Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 13

Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 13 FRÉTTIR Forstjóri stóru sjúkrahúsanna bíður eftir ákvörðun um skipulagsmál Taka þarf fljót- lega ákvörðun um skipulag MAGNÚS Pétursson, forstjóri sjúkrahúsanna í Reykjavík, sagði á aðalfundi sjúkrahúsa að fyrir lok desembermánaðar yi'ði að liggja fyrir hvernig yfirstjórn sjúkrahús- anna í Reykjavík skuli háttað. Búið væri að auka samvinnu og verka- skiptingu milli stóru sjúkrahús- anna og taka yrði ákvörðun um hvort ganga ætti lengra á þessari braut. Magnús var í desember á síðasta ári ráðinn forstjóri beggja sjúkra- húsanna í Reykjavík. Sjúkrahúsin voru þó ekki sameinuð og þau lúta enn hvort sinni stjóminni. „Ekki síðar en undir lok desem- ber næstkomandi þarf að vera búið að ákveða hvemig yfirstjórn sjúkra- húsanna í Reykjavík skuli háttað. Um hana eru skiptar skoðanir. Grundvallarágreiningur er rneðal ýmissa aðila um hvort sameina eigi sjúkrahúsin. Rök era leidd að því að það sé heppilegt fyrir sjúkrahúsin í Reykjavík, þ.e. Landspítalann og Sjúkrahús Reykjavíkur, að keppa sín á milli; keppa um sjúklinga, starfsmenn og það að veita góða þjónustu. Rök þeirra sem eru sam- keppninni mótfallnh- eru að þetta sé bæði fjárhagslega óheppilegt og að þetta sé samkeppni sem ekki eigi við rök að styðjast. Þvert á móti eigi að örva samkeppni milli opinberra stofnana og einkaaðila og milli hæf- ustu manna, óháð því í hvora sjúkrahúsinu í Reykjavík þeir starfa,“ sagði Magnús. Sameiginleg sljóm skipuð? Magnús sagði að stjórnvöldum væri vandi á höndum að ákveða stjórnskipulag sjúkrahúsanna. Hann minnti á að með samningi Reykjavíkurborgar og ríkisins um Sjúkrahús Reykjavíkur, sem gerður var í desember í fyrra, hefði stefnan verið sett á aukna samvinnu og verkaskiptingu milli sjúkrahúsanna, en ekki samkeppni. „Eg tel að á þessu ári hafi farið fram ágætis umfjöllun, jafnvel ákvarðanir teknar um atriði sem hníga í þessa átt. Eg nefni hér upp- lýsingamál sjúkrahúsanna, sam- ræmingu í túlkun kjarasamninga, vinnu við gerð sjúkraskrár sjúkra- húsa og fleira mætti telja. Eigi að halda áfram á þessari braut er afar mikilvægt að heilbrigðisráðherra ákveði hið fyrsta að skipa eina stjóm yfir sjúkrahúsin í Reykja- vík.“ Magnús sagði að yrði ákveðið að setja eina stjórn yfir sjúkrahúsin, leiddi það til þess að skipa þyrfti eina framkvæmdastjóm, sameigin- legan hjúkranarforstjóra, lækn- ingaforstjóra og aðra yfirmenn. Þeyttist upp á aðra bifreið I ÞESSUM árekstri, sem varð á gatnamótum Ilofsvallagötu og Hagamels laust eftir miðnætti á föstudagskvöld urðu engin slys á fólki, en bifreiðarnar tvær rákust á með þeim hætti að strætisvagn, sem ók eftir Hofs- vallagötunni ók á afturenda gráu bifreiðarinnar, sem ekið var út á Hofsvallagötuna, með þeim afleiðingum að hún sner- ist hálfhring á götunni og hafn- aði uppi á hinni bifreiðinni. Ennfremur hlutust af skemmd- ir á grindverki og umferðar- skilti áður en bifreiðarnar rák- ust saman. Morgunblaðið/Steingrímur F. Stefánsson