Morgunblaðið - 24.06.1999, Síða 46
*46 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Alþjóðlegft
' skátastarf
í SUMAR halda
skátar landsmót á
Úlfljótsvatni, frá 13.-
20. júlí. Mótið verður
það fjölmennasta frá
upphafi skátastarfs á
Islandi. Búist er við
5.000 skátum og gest-
um þeirra. Þar af
verða rúmlega 1.000
erlendir skátar. Á slík-
um stundum er vert að
staldra við og skoða
hvað hefur áunnist og
hver staða skátahreyf-
ingarinnar er í dag.
Liðin eru 85 ár síðan
skátastarf hófst á ís-
landi. Þeir íslendingar
sem hafa verið skátar í lengri eða
skemmri tíma eru orðnir æði
margir. Þá hefur einnig margt
breyst í skátastarfinu þó svo að
grundvallarhugsjónin
sé alltaf sú sama.
Skátahreyfingin er
stærsta friðarhreyfing
í heimi. Þrjátíu og
fimm milljónir skáta
eru starfandi í heimin-
um sem allir hafa hug-
sjónir Baden Powell
að leiðarljósi; hugsjón-
ir um frið, umburðar-
lyndi og bræðralag.
Skátar á erlendri
grundu
Eitt af því sem hef-
ur breyst á undanförn-
um árum er hversu
miklu auðveldara það
er að hafa samskipti við fólk í út-
löndum. Skátar hafa mikið notað
Netið til að hafa tengsl við félaga
sína úti í heimi. Einnig hefur ferð-
um skáta til útlanda, á skátamót og
í ýmiss konar heimsóknir fjölgað
með bættum samgöngum. Síðast-
liðin sumur hafa verið sérstaklega
lífleg hvað þetta snertir því mörg
hundruð skátar víðsvegar af land-
inu hafa farið og hitt skáta í öðrum
löndum. Hópur 15-18 ára skáta úr
Hafnarfirði fór til Lúxemborgar til
að endurgjalda heimsókn skáta
sem komu til Islands á síðastliðnu
ári, nokkrir skátar úr Mosfellsbæ
fóru til Noregs á skátamót, um 40
skátar úr Garðabæ, á aldrinum 13-
20 ára, fóru til Sviss og heimsóttu
meðal annars skátamiðstöð. Hópur
skáta víðs vegar af landinu fór á
skátamót í Skotlandi. Hópur úr
Skátafélaginu Eina í Breiðholti fór
til Austurríkis á skátamót og
Skátar
Andrúmsloftið á
landsmótum er
alþjóðlegt, segir
Hallfríður Helgadóttir,
og ungir skátar fá þar
tækifæri til að kynnast
því í reynd að
skátahreyfíngin þekkir
engin landamæri.
nokkrir skátar frá Akureyri fóru til
Færeyja.
Skátar sækja ísland heim
Landnemar í Reykjavík fengu
heimsókn 25 finnskra skáta. Þar að
auki fóru 3 skátar til Þýskalands
um páskana á eins konar námskeið í
ýmsum listgreinum. íslenskum
skátum stendur til boða að stofna til
kynna við skáta í Marokkó og Túnis
og einnig er verið að skoða mögu-
leika á samskiptum við lönd í Aust-
ur-Evrópu. Til þess að fjármagna
slíkar ferðir hafa skátamir verið
með allskonar fjáraflanir en þeir
hafa sumir einnig fengið styrki frá
hinum ýmsu aðilum. Ungt fólk í
Evrópu hefur t.d. styrkt skáta til
ferða undanfarin ár.
Skátar á alheimsmóti
Stærstu viðburðir skátahreyfing-
arinnar eru alheimsmótin, Jambor-
ee, sem haldin eru á fjögurra ára
fresti víðsvegar um heiminn. Það
síðasta var haldið í Chile um síðustu
áramót. Um 20 íslenskir skátar tóku
þátt. Þar á undan var alheimsmót
haldið í Hollandi sumarið 1995. Um
200 íslenskir skátar tóku þátt og
MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
KÓPAVOGUR GRAMMAR SCHOOL
Nám sem nýtist þér!
Framhaldsnám á skrifstofubraut
✓
Nú stendur yfir innritun í framhaldsnám á skrifstofubraut
Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á tölvunám,
viðskipta- og samskiptagreinar.
