Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 47

Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 47
I MORGUNBLAÐIÐ Bæjarstjórn Siglufjarðar Mótmælir yfirlýsing- | um forsætis- i ráðherra BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar sam- þykkti fyrir skömmu ályktun vegna ummæla Davíðs Oddssonar forsæt- isráðherra um fjármál sveitarfélaga: „Bæjarstjórn Siglufjarðar mót- mælir harðlega alhæfingum hæst- virts forsætisráðherra í fjölmiðlum Íað undanförnu þess efnis, að sveitar- félög í landinu sýni lítið aðhald í Ífjármálum sem endurspeglist í mikl- um halla á rekstri þeirra og skulda- söfnun. Telur stjórnin alhæfingar af þessu tagi um öll sveitarfélög í land- inu bera vott um vanþekkingu á þró- un tekjustofna ríkis og sveitarfélaga á undanförnum árum og ekki til þess fallnar að bæta samskipti aðila nú þegar virkilega er þörf á sam- stilltu átaki þeirra í ýmsum málum Íer þjóðarhag varða. Bæjarstjórn Siglufjarðai- bendir Ihæstvirtum forsætisráðherra og öðrum þeim er málið varðar á að skipting tekjustofna ríkis og sveitar- félaga er í dag röng. Á sama tíma þröngvar ríkisvaldið sveitarfélögum út í fjárfrekar framkvæmdir á mikl- um þenslutímum. Má þar benda á atriði eins og einsetningu grunn- skóla, fráveitumál o.fl. Telur stjórn- in það í takt við annað hjá ríkis- Igj stjóminni að nú, þegar flest sveitar- félög eru búin eða við það að ljúka fjárfrekum framkvæmdum vegna einsetningar grunnskólans fyrir þrýsting ríkisvaldsins er byrjað að ljá máls á frestum tímakvaða í mál- inu. Og fjárfrekar framkvæmdir af þessu tagi framkvæma sveitarfélög í dag ekki öðru visi en fyrir lánsfé eins og tekjustofnum þeirra er hátt- að.“ Sjálfsbjörg mótmælir hækkunum Á STJÓRNARFUNDI hjá Sjálfs- björgu, félagi fatlaðra á höfuðborg- arsvæðinu, 16. september var eftir- farandi ályktun samþykkt. „Stjórn félagsins lýsir ánægju Isinni og þakklæti með framtak Magnúsar Hjaltested, bónda á Vatnsenda við Elliðavatn, en hann ætlar að selja öryrkjum og ellilífeyr- isþegum kjöt á niðursettu verði samkvæmt frétt í Morgunblaðinu 16. september. Jafnframt lýsir stjórnin yfir áhyggjum sínum yfir hækkunum þeim sem dunið hafa yfir öryrkja að undanfömu án þess að örorkulaun hafi hækkað til móts við þær. IMá þar nefna: Bensín, tryggingar, fasteignaverð, húsaleigu, matvöru, lyf og aðrar nauðsynjar sem ekki er hægt að vera án í dag. Skorar stjórn félagsins á ríkis- stjómina að bregðast við þessum hækkunum með hækkun örorku- launa eða á annan hátt.“ I Lýst eftir stolnum öku- tækjum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir stolnum ökutækjum sem hér seg- ir: YM-967, rauður Nissan Sunny ár- gerð ‘93, stolið frá Bíldshöfða, DU- 279, Ijósblár Toyota Corolla árgerð ‘97, stolið frá íslandsflugi, G-7318, blár Toyota Hilux árgerð ‘81, stolið frá Skeifunni 5 og MR-630, kóral- í'auður Toyota Corolla árgerð ‘99, stolið frá Breiðuvík 39. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ofangreind ökutæki era beðnir um að láta lögregluna í Reykjavík vita. H- FRÉTTIR Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Aðalbólsréttt var haldin á sunnudag þrátt fyrir að frekar illa viðraði til smalamennsku, komst safnið í tæka tíð þangað til réttar. Þokkalega viðraði til fjárrags og sundurdráttur gekk vel þar sem margt manna gekk til verksins. Smalamennska gengur treglega Veður o g vatna- vextir hamla Vaðbrekku, Jökuldal. Mogunblaðið. Smalamennska hefur gengið treglega vagna veðurs og vatna- vaxta á Vesturöræfum og Fljóts- dalsheiði um síðustu heigi. Ausandi vatnsveður hefur verið sem hefur tafið smalana við störfin og aukið þeim vos, einnig sést ekki eins vel í svoleiðis veðri og féð liggur meira niðri. Mikil bleyta er einnig á smalasvæðun- um svo erfitt er að komast um þau og erfitt er að komast yfir árnar þar sem margar smá- sprænur urðu að skaðræðisfljót- um í rigningunum. Smalamenn í Rana voru teppt- ir í Fjallaskarði einn dag vegna þess að ófært var yfir Eyvindará og vegna þess varð að fresta Melarétt um einn dag þar sem féð komst ekki til réttar í tæka tíð. Á Vesturöræfum var Sauðá sjómikil og ófær fyrir hjól en hægt að sundleggja í henni fé og sullast yfir hana á mikið breytt- um bfium. Hrafnkela var einnig í miklum vexti og ófær fyrir bfla og fé á föstudaginn en minnkaði það mikið á laugardag að hægt var að athafna sig við hana. Smalamenn á Vesturöræfum ráða ráðum sínum í Dragamótum og bæta bcnsíni á vélfáka sína í kalsaveðri og rigningu. Kvöldsigling um Skerjafjörð HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir sjóferð í kvöld, miðviku- dagskvöld, með strönd Skerjafjarðar. Farið er frá Hafnarhúsinu að vestan- verðu kl. 20 og gengið niður á Mið- bakka og um borð í Árnesið við Æg- isgarð. Þaðan verður siglt út Engeyjar- sund og fyrir Gróttutanga og Suður- nes inn á Skerjafjörð. Síðan með ströndinni inn á Fossvog, Kópavog og Amarnesvog og út með Eskines- eyrum og Bessastaðanesi inn á Seil- una. Þaðan til baka fyrir Seltjarnar- nes í höfn við Ægisgarð og gengið frá borði að Hafnarhúsinu. Þar lýkur ferðinni. I tilefni af því að um þessar mundir em sjö ár liðin fi'á fyrstu gönguferð Hafnargönguhópsins verður ýmislegt sér til gamans gert á leiðinni. Léttar veitingar verða um borð og göngufé- lagar úr Hafnargönguhópnum HGH- tríóið leikur. Allir velkomnh'. