Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjögur börn
björguðust
úr brenn-
andi húsi
Hveragerði.
LITLU mátti muna að ekki fór
verr þegar kviknaði í feiti á
eldavél í einbýlishúsi við Dyn-
skóga í Hveragerði í gær.
Allt tiltækt lið Slökkviliðs
Hveragerðis var kallað út um
kl. 17 en þegar það kom á vett-
vang var mikill eldur í eldhúsi
og þéttur reykur um allt hús.
Greiðlega gekk að slökkva eld-
inn en ljóst er að skemmdir af
hans völdum eru miklar sem og
vegna reyks og sóts. I húsinu
voru stödd íjögur börn, tvær
þrettán ára stúlkur og tvö börn
húsráðenda, tveggja og sjö ára.
Voru þau komin út þegar
slökkviliðið kom á staðinn. Mik-
il mildi er að ekki fór verr því
litlu munaði að eldurinn breidd-
ist út en loftið í húsinu er ein-
angrað með spónum. Að sögn
slökkviliðsstjóra, Snorra Bald-
urssonar, brugðust stúlkurnar
rétt við, komu börnunum út og
hringdu síðan strax í Neyðar-
línuna. Að sögn húsráðenda
voru þau tryggð lögbundinni
brunatryggingu en innbú
ótryggt. Ljóst er því að tjón
þeirra er verulegt.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Snorri Baldursson skoðar skemmdir í eldhúsi.
A.
f/. MfflB' 1
ssffi » • i Aij- "P jr- j;
Mannréttindadómstóllinn tekur fyrir
kæru á hendur ríkinu
Tekist á um
Félagsdóm
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu hefur ákveðið að taka til efn-
islegrar úrlausnar og kveða upp dóm
um það hvort íslenska ríkið hafi, með
því að kveða á um það í lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur að refsi-
dómum Félagsdóms verði ekki áfrýj-
að til Hæstaréttar, brotið gegn
ákvæðum Mannréttindasáttmála
Evrópu. Verði niðurstaða dómstóls-
ins á þá leið að íslenska ríkið hafi
með banni við áfrýjun á refsidómum
Félagsdóms brotið gegn Mannrétt-
indasáttmála Evrópu yrði það í ann-
að skipti á fáum árum sem breyta
þyrfti málsmeðferðarreglum fyrir ís-
lenskum dómstólum vegna brota á
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Forsaga málsins er sú að 10. júní
1996 dæmdi Félagsdómur Siglfirð-
ing ehf. til að greiða 500.000 kr. í
sekt vegna uppsagnar fjögurra
starfsmanna félagsins, en hin um-
deilda uppsögn var talin brjóta gegn
ákvæðum laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. Siglfirðingur ehf. taldi
niðurstöðu Félagsdóms umdeilan-
lega en félagið átti ekki kost á áfrýj-
un málsins til Hæstaréttar þar sem
lög um stéttarfélög og vinnudeilur
banna áfrýjun dóma Félagsdóms til
Hæstaréttar.
Siglfirðingur sendi 3. desember
1996 umsókn til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu þar sem þess var farið
á leit við dóminn að hann tæki til úr-
lausnar hvort ákvæði laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur um bann við
áfrýjun á refsidómum Félagsdóms
standist ákvæði Mannréttindasátt-
mála Evrópu. Þá óskaði Siglfirðing-
ur ehf. einnig eftir því að dómurinn
tæki til skoðunar hvort Félagsdómur
gæti talist hlutlaus og óvilhallur
dómstóll í skilningi 6. greinar Mann-
réttindasáttmála Evrópu þar sem
tveir af fimm dómurum Félagsdóms
eru skipaðir af aðilum málsins. Dóm-
urinn taldi hins vegar ekki ástæðu til
þess að skoða nánar skipun dómara í
Félagsdóm. Byggði niðurstaða
Mannréttindadómstóls Evrópu á því
að vegna sérstöðu Félagsdóms og
vegna þess að jafnræði virðist hafa
verið með aðilum við skipun dómara
í dóminn sé ekki ástæða til þess að
telja að skipun dómsins í máli Sigl-
firðings ehf. hafi brotið gegn skilyrð-
um 6. greinar Mannréttindasáttmála
Evrópu.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Bæjarstjórn Akureyrar minnir á skyldur Reykjavíkur
Evrópuráðið
styðji Kosovo
í ÁVARPI Halldórs Asgrímssonar,
utanríkisráðherra og formanns ráð-
herranefndar Evrópuráðsins, á
þingmannasamkomu Evrópuráðsins
í Strassborg í gær, fjallaði hann um
hlutverk Evrópuráðsins í uppbygg-
ingarstarfinu í Kosovo. Hann sagði
að Evrópuráðið hefði mikilvægu
hlutverki að gegna við að koma á
mannréttindum og lýðræðislegum
stjómarháttum í kjölfar átakanna á
svæðinu vegna einstakrar reynslu
þess af sambærilegu uppbyggingar-
starfi í ríkjum Mið- og Austur-Evr-
ópu á síðasta áratug. Utanríkisráð-
herra fagnaði jafnframt fjölgun að-
ildarríkjanna og lýsti stuðningi sín-
um við umsóknir Armeníu,
Aserbajdsjan, Bosníu-Hersegóvínu
og Mónakó um aðild að ráðinu.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á
að umsóknarríkin uppfylltu skilyrði
Evrópuráðsins um aðild og virtu
grundvallarreglur þess um mann-
réttindi, lýðræði og reglur réttar-
ríkisins.
