Morgunblaðið - 24.06.1999, Qupperneq 51
MORGUNB LAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 51r
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
INGA Hersteinsdóttir, Ásgrímur Magnússon, Ágúst Þorbjömsson, Steinn Jónasson, Vignir Garðarsson,
Einar Guðnason, Þorgrímur Þorgrímsson, Jouni Salminen, Björn Sigurbjörnsson, Jóhann Marelsson, Ragn-
ar Stefánsson og Þorbergur Hauksson.
I stærsta og
fullkomnasta
slökkviliðs-
skóla Evrópu
1.200 LÍTRUM af þotueldsneyti var brennt í hverri æfingu við olíuelda.
TIU slökkviliðs- og varaslökkviliðs-
stjórar auk þjálfunarstjóra Bruna-
málastoftiunar ríkisins og fulltrúa
stjómar Bmnamálastofnunar rflds-
ins vom í eina viku á námskeiði í
„Emergency services college" í
Kuopio í Finnlandi fyrir stuttu.
Ferðin var farin með tilstuðlan
styrks úr endurmenntunarsjóði
Brunamálastofhunnar ríkisins, er
þetta annað námskeiðið sem farið
er til Finnlands. Slökkviliðsskólinn
í Kuopio er stærsti og fullkonmasti
slökkviliðsskóli í Evrópu. Þangað
sækja nám og námskeið slökkvi-
liðsmenn úr öllum heiminum.
Uppbygging skólans kostaði
finnska ríkið tugi milljarða og má
nefna að tölvuhermar og búnaður
kostar rúma tólf milljarða og er
þar samskonar tölvubúnaður og
notaður var við gerð myndarinnar
„Jurassic Park“. Hægt er að líkja
eftir slysum og brunum og gera
áætlanir um hvemig best sé að
bregðast við og sjá svo útkomuna á
skjá leikna af tölvunni.
Hægt er að fá mismunandi nám-
skeið, í þessu námskeiði var farið í
reykköfún í húsum og yfirtendrun-
argámum, slöngulagnir og vatns-
öflun, eitureíni, sprengiefni, ohú-
elda, slökkvifroðu og ammomak,
tölvuhermi og stjómunargerðir,
fatnað og varnargalla svo sem eit-
urefnagalla og umhirðu á slíkum
búnaði.
Framlag Finna til brunamála er
tuttugufalt hærra á hvem íbúa en
á Islandi, branatjón á hvem íbúa
er samt lægst á Islandi af Norður-
löndunum, og gefur það nokkra
vísbendingu um hæfni íslenskra
slökkviliðsmanna. Mikil umræða er
nú um endumýjun slökkvibúnaðar,
mikið er ennþá til að Bedfordum
sem komu um 1970 og er kominn
túni til að endumýja þá, menntun
slökkviliðsmanna þarf að vera
stöðug til að slökkvistörf og björg-
unarstörf gangi fúmlaust fyrir sig
þegar á reynir. Sagt er að slökkvi-
liðsmenn vinni hættulegustu störf-
in á friðartúnum. Ferðin gekk vel í
alla staði og vom þátttakendur
þreyttir og ánægðir við heimkom-
una.
Villur í krossgátu
Þau leiðu mistök urðu við birtingu skýringatexta við krossgátu í
Dagskrá, sem fylgdi Morgunblaðinu í gær, að villur voru í textanum.
Formið, þ.e. krossgátan sjálf, var rétt en eins og fyrr segir voru villur
í texta og er hann því birtur hér leiðréttur.
LÁRÉTT
I. Dól skaðar ver sem hefur sverð hang-
andi yfirsér. (15)
7. Einn fróðari en nokkur fslendingur.
(3,5)
8. Nær haldgóðum fatnaði. (7)
II. Uppmnalegt lag er hluti af setningu.
(7)
13. Stor, ungur, og sjávarspendýr. (9)
16. Ósköp venjulegt brauð. (11)
19. Falin greiðsla. (4)
20. Alast upp við að eiga nóg út á
grautinn. (5)
21. Hún er 1001. í ræktunarbók..(4)
22. Leika sér að því að búta niður. (5)
23. Þeir fóm illa með herra Kötu þeir....
