Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 39
+ Kristján Fr.
Guðmundsson
fæddist í Reykjavík
14. júní 1909. Hann
lést í Reykjavík 16.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Kristrún Ingi-
björg Krisljáns-
dóttir frá Borgum í
Vopnafirði og Guð-
mundur Magnússon
frá Digranesi í
Kópavogi. Systur
Kristjáns eru Ag-
atha, f. 1906, og
Friðrikka, f. 1915.
Systkini Kristjáns samfeðra
voru sjö. Kona Krisljáns var
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir,
f. 6. ágúst 1914, f. 3. september
1975. Foreldrar hennar voru
Sigurjón Gunnlaugsson, út-
vegsbóndi á Skálum í Vopna-
firði, og kona hans, Ólöf
Birgitta Sveinsdóttir.
Börn Kristjáns og
Önnu eru: Birgir Kri-
stjánsson, f. 7. ágúst
1932, kvæntur Elínu
Ellertsdóttur; Ag-
atha, f. 31. júlí 1935,
gift Kristjáni Hall-
dórssyni; Bóas, f. 10.
apríl 1937, kvæntur
Ragnhildi Kristjáns-
dóttur; Sigurjón, f.
25. júní 1941, kvænt-
ur Mattínu Sigurðar-
dóttur; og Friðfinn-
ur, f. 26. júní 1942,
kvæntur Þórunni
Ólafsdóttur.
Kristján ólst upp á Ljótsstöð-
um í Vopnafírði og var hann þar
til tvítugsaldurs. A unglingsár-
um naut hann nokkurs lærdóms í
ýmsum fræðum hjá Gunnari
Helga Gunnarssyni, sem þá bjó á
Ljótsstöðum og var hreppstjóri
Vopnfirðinga. Kristján fluttist
til Reykjavíkur árið 1936 ásamt
konu sinni, Önnu Sigríði. Þar
byrjaði hann með gúmmískó-
gerð, þá fyrstu hérlendis, á
Laugavegi 68. Það fyrirtæki
rak hann til ársins 1941. Krist-
ján var verslunarsljóri hjá
KRON um tveggja ára skeið.
Hann rak hreingerningastöð
og var með yfirbyggðan bíl þar
sem hann seldi blóm og græn-
meti. Árið 1949 stofnsetti Kri-
stján Sendibílastöðina ásamt
konu sinni, og rak hana í nokk-
ur ár þar til hún var gerð að
hlutafélagi og er nú í Borgar-
túni 21. Arið 1961 stofnaði Kri-
stján Málverkasöluna, sem
lengst af var á Týsgötu 3. í
tengslum við hana hélt hann
listaverkauppboð. Við þetta
starfaði hann í fimmtán ár. Á
þessu tímabili fór Kristján að
fást við að mála. Fékk hann
nokkra kennslu hjá meistara
Helga Bergmann og Sigurði
Kristjánssyni listmálara.
Útför Kristjáns fór fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 26.
maí.
KRISTJAN FR.
GUÐMUNDSSON
Mig langar að minnast föður
míns, sem lést á sjúkrahúsi
Landakots hinn 16. maí síðastlið-
inn. Hann var fyrir margt merkur
maður, stórhuga og hugsjónamað-
ur mikill og lét ekki sitja við orðin
tóm. Faðir minn lét af því verða að
hrinda í framkvæmd hugmyndum
og hugsjónum sínum. Hann vann
sjaldan eða aidrei hjá öðrum held-
ur var ætíð sjálfs síns herra og
kom á fót eigin fyrirtækjum. Það
var ósjaldan sem faðir minn fór
með fjölskyldu sína í ferðalag,
enda hafði hann einstaklega gam-
an af allri útivist, veiðimennsku
o.fl. I ferðalögum þessum voru
notaðir stórir bílar sem faðir minn
hafði látið yfirbyggja sérstaklega
fyrir sinn atvinnurekstur. Þessir
bílar voru t.d. Weapon, sem hann
notaði líka í blómasölu á torgi í
Hlíðunum. Það var jú eitt af
mörgu sem hann lagði fyrir sig á
sínum tíma. Milli mín og föður
míns var alla tíð gott samband. Ég
var eina dóttir hans, en synirnir
fjórir eins og að framan er getið.
