Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 33

Morgunblaðið - 22.09.1999, Page 33
32 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 3ö STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. YEXTIR GEGN VERÐBÓLGU SEÐLABANKINN greip til aðgerða fyrir helgina til að slá á verðbólguþróunina í landinu og tilkynnti 0,6% hækkun vaxta í viðskiptum við innlánsstofnanir. Vaxta- hækkunin endurspeglast í almennum vöxtum banka, spari- sjóða og annarra innlánsstofnana, sem þegar tóku að til- kynna um vaxtahækkanir sl. mánudag. Seðlabankinn greip til þessara aðgerða, þegar fyrir lágu upplýsingar um talsverða aukningu útlána bankakerfisins í ágústmánuði. Birgir Isleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri, lét svo ummælt um vaxtahækkunina: „Pessar tölur ollu okkur nokkrum vonbrigðum, þar sem útlán hafa aukizt á ný í ágústmánuði. Það dró úr þeim á tímabilinu maí til júlí, en í ágúst jukust útlán innlánsstofn- ana um 2,3% og ef litið er á liðin útlán og markaðsskulda- bréf er um 1,8% aukningu að ræða. Petta þýðir, að á fyrstu átta mánuðum ársins hafa útlán og markaðsskuldabréf auk- izt um 15,3%, en útlánin ein um 16,6%. Það er einn tilgang- urinn með vaxtahækkun nú að sporna áfram gegn þessari aukningu útlána, sem eru í sjálfu sér þensluvekjandi.“ Birg- ir Isleifur bendir á, að vegna vaxandi verðbólgu hafi raun- vextir Seðlabankans lækkað og þar með dregið úr aðhaldi peningastefnunnar. Markmið vaxtahækkunar bankans nú sé að draga úr eftirspurn, styrkja gengi krónunnar og þar með stuðla að því, að það dragi úr verðbólgu á ný og að stöðug- leiki í verðlagsmálum ríki á komandi misserum. Vextir eru orðnir mun hærri hér á landi en í nágranna- löndunum og því má segja, að líkur aukist á því, að stórir lántakendur leiti fyrir sér hjá erlendum bönkum. Hins vegar er brýn nauðsyn að grípa til aðgerða til að draga úr verð- bólgunni og útlánaaukning bankakerfisins hefur verið mjög mikil það sem af er árinu. Hún er orðin mun meiri en var ár- ið 1997, þegar útlánaaukningin nam 12,7%. Útlánasprenging varð svo árið 1998, þegar útlán jukust um nær þriðjung, eða um 31,2%. í kjölfarið greip Seðlabankinn til aðgerða í byrj- un þessa árs til að slá á útlánaaukninguna og lagði m.a. lausafjárkvaðir á lánastofnanir. A rúmu ári hefur Seðla- bankinn hækkað vexti fjórum sinnum, síðast um 0,5% í júní- mánuði sl. Pær aðgerðir báru ekki nægilegan árangur, hvað sem gerist nú. En það er allra hagur, ekki sízt launþega, að verðbólguófreskjunni sé haldið í böndum eins og úlfinum forðum. ÁFALL FYRIR SCHRÖDER ÞAÐ hefur ekki blásið byrlega fyrir Gerhard Schröder, kanslara Pýskalands, á þeim ellefu mánuðum, sem liðnir eru frá því að stjórn hans tók við völdum. Stjórnarsamstarf jafnaðarmanna og Græningja hefur einkennst af erjum og á köflum virst tvísýnt um framhald þess. Ekki hefur bætt úr skák að pólitísk átök í Pýskalandi hafa að miklu leyti farið fram innan stjórnarflokkanna tveggja og fyrr á árinu sagði Oskar Lafontaine af sér embætti fjármálaráðherra, en sam- starf hans og kanslarans hafði vægast sagt verið stirt. Arftaki Lafontaines í fjármálaráðuneytinu, Hans Eichel, reynir nú að knýja í gegn umfangsmikil niðurskurðaráform sem mikill styr stendur um innan Jafnaðarmannaflokksins. Tillögur Eichels fela í sér gífurlegan niðurskurð ríkisút- gjalda á næstu árum. Pótt sá niðurskurður kunni að vera nauðsynlegur og gangi að mati margra sérfræðinga síst of langt hefur stjórninni ekki tekist að sannfæra kjósendur um mikilvægi hans. I hverjum kosningunum á fætur öðrum hafa jafnaðarmenn misst fylgi, nú síðast í Saxlandi þar sem flokkurinn hlaut verstu