Yfír tíu þúsund manns hafa sótt umferðarfundi hjá Vátrygg’ingafelaginu Sýnilegur árangur af forvarnastarfi Á SÍÐUSTU fimm árum hefur Vá- tryggingafélag Islands gengist fyrir umferðarfundum með ungu fólki þar sem m.a. er fjallað um skelfilegar af- leiðingar umferðarslysa með sér- stakri skírskotun til aldurshópsins 17-20 ára. Á þessum fimm áram hafa ríflega tíu þúsund ungmenni sótt umferðarfundi VÍS. Að sögn Ragnheiðar Davíðsdóttur, forvarnafulltrúa VIS, er fjallað um afleiðingar hrað- og ölvunaraksturs á fundunum og sýnd viðtöl við ung- menni og aðstandendur þeirra sem þekkja hörmungar umferðar- slysanna af eigin reynslu. Auk þess geíúr VIS út sérstakt blað, þar sem fjallað er um afleiðingar umferðar- slysa, og er því dreift til unga fólks- ins. Ragnheiður segir að nú hafi kom- ið í ljós að umtalsverður árangur hafi náðst með þessu forvarnastarfi VÍS sem sýni sig í því að þeir öku- menn, sem sótt hafa umferðarfund- ina, valda mun síður tjóni en aðrir ungir ökumenn. „Munurinn er langmestur hjá 17 ára ökumönnum, en þar era slys og óhöpp 33% færri meðal þeirra sem sótt hafa umferðarfundina," segir Ragnheiður. Hún segir enn fremur að það veki einnig veralega athygli, að meðal- tjónsfjárhæð vegna tjóna þeirra ung- menna sem sótt hafa umferðarfundi VÍS á aldrinum 17-20 ára sé 26% lægri en hjá öðram. Þannig er meðal- tjónsfjárhæð 17-20 ára ökumanna, sem ekki hafa verið á umferðarfund- um VÍS, 688 þúsund krónur, en 507 þúsund krónur meðal sama aldurs- hóps sem sótt hefur fundina. „Líklegasta skýringin er sú að þeir ökumenn aki hægar, viðhafi meiri varkárni og noti fremur bíl- belti en aðrir ungir ökumenn. Þar af leiðandi verður óhappið eða slysið ekki eins alvarlegt og ella hefði orð- ið,“ segir Ragnheiður. Á síðustu fimm áram hafa 37 öku- menn á aldrinum 17-20 ára verið endurkrafðir um tjón vegna ölvun- araksturs eða vítaverðs aksturs hjá VIS. Þar af era sex einstaklingar sem sótt hafa umferðarfundi VÍS en 31 ekki. Ragnheiður segir að þar gildi án efa sömu lögmál og áður, þ.e. að betur meðvituð og upplýst ungmenni aki síður undir áhrifum áfengis eða sýni af sér vítavert gá- leysi í umferðinni. „Meðaltjónsfjárhæð á endurkröf- um þeirra ungmenna sem verið hafa á fundunum okkar er 650 þúsund krónur, en 1.477 þúsund á þá sem ekki vora á fundunum. Af þessum tölum er nú orðið ljóst að það era mun minni líkur á slysum og óhöpp- um í umferðinni hjá þeim sem sótt hafa umferðarfundina og að for- vamastarf gegn umferðarslysum ber ótvíræðan árangur. Vátryggingafé- lag íslands er stolt af þessum ár- angri, sem félagið þakkar ekki síst þeim fjölmörgu ungu ökumönnum, sem mætt hafa á fundina og sýnt í verki að þeir vilja leggja sitt af mörk- um til að fækka umferðarslysum." Ragnheiðm- segir að í ljósi þessa árangurs muni VÍS leggja þunga áherslu á forvarnir gegn umferðar- slysum og beina athyglinni sem fyrr að ungu fólki, enda hafi reynslan sýnt að þar sé þörfin mest. Umferðarfundir VIS verða haldnir á tveggja vikna fresti í Reykjavík í vetur og fara fram í húsakynnum