Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 25
ERLENT
Meira en 60 manns týndu lífí af völdum fellibylsins Floyds
Neyðarástand ríkir
enn í Norður-Karólínu
Miami, Tarboro. AP.
HITABELTISSTORMURINN
Harvey fór inn yfir Suður-Florida
í gær með miklu veðri og úrhellis-
rigningu og á sama tíma var felli-
bylurinn Gert farinn að valda
skaða á Bermúdaeyjum. Enn
rignir í Norður-Karólínu þar sem
flóðin hafa skemmt a.m.k. 30.000
íbúðarhús og eru mörg talin ónýt.
Hefur landbúnaðurinn í ríkinu
orðið fyrir miklum hnekki.
Jeb Bush, ríkisstjóri í Flórida,
lýsti yfír neyðarástandi í gær í 56
af 67 sýslum í ríkinu en þótt Har-
vey sé aðeins hitabeltisstormur þá
fylgir honum mikið hvassviðri og
úrkoma. Þá getur hann valdið al-
varlegum sjávarflóðum, hækkað
sjávarborðið um allt að tvo metra.
Nokkuð dró að vísu úr vind-
styrknum í gær en búist var við,
að Harvey færi yfir suðurhluta
Flóridaskagans og síðan norður
með austurströndinni.
Láglendar eyjar í hættu
Stjórnvöld á Bermúdaeyjum
gáfu í fyrradag út viðvörun vegna
fellibylsins Gerts og reyndu eyja-
skeggjar að búa sig undir komu
hans með að sanka að sér matvæl-
um og búa húsin undir væntanleg
átök. I gær var veðrið farið að
valda skemmdum á húsum í Ha-
milton, höfuðstað eyjanna, og sjór
farinn að ganga næstum yfir sum-
ar lágar eyjar. Snemma í gær var
lægðarmiðjan 215 km austsuð-
AP
Himinninn yfír N-Karólínu er
enn þrútinn af regnskýjum og
stór svæði í ríkinu eru umflotin
vatni. Er eignatjónið gífurlegt
og mikil hætta stafar af rotn-
andi búfénaði og skolpi, sem
hefur dreifst um allt.
austur af Bermúda en búist var
við, að versta veðrið yrði síðar um
daginn þegar lægðarmiðjan kæm-
ist næst eyjunum eða í 184 km
fjarlægð.
Dauðsföll af völdum fellibylsins
Floyds, sem fór yfír Bahamaeyjar
og austurströnd Bandaríkjanna í
síðustu viku, voru í gær komin yf-
ir 60, þar af 41 í Bandaríkjunum.
Urðu mestu hamfarirnar í Norð-
ur-Karólínu, aðallega vegna gífur-
legra flóða, og þar létust flestir
eða 35. Enn eru mikil flóð í ríkinu
og úrkoman heldur áfram. Áætlað
er, að um 1.600 hús séu alveg
ónýt, um 1.500 manns hafast enn
við í umflotnum húsum og um
10.000 manns eru í neyðarskýlum.
Hræin brennd
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, fór um hamfarasvæðin í N-
Karólínu í gær og hét fólki stuðn-
ingi alríkisins við að byggja upp á
ný. Jim Hunt ríkisstjóri skoraði
einnig á landa sína um öll Banda-
ríkin að leggja sitt af mörkum til
hjálpar en mestu áhyggjurnar í
svipinn eru af þeirri hættu, sem
stafar af rotnandi búfénaði og
skolpinu, sem flóðin hafa dreift
um allt. Hefur ríkið verið að viða
að sér ofnum til að brenna hræin
af 100.000 svínum, 2,4 milljónum
kjúklinga og 500.000 kalkúna, sem
safnað hefur verið saman. Þá er
búist við mestu flóðum í 70 ár í
Conway í norðausturhluta Suður-
Karólínu en þar hefur vatnsborð
Waccamaw-árinnar verið að
hækka og talið, að það nái há-
marki í næstu viku.
Nýiar
haust-
vorur
Engjatcigi 5,
sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-15.
Veður og færð á Netinu ^mb l.i is
ALL7~Af= GiTTHVZ*Ð /VP7t|
Reuters
Gorbatsjov
bugaður af
harmi
MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrr-
verandi leiðtogi Sovétríkjanna,
sagðist í gær vera bugaður af
harmi vegna fráfalls eiginkonu
sinnar, Raísu Gorbatsjovu, eftir
langa og stranga baráttu henn-
ar við hvítblæði. „Fyrstu tilfinn-
ingarnar eru sorg. Mikil og
óbætanleg," sagði Gorbatsjov
þar sem hann var ásamt, fjöl-
skyldu sinni í þýsku borginni
Miinster í gær. „En ég mun
verða að öðlast mátt á ný. Ég
bý enn yfir styrk. Ég á dóttur
og barnabörn og við munum
lifa þetta af.“ Lík Raísu Gorbat-
sjovu var í gær flutt frá Þýska-
landi til Moskvu þar sem ætt-
ingjar og vinir Gorbatsjov-hjón-
anna tóku á móti Míkhaíl. Verð-
ur Raisa jarðsett í
Novodevichy-grafreitnum í
miðborg Moskvu á morgun.
^ísland-ítaliah
3X2
SHCURITAS