Kennt frá 17.20 til 21.00, mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga og frá kl. 9.00 til 13.00 á laugardögum.
Inntökuskilyrði: Nemendur sem lokið hafa a.m.k. 5 önnum í
framhaldsskóla eða hafa sambærilega menntun. Þeir nemendur
sem hafa lokið námi af skrifstofubraut Menntaskólans í
Kópavogi ganga fyrir um skólavist. Kennsla hefst 30. ágúst en
innritun stendur yfir til 1. júlí.
Upplýsingar veitir kennslustjóri bóknáms milli kl. 9.00 og 15.00.
MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
Ferðamálaskólinn - Hótel- og matvælaskólinn - Leiðsöguskólinn
Digranesvegur - IS 200 Kópavogur - island
Simi/Tel: 544 5510. Fax 554 3961.
hittu skáta alls staðar að úr heimin-
um. Yfir 25 þúsund skátar frá öllum
heimshornum taka þátt í hverju al-
heimsmóti. í tíu daga búa skátar
saman í tjaldbúðum, leysa verkefni,
skemmta sér og kynnast siðum og
venjum hver annars. Margir stofna
til ævilangrar vináttu á svona mót-
um og ekki skiptir máli hvemig
menn eru á litinn eða hvaða tungu-
mál þeir tala. Allir geta unnið sam-
an.
Erlendir skátar á Landsmóti
Eins og áður segir verða tæp-
lega 1.000 erlendir gestir á Lands-
móti skáta. Eitt af því sem gerir
Landsmót skáta einmitt frábragðið
öðrum skátamótum er hið alþjóð-
lega samfélag sem skapast á mót-
inu. Þegar er fyrirsjáanlegt að tug-
ir erlendra skáta verða sjálfboða-
liðar í starfsliði mótsins og fjöldi
erlendra þátttakenda verður meiri
en nokkru sinni áður. Dagskrá og
tjaldbúð eru þannig upp byggð að
þátttakendur blandast og eiga mik-
ið samneyti. „Þetta er eins og að
fara til útlanda," sagði ungur skáti
á síðasta landsmóti, „maður er
alltaf að heyra útlensku talaða eða
sungna, alveg mergjað." Andrúms-
loftið verður því alþjóðlegt og ung-
ir skátar fá þarna tækifæri til að
kynnast því í reynd að skátahreyf-
ingin þekkir engin landamæri. Olík
tungumál, menning eða trúarbrögð
eru enginn þröskuldur i samskipt-
um skáta.
Heimskt er heimaalið barn
Það er trú okkar skáta að með
því að ungt fólk frá hinum ýmsu
löndum kynnist menningu, siðum
og venjum hvert annars, þá megi
stuðla að meira umburðarlyndi
milli fólks frá mismunandi menn-
ingarheimum. Það er mikil upplifun
fyrir ungan skáta að koma til fram-
andi lands og uppgötva að skátar
þar eru að vinna að sömu málum þó
aðferðimar séu stundum ólíkar.
Fyrir utan hefðbundin skátastörf
sem alls staðar eru þau sömu þá
eru önnur störf sem eru svipuð en
kalla á ólíkar aðferðir. Hvarvetna í
heiminum eru eldri skátar að kenna
þeim yngri að ganga vel um náttúr-
una hvort sem það er í skógi eða
eyðimörk. Utivist í fjöllum íslands
er ólík útivist í skógum Finnlands
en á báðum stöðum læra skátar að
umgangast náttúruna á réttan hátt.
Hér á Islandi gefa skátar öllum sex
ára börnum endurskinsborða á
haustin en í Túnis fara skátar á
milli fátækrahverfa og kenna litlum
börnum að þekkja umferðarskilti.
Á báðum stöðum er verið að stuðla
að umferðaröryggi lítilla barna.
Alls staðar læra skátar skyndihjálp
og einnig má heyra sömu söngvana
sungna við varðeld í mörgum lönd-
um. Meira að segja brandarinn um
skátann sem ætlar að gera góðverk
og dregur gamla konu yfir götu þó
hún vilji ekki fara yfir götuna; hann
er til í mörgum löndum.
