Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 64

Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 64
Drögum næst 24. sept. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings Heimavörn Sími: 580 7000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Mun minna af rauðátu Ósló. Morgunblaðið. IJM 60% minna af rauðátu er í Norð- :5»ur-Atlantshafi og Norðursjó en íyrir 35 árum. Vísindamenn vita ekki ástæðuna og eru áhyggjufullir en benda á að veðurfarsbreytingar og aukin mengun geti verið áhrifavaldar. Rauðátan er einn mikilvægasti hlekkur fæðukeðjunnar í hafinu en meðal annars er hún mikilvægasta fæða loðnu og síldar. Síðan 1958 hafa breskir vísindamenn gert mælingar á rauðátunni í Atlantshafinú og m.a. tekið um 160.000 sýni og greint þau. Vísindamenn frá öðrum þjóðum Evr- ópu, Kanada og Bandaríkjunum hafa fylgst með gangi mála annars staðar og Kurt Tande, sérfræðingur í svif- dýrum og prófessor í sjávarlíffræði í Tromso, segir að ástæða sé til að ->vara við stöðunni. ■ 60% minna/Bl Ekiðá nautgripi við Hvolsvöll ^JEPPI með sex hesta kerru ók á tvo nautgripi rétt utan við Hvolsvöll um klukkan níu í gærkvöldi. Bíllinn kom akandi austur Suðurlandsveg, sem er óupplýstur vegur, í svartaþoku og sérlega slæmu skyggni. Þrír nautgripir voru á veginum en þeir höfðu sloppið úr girðingu sinni og komist upp á veginn. Þetta var reyndar í annað sinn sem þeir sluppu út þetta kvöld því fyrr um kvöldið brutu þeir girðingastaur sem varð til þess að þeir, ásamt sjö öðrum grip- um, komust út úr girðingunni. Bílstjórinn sá ekki gripina þrjá sem voru á veginum og keyrði á tvo þeirra með þeim afleiðingum að ann- ar drapst og hinn slasaðist mikið. > Þrátt fyrir nokkrar skemmdir var naíllinn ökufær og slapp bílstjórinn með skrekkinn. -------♦-♦-♦----- Framboð á störfum tvö- faldast á milli mánaða FRAMBOÐ af lausum störfum hjá vinnumiðlunum í lok ágústmánaðar tvöfaldaðist miðað við lok júlímánað- ar sl. og voru u.þ.b. 729 störf laus í '*iok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirliti Vinnumálastofnunar yfir at- vinnuástand í landinu fyrir ágúst 1999. Ástæður fyrir þessari miklu aukn- ingu á framboði starfa eru taldar margvíslegar en stór þáttur eftir- spurnarinnar er rakinn til sláturtíð- ar, upphafs skólastarfs og nýs fisk- veiðiárs auk vinnuaflsskorts í bygg- ingariðnaði. Fleiri atvinnuleyfí I yfirlitinu kemur fram að 1.756 A^tvinnuleyfi hafa verið gefin út það sem af er árinu á móti 2.222 leyfum allt árið í fyrra. Þar af eru 963 ný tímabundin atvinnuleyfi, 556 eru framlengingar á tímabundnum leyf- um, 161 er óbundið atvinnuleyfi, 51 námsmannaleyfi, 16 vistráðningar- leyfi og 9 atvinnurekstrarleyfi. Sam- ^hils voru gefin út 308 leyfi af ýmsum "■■erðum í ágústmánuði sl. en 156 í ágúst 1998. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Skip strandar við Isafjörð OLIUFLUTNINGASKIPIÐ Stapafell strandaði á Skipeyri við ísafjörð um hálfellefuleytið í gærmorgun. Skipið var að fara frá ísafirði í niðaþoku og strandaði rétt við flugbrautina á Isafírði. Engar skemmdir urðu á skipinu og losnaði það seinni- partinn í gær þegar flæddi að og hélt áfram ferð sinni. Eins og sjá má var skipið skammt undan landi á fjöru í gær. Persónuafslátt- ur að fullu millifæranlegur GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra kynnti frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekju- skatt á ríkisstjómai’fundi í gær. Breytingin varðar þann þátt stefnuyfirlýsingar rfldsstjómar- innar að persónuafsláttur skuli vera að fullu millifæranlegur