útkomu sína í kosningum frá stríðslokum. Nokkuð er síðan stjórnin missti meirihluta sinn í Sam- bandsráðinu, efri deild þingsins, þar sem fulltrúar sam- bandslanda Pýskalands eiga fulltrúa. Þar með getur stjórnin ekki komið lagasetningu í gegnum þingið upp á eigin spýtur. Haldi þessi þróun áfram gæti farið að hitna undir Schröder. Ekki síst líta menn til kosninga í Nordrhein- Westphalen á næsta ári í því sambandi, en það hefur lengi verið eitt höfuðvígi þýskra jafnaðarmanna. Pýskaland er öfl- ugasta efnahagsveldi Evrópu og hefur í hyggju að auka póli- tískt vægi sitt verulega. Sá djúplægi kerfisvandi, sem þýskt efnahagskerfi á við að etja, gæti hins vegar torveldað þau áform. Loftið á Bifröst er þrungið upplýsingnm Samvinnuháskólinn á Bifröst hefur fyrstur háskóla á Islandi fartölvuvætt skóla- starfíð samkvæmt fyrirmynd ýmissa betri viðskiptaháskóla í Bandaríkjunum. _____Asdfs Haraldsdóttir kynnti sér_ athyglisvert og framsækið háskólasamfélag á þessum fagrastað í Norðurárdal í Borffarfírði. ALLIR eru niðursokknir að fylgjast með fyrirlestri þeg- ar Runólfur Ágústsson, rektor Samvinnuháskólans á Bifröst, sýnir blaðamanni inn í fyr- irlestrasalinn árla morguns. Þar sitja um 80 nemendur og flestir eru með fartölvur á borðinu fyrir framan sig. Þetta er vissulega óvenjuleg sjón, en fartölvuvæðing skólans er orðin að veruleika frá og með þessu skólaári og ekki nóg með það. Öll tölvusam- skipti eru þráðlaus innan háskólasvæðisins. Samvinnuháskólinn á allan hugbúnað, forrit og samskiptabúnaðinn, net- þjón og átta örbylgju- senda sem dreifðir eru um allt svæðið. Nemend- ur og kennarar komast í þráðlaust samband við net skólans og Intemetið hvar sem er á svæðinu og stilla tölvurnar sig inn á þann sendi sem gefur besta tengingu eftir því hvar þeir em staddir. Nú eru um 70% nemenda komin með fartölvur og fjölgar þeim dag frá degi. Samvinnuháskólinn gerði sam- starfssamning við Opin kerfi, sem selja nemendunum HP-fartölvur á tilboðsverði; Icecom, sem sérhæfir sig í þráðlausum samskiptum; Concorde Axapta á Islandi, sem gef- ur Axapta-viðskiptaforritið fyrir hverja fartölvu nemendanna; og Tal, sem setti upp nýjan GSM-sendi á svæðinu. Prófúrlausnir unnar í fartölvum „Hugmyndin um þráðlaust net- kerfi á skólasvæðinu þróaðist eftir að við fórum að lenda í vandræðum vegna próftöku nemenda," segir Runólfur. „Nú orðið er gífurlegt magn upplýsinga á Netinu og í próf- um þurfa nemendur að hafa aðgang að þeim. Nemendur eiga að taka með sér öll gögn í prófin því kennslan hér felst ekki í að kenna fólki utanbókar- lærdóm heldur að þjálfa það til að bregðast við aðstæðum, leysa vanda- mál og vita hvar hægt er að nálgast upplýsingar. Áður þurftum við því oft að prófa í tölvuverum en þar var tak- markaður fjöldi af tölvum svo ekki komust allir inn í einu. Nú býst ég við að mörg próf verði tekin á fartölvurn- ar. En fartölvurnar og þráðlaus að- gangur að upplýsingum nýtist auðvit- að í öllu skólastarfinu. Sem dæmi má nefna að orðið er mjög auðvelt fyrir nemendur að nálgast greinar um hin fjölbreyttustu málefni. Við erum til dæmis áskrifendur að gagnagrunni sem hefur að geyma 1.100 helstu við- skiptatímarit í heimi. Þar er hægt að slá inn leitarorð og fá allar greinar upp sem skrifaðar hafa verið um mál- ið í þessum tímaritum. Auk þess er auðvelt að nálgast lagasafnið á Net- inu og fleira. Síðast en ekki síst hafa nemendur alltaf aðgang að öllum fyr- irlestrum hvar og hvenær sem er.