Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 33
32 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson, SENDIRÁÐ í TÓKÝÓ AUKIÐ mikilvægi Asíumarkaðar fyrir útflutnings- verzlun íslendinga er ótvírætt. Fyrir nokkrum árum ákváðu stjórnvöld að opna sendiráð í Peking og var sá kostur valinn vegna þess að mun ódýrara var að opna þar sendiráð en t.d. í Tókýó. Hins vegar er verzlun mjög mikil við Japani og nú hefur Davíð Oddsson forsætisráðherra tilkynnt, í tengslum við heimsókn Keizo Obuchi forsætis- ráðherra Japans hingað til lands, að Islendingar opni sendiráð í Tókýó árið 2001 og hefst undirbúningur að því þegar á næsta ári. Jafnframt munu Japanir fljótlega opna upplýsingaskrifstofu hérlendis. Mikilvægi þess að halda góðum tengslum við efnahags- legt stórveldi á borð við Japan ætti ekki að fara á milli mála. Japanir eru miklir fiskneytendur og kaupa af okkur mikið magn sjávarafurða. Við höfum líka lært mikið af þeim og öðrum Asíuþjóðum um nýtingu hráefnisins. Pess- ar þjóðir neyta fískafurða með öðrum hætti en við gerum. Og þess vegna getur verðmæti útflutningsins orðið meira en ella. Þær eru líka kröfuharðar um gæði og ferskleika eins og glöggt kom fram í viðtölum við útflytjendur í sér- útgáfu Morgunblaðsins um Japan, sem fylgdi blaðinu sl. sunnudag. Opnun sendiráða í löndunum báðum á áreiðanlega eftir að treysta mjög samskipti landanna og þau stjórnmála- legu tengsl milli þeirra, sem nauðsynleg eru. Það er auð- vitað dýrt að reka slíkt sendiráð í Tókýó, en það er líka dýrt að reka sjálfstætt ríki og halda uppi eðlilegum sam- skiptum við þjóðir veraldar. Sterk nærvera íslands í Asíu með sendiráðum í tveimur höfuðríkjum álfunnar er líkleg til þess að auðvelda okkur að byggja upp útflutnings- markaði í þessari fjarlægu heimsálfu á nýrri öld. FORYSTA íEVRÓPURÁÐI HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra, sem gegnir nú formennsku í ráðherranefnd Evrópuráðsins, flutti í gær skýrslu á þingmannasamkomu Evrópuráðsins í Strassborg auk þess að sitja fyrir svörum og svara spurn- ingum þingmanna. Utanríkisráðherra ræddi þar hlutverk Evrópuráðsins við að efla mannréttindi og byggja upp lýðræðislega stjórnarhætti á Balkanskaga og greindi jafnframt frá ferð sinni og fulltrúa Evrópuráðsins til Bosníu-Hersegóvínu um síðustu helgi. Lagði hann áherslu á mikilvægi stækk- unar Evrópuráðsins og lýsti yfir stuðningi við aðildarum- sóknir Armeníu, Aserbaídsjan, Bosníu og Mónakó, að uppfylltum þeim skilyrðum, er Evrópuráðið setur fyrir aðild. Evrópuráðið getur gegnt mikilvægu hlutverki við að að- laga þjóðirnar á Balkanskaga samfélagi Evrópuríkja að nýju. Þau grundvallarmarkmið um virðingu fyrir mann- réttindum og lýðræði, sem Evrópuráðið stendur vörð um, eru fyrsta skrefið á þeirri leið að verða aðilar að þeim hóp. Líkt og fram kom í samtali við Halldór Ásgrímsson í Morgunblaðinu í gær er hins vegar ekki einfalt fyrir hin stríðshrjáðu ríki Balkanskaga að leggja gamlar deilur til hliðar og taka upp nýja siði. „Að mínu mati er á því allt of mikill áhugi að halda þjóðarbrotunum aðskildum. Jafnvel þótt þeir séu með sameiginlega stjórn á ýmsum sviðum er sú tilhneiging ríkjandi að halda beri fólkinu aðskildu,“ sagði utanríkisráðherra. Hann benti einnig á að miklar vonir væru bundnar við aðild meðal íbúa landsins. Þótt íbúar Bosníu væru ósammála um margt væru þeir sam- mála um að