Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 22.09.1999, Síða 1
214. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fellibylurinn Floyd Á fímmta tug létust í Bandaríkj- unum Washington. AFP. ALLS hafa yfir sextíu manns látist af völdum fellibylsins Floyds sem geystist yfir Bahama-eyjar og suð- austurhluta Bandaríkjanna í liðinni viku og sögðu bandarískir embætt- ismenn í gær að þúsundir manna væru heimilislausar víða um landið vegna úrhellisrigninga í kjölfar Floyds. Sara Kempin, talsmaður neyðar- hjálparstofnunarinnar í Norður- Karólinu, sagði í gær að 41 hefði lát- ist í Bandaríkjunum og að flest dauðsfollin, eða 32, hefðu orðið í N- Karólínu þar sem fellibylurinn gekk á land. Níu manns létust í öðrum ríkjum Bandaríkjanna og sagði Kempin að flestir hefðu látist eftir að Floyd hafði gengið yfir. „Flestir reyndu að keyra um vegi er flætt hafði yfir og fóru með straumnum." Þá er talið að af þeim 30.000 hús- um sem urðu flóðunum að bráð, séu tæplega tvö þúsund ónýt. Allt að 23.000 heimili voru án rafmagns í N-Karólínu í gær. Sagði Kempin að enn væru hund- ruð manna einangruð vegna flóð- anna og að flytja þyrfti vistir til þeirra með þyrlum. Biil Clinton Bandaríkjaforseti hét því að gera meira til að hjálpa þeim er lent hafa í hremmingum vegna fellibylsins og lýsti því yfir að hann myndi senda hjálparsveitir á flóða- svæðin og sérfræðinga tif að meta tjónið. ■ Neyðarástand/25 ---------------- Varað við auknum hryðjuverkum Moskvu. AFP. ASLAN Maskhadov, forseti Tsjet- sjníu, varaði við því í gær að fleiri hryðjuverk kynnu að verða framin í Rússlandi ef Kremlverjar myndu ekki láta af harðlínustefnu sinni gagnvart Kákasus-svæðinu. Sama dag var tilkynnt að lögregluyfirvöld í Moskvu hefðu fundið mörg tonn af sprengiefni í borginni. „Fullveldi Tsjetsjníu getur ekki verið tengt við hryðjuverk. Ibúar landsins hafa aldrei viijað sækja fullveldi sitt með hryðjuverkum," sagði Maskhadov. Maskhadov hét því að verja land sitt ef rússnesk yfirvöld gerðu al- vöru úr hótunum sínum um að ráð- ast inn í Tsjetsjníu. Þá aftók hann með öllu að ríkisstjóm Tsjetsjníu ætti hlut að máli í þeirri hrinu hryðjuverka er dregið hafa nærri 300 manns til dauða í Rússlandi síð- ustu daga og leitt til þess að ótta- slegnir Moskvubúar hafa tekið upp hverfavaktir. Lögregluyfirvöld í Moskvu til- kynntu í gær að þau hefðu gert um tvö tonn af sprengiefni og 1.032 skotraðir upptækar í umfangsmik- illi leit sem staðið hefði undanfama daga og beindist að Tsjetsjenum. Björgunarstarfsmenn við störf innan um húsarústir og innanstokksmuni nærri Taipei í gær. 1.500 eftir- skjálftar Kristín Zoega hefur verið búsett í Taipei, höfuðborg Taívans, um ára- bil og var í borginni er jarðskjálft- inn reið yfir. I viðtali við Morgun- blaðið í gær sagðist Kristín hafa verið nýsofnuð er hamfarirnar hófust. „Þetta var ekki venjulegur skjálfti. Eg var allt í einu komin á fætur og húsið gekk í bylgjum. Há- hýsið þar sem ég bý sveiflaðist fram og til baka. Eg heyrði ná- granna úti á gangi kallast á,“ sagði Kristín. Sagði hún jafnframt að símasamband hefði rofnað í skjálft- anum og að fólk hefði í ringulreið- inni þust út á götur og í almenn- ingsgarða af ótta við eftirskjálfta. Kristín sagði að alls um 1.500 eftirskjálftar hefðu orðið í gær- kvöldi, að íslenskum tíma, og að fólk sé óttaslegið. Sagði hún að öll hefðbundin starfsemi á þeim svæð- um sem urðu verst úti hefði verið felld niður en að lífið myndi ganga sinn vanagang í Taipei. ■ Húsið sveiflaðist/4 A.m.k. 1.700 manns létust og yfír 4.000 slösuðust í jarðskjálftanum á Taívan Bj örgunarsveita bíð- ur griðarlegt starf Taipei. AFP, AP, Reuters. YFIRVOLD á Taívan sögðu í gær að alls hefðu a.m.k. 1.712 Taívanbú- ar týnt lífi og yfir fjögur þúsund slasast í jarðskjálftanum ógurlega sem skók eyjuna aðfaranótt þriðju- dags. A þeim svæðum Taívan sem verst urðu úti var vart nokkur bygging óskemmd