Morgunblaðið - 22.09.1999, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Byrjunar-
örðugleik-
ar hjá Net-
bankanum
NOKKRIR byrjunarörðugleik-
ar áttu sér stað á fyrsta starfs-
degi nýja Netbankans í gær.
Einn viðmælandi Morgun-
blaðsins sem hugðist notfæra
sér þjónustuna, sótti um að
opna reikning og notaði til þess
tölvu kunningja síns. Auk
þeirra almennu upplýsinga
sem krafíst er af væntanlegum
viðskiptavinum, s.s. heimilis-
fang, póstfang o.s.frv., þá ber
þeim jafnframt að sækja um
öryggisnúmer á reikningnum.
Umræddum aðila brá nokkuð í
brún þegar bankinn staðfesti
umsókn hans í sömu tölvu og
birti aukinheldur umrætt ör-
yggisnúmer á ný.
Er málið var borið undir
Kristin Tryggva Gunnarsson,
verkefnisstjóra Netbankans,
kvaðst hann undrandi enda
ekki ætlunin að endursenda ör-
yggisnúmer með staðfestingu á
reikningsumsóknum. Við nán-
ari eftirgrennslan kom í ljós að
einföld mistök höfðu átt sér
stað við staðfestingu nokkurra
umsókna. Hann sagði vanda-
málið vera úr sögunni og að
umrædd númer yrðu að sjálf-
sögðu ekki notuð. Hann lagði
jafnframt áherslu á að öryggis-
númerin væru á engan hátt
tengd PIN-númerum þeim sem
veita aðgang að reikningum
heldur væri hér um að ræða
auðkennisnúmer sem gefið er
upp þegar hringt er í Netbank-
ann úr síma og veitir viðkom-
andi eingöngu upplýsingar um
reikningsstöðu og færi á að
millifæra á milli eigin reikn-
inga. „Debetkortin, aðgangs-
orð og lykilnúmer að Netbank-
anum og PIN-númerin sjálf
sem veita heimild til úttekta,
eru eingöngu borin út í ábyrgð-
arpósti til viðtakenda og afhent
gegn framvísun persónuskil-
ríkja. Við tökum málið engu
síður mjög alvarlega og mun-
um tryggja að slíkt hendi ekki
aftur,“ segir Kristinn Tryggvi
Gunnarsson.
Netbanki SPRON vekur viðbrögð viðskiptabankanna
Einhvers konar netþjón-
usta hjá öllum bönkunum
Netbankinn er nýstofnaður á vegum
SPRON en fyrir hafa allir viðskiptabank-
arnir rekið einhvers konar bankaþjónustu
á Netinu. Morgunblaðið leitaði eftir
viðbrögðum talsmanna Islandsbanka,
Landsbanka og Búnaðarbanka.
JÓN Þórisson, framkvæmdastjóri
útibúasviðs Islandsbanka, segir
þeirri stefnu fylgt hjá bankanum að
nota Netið sem viðbótardreifileið.
„Við höfðum strax þá skoðun að
Netið væri ekki sjálfstæð dreifileið
og lítum á netþjónustu sem aukna
þjónustu við viðskiptavmi bankans.
Viðskiptavinimir geta sjálfir ráðið
því hvort þeir noti Netið, hringi,
komi og fái sérhæfða ráðgjöf og
þjónustu eða noti hraðbanka. Við
sjáum að flestir bankar sem við
horfum til erlendis nota Netið sem
viðbótardreifileið," segir Jón.
Vaxtakjör ekki frábrugðin
Hann segir vaxtakjör netbanka
Islandsbanka ekki frábrugðin
vaxtakjörum bankans almennt. „í
einhverjum tilfeOum eru vaxtakjör
netbanka SPRON hagstæðari og í
öðrum tdfeUum eru okkar kjör hag-
stæðari, það er eins og gengur og
gerist á samkeppnismarkaði." Jón
segir Islandsbanka ekki bjóða stig-
hækkandi vexti heldur miðist vaxta-
kjör við umfang viðskipta.