“ Fyrirmyndin sótt til Bandaríkjanna Runólfur segir þennan frjálsa að- gang að upplýsingum gjörbylta öllu skólastarfinu. „Fyiirmyndina er að finna í mörg- um betri viðskiptaháskólum í Banda- ríkjunum. Þeir hafa flestir fartölvu- væðst fyrir nokkrum árum. Þar er litið svo á að tölva sé atvinnutæki fólks sem stundar við- skipti, alveg eins og hljóðfæri er atvinnu- tæki hljóðfæraleikara. Þeir sem stunda við- skipti verða að kunna á þetta tæki og geta nýtt sér alla möguleika þess. Okkur leist vel á þessar hugmyndir og ákváðum að fylgja í kjölfarið. Við sáum gildi þess að nemendur gætu tengst Netinu og neti skólans hvar sem þeir væru staddir á skólasvæðinu. En við búum við önnur skilyrði en aðrir viðskiptaháskólar. Fólk býr mjög þétt, enda búa langflestir nemenda okkar hér á nemendagörðum. Samt sem áður hefði þurft um 3,8 km af tölvulögnum hefði verið ákveðið að hafa lagnir. En við fréttum af þessari þráðlausu lausn hjá háskóla í Bret- landi og sáum að hún mundi henta okkur vel. Nú má segja að kerfið okkar jafnist á við það sem best ger- ist í viðskiptaháskólum erlendis. Kerfið tryggir nemendum algjöran hreyfanleika. Nú geta þeir unnið á tölvunum hvar sem er, hvort sem er í fyrirlestrum, í verkefnatímum eða heima hjá sér. Alltaf hafa þeir greið- an aðgang að nauðsynlegum upplýs- ingum. Aður þurfti fólk að koma hingað í skólahúsið á kvöldin til að komast í tölvur og lenti oft í biðröð eftir að komast að. Nú er loftið hér á Bifröst þrungið af upplýsingum," segir Runólfur. Allir fyrirlestrar eru settir inn á net skólans. Nemendur geta kallað þá upp, jafvel á meðan kennarinn heldur fyrirlesturinn, og haft hann fyrir framan sig á meðan. Margir bæta sínum eigin glósum inn á og vista hann síðan sem sitt skjal. Þannig hafa þeir fyrirlesturinn ávallt á reiðum höndum ásamt glósunum. Áður voru gögnin ljósrituð og þeim dreift í upphafi fyrirlestrar. Þeir sem búa utan Bifrastarsvæð- isins og ná ekki þráðlausu sambandi þangað þurfa að hringja inn og tengj- ast þannig, hvort sem er með farsíma eða venjulegum síma. En þeir sem búa á nemendagörðum þurfa ekki að greiða símakostnað við að tengjast Internetinu eða neti skólans. Að- Runólfur Ágústsson Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Nemendur niðursokknir á fyrir- lestri. Inni í fyrirlestrasalnum eru þrír sendar, enda getur álag- ið orðið mikið þar þegar um 80 tölvur eru í gangi í einu. sér margra milljóna króna virði. Nemendur bera ákveðinn hluta af kostnaði sjálfir með því að kaupa sín- ar eigin fartölvur." Runólfur telur að þetta tölvukerfi verði ekki dýrara en gamla kerfið þegar tO lengri tíma er litið. Við- haldskostnaður minnkar mikið þegar allir kaplarnir eru famir. Einnig átti háskólinn áður allar tölvur í skóla- húsnæðinu sjálfur en nú eiga nem- endur hver sína tölvu. Tölvurnar end- ast betur þegar aðeins einn er um hverja tölvu. Dreifikerfið sjálft er aft- ur á móti dýrara nú. Engin vandamál Gert var ráð fyrir að reka nýja og gamla kerfið samhliða til áramóta. Reyndin er sú að á fyrstu vikum skólastarfsins er verið að leggja gamla kerfið tO hliðar að því undan- skOdu að rekið er áfram eitt tölvuver með tæplega tuttugu tölvum fyrir þá nemendur sem enn hafa ekki keypt sínar eigin tölvur. „Við urðum óskap- lega hissa þegar allt virkaði sem virka átti þegar nýja kerfið var tekið í notkun. Við ýttum á „on“ og allt fór í gang. Engin vandamál hafa komið upp og í ljós kom að áhyggjurnar sem við erum búin að hafa yfir þessu í allt sumar voru algerlega óþarfar. Allir virðast ánægðir, bæði nemend- ur og kennarar. Nýting á tíma og rými er miklu betri. Nú eru öll herbergi skólans orðin tölvustofur, því hvar sem er getur þú opnað tölvuna og ert kom- inn í samband. Samband komst á hér um miðjan ágúst og allt gekk vel þeg- ar það var prófað. Stóra spurningin var hvernig það mundi virka undir miklu álagi þegar 80 til 100 tölvur væru í gangi í einu. En sem sagt eng- in vandamál. Svo eru nemendur okk- ar vanir því að við séum að hrella þá með alls kyns nýjungum svo ekkert kemur þeim á óvart.