framtíðin lægi í „félagsskap með öðrum Evr- ópuþjóðum". Utanríkisráðherra hefur lagt áherslu á að reynslan af uppbyggingunni í Bosníu, jafnt uppbyggingu efnislegra verðmæta sem lýðræðislegra stofnana, muni koma að not- um við það umfangsmikla starf sem fyrir höndum er varð- andi Kosovo. Það er ánægjulegt að Islendingar skuli hafa nýtt sér það tækifæri sem formennskan í Evrópuráðinu er til að koma að þessum málum með beinum hætti. Það gef- ur íslensku utanríkisþjónustunni færi á að sýna að hún standi undir því að taka að sér viðamikil verkefni á al- þjóðavettvangi og skila þeim með sóma. Sú reynsla sem við Islendingar öðlumst af þessum sökum mun eflaust nýtast okkur vel á næstu árum. Forysta Norðurlandanna í öðrum evrópskum stofnunum á sama tíma gefur einnig tækifæri til að sýna í verki hvers megnugt Norðurlanda- samstarfíð getur verið í raun. Varnarkostirnir átta Bolungarvík: Mat á snjóftóðahættu og frumhönnun snjóflóðavarna í Áfangaskýrslu II um snjóflóða- varnir í Bolungarvík er fjallað um átta vamarkosti. Varnarkostur 1: Uppkaup. Hér yrðu öll hús á hættusvæðinu keypt upp og er uppkaupsverð íbúðarhús- næðis hærra en fasteignamatsverð, þar sem gert er ráð fyrir að fínna þurfi öllum af svæðinu nýjan stað í bæjarfélaginu. Varnarkostur 2: Rýmingar. Sam- kvæmt þessum kosti yrðu engin virki reist heldur rýmingum beitt þegar tilefni þætti tU, það yrði s.s. um óbreytt ástand að ræða.' Varnarkostur 3: Varnir með rás. Hér er í grundvallaratriðum um að ræða þá rás, sem kynnt var í fyrri hluta frumathugunarinnar í febrúar sl., en rásin hefur nú verið stytt um 460 metra og er um 500 metra löng. Rásin, sem vörn, miðar að því að verja svæðið undir Traðargili og Ytragili fyrir aftakasnjóflóðum og því ættu rýmingar nánast að heyra sögunni til. Varnarkostur 4: Sambland leiði- garðs og þvergarðs. Tillagan gerir ráð fyrir að verja alla byggðina með byggingu leiðigarða fyrir vestasta hluta hennar og þvergarðs, sem liggur fyrir ofan Dísarland. Leiði- garðurinn hefur það hlutverk að taka við flóðum úr Traðargili og leiða þau til vesturs, en þvergarður- inn tekur við flóðum úr Ytragili og er ætlað að stöðva smærri snjóflóð- in, en draga úr afli snjóflóða sem fara yfír garðinn, þannig að skrið- lengdir þeirra styttist verulega. Þá þarf að skipuleggja rýmingar neðan við báða garðana, en aðeins er gert ráð fyrir að fjarlægja þurfi eitt til tvö hús, þ.e. hús númer 22 og 24 við Traðarland. Varnarkostur 5: Sambland leiði- garðs og þvergarðs. Þessi tillaga byggir á sama leiðigarði og varnar- kostur 4, en þvergarðurinn hefur verið færður niður fyrir Dísarland, þannig að hraði snjóflóða er minni þegar þau lenda á garðinum. Auk þess að fjarlægja húsin tvö við Trað- arland, þarf, samkvæmt þessari til- lögu, að fjarlægja öll hús við Dísar- land. Varnarkostur 6: Sambland leiði- garðs og þvergarðs. Hér er gert ráð fyrir að byggður verði leiðigarður og þvergarður. Leiðigarðurinn mun verja byggð frá Dísarlandi 10 og vestur úr, en þvergarðurinn það sem þar er fyrir austan. Markmiðið er að reyna að ná hugsanlegum snjóflóð- um úr Ytragili og leiða þau til vest- urs, en það er erfiðleikum bundið að ná meira af flóðafarvegi Ytragils til vesturs því annað hvort hefði garð- urinn þurft að liggja þverar eða ná lengra upp í brekkuna, sem er ekki fýsilegt vegna mikils bratta. Ef þessi kostur verður valinn þarf að fjar- lægja Dísarland 