Skátastarf skiptir máli
Skátahreyfingin er að styrkjast
alls staðar í heiminum. Sífellt fleiri
börn vilja stunda skátastarf og fleiri
og fleiri fullorðnir koma til liðs við
hreyfinguna til að styðja við bakið á
börnunum og unglingunum. For-
eldrar hér á landi sem og annars
staðar hafa áttað sig á mikilvægi
vandaðs forvarnastarfs, eins og
skátastarf er, í uppeldi barna og
unglinga.
Höfundur er formaður alþjóðaráðs
Bandalags íslenskra skáta.
Ár aldraðra
Jenna Jensdóttir
„Ráðvilltir geislar
við grjót“
Pá ég var ungur að árum
oftbaréglundinakáta.
Og ég flóði allur í tárum
ef ég sá nokkum gráta.
(Páll Ólafsson.)
Það er alkunna meðal þeirra sem náð hafa háum aldri og eru
andlega hressir, að sumir ungir fræðingar sjá og skynja liðna
atburði í öðru ljósi en þeir sem sjálfir hafa upplifað þá. Þótt
hinn gamli málsháttur „Reynslan er ólygnust“ hafi margsannað
gildi sitt, fer hann fyrir lítið í slíkum tilfellum.
Aðeins örsaga, sem á sér --------------------------
„Ungi maðurinn vissi hér
betur en konan sjálf. Hún
var að hefna sín á fuglinum
sökum skiptingar milli
auðvalds og öreiga.“
margar hliðstæður. Hún er sönn.
Fyrir allmörgum árum var ís-
lensk kona stödd á Kennedy-
flugvelli. Flugi til íslands hafði
seinkað sökum verkfalls heima
fyrir. _____________________________________
Ein síns liðs sat hún í róleg-
heitum yfir kaffibolla og naut þess að horfa á iðandi mannhafið, virða
fyrir sér andlit og hegðun, sem færðu manni öll hin marglitu lífsform í
magnaðri kynngi en kostur var að sjá í fámenninu heima.
Trufluð var hún frá þessu spennandi hugðarefni, þegar ungur maður
ávarpaði hana á móðurmáli, sagðist vita til hennar. Þau tóku tal saman
og bráðlega barst það að breyttum lífsháttum þjóðarinnar. Þegar vitn-
aðist að konan var fædd og uppalin á Vestfjörðum og hafði nú nokkurn
aldur að baki vildi hann ákafur heyra um bemsku hennar. Kvaðst vel
lærður í sálfræði. „Svo þið voruð öreigar," mælti hann er fram kom fá-
tækt á barnmörgu heimili. VUdi síðan vita hvort ekki hefði verið höfuð-
ból í sveitinni. Jú. Þá hlaut konunni að hafa ólgað réttlát reiði í brjósti
vegna misskiptra lífsgæða.
Nei - það höfðu allir nóg með sig í lífsbaráttunni. En þið voruð fátæk.
Já. og tU að sanna orð sín sagði konan frá því er hún tíu ára byrjaði að
fara með fóður sínum til netanna snemma á vormorgnum. Og eitt sinn
er æðarfugl kom í netið, sneri hún hann úr hálsliðnum og hugsaði glöð
að nú yrði þó matur á borðum hjá fjölskyldunni.
Ungi maðurinn vissi hér betur en konan sjálf. Hún var að hefna sín á
fuglinum sökum skiptingar milli auðvalds og öreiga. í sál sinni fann kon-
an enn harðræðið vorið það og því fengur í hverjum matarbita. Mótrök
hennar fóru til lítils. Nú var „þekking“ á viðbrögðum mannsins orðin svo
mikU. Hún var ekki meðvituð um orsök gerða sinna þá. En þetta var
hrikaleg útrás fyrir réttláta reiði hennar. Vai'narleysi konunnar vegna
eigin tilfinninga varð algert.
Frá þeim degi urðu henni réttmæti sögunnar í rás áranna eins og
böggull fyrir brjósti.
Eftir 40 ára reynslu mína í bókmenntakennslu sýnist mér sem það sé
Ijóðið er helst beri í sér nær óyggjandi sönnun þess sem var og er. Það
kemur hreint og ómengað úr vitund skáldsins. I því felast heilindi, auk
þess að vera æðsta tjáning hins ritaða máls.
Það væri því mikilvægt í menntauppeldi afkomenda okkar að það
skipaði þar veglegan sess. Mun ég reyna að færa sönnur að því í næsta
pistli.