Varðandi lántökur segir Jón að
allur almennur yfirdráttur á launa-
reikningum sé veittur án ábyrgðar-
manna en stærri lán krefjist fast-
eignaveðs.
„Við fórum með Heimabankann á
Netið árið 1996 og þá áttuðum við
okkur á að Netið mundi leika stórt
hlutverk í fjármálum einstaklinga
og íyrirtækja. Heimabankinn á
Netinu hefur svo smám saman
fengið nafnið Netbanki í okkar með-
förum og nú höfum við kynnt nafnið
tU sögunnar. Það eru mörg misseri
síðan við tryggðum okkur nafnið,“
segir Jón.
Bjöm Líndal, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Landsbankans, segir
Landsbankann nú þegar bjóða við-
skiptavinum þjónustu á Netinu í
einkabankanum. „Nú þegar eru við-
skiptavinir einkabankans á annan
tug þúsunda, en þessi þjónusta er
viðskiptavinum að kostnaðarlausu,"
segir Bjöm.
Símabankinn sérstök eining
„Símabankinn er einnig sérstök
eining sem oft er notuð með einka-
bankanum. Þar fer öll þjónusta
fram í gegnum síma og tölvupóst
og kostir Netsins og símans settir
saman við persónulega þjónustu og
ráðgjöf. Símabankinn var stofnað-
ur fyrir tveimur árum og nýtur
mikillar hylli meðal sinna við-
skiptavina,“ segir Björn. „Flestir
viðskiptavinir Símabankans tvinna
saman þjónustu einkabankans og
símabankans og spara sér þannig
þjónustugjöld.“
Bjöm segir þann möguleika fyrir
hendi hjá Landsbankanum að viss-
um skUyrðum uppfylltum að lántak-
endur fái lán án ábyrgðarmanna eða
fasteignaveðs. Þama er t.d. um fé-
laga í Vörðuklúbbi Landsbankans
að ræða. Varðandi vaxtakjör segir
Bjöm þau hagstæð hjá Símabank-
anum en þegar um háar upphæðir
sé að ræða bendi ráðgjafar eigend-
Islandsbanki og
SPRON hækka vexti
ISLANDSBANKI og Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis hafa tU-
kynnt um vaxtahækkanir á óverð-
tryggðum inn- og útlánum í sam-
ræmi við aðgerðir Seðlabankans í
síðustu viku. Vextir Islandsbanka
hækka um 0,6%, eða til jafns við
hækkun Seðlabanka íslands, en
hækkun SPRON er á bilinu 0,5-
0,6% á öllum helstu flokkum inn- og
útlána í óverðtryggðum flokkum.
Eins og fram hefur komið hækk-
aði Seðlabankinn vexti í viðskiptum
við lánastofnanir um 60 punkta eða
um 0,6% á föstudag. Talsmenn
bankans segja aðgerðimar miða að
því að draga úr þensluvekjandi
áhrifum aukinna útlána.