félagsins í Armúla 3 og hefjast klukkan 19.30. Einnig verða haldnir fundir í flestum fram- haldsskólum landsins. Dóms- og kirkju- málaráðherra Nýr að- stoðar- maður INGVI Hrafn Óskarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sólveigar Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra, og tek- ur hann við störfum 20. septem- ber nk. Ingvi er stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík og lauk embættis- prófi í lög- fræði frá Háskóla ís- lands 1998. Hann sat í stjórn Vöku 1994- 95, í stjórn Stúd- entaráðs 1995- 97 og var fulltrúi stúdenta í Háskólaráði 1995-97. Hann var formaður Vöku 1996-97, sat í stjórn Heimdallar 1997-98 og var kosinn formaður Heimdall- ar 1998. Þá var Ingvi kosinn í stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna fyrir tímabilið 1999-2001. Ingvi hefur starfað sem fulltrúi á Lögfræðiskrif- stofunni Garðastræti 17 sf. frá því hann brautskráðist frá Há- skóla íslands. Sambýliskona Ingva er Aðal- heiður Inga Þorsteinsdóttir blaðamaður. Páll Hreins- son skipaður formaður Tölvunefndar DÓMS- og kirkjumálaráðherra, Sólveig Pétursdóttir, hefur skipað Pál Hreinsson, dósent við lagadeild Háskóla Is- lands, til að gegna stöðu formanns Tölvunefnd- ar. Þá hefur ráðherra einnig skip- að nýjan varamann, Gunnar Thoroddsen lögfræðing. Jón Ólafsson hrl. er varafor- maður, en aðrir nefndarmenn era: Valtýr Sigurðsson héraðs- dómari, Guðbjörg Sigurðardótt- ir tölvunarfræðingur og Hai'ald- ur Briem læknir. Varamenn era Jón Thors, skrifstoíústjóri í dómsmálai-áðuneytinu, Erla S. Árnadóttir hrl., Oskar B. Hauksson verkfræðingur og Vil- helmína Haraldsdóttir læknir. Sem fyn- er framkvæmda- stjóri nefndarinnar Signin Jó- hannesdóttir, deildarstjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu. Ingvi Hrafn Óskarsson Utlit fyrir aukna fram- leiðslu á lambakjöti ÚTLIT er fyrir að framleiðsla á lambakjöti verði meiri í ár en í fyrra að sögn Gísla Karlssonar, framkvæmdastjóra Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins. Hann segir enn fremur að vegna slæmrar af- komu sauðfjárbænda megi búast við að slátrun verði með mesta móti. Fáir bændur tali um að þeir ætli að fjölga hjá sér sauðfénu en frekar að þeir ætli að fækka því. Hann segir að féð sem leiða eigi til slátrunar sé vænt og að búast megi við að mikið af lambakjöti falli til í haust. í fyrra voru framleidd um 8.200 tonn af kindakjöti. Gísli segir að ólíklegt sé að innan- landsmarkaðurinn taki við þessari auknu framleiðslu og að útflutning- ur verði þar af leiðandi aukinn. Út- flutningsskylda bænda var í sumar hækkuð úr 15% í 25%. Nægur markaður sé íyi-ir lambakjöt er- lendis en Gísli segir að vandamál ís- lenskra framleiðenda sé hversu lágt verð fáist íyrir kjötið. Opnaö að nýju! Hallgrímur Þ. Magnússon læknir hefur opnaö læknastofu á nýjum staö: HAMRABORG 1, - 2. HÆÐ (fyrir ofan Landsbankann) 200 KÓPAVOGI,- SÍMI 544 5005 Sérfrœðingur: Svæfingar — deyfingar Sérsvið: nálastungur og óhefðbundnar lækningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.