Það er margs að minnast og
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Svem'r Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
ÖarðsKom
, v/ t-ossvogskiHkjugci^ð ,
\_Slmii 554 0500
margs að sakna. Foreldrar mínir
voru afskaplega samhentir. Ætíð
var mikill gestagangur hjá þeim.
Móðir mín var ljúf og yndisleg
kona sem alltaf var hægt að reiða
sig á og bar hún hag okkar systk-
inanna ætíð fyrir brjósti.
Ég vil þakka þeim fyrir allt.
Megi þau hvfla í friði.
Agatha Kristjánsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR,
Suðurgötu 82,
Akranesi,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt miðviku-
dagsins 16. júní, verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju föstudaginn 25. júní, kl. 14.00.
Bjarni Jónsson, Elísabet Eyjólfsdóttir,
Pétur Jónsson, Arndís Magnúsdóttir,
Rebekka Jónsdóttir, Snæbjörn Sigurgeirsson,
Guðjón Jónsson, Jórunn Guðsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA KÁRADÓTTIR,
Háeyrarvöllum 44,
Eyrarbakka,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnu-
daginn 13. júní, verður jarðsungin frá Eyrar-
bakkakirkju laugardaginn 26. júní kl. 14.00.
Karl Þórðarson,
Ársæll Þórðarson, Eygló Karlsdóttir,
Anna M. Þórðardóttir, Ágúst Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur og fjölskyldu samúð og hlýhug
við andlát og útför bróður okkar og frænda,
JÓHANNS BYRON GUÐNASONAR.
Sólver H. Guðnason.
LEGSTEINAR
t
Ástkær bróðir okkar og mágur,
ÁRNI J. GESTSSON,
Árskógum 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 25. júní kl. 10.30.
Margrét Gestsdóttir,
Trausti Gestsson,
Matthildur Gestsdóttir,
Lísebet Gestsdóttir,
Einar Gestsson,
Eyvindur Árnason,
Ásdís Ólafsdóttir,
Björgvin Kristjánsson,
Jón Vilhjálmsson,
Margrét Friðriksdóttir,
Sæmundur Jónsson.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og bróðir,
JÓN R. JÓSAFATSSON,
Ártúni 17,
Sauðárkróki,
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 26. júní kl. 14.00.
Sigríður Ingimarsdóttir.
Jónanna Jónsdóttir,
Ingimar Jónsson, Ingibjörg R. Friðbjörnsdóttir,
Jósafat Þ. Jónsson, Trine Vene Ulstrup,
barnabörn og systkini.
t
Bálför elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
MÁLFRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Bræðraminni, Bíldudal,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn
25. júní kl. 15.00.
Helgi Bjarnason,
Svan Magnússon
og aðrir aðstandendur.
t
Bróðir minn, fóstri og mágur,
KRISTJÁN SIGURÐSSON
frá Eyri í
Siglufirði,
verður jarðsettur frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 26. júní kl. 14.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á minningarsjóð Sjúkra-
húss Siglufjarðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fanney Sigurðardóttir,
Guðmunda Óskarsdóttir,
Þórarinn Vilbergsson.
t
Innilegar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug við
andlát og útför
JAKOBS HALLGRÍMSSONAR
organista
og tónlistarkennara,
Aðalbóli, Starhaga 7,
Reykjavík,
er lést þriðjudaginn 8. júní.
actxiirrn x i ix jxxjl;
h
H
9 Erfisdrykkjur
■*-
P E R L A N
Sími 562 0200
UTI I T X TTTT rTTTTT rxl
I rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða úr
íslenskum og erlendum steintegundum
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalist;
|| S.HELGASON HF
ISTEIIMSMIÐ J A
tJ5^'
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410
Helga Sveinbjarnardóttir,
Einar Hallgrímur Jakobsson,
Laufey Jakobsdóttir,
Margrét Árnadóttir,
Hrafn Hallgrímsson,
Guðrún Hallgrímsdóttir,
Valgerður Hallgrímsdóttir.
%
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 14.30 til 17.00 í dag vegna
jarðarfarar JÓNS ÞÓRS HARALDSSONAR.
Marel hf.