Utanríkisráðherra lýsti yfir
ánægju sinni með þátttöku Evrópu-
ráðsins í stöðugleikasáttmála fyrir
Suðaustur-Evrópu.
Utanríkisráðherra lagði áherslu
á að efla yrði samvinnu og samráð
Evrópuráðsins við aðrar alþjóða-
stofnanir, sérstaklega Evrópusam-
bandið og Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu (ÖSE). Mikilvægt
væri að efla og samhæfa samstarf
þessara stofnana, auka skilvirkni
og koma í veg fyrir tvíverknað.
Fram kom í máli utanríkisráðherra
að hann myndi ásamt fram-
kvæmdastjóra Evrópuráðsins eiga
samráðsfundi með forsæti ESB
hinn 6. október og forsæti ÖSE 20.
október nk.
Varað við flutnmgi
flugs til Keflavíkur
BÆJARSTJÓRN Akiu’eyrar sam-
þykkti á fundi í gær bókun sem Krist-
ján Þór Júlíusson bæjarstjóri lagði
fram vegna umræðna í borgarstjóm
Rafmagn fór af
öllum Kópavogi
RAFMAGNSLAUST varð í öllum
Kópavogi rétt fyrir klukkan hálfátta í
gærkvöldi. 11 idlóvatta jarðstrengur
við Dalveg var grafinn í sundur og í
kjölfarið sló allt rafinagn í bænum út.
Rafrnagn var komið á aftur í meiri-
hluta bæjarins eftir hálftíma, en þó
varði það í klukkustund á einhverju
svæði.
Lögreglan í Kópavogi segir fólk
hafa komist í nokkurt uppnám vegna
rafmagnsleysisins og að símalínur
þeirra hafi verið rauðglóandi á meðan
á því stóð. Lögreglan vill af því tilefni
benda fólki á að hringja ekki í neyðar-
númer við slíkar aðstæður nema
brýna nauðsyn beri til, því þegar álag
er jafnmikið og það var í gær geti þeir
sem eru virkilega í vanda staddir ekki
náð sambandi við lögreglu.
Reykjavíkur um Reykjavíkurflugvöll.
Minnir bæjarstjóm Akureyrar þar á
þá ábyrgð og skyldur sem höfuðborg
landsins ber gagnvart landsmönnum
öllum. I höfuðborginni sé miðja
stjómsýslu íslands, mennta-, menn-
ingar- og viðskiptalíf landsins eigi þar
einnig sínar höfiiðstöðvar.
,Að mati bæjarstjórnar Akureyrar
em greiðar samgöngur allra lands-
manna, að og frá Reykjavík, forsenda
þess að höfuðborgin geti rækt hlut-
verk sitt sem skyldi. Við umræður um
mögulegar breytingar á einu af lykil-
atriðum þess sem gerir Reykjavík að
höfuðborg allra landsmanna verður
jafnframt að taka til umræðu önnur
verkefni sem hafa verið fóstruð innan
borgarmúranna," segir í bókuninni og
er borgarstjóm jafnframt hvött til að
hafa þessi atriði í huga við umijöllun
sína um framtíðarstaðsetningu innan-
landsflugsins.
Flutningur myndi torvelda
aðgang og auka kostnað
Kristján Þór sagði að ekki fælist í
þessari bókun að Akureyrarbær ætl-
aði að hlutast til um borgarmálefni, en
þegar um væri að ræða verkefni sem
beinlínis lyti að hlutverki Reykjavíkur
sem höfuðborgar landsins ættu allir
rétt á að taka þátt í umræðunni.
Jakob Bjömsson, Framsóknar-
flokki, benti á að umsvif innanlands-
flugs til Óslóar, höfuðborgar Noregs,
hefðu minnkað umtalsvert í kjölfar
þess að flugvöllurinn var fluttur nokk-
uð út fyrir borgina. Yrði slíkt gert hér
myndi það torvelda mörgum aðgang
að höfuðborginni og kostnaður ferða-
langa ykist.
Asgeir Magnússon, formaður bæj-
arráðs, sagði málið ekki bara snúast
um að þægilegt væri að sækja höfuð-
borgina heim af því flugvélar lentu
nánast í miðbæ hennar. Yrði innan-
landsflugið flutt til Keflavíkur, svo
sem um hefði verið rætt, jafngilti það
nánast því að innanlandsflug yrði lagt
niður á Islandi. Flugferð milli Akur-
eyrar og Keflavíkur, með bið og
akstri, myndi taka allt að 5 klukku-
stundum og því ljóst að langflestir
tækju þann kostinn að ferðast akandi.
Flugleiðin milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar héldi innanlandsfluginu í land-
inu uppi og ef hún dytti niður sæju
flugfélögin sér vaila fært að halda
uppi flugi til annarra landshluta.
I dlDUíi
► í VERINU í dag er m.a. greint frá aflabrögðum sókn-
ardagabáta í sumar, stöðu íslenskra sjávarafurða og
eldi á sandhverfu í Grindavík. Sagt er frá erindum um
áhrif umhverfissamtaka á sjávarútveginn, heimsaflan-
um og breyttu magni rauðátu í sjónum.
Á MIÐVIKUDÖGUM
íslenska liðið hvergi bangið
við það ítalska / C4