Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 27
Hamlet í
íslenskri
útgáfu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið
„GÖTT dæmi um nútíma prins“ er
fyrirsögnin á gagnrýni Fyens Stift-
stidende á sýningu Odense-leikhúss-
ins á Hamlet eftir William Shakespe-
are í því sem flest dönsku blöðin
kalla íslenska útgáfu. Þar eru á ferð-
inni þríeykið Baltasar Kormákur
leikstjóri, Vytautas Narbutas sviðs-
myndahönnuður og Filippía Elís-
dóttir búningahönnuður. Nútímalegt
yfirbragð sýningarinnai- er viðkvæð-
ið hjá blöðunum um sýninguna, sem
þykir vekja áhugaverðar spurningar
og hugrenningar, þótt einstaka
gagnrýnanda þyki sýningin missa
marks.
Að mati Ninu Davidsen í In-
formation felur Hamlet-uppsetningin
í sér stórsýningu, einkum vegna vel
útfærðrar samvinnu við sviðsmynda-
hönnuðinn, svo úr verður sagnaflæði,
þar sem myndir og orð hanga saman,
án þess að stuðst sé við einföld brögð.
Að mestu geti áhorfandinn því bara
hallað sér aftur í sætinu og notið sýn-
ingarinnar, þótt gagnrýnandinn sé
ósáttur við endinn, sem að hans mati
er þó alltaf erfíður viðfangs.
I umsögn Fyens Stiftstidende um
Hamlet-sýninguna segii' Aksel Bra-
he að fyrir mörgum ái'um hafí verið
nóg að leika Hamlet í kjólfötum til að
vekja athygli, en nú þurfi meira til.
Líka meira en leðurföt og rokktón-
list eins og i sýningunni í Oðinsvéum.
Kannski séu allir möguleikar til
nýtúlkunar á Hamlet tæmdir, en
samt sé sýningin nú áhrifamikil sýn-
ing á sígildu verki, sem þau þre-
menningarnir beri fram.
Síðan segir að sviðsetning
Baltasars Kormáks einkennist af
uppátækjum, sem séu ekki alltaf ná-
kvæmlega mótuð, en í einföldum
ramma Vytautas Narbutas úr stál-
rörum og tímalausum búningum Fil-
ippíu I. Elísdóttur.
Undir fýi'irsögninni „Blaktandi
efi“ í Politiken segir Christian Lund
sýninguna mikla og vel leikna og lifa
í sterkum atriðum. Sýning Baltasars,
sem að mörgu leyti sé „snilldarleg“
sé einnig svo tælandi að áhorfandan-
um gremjist þegar hún er á enda.
Hugmyndin virðist vera að láta
okkar daga Hamlet vera flautaþyril,
sem bregði á leik með lærdóm sinn,
þótt orð hans sýni í raun annað.
Uppsetningin virki því ekki alltaf
heilsteypt, en góður leikur og sviðs-
myndin ljái henni góðan ramma.
„Það eru svo mörg ríkuleg atriði í
þessum Hamlet, að gagnrýnandinn
er hrifinn, þótt grunnurinn sé ekki
alveg heilsteyptur.“ Sýningin sé
áhrifamikil og þess virði að skilning-
ai"vitin séu opnuð fyrh' henni.
I Ekstra Bladet fær Hamlet-sýn-
ingin fjórar af sex mögulegum
stjörnum og Gregers Dircinck-
Holmfeld segir að Islendingurinn
ætli sér mikið með Hamlet og þótt
allt takist ekki takist sumt mjög vel.
Lars Wredstrpm, gagnrýnandi
Bnrsen, er á öndverðum meiði um
sýninguna, sem hann kallar „Hamlet
í mótleik", þar sem sýningin er að
hans mati „án innihalds, nándar og
tilfinninga“. Það hái sýningunni að
leikstjóranum takist ekki að gera
persónumar samhangandi, heldur
prófi eitt og annað, án þess að per-
sónurnar glæðist lífi. Þær segi eitt
en geri annað, persónurnar skorti
tilfinningar, sýningin sé í bútum, en
nái aldrei neinu flæði. Samhengið sé
hins vegar í sviðsmynd og búningum,
en kannski í oftúlkaðri útgáfu. Þótt
mikið sé lagt undir og af hugrekki sé
árangurinn ekki í samræmi við það.
í Berlingske Tidende er Per Theil
á svipuðu róli og Wredstrpm, álítur
sýninguna einkennast af smart
brögðum á kostnað leikritsins undir
fyi'irsögninni „Harmleikurinn sem
hvarf‘. Sýningin einkennist af uppá-
tækjum leikstjórans, að viðbættum
myndum Narbutas, en hann noti
móðursýkislega mikið af trúarlegum
myndum. I þessu drukkni leikararn-
ir, tilfmningarnar, sagan og harm-
leikurinn hverfi undir yflrborðið.
Leikhópur Kaffileikhússins sem stendur að söngleiknum Landvættum.
Nýr íslenskur
söngleikur
I KAFFILEIKHÚSINU eru hafn-
ar æfingar á nýju leikverki eftir
Karl Ágúst Úlfsson við tónlist eft-
ir Hjálmar H. Ragnarsson. Leik-
ritið nefnist Landvættir og er að
sögn aðstandenda spennandi
söngleikur þar sem hið broslega í
fari Islendinga allra alda er und-
irstrikað. I uppsetningunni flétt-
ast saman listgreinarnar leiklist,
tónlist, dans og myndlist. Leik-
endur eru Agnar Jón Egilsson,
Erla Ruth Harðardóttir, Karl
Ágiíst Úlfsson og Vala Þói'sdótt-
ir. Leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir. Leikmynd og búning-
ar eru í höndum Rannveigar
Gylfadóttur. Frumsýning er fyr-
irhuguð í lok október.
Samlæsingar með þjófavörn og
rafmagn (rúðum að framan.
Litað gler.
Tvöfaldir styrktarbitar
í hurðum.
Vökva- og veftistýri.
Dagljósabúnaður. Sanserað
lakk. 8 ára ryðvarnarábyrgð.
Þokuljós og samlitir
stuðarar.
1500cc90hövél.
SOHC tölvustýrð innspýting.
Eyðsla aðeins 8,41/100 km.
Hljómfiutningstæki
með 4 hátölurum og
rafdrifnu toftneti.
Falleg innrótting.
Hæðarstillanlegt öryggisbelti.
4 dyra Hyundai Accent
í sérstakri afmælisútgáfu með
aukabúnaði að verðmæti
í 4 dyra Accent
afmælisútgáfunni
færðu aukaiega:
• Álfelgur
• Vindskeið með
bremsuljósi
• Geislaspilari
• Mottur
• Fjarstýrð samlæsing
• Vetrardekkástálfelgum
at -
15 tonaf.
Æí
— athuo*®'
154.990 kr. í kaupbæti.
Acœnt 4 dyra
í afmælisútgáfu:
1.199.000 kr.
n - I
Fosahéls B
Bifroiöoskoðun j B&L l
Hostháls \ \ -v Gdóthte
VootiílandsvWQur
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
<s> S)
HYunoni
T
GOTT FÚIK