“ Nemendur á Bifröst eru á aldrin- um 21 til 50 ára og er meðalaldur um 29 ár. Meðalaldur kennara er ekki miklu hæn-i eða um 35 ár. Á Bifröst er nú að myndast lítið háskólaþorp og eru íbúar þess nú um 300. Nem- endur reka litla verslun og bráðlega verður opnað kaffihús á svæðinu. Einnig verður líkamsræktaraðstaða fljótlega opnuð þar sem meðal annars verða heitir pottar og vaðlaug fyrir börn. Síðustu nemendagarðar voru teknir í notkun fyrir tveimur árum en fyrirhugað er að hefja byggingu nýrra bústaða fljótlega. Um 30 börn eru á leikskólanum Hraunborg sem er rétt fyrir ofan nemendabústaðina en eldri börnin fara í Grunnskólann á Varmalandi. Þangað er þeim ekið í skólabíl og þar fá þau mat í hádeginu og koma heim síðdegis. „Þrátt fyrir að námið sé strangt er margt sem gerir Bifröst að fjölskylduvænum skóla, „ segir Runólfur. „Aðstæður eru betri en víða annars staðar fyrir fólk sem vill stunda strangt nám eftir að það hefur komið upp fjölskyldu. Sífellt er reynt að bæta þjónustuna við íbúana og stefnt er að því að þetta verði sjálfbært samfélag þar sem fólk getur bæði eflt andann og líkamann.“ Agnarsmáum loftnetum er komið fyrir í fartölvunum. Allt sem þarf til að vera í góðu sambandi á háskólasvæðinu. gangurinn að Internetinu er innifal- inn í skólagjöldunum og símakostn- aður vegna þess leggst því allur á skólann. „Þar erum við mun verr sett en há- skólarnir í Reykjavík þvl við borgum kílómetragjald af leigulínum," segir Runólfur. Fartölva verður skilyrði fyrir skólavist Á þessu fyrsta ári hefur ekki verið sett sem skilyrði fyrir skólavist að hafa fartölvu. Enn er því eitt tölvuver í notkun. Runólfur segist gera ráð fyrir að strax næsta vetur verði far- tölvueign gerð að skilyrði. Áfram verður leitast við að bjóða nemendum upp á góð tilboð við tölvukaupin. Ekkert er eOíft á tölvuöld og segir Runólfur að búast megi við að endur- skoða þurfi kerfið eftir tvö ár. Hann telur möguleikana sem opnast nú óþrjótandi og skólinn muni leitast við að innleiða nýjustu tækni í allt skóla- starfið. Eitt af meginmarkmiðum við- skiptaháskólans á Bifröst er einmitt að nota upplýsingatækni á markviss- an hátt í kennslu. Auk þess er lögð áhersla á hópstarf og samvinnu nem- enda, raunhæf verkefni og tengsl við atvinnulífið og á alþjóðleika. Sá þátt- ur fer vaxandi og fer nú kennsla efth' áramót á þriðja ári til BS-gráðu al- farið fram á ensku. Þá er skólinn í samvinnu við erlenda háskóla um nemendaskipti. „Það er markmið okkar að vera í fremstu röð íslenskra háskóla í upp- lýsingatækni. Hér er lögð mikil áhersla á að þjálfa nemendur á þessu sviði vegna þess að upplýsingatæknin er orðin nauðsynlegur þáttur í allri þekkingarleit. Skólastarf án upplýs- ingatækni er varla hugsanlegt nú. Ohætt er að segja að framtíðar- möguleikarnir séu fyrst og fremst fólgnir í að fylgjast vel með og að skólinn tileinki sér allar nýjungar. Við lítum svo á að viðskiptavinir okk- ar séu tveir, annars vegar nemend- urnir og hins vegar atvinnulífið. Við reynum að tryggja nemendunum góða vinnuaðstöðu og að innihald námsins sé gott. Hins vegar þurfum við að tryggja atvinnulífinu góða og eftirsótta starfskrafta og sú virðist vera raunin." Runólfur segir erfitt að meta end- anlegan kostnað háskólans við upp- lýsingakerfið en kostnaður við að setja það upp nemur alls um 40 millj- ónum króna. Aðeins lítið brot af því kemur sem beinn kostnaður