8 og 10, bæinn Tröð og Traðarland 18,22 og 24. Varnarkostur 7: Plógur. Þessi til- laga gerir ráð fyrir að plógur verði byggður úr tveimur leiðigörðum, sem mætast í toppinn. Toppur plógsins er nokkum veginn í miðjum farvegi Ytragils og skiptir hann lík- legu snjóflóði til vesturs og austurs. Auk þess að gera ráð fyrir að í-ýma þurfi hús neðan garðanna við ákveðnar aðstæður, þarf, ef þessi til- laga verður valin, að fjarlægja meira af byggðinni en í nokkurri annai-ri tillögu um garða. Flestöll húsin í Ljósalandi þarf að fjarlægja, ásamt hluta húsa í Traðarlandi og Dísar- landi. Varnarkostur 8: Leiðigarðar. Samkvæmt þessari tillögu verða byggðir tveir leiðigarðar, sem hafa það hlutverk að taka við snjóflóðum úr Ytragili og Traðargili og veita þeim til vesturs. Beita þarf rýmingu undir báðum þessum görðum og fjarlægja hluta húsa í Dísarlandi og Traðarlandi. Kostur Áaetlaður meðaltími á milli rýminga, fjöldi húsa Kostnaður Uppkaup-rif minni Samtals samtals Fjöldi íbúða en 3ár 3-1 Oár 10-30ár 30-1 OOár 100-300ár fj. húsa V1 engin virki - uppkaup 1.043 m.kr. 113 113 V2 engin virki - rýming 626 m.kr. 10 17 29 47 10 113 V3 rás 616 m.kr. 11 11 V4 þver- og leiðigarðar 521 m.kr. 2 9 5 23 39 V5 þver- og leiðigarðar 621 m.kr. 8 20 21 49 V6 þver- og leiðigarðar 531 m.kr. 7 5 20 15 47 V7 plógur 614 m.kr. 15 16 69 100 V8 tveir leiðigarðar 627 m.kr. 8 26 51 85 Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson AFANGASKYRSLA II um snjóflóðavarnir í Bolungarvík var kynnt á borgarafundi sem haldinn var í félagsheimilinu Víkurbæ á mánudagskvöld. Borgarafundur um snjóflóðavarnir í Bolungarvík um leið eða leiðir. Fyrir mánaðamót munum við þrengja þennan hring og velja tvær til þrjár leiðir sem verða síðan kannaðar betur.“ Magnús sagði, aðspurður um það hvort sjóðurinn myndi styrkja allar af þessum átta tillögum sem kynnt- ar voru á fundinum: „Ég get á þessu stigi málsins ekki sagt ná- kvæmlega til um það. Ég geri ráð fyrir því að vegna þess hversu leið- in sem lýtur að flutningi byggðar er miklu dýrari en hinar leiðirnar muni hún ekki verða styrkt. Sjóð- urinn hefur ekki heimild til að styrkja slíkar framkvæmdir nema þær séu kostnaðarlega hagkvæmar eins og raunin var t.d. í Súðavík og Hnífsdal, þar sem dýrara var að byggja varnargarða en að kaupa upp hús.“ „Hugnast ekki garðarnir" Gunnar Hallsson, íbúi í Hjalla- stræti, var mjög hlynntur þeim hugmynd að flytja byggðina alfarið af hættusvæðinu með því að kaupa upp húsin þar. „Mér hugnast ekki garðarnir (varnarvirkin) og ég lít á garðinn á Flateyri sem mjög sterkt tákn um það sem gerðist þar og getur gerst,“ sagði Gunnar. „Verða menn ekki að fara að horfa til þess að skipuleggja byggð með öðrum hætti en hefur verið gert hingað til, þ.e.' upp í hlíðar. Það er varanlegri lausn til lengri tíma litið að færa byggð- ina.“ I máli Sigurjóns Haukssonar frá Verkfræðistofu Austurlands kom fram að flutningur byggðar kostaði rúman milljarð og væri helmingi dýrari kostur en að byggja vamar- virki. „Eins og ég hef sagt áður þá yrði það bæjarsjóði ofviða að ráðast í framkvæmdir sem kosta meira en milljarð því þá yrði hlutur hans 100 milljónir og það ræður hann ekki við,“ sagði Olafur. Aðspurður um það hvort til greina kæmi að Ofanflóðasjóður styrkti bæjarfélagið um meira en 90% af kostnaðinum, sagði Magnús, for- maður sjóðsins, að slíkt kæmi ekki til greina, bærinn kæmi alltaf til með að þurfa að standa straum af 10% af kostnaðinum. Reynt verður að flýta framkvæmdum Áhyggjur manna vegna snjóflóðahættu í Bolung- arvík hafa aukist. Þetta kom fram á borgarafundi um snjóflóðavarnir sem var haldinn í Bolungar- vík. Trausti Hafliðason sat fundinn og komst m.a. að því að snjóflóða- hættan á staðnum hefur verið vanmetin. á hvaða svæði þeir eru.