hann í burtu. (6)
25. Er nirfill með líflaust nef. (5)
27. Fara norður og niður ef þú sýnir ekki
eftirsjá. (5)
29. Tak nös þína úr vasaklútnum og
hættu að .... (6)
30. Fræðigrein sem rannsakar náttúm
hlutanna. (10)
32. Af móð jagar Gunn’r enda er
hann.... (13)
33. Skýrsla um lögun trjáa. (11)
LÓÐRÉTT
1. Svona karl í fallegum kvenmannsföt-
um. (8)
2. Seimur af söng fugla. (6)
3. Söngverk í sjó. (6)
4. Guðir sem eru ekki nýliðar í Ásgarði.
(5)
5. Núna, restin er sjaldgæfar fornminjar.
(10)
6. Reipi sem bregst veldur sálrænni
tmflun. (10)
9. Fræði um mæðu. (11)
10. Doktor að snara doktor í ólát-
um.(12)
12. Gabb, rógur, og deilur um berg. (6)
14. Peningastofnun sem tekur ekki við
klinki. (12)
15. Vítið Kana þar. (9)
17. Oli minn, rangur maður ervið stjórn
á þessu skipi. (8,5)
18. ‘Raskur’ klám-hundur í her. (10)
24. Grýtt tungl er Ijósfyrirbrigði. (9)
26. Sífra út af steini. (5)
28. Krabbadýr sem þarf að sinna. (5)
30. Reiðu-búinn að finna svardaga. (5)
31. Skipa hundi með þessu orði að elta
randir. (6)
Eiðamót
haldið um
helgina
EIÐAMÓT verður haldið nú um
helgina. Þetta verður fyrsta Eiða-
mótið í nær aldarfjórðung og munu
þar koma saman árgangar gamalla
nemenda, allt að nemendum sem
voru í skólanum fyrir 60 árum eða
1939.
I fréttatilkynningu er þeim, sem
hug hafa á að sækja mótið, bent á
að boðið sé upp á sérstök kjör á
svefnpokaplássi með morgunverði í
tvær nætur ásamt kvöldverði á
laugardagskvöld á Hótel Eddu,
Eiðum. Hópar gamalla skólafélaga
geti síðan skipulagt helgina að vild,
sótt djasshátíð á Egilsstöðum á
föstudagskvöld, eða farið í ferðir
um Hérað eða Firði.
Aðalfundur samtakanna hefst
klukkan 5 á laugardag og í fram-
haldi af honum verður kvöld-
skemmtun, sem hefst með kvöld-
verði og endar með dansleik þar
sem gamlir Eiðanemar, með Jónas
Þór fremstan í flokki, leika fyrir
dansi.
I tilkynningunni segir að til-
gangur samtaka Eiðavina sé að
efla samstöðu um Eiðastað sem
menningarmiðstöð fjórðungsins og
stuðla að sem fjölþættastri notkun
staðarins í þágu menningar- og at-
hafnalífs á Austurlandi.
Jónsmessu- og
miðsumarshátíð
á Eyrarbakka
NOKKRIR áhugamenn á Eyrar-
bakka hafa ákveðið að efna til Jóns-
messu- og miðsumarshátíðar á Eyr-
arbakka á morgun, föstudag. Stefnt
er að því að gera þetta að árvissum
viðburði í þorpslífinu, ef vel tekst til.
„Vænst er þátttöku þorpsbúa sjálfra,
annarra íbúa í sveitarfélaginu Ár-
borg og allra þeirra sem vilja taka
þátt í menningarlegri samveru á
Bakkanum eina kvöldstund," segir í
fréttatilkynningu.
„Dagslúá hátíðarinnar hefst kl. 20
með gönguferð um Bakkann. Gengið
verður frá gatnamótum Álfsstéttar
og Eyrargötu að Vesturbúðarhól.
Sögð verður saga húsa og byggðar og
sagt frá mönnum og málefnum. Leið-
sögumaður verður Magnús Karel
Hannesson. Kl. 20 verða uppákomur í
Byggðasafni Amesinga í Húsinu og
Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Kl.
22 verður miðsumarsbrenna. Safnast
saman við Kaffi Lefolii og gengið að
brennu vestan við gömlu höfnina. Al-
mennur söngur, vikivakadans, leikir
og fleira,“ segir þar ennfremui'.
