Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÍM-Gallup kaupir meirihluta í Ráðgarói
Sterkari á
stækkandi
markaði
ÍSLENSKAR markaðsrannsóknir-
Gallup á Islandi hefur keypt meiri-
hluta í ráðgjafafyrirtækinu Ráð-
gai'ði hf. Kaupverð er ekki gefíð
upp. Að sögn forsvarsmanna félag-
anna, hafa bæði fyrirtækin verið í
örum vexti undanfarin ár og skilað
eigendum sínum hagnaði. Með sam-
starfinu er stefnt að því að bjóða
viðskiptavinum upp á heildarlausnir
í rannsóknum og ráðgjöf. Gert er
ráð fyrir að velta hins sameinaða
fyrirtækis verði um 400 milljónir
króna á þessu ári.
Að sögn Skúla Gunnsteinssonar,
eins eigenda IM-Gallup, hafa fyrir-
tækin haft augastað hvort á öðru
um þó nokkurt skeið en frá því að
sameiningarviðræður hófust af al-
vöru í síðasta mánuði, gengu hlut-
irnir hratt fyrir sig. Hann segir
starfsemi félaganna koma til með
að verða með óbreyttu sniði fyrst
um sinn þar sem Gallup leggi
áherslu á mælingar en Ráðgarður
einbeiti sér að hvers kyns ráðgjafa-
þjónustu fyrir fyrirtæki og einstak-
linga. „Fyrirtækin búa bæði yfir
mikilli sérhæfingu, og hafa verið
leiðandi á markaðnum hvort á sínu
sviði undanfarin ár. Eftir samein-
inguna mun Gallup hins vegar
leggja meiri áherslu á mælingar á
meðan starfsemi Ráðgarðs mun
snúast meira um uppbyggingu þess
hluta sem snýr að ráðgjöfinni," að
sögn Skúla.
„Við hjá Gallup höfum aðallega
sinnt skoðanakönnunum, markaðs-
rannsóknum, þjónustukönnunum,
starfsmannaráðgjöf og ráðningum.
Ráðgarður hefur aftur á móti verið
leiðandi á sviði rekstrarráðgjafar á
Islandi í hátt í annan áratug. Við
leggjum áherslu á að fyrirtækið
haldi áfram að vaxa á sviði um-
hverfis-, gæða-, þjónustu- og
starfsmannastjórnunar og sjáum
fram á að geta boðið viðskiptavin-
um okkar betri og breiðari þjón-
ustu með sameiningu. Þá ber að
geta þess að samhliða því að reka
Morgunblaðið/Ásdís
„Hér er verið að búa til einingu sem á auðveldara nieð að gera sig gilda á íslenskum markaði,“ segir Krist-
ján Kristjánsson, framkvæmdastjóri hjá Ráðgarði, sem sést hér t.h. ásamt Skúla Gunnsteinssyni, einum
eiganda IM-Gallup.
öfluga ráðningarþjónustu í Reykja-
vík, hefur fyrirtækið einnig skrif-
stofu á Akureyri sem við viljum
leggja meiri rækt við í framtíð-
inni.“
Aukið hagræði
með sameiningu
Fyrri eigendur Ráðgarðs, þeir
Gunnar H. Guðmundsson, Magnús
Haraldsson og Kristján Kristjáns-
son, munu allir starfa áfram hjá
fyrirtækinu. Kristján, fram-
kvæmdastjóri Ráðgarðs, segir
sjálfgefið að samruni félaganna
auki hagræði í rekstri þeirra
beggja og gefi þeim færi á að nýta
fleiri sóknarfæri á markaðnum.
„Hér er verið að búa til einingu
sem á auðveldara með að gera sig
gilda á íslenskum markaði. Jafn-
framt sjáum við fram á að geta, í
krafti stærðarinnar, tekið að okkur
fjölbreytilegri og umfangsmeiri
verkefni en áður, bæði hér á landi
sem í nágrannalöndunum.“
í dag starfa yfir 60 manns hjá
fyrirtækjunum tveimur við skrif-
stofu- og sérfræðistörf, að undan-
skildum sex starfsmönnum verk-
fræðifyrirtækisins Ráðgarðs-skipa-
ráðgjafar, dótturfélags Ráðgarðs,
sem er ekki inni í kaupunum og
verður áfram rekið sem sjálfstæð
eining. Að sögn Skúla er íyrirsjá-
anlegt, að bæði félögin muni þurfa
að bæta við sig starfsfólki með
auknum verkefnum á komandi
misserum.
Lífleg viðskipti
með fjármálafyrir-
tæki á VÞÍ
Gengi hluta-
bréfa Islands-
banka hækk-
ar um 5,5%
HLUTABRÉF í íslandsbanka
hækkuðu um 5,5% í gær og var
lokagengi á bréfum bankans 4,76.
Viðskipti voru með hlutabréf ís-
landsbanka fyrir 71,8 milljónir
króna á markaðsvirði á Verðbréfa-
þingi íslands (VÞÍ) í gær. Gengi
hlutabréfa Landsbanka íslands
hækkaði einnig í gær og nam
hækkunin 4,3% en viðskipti voru
með bréf bankans fyrir 23,4 millj-
ónir að markaðsvirði. Lokagengi
Landsbankans var 3,6. Bréf FBA
hækkuðu einnig um 1,4% og Bún-
aðarbankans um 1,6%.