20 stærstu hluthafar
í Búnaðarbankanum
\5 V 1. sept. 1999 Hlutafjáreign, nafnverð, kr. Eignarhluti
1 Ríkisfjárhirsla 3.500.000.000 85,37% 1
2 Eftirlaunasj. Starfsm. B.Í.SBBHB IBBi 142.296.990 3,47%
3 íslandsbanki 100.778.380 2,46%
4 WÍB, sjóður 6 39.687.391 0,97%
5 Vátryggingafélag íslandsl 9.411.280 0,23%
6 Lífeyrissjóðurinn Lífiðn I 7.898.560 0,19%
7 Lífeyrissjóður sjómanna I 7.845.360 0,19%
8 Árni Oddur Þórðarson | 5.458.237 0,13%
9 Fjárfestingarb. Atvinnul. I 2.560.080 0,06%
10 L. verkalýðsf. Norðul. | 2.462.325 0,06%
11 Landsbanki íslands 2.058.261 0,05%
12 Einar Sverrisson 2.003.760 0,05%
13 Kvos 1.600.000 0,04%
14 Ljfeyrissj. Vestfirðinga j 1.503.760 0,04%
15 Arnól ehf. 1.265.375 0,03%
16 Þorgeir Baldursson 1.030.000 0,03%
17 Hafgæði sf. 1.003.760 0,02%
18 Sigurjón Sighvatsson l 1.000.000 0,02%
19 STO Verðbréfastofan j 977.903 0,02%
20 Banque Carnegie, Lúx. | 957.000 0,02%
Aðrir hluthafar 6,55%
SAMTALS 4.100.000.000 100,00%
Næststærsta erlenda
lántaka Landsbankans
LANDSBANKI íslands hf. hefur
tekið lán á alþjóðlegum markaði að
fjárhæð um 11,36 milljarðar króna
eða 150 milljónir evra. Upphaflega
var gert ráð fyrir að taka 100 millj-
ónir evra að láni en vegna mikillar
eftirspumar var lánsfjárhæðin
hækkuð í 150 milljónir evra, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá bankanum. Er þetta næststærsta
einstaka lántaka Landsbankans á al-
þjóðamarkaði frá upphafi.
Lánið er tU þriggja ára og era kjör
þess svipuð og bankinn hefur notið í
síðustu lántökum sínum erlendis.
Lántakan fór fram fyrir milli-
göngu þýska bankans Bankges-
ellschaft Berlin og ítalska bankans
Banca IMI Banca d’Intermediazione
Mobiliare IMI S.p.A. AUs tóku tíu
aðrir erlendir bankar þátt í lánveit-
ingunni en meðal þeirra eru bankar í
Suður-Evrópu sem ekki hafa áður
veitt lán til Landsbankans.
Um er að ræða bankana Banco
Sicilia, CDC Marchés, J.P. Morgan
Securites Ltd., Société Génerale,
Caja de Ahorros de Valancia,
Castellón y Alicante, GZB-Bank
Genossenschaftliche Zentralbank
AG Stuttgart, RZB-Austria
Raiffeisen Zentralbank Östemeich
AG, og WGZ-Bank Westdeutsche
Genossenschaft-Zentralbank.
I fréttatilkynningu kemur fram að
lántakan hafí vakið athygli á alþjóða-
fjármagnsmarkaði og fjallað hafi
verið um hana í blöðum og fagritum.
um á aðra innlánskosti, s.s. Verð-
bréfaveltu sem ber 8% vexti.
Gagnvirk viðskipti þróunin
Sigurjón Amason, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Búnaðarbank-
ans, segir heimUisbanka Búnaðar-
bankans í stöðugri þróun. „Nú er
t.d. hægt að kaupa og selja verðbréf
hjá heimUisbankanum," segir Sigur-
jón. „Þróunin er að auka gagnvirkni
á vefnum og það er það sem koma
skal,“ segir Sigurjón.
„Að mörgu leyti eru vaxtakjör
svipuð en munurinn liggur aðallega
í að í Netbankanum virðist blandað
saman vaxtakjöram tékkareiknings
og þess sem kallað er markaðs-
reikningur hjá Búnaðarbankanum,
en þar þarf innistæðan að vera
bundin í tíu daga,“ segir Sigurjón.
„Það era alltaf ákveðin atriði sem
menn vilja fá ráðgjöf um og önnur
atriði sem menn geta gert sjálfir.
Við ætlum að þróa heimabanka okk-
ar í átt að frekari gagnvirkni, en
það er einmitt að gerast erlendis,"
segir Siguijón.
Netbanki SPRON veitir ekki lán
gegn sjálfskuldarábyrgð heldur er
fasteignaveð notað. Sigurjón segir
slíka þjónustu almennt veitta hjá
bönkunum þegar fasteignatrygging
hefur verið lögð inn en þá er hægt
að fá lán með símtali.