“ Á fundinum ræddu menn um þá kosti sem í boði voru og var greinilegt að sumir höfðu staðfastari skoðanir á málun- um en aðrir og íbúarnir í Dísarlandi 10, þau Olgeir Hávarðsson og Stef- anía Birgisdóttir vora í þeim hópi. Vonast til að ná meðalaldri Islendings „Ég er 42 ára og vonast eftir að ná meðalaldri íslendings," sagði Stef- anía á fundinum. Ég geri því þá kröfu að við getum búið við sama ör- yggi og aðrir hér í bænum og ég mun berjast til síðasta blóðdropa til að fá því framgengt." Olgeiri fannst afar mikilvægt að bæjarstjórnin setti sig í spor sín og fjölskyldu sinnar. í samtali við blaðamann eftir fundinn sagði hann fundinn hafa verið fróðlegan en að ekkert nýtt hefði í raun komið fram. Hann sagði lífsreynslu sína fyrst og fremst móta skoðanir sínar, en vet- urinn 1997 féll snjóflóð á hús hans, með þeim afleiðingum m.a. að bama- herbergi hússins skemmdust. Hann sagði það hafa verið hreina tilviljun að enginn skyldi hafa verið í húsinu þegar flóðið skall á, þar sem húsið hefði ekki verið formlega rýmt. Fundað með Ofanflóðanefnd Olgeir sagðist hafa farið fram á uppkaup vegna þess að eftir það sem á undan hefði gengið hefði hann enga trú á vamarvirkjum, en hann sagðist enn bíða eftir svari við beiðni sinni. Fyrr um daginn hafði bæjar- stjórnin átt fund með formanni Ofanflóðanefndar, en nefndin gerir tillögur til umhverfisráðherra um út- hlutun úr Ofanflóðasjóði vegna kostnaðar við undirbúning og fram- kvæmdir við varnarvirki allt að 90% af kostnaði og vegna viðhalds vam- arvirkja allt að 60% af kostnaði. Að sögn Magnúsar, formanns nefndarinnar, var fyrst og fremst verið að ræða næstu skref í ákvörð- unarferli málsins eftir að bæjar- stjórnin hefur ákveðið hvaða leið verður valin. „Rætt var um hvernig hægt væri að hraða undirbúningi þannig að ekki seinna en vorið 2001 verði hægt að hefja þarna framkvæmdir," sagði Magnús. „Það er fyrst og fremst bæjarstjórnin sem ákveður hvaða leið verður valin, Ofanflóðasjóður kemur að verkefninu sem styrktar- aðili.“ Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri sagði fundinn með Ofanflóðasjóði hafa verið gagnlegan, þar sem farið hefði verið yfir áfangaskýrsluna og málin rædd. Hann sagði að bæjar- stjórnin hefði óskað eftir því að fá að hraða jarðvegsrannsóknum og byrj- un á umhverfismati þannig að það myndi flýta fyrir framkvæmdum. Þá sagði hann að rætt hefði verið um kostnaðarskiptingu á milli ríkis og sveitai-félaga hvað varðaði rekstur og viðhald þessara varnarvirkja, sem og lagalega þætti sem snúa að uppkaupum húsa, hvernig hægt væri að bæta verðfall þeima o.s.frv. 2 til 3 varnarkostir valdir fyrir mánaðamót „Það er of snemmt fyrir mig að tjá mig um það á þessari stundu hvaða leið mér líst best á, því það var um það heiðursmannasamkomulag í bæjarstjóminni að við myndum ekki gera það,“ sagði Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri. „Við munum að sjálfsögðu taka til greina þau sjónarmið sem hér komu fram og tengja þau þessum tillögum og ég