milli hjóna. Persónuafsláttur hefur verið millifæranlegur að 80% en sam- kvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hann verði að fullu millifæranlegur í áföngum. Á næsta ári verði hann millifæran- legur upp að 85%, 90% árið 2001, 95% árið 2002 og að fullu árið 2003. Áætlað er að fyrsti áfangi breytingarinnar kosti rfldssjóð um 100 milljónir króna og aðrir áfangar verði svipuð upphæð en það veltur þó á þróun tekna. Mið- að við þetta kostar það rfldssjóð um 400 milljónir króna að hrinda þessari breytingu í framkvæmd. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Bændur hafa notað veðrið til að ljúka heyskap, en langvinnar rigningar síðustu vikna hafa gert þeim lífið leitt. Myndin var tekin á Húsatóftum á Skeiðum. Notalegur sumarauki ÓVENJULEG veðurblíða hefur verið á landinu síðustu tvo daga. Unnur Ólafsdóttir, veðurfræð- ingur á Veðurstofu íslands, vildi í gærkvöld þó ekki kannast við að veðurblíðan væri að slá fyrri met. Að sögn Unnar fór hitinn í Reykjavík í fyrradag í 17,3 stig en náði 16 gráðum í gær. Há- markið á árabilinu 1961 til 1990 var hins vegar 18,5 gráður. „Hit- inn núna nær þessu ekki en þetta er náttúrlega ofarlega. Hitinn fór hins vegar í 19 og 20 stig á vissum stöðum norðanlands. Það er ekki neitt voðalega algengt að hámarkið fari yfir 15 gráður í september," sagði Unnur. Veðurútlit er gott hér sunnan- lands, að sögn Unnar. „Ég hugsa að það kólni nú heldur á næstu dögum því það kemur regnsvæði upp að suðausturströndinni. En ég er hrædd um að þokuloftið verði viðloðandi á Austur- og Norðurlandi áfram.“ Sljórnvöld tilkynna fyrirkomulag á sölu hlutar ríkisins í FBA Hlutur ríkisins í FBA seldur í einu lagi RIKIÐ mun selja 51% hlut sinn í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins í einu lagi til dreifðs hóps fjárfesta þar sem hver aðili má ekki kaupa meira en 6% hlutafjái’ í bankanum. Tilgangurinn er að tryggja að há- marksverð fáist fyrir eignina og verður söluverðið tæpir tíu milljarð- ar að lágmarki. Gengi hlutabréfa FBA hækkaði um tæp 5% í gær, eftir að fyrirkomulag útboðsins var kynnt. Fram kom á blaðamannafundi Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, og Ama Mathiesen sjávarútvegsráðherra að markmið útboðsins sé að hámarka söluverð eignarhluta ríkisins í FBA, að selja dreifðum hópi hlutinn í heilu lagi og að öllum gefist kostur á að bjóða í hlutinn. Undirbúningur útboðsins fer fram í október og tilboð verða opnuð 5. nóvember. Lágmarksverð 9,7 milljarðar Til að tryggja að hámarksverð fá- ist er talið nauðsynlegt að hópur fjárfesta standi sameiginlega að til- boði í alla eignina. „Hámarksverð fyrir eignarhlut ríkisins í bankanum verður aðeins tryggt með því að selja allan hlutinn í einu lagi,“ sagði Finnur Ingólfsson. Skýrði hann það með því að vísa til þess að hópur fjárfesta ætti nú þegar stóran hlut í bankanum og þyrfti ekki að bæta miklu við til að geta ráðið honum al- veg. Þá kynni sá hluti eignar ríkis- ins sem eftir er að verða lítils virði. Lágmarksgengi er 2,8 og þýðir það að hlutabréfin verða ekki seld fyrir lægri upphæð en 9,7 milljarða kr. Reglur um skyldleika Settar eru reglur um skyldleika og hámark hvers aðila innan fjár- festahópanna til að tiyggja dreifða eignaraðild. Hámark hvers aðila eða skyldra aðila má ekki fara yfir 6% nafnverðs hlutabréfa í FBA. Að loknu útboði framselur rfldð hluta- bréfin til einstakra fjárfesta innan þess hóps sem á hæsta tilboðið, en ekki tfl félags þeirra. ■ Hlutur hvers/6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.