Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Sindra-Stál eignast Hita á Akureyri Stefnt að því að efla reksturinn SINDRA-STAL hf. í Reykjavík hef- ur eignast öll hlutabréf í Hita hf. á Akureyri. Hiti verslar m.a. með pípulagningarefni, hreinlætistæki og fleira en að sögn Bergþórs Kon- ráðssonar, framkvæmdastjóra Sindra-Stáls, verður fyrirtækið rek- ið sem dótturfélag Sindra-Stáls en með svipuðu sniði og verið hefur og með sama starfsfólki. Hins vegar sé stefnt að því að efla reksturinn, auka vöruúrvalið og fjölga starfs- fólki. Húsnæði Hita við Draupnisgötu á Akureyri er um 500 fermetrar en Bergþór sagði að á lóðinni væri möguleiki til stækkunar húsnæðis- ins um helming. Ekki hafi þó verið tekin ákvörðun um að ráðast í slíkar framkvæmdir að svo stöddu. Viljum þjóna betur „Við eigum mikið af góðum við- skiptavinum á Akureyri og víðar á Norðurlandi sem við viljum gaman þjóna betur. Þar er fyrst og fremst um að ræða málmiðnaðarfyrirtæki og fyrirtæki í byggingaiðnaði en fram til þessa höfum við þjónað þessum markaði beint að sunnan en verið í samstarfi við aðila á svæðinu með vélar og tæki. Við höfum trú á að þarna verði uppgangur áfram.“ Stærsti hlutinn í starfsemi Sindra-Stáls er innflutningur á stáli og málmum. Einnig verslar fyrir- tækið með mikið af verkfærum og vélum fyrir pípulagningariðnaðinn og fleiri, loftpressur og varmaskipta og þá er Sindra-Stál með umboð fyrir Black&Decker-rafmagnsverk- færi. Domino’s pizzur til Akureyrar Þyrping kaupir húsnæði Polaris FASTEIGNAFE LAGIÐ Þyrping í Reykjavík hefur keypt húsnæði Polarisumboðsins ehf. við Undir- hlíð á Akureyri. Þyrping er í eigu fjölskyldu Pálma heitins Jónssonar í Hagkaupi og samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins verður settur upp Domino’s pizza staður í húsnæðinu síðar í haust. Nýir eig- endur fá húsnæðið afhent í næsta mánuði en það er um 450 fermetr- ar að stærð. Tómas Eyþórsson hjá Polaris- umboðinu sagði að með sölunni væri verið að endurskipuleggja rekstur fyrirtækisins, auk þess sem húsnæðið þótti ekki hentugt Bæjarráð um meðferð- arheimili á Dalvík Ekki hnökrar á umsókninni BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar mót- mælir þeirri fullyrðingu að um ein- hverja hnökra hafi verið að ræða á umsókn um rekstur meðferðarheim- ilis í sveitarfélaginu, eða að ekki hafi vegna sumarleyfa verið hægt að sinna fýrirspurnum vegna umsókn- arinnar. Engar fyrirspurnir eða at- hugasemdir hafi verið gerðar þann eina og hálfa mánuð sem umsóknin var til skoðunar hjá félagsmálaráð- herra. Bæjarráð ítrekar umrædda um- sókn og lýsir sig jafnframt reiðubúið til viðræðna við Barnaverndarstofu um stofnun og rekstur nýs meðferð- arheimilis fyrir börn, sem gæti tekið til starfa á þessu eða næsta ári. I bókun bæjarráðs kemur jafnframt fram að bæjaryfirvöld í samstarfi við hóp einstaklinga sem lýstu sig reiðu- búna til að taka að sér rekstur með- ferðarheimilis, lögðu inn umsókn 15. júlí sl. þar sem opnaðir voru margir möguleikar varðandi húsnæði. Eins og komið hefur fram hefur félagsmálaráðherra farið þess á leit við Barnaverndarstofu að leitað verði eftir samningi við aðila á Aust- urlandi um rekstur meðferðarheimil- isins. Rögnvaldur Skíði Friðbjörns- son, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, sagði að í umsókninni hefði verið bent á ýmsa möguleika til að byrja með en að eðlilegast væri að byggja sérhæft húsnæði yfir slíka starfsemi. Morgunblaðið/Kristján Stúlkur úr skátasveitinni Skeifunni frá skátafélaginu Klakki á gönguferð á Landsmótinu á Úlfljótsvatni í sumar. Vetrarstarf Klakks að hefjast SKÁTAR á Akureyri eru nú að hefja vetrarstarfíð. Það hefst með ferð í Vaglaskóg sem kallast „Skátar ganga, skátar hjóla.