Kynnir kristi-
legt hjálparstarf
CAROLIN Cox barónessa er komin
hingað til lands til að kynna starf-
semi CSW (Christian Solidarity
Worldwide) sem er kristilegt hjálp-
arstarf. ,Ásamt því að senda nauð-
þurftir til hungraðra og hrjáðra á
hörmungarsvæðum hafa þessi sam-
tök einnig beitt áhrifum sínum á
stjómvöld í þeim löndum sem með
skipulögðum hætti ofsækja kristna
menn og kirkjur s.s. í Pakistan, Súd-
an, Egyptalandi, Gvatemala, Ví-
etnam, Indónesíu, A-Tímor, og Kína
svo eitthvað sé nefnt,“ segir í frétta-
tilkynningu.
„Hún er hjúkrunarkona að mennt
en hefur helgað sig baráttunni fyrir
þá sem em minni máttar og skortir
talsmann. Þess vegna talaði hún máli
barna og yfirgefinna í Englandi um
árabil. Fyrir þá baráttu var hún öðl-
uð og því er hún titluð barónessa. En
á síðustu ámm hefur hún helgað sig
baráttunni um trúfrelsi.
Carolin Cox mun koma fram á
sjónvarpsstöðinni Ómega í kvöld kl.
21.00 og halda erindi hjá Veginum,
Smiðjuvegi 5, annað kvöld kl. 20.00.
Aðgangur er ókeypis og öllum op-
inn,“ segir þar ennfremur.
Jónsmessuhátíð
á Akranesi
EFNT verður til Jónsmessuhátíðar
á Akranesi verður dagana 24.-27.
júní.
Kveikt verður í brennu í Kalmans-
vík kl. 20. Þar verður grillað og Gísli
Gíslason og Gísli S. Einarsson
stjórna Víkursöng. Golfmót körfu-
boltamanna hefst kl. 16 á föstudag. Á
laugardag verður opnaður útimark-
aður í tjaldi í skrúðgarðinum við
Suðurgötu frá kl 10. Þá verður opna
átaks skákmótið á Akratorgi kl. 10.
Skráning hefst kl. 9.
Útitónleikar verða á Akratorgi kl
14. Ýmsar hljómsveitir og einstak-
lingar frá Akranesi koma fram. Pét-
ur Ottesen stjórnar Skagamótinu í
sjómanni á milli atriða. Þá verður
fjórðungsmót stangaveiðimanna og
opna Lancome mótið í golfi. Kapp-
sigling verður á skútum frá Reykja-
vík til Akraness.
Sunnudaginn 27. júní verður sprell
á Skagaverstúni - Leiktæki fyrir
börnin frá kl. 13 og áfram verður úti-
markaðurinn í tjaldi á túninu.
Víkingahátíð á
Seyðisfírði
VÍKINGAHÁTÍÐ verður haldin á
Seyðisfirði dagana 25. og 26. júní við
Hótel Seyðisfjörð.
Á dagskrá víkingahátíðarinnar
verða m.a. víkingamarkaður, þar
sem handverksvíkingar kunngera
fornt handverk, gifting að víkingasið, ,
hólmabardagi, víkingaskóli þar sem
unga fólkið lærir víkingasiði, dans-
leikir og borðhald að hætti víkinga.
Lambaskrokkar verða heilsteiktir,
spákonur munu spá fyrir um framtíð
gesta í tjaldi sínu og gestir geta
reynt fyrir sér í bogfimi. Einnig
verða dansleikir í stóru tjaldi við
Hótel Seyðisfjörð bæði kvöldin.
Kynningarfund-
ur í Lífslindinni
JOHN Armitage og Kathleen Mur-
rey munu halda kynningarfúnd um
kristalla, orkunet jarðar, orkustöðvar \
og Ijósborgir í í Lífslindinni, Ánnúla
34, á morgun, föstudag, kl. 20.30.
Helgina 26.-27.júní munu þau síð-
an halda námskeið um notkun krist-
alla til sjálfsþroska, segir í fréttatil-
kynningu.
TILBOÐ
Jakkar og stuttkápur
úr leðurlíki. Verð kr. 5.900.
Regnkápur, kr. 12.900
Opiaala^op. \0^HI/15IÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518