Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 27
ERLENT
Tóbaksauglýsingar
bannaðar í Bretlandi
24 slasast í lestar-
slysi á Englandi
TUTTUGU og fjórir slösuðust í
gær er tvær lestir rákust sam-
an skammt frá Crewe í
norðvesturhluta. Englands, að
sögn lögreglu. Areksturinn
varð er Virgin Rail-farþegalest
sem var á Ieið frá Lundúnum
til Glasgow keyrði aftan á
tóma Northwestern-lest sem
var að koma frá Crewe og var
á leið til Manchester. Að sögn
lögreglu var lítið um alvarleg
meiðsl. „Flestir hlutu lítilshátt-
ar meiðsl, aðallega skrámur,“
sagði lögreglukona í Crewe.
Einn farþeganna var þó lagður
inn á spítala með meiðsl á
bijóstkassa og var Iestarstjór-
inn einnig fluttur á spítala.
Rannsókn á tildrögum slyssins
fór fram í gær en að sögn lög-
reglu fóru lestirnar ekki af
sporum sínum eins og talið
hafði verið.
Reuters
Lundúnum. AFP.
AUGLÝSINGABANN á tóbaksvör-
um í Bretlandi mun taka gildi frá og
með 10. desember næstkomandi.
Tessa Jowell, heilbrigðismál-
aráðherra Bretlands, tilkynnti um
bannið í síðustu viku. Evrópusam-
bandið (ESB) hefur samþykkt að
bann verði lagt á tóbaksauglýsingar
árið 2001 og hafa bresk stjórnvöld
verið gagnrýnd harðlega af tóka-
baksframleiðendum fyrir að láta
bannið taka gildi fyrir þann tíma.
Tóbaksframleiðendur í Bretlandi
eru nú taldir leita leiða til að
auglýsa varninginn á „óbeinan hátt“
en samkvæmt nýju reglunum verð-
ur framleiðendum einungis leyfilegt
að gefa út verðlista á tóbaki.
Frá og með árinu 2003 verður
tóbaksframleiðendum einnig
bannað að styrkja hinar ýmsu
íþróttagreinar. Pó nær bannið ekki
til Formúlu eitt kappakstursins og
heimsmeistarakeppninnar í snóker.
Var það mat breskra stjórnvalda
að í ljósi þess hversu háðar þessar
tvær íþróttagreinar væru stuðningi
tóbaksfyrirtækja bæri að gefa þeim
frest til ársins 2006 til að afla sér
annarra stuðningsaðila.
Bannið kært til
Evrópudómstólsins
Fjögur bresk tóbaksfyrirtæki,
British Ameriean Tobacco, Gallaher,
Imperial Tobacco og Rothmans, hafa
kært lagasetninguna til Evrópudóm-
stólsins en úrskurðar hans er ekki að
vænta fyrr en árið 2001.
Byggja tóbaksfyrirtækin mál sitt
gegn stjórnvöldum í Bretlandi á
þeim forsendum að samkvæmt
reglugerðum ESB geti aðildarríki
bandalagsins ekki tekið sameigin-
legar ákvarðanir um opinbera heil-
brigðismálastefnu einstakra landa.
Yfirvöld í Þýskalandi hafa einnig
mótmælt banninu og hafa sagst
munu leita til Evrópudómstólsins til
að reyna að aflétta banninu.
Breska ríkisstjórnin og læknar
óttast þó að tóbaksframleiðendur
finni sér leið til að auglýsa varning-
inn á „óbeinan hátt,“ þrátt fyrir að
yfirvöld hafa einnig lagt bann við
slíku. 600.000 króna sekt liggur við
broti á auglýsingabanninu, en lækn-
ar og þrýstihópar óttast að sú upp-
hæð komi ekki í veg fyrir að tóbaks-
framleiðendur reyni að sneiða hjá
banninu.
„Við óttumst mest að fram-
leiðendur komi til með að færa
auglýsingar sínar af skiltunum yfír
á stuttermaboli. Sektir upp á
600.000 krónur eru lítil ógn fyrir
tóbaksframleiðslurisana," sagði Ian
Bogle, formaður bresku læknasam-
takanna.
Tóbaksframleiðendur í Bretlandi
eyða árlega um sex milljörðum
króna í auglýsingar í dagblöð, tíma-
rit og á auglýsingaskilti. Sér-
fræðingar telja líklegt að þessum
fjármunum muni í kjölfar bannsins í
staðinn verða varið í framleiðslu á
vörum sem merktar eru með tóbak-
stegundunum, s.s. fötum, ritföng-
um, ilmvötnum og áfengi.
Einnig er því spáð að tóbaksfyrir-
tæki fari í auknum mæli að styrkja
sjónvarpsþætti til að vekja athygli á
framleiðslu sinni. Vörumerki fyrir
fjölmargar vörur í Bretlandi hafa
verið skráð sl. mánuði og er það
talið tengjast banninu. British
American Tobacco hefur til að
mynda skráð kreditkort, bjór og
viskí undir Lucky Strike vörumerk-
inu og Benson & Hedges sett á
markaðinn kaffítegundir.
Sólþurrkaðir tómatar,
grílluð papríka & balsamedik
; salatið, pastað og með grillmat
Í'V I
E-SUPEF
NÁrrÚRliIEGT
ACIDOÍ^HILI
PLUS
F}ölgcrlahylki fyri
mchlngarfœrin
Hántar
E-SUPER • 90 hylki
Á Krínglukasti færð þú 2 glös á sarna verði og 1
L. ÍÍ E’CÉfT* »i r
jrðiOMANPðl
íiHGUffl Vu
, V .íáí/íilí! Æm
\ mtiiÆKL
HINAFORI
SóSiattur
HánUiUar^okkar í náttúrufú
Þunnir: 4 pör í búnti
Þykkir: 3 pör í búnti
kr. 650.-
Svartir sokkar 3 pör í búnti
100% hreinn bómull. Unnið án kemískra efna
UÍðbwlH
Itflenokar, náttúrulegar
onyrtivörur
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Hársápa fylgir öllum
kremum og olíum