Morgunblaðið - 24.06.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 53
í DAG
r/\ÁRA afmæli. í dag,
0 Ufimmtudaginn 24.
júni, er flmmtug Herdis
Hermannsdóttir, Setbergi
31 í Þorlákshöfn. Eigin-
maður hennar er Gísli Jóns-
son. Herdís verður að heim-
an á afmælisdegi sínum.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman þann 15. mai í Gr-
indavíkurkirkju af sr. Jónu
Kristínu Þoi’valdsdóttur,
Elva Björk Guðmundsdótt-
ir og Ragnar Leó Kjartans-
son. Þau eru til heimilis að
Glæsivöllum 16b, Grindavík.
Arnað heilla
p'/AÁRA afmæli. í dag,
0 V/ fimmtudaginn 24.
júní, verður fimmtugur,
Kjartan Þórðarson hag-
fræðingur. Hann og eigin-
kona hans, Helga Kristín
Einarsdóttir, taka á móti
gestum á heimili sínu, Lind-
arflöt 16, Garðabæ, milli kl.
17 og 19.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman þann 8. maí sl. í
Hafnarfjarðarkirkju af sr.
Vigfúsi Árnasyni, Valgerð-
ur Steingrimsdóttir og Jón
Stefán Einarsson. Þau eru
til heimilis að Brattholti 5,
Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman hinn 29. maí sl. í Há-
teigskirkju í Reykjavík af
sr. Pálma Matthíassyni
Bergþóra Eiðsdóttir og
Páll Elísson. Þau eru til
heimilis í Engjaseli 39 í
Reykjavík.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman þann 8. maí sl. í
Garðakirkju af sr. Hans
Markús Hafsteinssyni,
Björk Filipsdóttir og Frið-
fmnur Orri Stefánsson. Þau
eru til heimilis að Hrísmó-
um í Garðabæ.
BRIDS
■Im.vjón Guðinundur
Páll Arnarxon
Töfluskýrendur voru fljótir
að sjá vinningsleiðina í fjór-
um spöðum suðurs. Sem er
ekki nema von, því þeir
njóta þeirra foiréttinda
(eins og lesandinn) að sjá
allar hendur. Þetta var í
fimmtu umferð EM á
Möltu:
Austur gefur; NS á
hættu.
Vestur
♦ 7
VK6
♦ ÁDG976
♦ K1096
Norður
A 64
V 432
4 10543
*Á543
Austur
* D985
y 9875
4 82
*G72
Suður
* ÁKG1032
VÁDGIO
4 K
* D8
Vestur kemur út með
tígulás og spilar drottning-
unni í öðnim slag, sem suð-
ur trompar. Jæja; hvernig á
að vinna spilið?
I reynd fóru menn tvær
leiðir: Sumir tóku strax ÁK
í spaða, en aðrir einn há-
spaða og notuðu innkomuna
á laufás til að svína fyrir
trompdrottninguna. Hvor-
ugt heppnast. En sjái menn
allar hendur er vinnings-
leiðin þessi: Suður spilar
strax hjartaás og meira
hjarta! Vestur lendir inni og
á þrjá kosti og alla slæma:
Hann getur spilað trompi,
en þá fær austur engan
trompslag. Það kostar aug-
ljóslega slag að spila laufi
frá kóngum, og ennfremur
að spila tígli - háum eða lág-
um - því þá fríast tía blinds.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ "ttt/pj'glKU þi'g* >'<%} t&teu kJórupritið rné?>!
í HLÍÐARENDAKOTI
Fyrr var oft í koti kátt,
krakkar léku saman.
Þar var löngum hlegið hátt,
hent að mörgu gaman.
Uti um stéttar urðu þar
einatt skrýtnar sögur,
þegar saman safnazt var
sumarkvöldin fógur.
Eins við brugðum okkur þá
oft á milli bæja
til að ká ankast eitthvað á
eða til að hlæja.
Margt eitt kvöld og margan dag
máttum við í næði
æfa saman eitthvert lag
eða syngja kvæði.
Bænum mínum heima hjá
Hlíðar brekkum undir
er svo margt að minnast á,
margar glaðar stundir.
Því vill hvarfla hugurinn,
_______ heillavinir góðir,
LjóOið í Hlíð- heim > gamla hópinn minn,
arendakoti heim á fornar slóðir.
