- ir Heimir, hljómborðsleikari og lagahöfundur. Á diskinum eru þrettán frumsam- in lög, ellefu ný og tvö eldri sem nefnast Djöfull er ég flottur í endur- bættri útgáfu og Stelpur, sem hingað tO hefur aðeins verið til á útvarps- stöðvum. Eruð þið ekkert hræddir við töl- una 13? „Við erum bara svo vitlausir að við pældum ekkert í því,“ svarar Heim- ir. „Eg sé það núna að þetta er svo- lítið hættulegt með aldamótin yfír- vofandi og allt það.“ Verðið þið á ferðalagi í sumar? „Já, það er orðið fullbókað og við erum bara að ganga frá lausum end- um með verslunarmannahelgina. Svo verðum við að spila í haust og vetur, - og um ókomna tíð.“ Eruðþiðþá atvinnumenn? „Við erum orðnir það í dag; það þýðir ekkert annað,“ svarar Heimir mannalega. Hver er forsagan aðþessariplötu? „Við erum helst frægir fyrir tveggja mínútna lög um uppáferðir; Á þig og Djöfull er ég Uottur. Við höfum verið starfandi síðan 1996 og fyrsta platan kom út árið 1997 og nefndist Gumpurinn. Við viljum ekk- ert af henni vita,“ segir Heimir sposkur. „Hún var með afbrigðum léleg,“ bætir hann við og hlær. „Lík- lega lélegasta plata í heimi.“ Hvað svo? „I fyrrasumar vorum við með tvö lög á safnplötunni Svona er sumarið frá Skífunni og fengum góðar viðtök- ur, tróðum m.a. upp á bindindismót- inu í Galtalæk og á þjóðhátíð í Eyj- um. Það má segja að við höfum verið á fullu síðan.“ Hvernig er nýja platan? „Hún fær örugglega þá dóma að vera sundurlaus og ekki nægilega heilsteypt en það er nú af því við er- um að þreifa fyrir okkur með nýjar stefnur," segir Heimir hinn róleg- asti. „Við höfum fram að þessu aðal- lega verið að spila „ska“-tónlist í svipuðum dúr og Madness." Og svo er það útgáfuteitið á Gauknum... „Það verður opið fyrir útvalda frá 21 til 23 og svo verða tónleikar fyrir alla frá 23 til 1. Er svolítið stuð í ykkur? „Jújú, við erum eitt af þessum skrípaböndum frá Selfossi... með gráa rönd á bílunum okkar.“ Var nafnið hugsað sem andóf við hljómsveitir sem bendlaðar eru við sól? „Einmitt,“ svarar Heimir. „Þetta átti að vera svoleiðis og snerist svo algjörlega upp í andhverfu sína; við urðum eitt af þessum böndum. Þannig að nú orðið flokkum við þetta undir klúður." Salinger Ástarbréf til sölu! f ÁSTARBRÉF bandaríska rithöfund- arins J.D. Salinger voru seld á upp- boði á þriðjudag fyrir tæpar 11 millj- ónir króna. Kaup- andinn, Peter Norton, hefur boð- ist til að skila bréf- unum til Salinger sem er þekktur fyrir að gæta einkalífs síns með kjafti og klóm. Bréfin voru skrifuð snemma á áttunda, áratugnum til rit- höfundarins Joyce Maynard er þau áttu í ástarsambandi. Hún ákvað að setja bréfin á uppboð svo hún gæti borgað fyrir háskólagöngu barna sinna. „Með því að selja bréfin er ég einnig að leggja til hvílu atburði sem hafa legið þungt á mér öll mín full- orðinsár," bætti hún við. Joyce var aðeins 18 ára er þau hófu samband sitt en Salinger var þá 63 ára. í bréf- unum lýsir hann tilfinningum sínum í hennar garð en einnig lætur hann hugann reika um hversdagslega at- burði í lífi sínu. Joyce virðist liggja mikið á hjarta því á síðasta ári gaf hún út bókina ,At Home in the World“ þar sem hún ræddi í fyrsta skipti opinberlega um samband sittf* við Salinger. Kaupandi bréfanna er hugbúnað- arframleiðandi sem kominn er á eft- irlaun. Hann hefur boðið Salinger að skila þeim ef honum sýnist svo en hann er nú áttræður. „Ég vildi að einhver sem virðir ósk Salingers um næði keypti bréfin," sagði Norton. „Ég ætla mér að skila honum bréfun- um eða gera það sem hann telur rétt- ast í þessu máli.“ Salinger er best þekktur fyrir bók sína Bjarvætturinn í grasinu en ekk- ert hefur komið út eftir hann síðan* árið 1965. Kringlunni VERO MOÐÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.