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför STÍGHEIÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Reynihvammi 12, Kópavogi. Fyrir hönd aðstandenda, Þorsteinn E. Einarsson. 4 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 47 ' KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Alfanámskeið í Hafnarfjarðar- kirkju HVER er tilgangur lífsins? Hvað gerist þegar þú deyrð? Hvaða heim- ildir em utan Biblíunnar um Jesúm Krist? Þetta era nokkrar af þeim spurningum sem fjallað verður um á samkirkjulegu Alfa-námskeiði sem hefst með kynningarkvöldi fimmtu- dagskvöldið 30. september nk. í Strandbergi, safnaðarheimili Hafn- arfjarðarkirkju. Um er að ræða tíu vikna námskeið einu sinni í viku á fimmtudagskvöldum þar sem á ein- faldan og þægilegan hátt verður fjallað um grundvallaratriði krist- innar trúar. Hvert kvöld hefst með léttum kvöldverði kl. 10. Síðan er kennsla í 45 mínútur og eftir stutt hlé fara fram umræður í hópum. Fræðarar bæði úr Þjóðkirkjunni og samfélaginu Veginum annast fræðsluna á námskeiðinu en sr. Gunnþór Ingason sóknarprestur hefur umsjón með því. Alfanámskeið eiga upprana sinn að rekja til Bretlands. Þau fara nú fram í 90 löndum í öllum kristnum kirkjudeildum. Alfanámskeiðið kost- ar 3.500 kr. en málsverðir era inni- faldir í verðinu. Upplýsingar og skráning í síma 695 4490 og 869 6215. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst því að Alfanámskeið era jafnan vinsæl og eftirsótt. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður með ung böm kl. 10.30-12 í safnaðar- heimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10 í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur, sam- verastund, kaffiveitingar. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Afbrýði eldri systkina. Sól- dís Traustadóttir hjúkranarfræðing- ur. Náttsöngur kl. 21. Opið hús frá kl. 20-21 í safnaðarsal. Háteigskirlga. Kvöldbænir og fyrir- bænir kl. 18. Langholtskirlga. Opið hús - hádegis- tónleikar kl. 12-12.30. Lára Bryndís Eggertsdóttir. Orgeltónleikar kl. 20. Björn Steinar Sólbergsson organisti Akureyrarkirkju. Samvera eldri borgara kl. 13-17. Spil, lestur, handa- vinna. Kaffi og meðlæti kl. 15. Djákni flytur hugvekju. Söngstund undir stjórn Jóns Stefánssonar organista. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30. St- arf fyrir 7-9 ára börn. TTT kl. 16. St- arf fyrir 10-12 ára börn. Fermingar- tími kl. 19.15. Unglingakvöld kl. 20 á vegum Laugarneskirkju, Þróttheima og Blómavals. Nýtt og spennandi til- boð fyrir unglinga í Laugarnes- hverfi. Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr. Frank M. Halldórsson. Síðdegistón- leikar kl. 18. Jónas Þórir organisti Lágafellskirkju. Samverastundir hefjast aftur í dag, miðvikudags. Op- ið hús kl. 15-17. Dagskrá ákveðin á staðnum. Veitingar á vægu verði. Verið velkomin. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Árbæjarkirlga. Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnaðarins. * Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu á eftir. „Kirkjuprakkarar“. Starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16. TTT. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn- um í kirkjunni og í síma 567 0110. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgistund, spil og kaffi. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr- irbænir, léttur málsverður á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl. 13. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð k. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverastund í Kirkjulundi kl. 12.25. Djáknasúpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshópar. Alfanámskeið kemur saman í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni kl. 21.30. Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30. Bænastund kl. 19.30. Allir hjartan- ‘ lega velkomnir. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest- ur. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10. ¥ 108 Reykjavík TtiakitcL Slípirokkar 115-125-180 mm ÞÓR HF Reykjavfk - Akurayrl J 1“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.