Þorstelnn
Erlingsson
(1858-1914)
STJORNUSPA
eftir F.ranccx Drakc
KRABBINN
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert viljasterkur, trúr og
tryggur og heldur tilfínn-
ingum þínum fyrir sjálfan
þig. Gættu þess að dreifa
hæfíleikunum ekki um of.
Hrútur „
(21. mars -19. apríl)
Þú hefur verið lúsiðinn að
undanförnu svo nú er komið
að því að þú njótir ávaxta erf-
iðis þíns og lyftir þér aðeins
upp.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Það er í mörg horn að líta hjá
þér bæði í leik og starfi.
Treystu á sjálfan þig því þitt
er að ráða fram úr hlutunum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) Nn
Reyndu að koma þannig fram
við aðra sem þú vilt að aðrir
komi fram við þig. Hógværð og
lítillæti eru góðir kostir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki gagnrýni annarra
slá þig út af laginu. Hugsaðu
þig vel um áður en þú hellir
þér út í samræður við annað
fólk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) (IW
Fylgdu málunum vel efth- jafn-
vel þótt þér kunni að leiðast öll
smáatriðin. En án þess að þau
séu í lagi verður ekkert úr því
sem meira er.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <C$L
Hlustaðu á það sem aðrir segja
og það getur gefið þér nýja
innsýn á marga hluti. Það er
þó ástæðulaust að hlaupa efth
öllu því sem sagt er.
(23. sept. - 22. október) m
Þú hefur náð góðu verklagi og
átt að kappkosta að halda því.
Láttu því athugasemdir ann-
arra eins og vind um eyru
þjóta.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú þarft að leggja þig fram og
ná aftur stjórn á hlutunum.
Einbeittu þér að framhaldinu
þannig að allt takist sem best
má verða.
Bogmaður >Vs
(22. nóv. - 21. desember) hLv
Þú mátt gefa þér tíma til að
sinna þínum nánustu og gam-
an væri að geta lyft sér upp
eina kvöldstund og ýtt frá sér
amstri daganna.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) eSc
Þú þarft á öllum þínum innri
styrk að halda til þess að kom-
ast í gegnum þá erfiðleika sem
við þér blasa. En haltu ró
þinni því öll mál leysast vel um
síðir.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þér finnst þú vera eitthvað
utangátta um þessar mundir
svo þú þarft að taka þig á og
sýna öðrum en sjálfum þér
áhuga.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú virðist hafa alla þræðina í
hendi þér svo þú getur ótrauð-
ur haldið ætlunarverkinu
áfram. Mundu samt að slá
hvergi slöku við.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
KRIMGLUKAST í fullum gangi
yyyff y Ír Tjw/
Kringlunni, sími 568 3242
RUMTEPPADAGAR
AÐEINS ÞESSA VIKU
Lín & léreft
BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 561 1717
TILBOÐ
Frá 24/6 til 1/7
Þvottakarfa:
Hægt að fella saman,
er úr við og striga.
Stærð: 65 x 45 x 43 cm.
Almennt verö kr. 1.890.
Okkar verð kr. 798.
Handklæði:
Stærð 65 x 130 cm úr bómull
Almennt verð kr. 599.
Okkar verð kr. 298.
Mokka bollastell:
17 stykkja úr postulíni,
falleg munstur.
Almennt verð kr. 2.990.
Okkar verð kr. 998.
Ferðatöskusett 3 stk. í pakka:
Nylontöskur, stærðir:
55 x 39 x 14 cm.
50 x 32 x 30 cm.
26 x 15 x 10,5 cm.
Algjört tilboðsverð á meðan
birgðir endast kr. 998.
Almennt verð
kr. 3.000 til 5.000.
Verkfærakistur úr plasti:
Stærð: Lengd 47 cm, breidd 26
cm, hæö 33 cm.
Tvö lokuð hólf í loki, einnig lokaður
aukakassi í kistu.
Almennt verð kr. 3.990.
Okkar verð kr. 998.
Stærð: Minni kista: Lengd 37 cm,
breidd 20 cm, hæð 16 cm.
Tvö lokuö hðlf í loki og aukaskúffa í
kistu með handfangi.
búðin
Ath. Einstakt á íslandi, alit
verð í Ótrúlegu búðunum
frá kr. 198-998.
Laugavegi 118, sími 511 4141
Kringlunni, sími 588 1010
Keflavík, sími 421 1736