“ Þátttakendur ganga eða hjóla yfír Vaðlaheiði nk. laugardag og sömu leið til baka á sunnudag. Gist verður í tjöldum í skóginum og verður varðeldur á laugar- dagskvöld. Gengin verður gamla þingmannaleiðin en farið á hjól- um eftir gamla þjóðveginum yfír Steinsskarð. Göngustjóri verður Ólafur Kjartansson aðstoðarfé- lagsforingi en hjólahópnum stjórnar Þorsteinn Pétursson fé- lagsforingi. Skátalíf er útilíf og skátar láta sig ekki muna um smáhreyfingu. Þá mun stjórn skátafélagsins Klakks bjóða öllum í ValhöII sunnudaginn 19. september á milli kl. 15 og 17. Þar verður stjórnin til skrafs og ráðagerða og svarar fyrirspurnum. Þeir sem hafa áhuga á að aðstoða við starfið eru sérstaklega boðnir velkomnir, því margar hendur vinna létt verk. Foreldrar eru hvattir til að koma og líta á að- stöðuna í Valhöll og hitta stjórn- armenn, sem gjarnan vilja heyra frá foreldmm. Skátastarfíð mun fara af stað fljótlega en nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins, sem er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 17-18. Síminn er 461-2266. undir starfsemina. Polarisumboðið verslar m.a. með vélsleða, fjórhjól, sexhjól og vatnaþotur, svo og alla fylgihluti og tilheyrarandi fatnað. Tómas sagði að fyrirtækið hefði fest kaup á húsnæði í Reykjavík og myndi sjálft sjá um reksturinn þar. Aðalumboðið yrði hins vegar áfram á Akureyri og þá í öðru húsnæði. Heilsugæslustöðin í Dalvíkurbyggð Erfítt að fá lækni ANNAR heilsugæslulæknirinn við Heilugæslustöðina í Dalvíkurbyggð hefur verið ráðinn til starfa við Heilsugæslustöðina á Akureyri. Hann tekur við nýja starfinu um næstu mánaðamót en enn hefur ekki tekist að fá annan lækni í hans stað í Dalvíkurbyggð. Jónas Oskarsson, formaður stjórnar Heilsugæslustöðvarinnar, sagði orðið vandamál að fá lækna út á land og að trúlega væri framboð á læknum ekki nægjanlegt. „Við höf- um auglýst stöðuna en það hefur lítið komið út úr því. Þetta snýst ekki um vinnuaðstöðu, því aðstaðan hér er sú sama og annars staðar á landinu." Jónas sagði menn vissulega hafa áhyggjur af því að vera aðeins með einn Iækni við heilsugæslustöðina eftir næstu mánaðamót og undir það tekur Rögnvaldur Skíði Friðbjörns- son bæjarstjóri. Fundað með bæjarráði Auk Dalvíkurbyggðar nær svæði Heilsugæslustöðvarinnar til Hríseyj- ar. Jónas sagði að í gangi væri sam- starf við Ólafsfirðinga um vakta- skipti og annað en það breytti því ekki að þessir hlutir þyrftu að vera í lagi. Stjórn Heilsugæslustöðvarinnar kemur saman til fundar í dag, mið- vikudag, og þá hefur bæjarráð Dal- víkurbyggðar óskað eftir fundi með stjórninni, þar sem ráðinu verði gerð grein fyrir stöðu mála. Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Gerðahverfi Eyrina Huldugil/Víkurgil Borgarsíða/Móasíða Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. I Morgunblaðið Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. * Formaður Léttis um ummæli Arna Johnsen um tvö helstu hrossaræktarsvæðin Moðgandi ummæli gagn- vart öðrum svæðum SIGFÚS Helgason, formaður Hesta- mannafélagsins Léttis á Akureyri, fr'amkvæmdastjóri Melgerðismela og stjórnarmaður í Landssambandi hestamannafélaga, gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli Árna Johnsen alþingismanns í Morgun- blaðinu í gær, þess efnis að helstu hrossaræktarsvæði landsins séu Suðurland og Norðurland vestra. Sigfús segir þetta móðgandi ummæli gagnvart öðrum hrossaræktarsvæð- um. I frétt Morgunblaðsins er fjallað um þau áform stjórnvalda að verja 150 milljónum króna til stuðnings hrossarækt og að sú uppbygging fari fram í Skagafirði. Um er að ræða verkefni sem er ætlað að standa í fimm ár. Ríkið ætlar að leggja fram samtals 150 milljónir króna en gert er ráð fyrir að Skagfirðingar leggi fram 75 milljónir og aðrir 25 milljón- ir. I máli Árna kemur fram að ekki gangi að afgreiða málið á þennan hátt af hálfu ríkisins nema að farið verði út í sambærilegt átak á hinu hrossaræktarsvæðinu en þar á hann við Suðurland. „Ég er í flestum tilfellum mjög þakklátur og ánægður með framtak ríkisins til stuðnings hrossaræktinni. Auðvitað eru mjög skiptar skoðanir um hvernig á að verja þessu fé. En að hrossaræktarsvæðin séu einungis tvö, eins og Arni Johnsen talar um, geri ég mjög alvarlegar athugasemd- ir við. Norðurland eystra hefur ný- verið staðið fyrir glæsilegu lands- móti á Melgerðismelum og stuðlað þar að gríðarlegri uppbyggingu, sem hefur orðið vítamínsprauta fyrir hrossarækt á svæðinu," sagði Sigfús. Byggt meira upp á gæðum en magni Hann sagði það vissulega rétt að mun fleiri hross væru á Norðurlandi vestra og Suðurlandi en á Norður- landi eystra. „En í allri þessari um- ræðu um offjölgun hrossa væri það kannski þessum landshlutum til eft- irbreytni að hér er byggt meira upp á gæðum en magni.“ Sigfús sagði að í tengslum við upp- bygginguna á Melgerðismelum und- anfarin ár hafi verið leitað til ríkis- valdsins um fjármagn með litlum sem engum árangri. Hann kvaðst fagna því heilshugar að ríkið legði fram fjármagn til greinarinnar í heild sinni, en er ekki sáttur við að það fari allt á einn stað. „Það hefur orðið mikil viðhorfsbreyting hjá rík- isvaldinu og menn eru kannski fyrst nú að opna augun fyrir því hversu þýðingarmikill íslenski hesturinn er fyrir okkur og það sannaðist vel á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Vonast eftir fjármagni til Melgerðismela Mér finnst ekki hafa verið staðið faglega að undirbúningnum í Skaga- fírði og þessi skýrsla, sem ég hef séð en hefur ekki verið gerð opinber, er hroðvirknislega unnin. Þar er verið að telja fram hluti sem hin frjálsu fé- lagasamtök hestamanna í landinu eru að vinna, samanber landslið, æskulýðsmál og ræktunarmál. Ég held því að menn ættu að fara var- lega í að kasta fjármagni til eins landshluta, því stór hluti af þessu starfi er unninn í sjálfboðavinnu í landssamtökum hestamanna." Sigfús bætti því við að hann óskaði Skagfirðingum til hamingju með framtakið og að í Ijósi þess að búið væri að úthluta þessum fjármunum til Skagafjarðar hljóti Eyfirðingar jafnframt að eiga von á fjármagni til Melgerðismela. Hann kallaði jafn- framt eftir viðbrögðum þingmanna Norðurlandskjördæmis eystra vegna málsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.