sem bæjarstjóri og gamall sveitarstjórnarmaður hér, legg á það afskaplega mikla áherslu að bæjar- stjómin nái fullri sátt og samstöðu ANDRÚMSLOFTIÐ í Vík- urbæ á mánudagskvöld var hlaðið spennu enda verið að ræða um mjög viðkvæmt málefni, þ.e. aðgerðir til að spoma gegn þeirri vá sem snjó- flóð eru, en um er að ræða öryggi fólks, fjárhag og framtíð. Á fundinum var áfangaskýrsla II, sem er sjálfstætt framhald áfanga- skýrslu I, sem kynnt var á borgara- fundi í bænum hinn 27. febrúar sl., kynnt og þeir átta vamarkostir sem í boði era. Fyrir svöram sátu þeir Ólaf- ur Kristjánsson bæjarstjóri, Magnús Hávarðsson, forseti bæjarstjómar, Ami Jónsson og Sigurjón Hauksson verkfræðingar, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneyt- inu og formaður Ofanflóðanefndar, og Már Erlingsson frá Framkvæmda- sýslu ríkisins. Mennimir höfðu í nógu að snúast á fundinum, þar sem fund- argestum, sem vora um 100 talsins, fannst mörgum spumingum enn ósvarað. Fundinum lauk ekki fyiT en undir miðnætti, en þá hafði hann stað- ið í fjórar klukkustundir. Hættan vanmetin Eftir snjóflóðin í Súðavík og á Flat- eyri árið 1995 jukust áhyggjur Bol- víkinga um snjóflóðahættu í Traðar- hymu og eftir flóðið, sem féll úr Traðarhymu í febrúar árið 1997 og á ÓLAFUR Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, sagði að reynt yrði að flýta fyrir framkvæmdum á varnarvirkj- um, en ráðgert er að þær hefjist ekki síðar en árið 2001. þrjú hús við Dísarland með þeim af- leiðingum að tvö þeirra skemmdust nokkuð, varð ljóst að áhyggjm- manna áttu við rök að styðjast. Lengst af höfðu Bolvíkingar ekki haft veralegar áhyggjur af snjóflóðum, en nú er ljóst að hættan var vanmetin og því var ákveðið að flýta áætlunum um byggingu vamarvirkja. Fyrr í vetur kom fram að stór hluti bæjarins væri á hættusvæði ef svokallað aftakaflóð yrði og í fram- haldi af því komu fram hugmyndir um gerð skurðar í fjallið eða rásar, þar sem hefðbundin varnai-virki þóttu ekki duga. Rásin átti að hafa það hlutverk að gleypa flóðin fyrir ofan bæinn, en kostnaður við slíka framkvæmd var talinn vera um milljarður króna. Talið er að aftaka- flóð komi á nokkur hundrað ára fresti eða meira og því vilja menn nú reisa vamir sem verja mestu hættu- svæðin en hafa þann möguleika að hægt sé að bæta þær síðar þannig að allur bærinn verði þá varinn. Sambland varnargarða og rýmingar húsa Olafur Kristjánsson bæjarstjóri sagði að bæjarstjórnin vildi skoða fleiri leiðir og einkum og sér í lagi verja þau hús sem oftast þyrfti að rýma, en það era húsin við Dísar- land og Traðarland. Árni Jónsson, verkfræðingur hjá Orion-ráðgjöf, sagði að aðstæður í Bolungarvík hefðu í raun ekkert breyst heldur forsendurnar sem verkfræðingamir ynnu út frá, þar sem nú hefðu þeir meira svigrúm, þ.e. mættu t.d. blanda saman gerð varnargarða og rýmingu húsa. „Þetta er fyrsta tilvikið þar sem nánari skoðun á hættunni leiðir í ljós að hún var vanmetin í frammatinu, sem var gert árið 1996, sagði Magn- ús, formaður Ofanflóðanefndar. Um borgarafundinn sagði Magnús: „Það var afar fróðlegt að heyra sjónarmið íbúanna á þessu máli, sem er afar flókið og erfitt viðfangs." Ólafur bæjarstjóri var sammála Magnúsi og sagði fundinn hafa verið ljómandi góðan. „Hann var svona eins og ég átti von á, en þetta hvílir auðvitað misþungt á íbúum eftir því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.