Frá áramótum hafa hlutabréf
íslandsbanka hækkað um 25,3%
og hlutabréf Landsbankans hafa
hækkað um 54,5%. í hálffimm-
fréttum Búnaðarbanka Islands í
gær kemur fram að markaðsvirði
Landsbankans sé komið í 23 millj-
arða, sem sé 86% hækkun frá því
að hlutabréf bankans voru skráð á
markaði í október á síðasta ári.
Viðskiptin með hlutabréf ís-
landsbanka í gær teljast vera mik-
il. 31. ágúst síðastliðinn urðu þau
þó enn meiri en þá námu þau tæp-
um 110,6 milljónum króna.
Hættu%
að hrjóta
„Stop Snoring“ Hættu að
hrjóta tryggír hljóðlátan
-----rværan svef
UiJ t
Frá undirritun samnings um kaup á nýrri hverfílsamstæðu fyrir Nesjavelli. Á myndinni eru talið frá vinstri: Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur, Ingólfur Hrólfsson, yfirverkfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur, Sigfús Jónsson, framkvæmdasljóri Innkaupastofnunar Reykjavík-
urborgar, Alfreð Þorsteinsson, formaður Orkuveitu Reykjavíkur, Claus Ballzus, verkfræðingur hjá VGK, Sigfús R. Sigfússon, forstjóri Heklu, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, Hrafnkell Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heklu, Nakano, framkvæmdastjóri hjá Mitsubishi Heavy Industries,
Sverrir Sigfússon, stjórnarformaður Heklu, og Valdimar K. Jónsson, Miura, framkvæmdastjóri Mitsubishi Corporation (UK) PLC.
Kaup á nýrri hverfilsamstæðu
NÝLEGA undirritaði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
samning við Mitsubishi um
kaup á nýrri hverfilsamstæðu
fyrir Nesjavelli, en með þessari
nýju hverfilsamstæðu er ætlun-
in að framleiða allt að 16 MW
af rafmagni með bættri nýt-
ingu á gufu til raforkufram-
leiðslu. Upptaka úr jarðhita-
svæðinu verður svipuð og með
núverandi virkjun og verður
bakþrýstingur allra þriggja
hverfilsamstæðna lækkaður og
orka gufunnar þannig nýtt bet-
iir.
Á þennan hátt er unnt að
auka rafmagnsframleiðsluna á
Nesjavöllum nánast um 16 MW
og er þessari auknu framleiðslu
ætlað að mæta annars vegar
þeirri miklu aukningu sem orð-
ið hefur á orkuþörf á markaðs-
svæði Orkuveitunnar og hins
vegar er gert ráð fyrir að hluti
orkunnar verði nýttur fyrstu
árin til stóriðju.
Rafmagnsframleiðsla mun
hefjast í nýju hveríllsamstæð-
unni sumarið 2001. Samnings-
upphæðin er 10,5 milljónir doll-
ara eða 776 milljónir króna.
Síðastliðið sumar var ráðist í
að bora 1.800 metra djúpa
rannsóknarholu sem var ská-
boruð 600 metra inn undir
Hengilinn. Með þessari rann-
sóknarholu er verið að kanna
hvort möguleiki sé á að stækka
vinnslusvæði virkjunarinnar og
þar með auka framleiðslugetu
svæðisins. Niðurstöðu tilrauna
með borholuna ásamt líkana-
reikningum á svæðinu er að
vænta upp úr áramótum og
kann þá að vera að Nesjavalla-
svæðið ráði við enn frekari
virkjun.
Hlutafjárútboð hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf. hefst í næstu viku
Aætlað mark-
aðsvirði 4175 m.kr.
FYRSTA almenna hlutafjárútboð
íslenska stoðtækjafyrirtækisins
Össur hf. hefst næstkomandi mánu-
dag, þegar boðnar verða út 45,6
milljónir króna að nafnverði í félag-
inu.
Lágmarksgengi 24 í
tilboðsflokki
Utboðið verður tvískipt. Helm-
ingur upphæðarinnar, 22,8 milljónir
króna að nafnverði, verður boðinn
almenningi í áskrift á genginu 24 og
lýkur þeim útboðshluta fimmtudag-
inn 16. september. Ef upphæðin
selst ekki öll í áskriftarflokld, þá
færist afgangurinn yfir í tilboðs-
flokkinn og bætist við þær 22,8 mkr.
sem þar eru í boði. Þar gefst fjár-
festum kostur á að bjóða í allt að
11,4 milljónir að nafnvirði á lág-
marksgenginu 24. Útboði í tilboðs-
flokki lýkur degi síðar, eða föstu-
daginn 17. september klukkan 16.
Alls er um að ræða 25% hluta-
fjár í félaginu sem stefnir að
skráningu á Aðallista Verðbréfa-
þings íslands síðar í haust. Tveir
þriðju hlutar hlutafjár í útboðinu
er nýtt hlutafé en afgangurinn er í
eigu Össurar Kristinssonar, stofn-
anda Össurar hf. Að teknu tilliti til
útboðsgengis, ætti markaðsvirði
félagsins að vera um 4175 milljónir
króna og áætlaður hagnaður á
næsta ári er 130 milljónir króna
eftir skatta. Skráningarlýsingu og
útboð annast Kaupþing hf.