eftir skjálftann sem talinn er hafa verið a.m.k. 7,6 á Richter og reið yfir er flestir Taí- vanbúar voru í fastasvefni. I borg- inni Puli, sem liggur næst upptök- um skjálftans á miðri eyjunni, var talið að 98% bygginga hefðu skemmst. Yfir eitt þúsund eftir- skjálftar riðu yfir eyjuna í gær og voru sumir þeirra allt að 6,8 á Richter. Gríðarlegt starf bíður nú þeirra fjölmörgu björgunarmanna er starfa á skjálftasvæðunum. Þúsundir hermanna tóku í gær höndum saman við hjálpar- og björgunarmenn og læknalið sem reyna sitt ítrasta til að ná fólki lif- andi úr rústunum innan þess skamma tíma sem fólk, sem fast er í rústunum, er talið geta lifað. Talið er að um þrjú þúsund manns séu fastir í rústum húsa, lífs eða liðnir og enn er ekki vitað um afdrif nokk- ur hundruð manna. Þúsundir Taívanbúa dveljast utan dyra í gærkvöldi, að taívönskum tíma, voru þúsundir Taívanbúa utandyra af ótta við eftirskjálfta eða þá vegna þess að híbýli þeirra höfðu orðið jarð- skjálftanum að bráð. Útvarpsstöðvar báðu fólk um að gefa heimOislausum mat og klæði eða lána stórvirkar vinnuvélar svo unnt væri að bjarga fólki úr rústum húsa. Talsmenn björgunarsveita sögðu að opnuð hefðu verið neyðarskýli á þeim svæð- um er verst hefðu orðið úti og að ver- ið væri að flytja lækna til þeirra svæða. Veðurfræðingar spá rigning- um á næstunni sem taldar eru geta aukið mjög á neyðarástandið. Reuters Björgunarþyrla á flugi fyrir of- an bráðabirgðasjúkrahús í borginni Chai-I. Erlendar björgunarsveitir streymdu til Taívan síðdegis í gær. Um áttatíu manna sveit sérfræð- inga í jarðskjálftabjörgun kom frá Japan og hóf störf í höfuðborginni Taipei. Bandarísk yfirvöld til- kynntu síðdegis að björgunarsveit sem nýkomin væri frá jarðskjálfta- svæðunum í Tyrklandi hefði haldið til Taívan með mikið magn hjálp- argagna. Stjómvöld á Taívan sögðu að ríkisstjórnir Tyrklands, Kína, Filippseyja, Rússlands, Sviss og Bretlands m.a. hefðu boð- ið fram aðstoð sína vegna hörm- unganna. Ríkisstjóm Taívans hafa borist samúðarkveðjur víðs vegar að úr heiminum og lýstu kínversk stjóm- völd, sem líta á Taívan sem hérað í landinu, því yfir að þau myndu að- stoða Taívan á allan þann hátt sem þau gætu. Þúsundir taldar/24 Sameinuðu þjdðunum. AFP. BILL Clinton Bandaríkjaforseti flutti í gær ávarp á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og hvatti þjóð- arleiðtoga til þess að ráðast gegn sjúkdómum í fátækum ríkjum heims, binda enda á borgara- og þjóðernis- stríð og sporna gegn útbreiðslu ger- eyðingarvopna. Bandarílgaforseti hvatti til al- þjóðlegrar samvinnu svo koma mætti í veg íyrir átök og mannlegar hörm- ungar líkt og hrjáð hafa íbúa Kosovo- héraðs og Austur-Tímor að undan- förnu. Hins vegar lagði hann áherslu á að getu ríkja líkt og Bandaríkjanna væru takmörk sett hvað íhlutun í slík átök varðar. „Það er auðvelt að segja Clinton vill átak gegn fátækt og þj óðernisátökum aldrei aftur en erfiðara að fylgja því eftir. Ef of miklu er lofað getur það verið allt eins grimmilegt og að gera lítið,“ sagði Clinton. Sagði Clinton ennfremur að svæðisbundin samtök yrðu að geta beitt sér í átökum er upp kunni að koma. Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, flutti einnig ávarp á þing- inu í gær og lagði á það áherslu, öf- ugt við Clinton, að aðeins öryggisráð SÞ gæti heimilað hernaðarlega íhlut- un er mannleg neyð krefði. Sagði hann að ríki veraldar yrðu að fara af- ar varfærnislega í allar hernaðarað- gerðir og ekki mætti snúa þeim upp í kúgun á þjóðum eða einstaklingum sem eru þeim ekki að skapi. Sagði hann mikla nauðsyn á að koma í veg fyrir þau tilvik er utanaðkomandi öfl ýttu undir sundrungu. I ræðu sinni vék hann einnig að Eystrasaltsríkjunum og lýsti van- þóknun sinni á „tilviljankenndri stefnu stjórnvalda" er sviptir þús- undir manna borgararéttindum og réttinum til að nota eigin tungumál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.