fyrir skólann. „Samstarfsfyrirtæki okkar og styrktaraðilar hafa tekið á sig verulegan hluta af þessum kostnaði pg til dæmis gaf Concorde Axapta á Islandi Axapta-viðskiptahugbúnað á hverja fartölvu og er sú gjöf ein og Á BIFRÖST Netþjónn heldur utan um allar upplýsingar fartölvu sendir skilaboðin áfram... ÞRÁÐLAUST Yfírmaður lagadeildar Ráðs ESB á hádegis- verðarfundi LMFI og utanríkisráðuneytisins Óraunhæft að ætla að Evrópusamband- ið verði ríki Morgunblaðið/Þorkell Jean-Claude Piris: „Evrópusambandið er algerlega háð aðildarríkjunum þegar kemur að því að framkvæma það sem gert er í nafni þess.“ JEAN-CLAUDE PIRIS, yfir- maður lagadeildar Ráðs ESB og lögfræðilegur ráðgjafi ráð- herraráðsins, hélt erindi á há- degisverðarfundi sem Lögmannafélag íslands (LMFÍ) og utanríkisráðu- neytið efndu til á mánudag. Piris er af frönsku þjóðerni og hefur gegnt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum í franskri stjómsýslu, hjá OECD og Evrópu- sambandinu. Hann var meðal annars lögfræðilegur ráðgjafi við gerð Ma- astricht- og Amsterdam-sáttmálans sem fólu í sér breytingar á Rómar- sáttmálanum, stofnsáttmála Evrópu- sambandsins. Piris hefur ennfremur verið fulltrúi ráðherraráðsins í fjöl- mörgum málum sem flutt hafa verið fyrir Evrópudómstólnum í Lúxem- borg. í erindi sínu velti Piris fyrir sér hvort þróun Evrópuréttarins væri í átt til myndunar sambandsríkis í Evr- ópu eða hvort líklegt væri að Evrópu- sambandið þróaðist á þann veg í fyr- irsjáanlegri framtíð. Þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi ýmis einkenni fullvalda ríkis fer að mati Piris fjarri þvi að það uppfylli öll skilyrði þess að geta kallast ríki. Hann telur einnig að afar ólíklegt sé að Evrópusambandið muni gera það í framtíðinni. Ríkin eru „herrar sáttmálanna“ I upphafi máls tók Piris fram að hann talaði sem einstaklingur en ekki sem embættismaður Evrópusam- bandsins. Hann vék síðan að sérstöðu Evrópusambandsins og áréttaði að það væri annað og meira en hefð- bundin alþjóðasamtök. Þeir sáttmálar sem ESB byggðist á væru eðlisólíkir hefðbundnum millríkjasáttmálum að því leyti að stofnanir ESB nytu sjálf- stæðis og hefðu vald til að setja regl- ur sem hefðu bein laga- og réttaráhrif í aðildarríkjunum og forgang fram yf- ir landsrétt. I öðru lagi benti hann á að stofnsáttmálar ESB hefðu ýmis ein- kenni sem finna mætti í stjómar- skrám aðildarríkjanna. Þeir væru grundvallaðir á hugmyndum réttar- ríkisins og Evrópurétturinn væri sjálfstætt réttai-kerfi. Sáttmálarnir væru, eins og Evrópudómstóllinn hafí bent á, „stjórnlagalegur sáttmáli" ESB. „Þrátt fyrir að ESB hafi þannig mörg einkenni ríkis er það að mínu mati langt frá því að vera eiginlegt sambandsríki. Evrópusambandið hef- ur ekki á valdi sínu þau tæki sem það þyrftí að hafa til að kalla mætti það ríki. I fyrsta lagi er framkvæmd og túlkun Evrópuréttar í flestum tilvik- um í höndum dómstóla í aðildarríkj: unum en ekki Evrópudómstólsins. í öðru lagi hefur ESB ekki yfir að ráða þeim fjárhagslega styrk sem því bæri ef ætti að vera hægt að kalla það ríki. Fjárlög Evrópusambandsins era að- eins rétt rúmlega 1% af samanlögðum ríkisútgjöldum aðildarrílg'anna. I þriðja lagi hefur ESB ekki yfir að ráða nema litlum hluta af fjölda þess starfsfólks sem venjulegt ríki hefur yfir að ráða. Starfsmenn ESB eru t.a.m. aðeins helmingur af borgar- starfsmönnum Parísarborgar. Og í fjórða lagi hefur Evrópusambandið hvorki her né lögreglu og er þar af leiðandi háð aðildarríkjunum um þessa hluti. Af þessu má sjá að Evr- ópusambandið er og verður algerlega háð aðildai'ríkjunum þegar kemur að því að framkvæma það sem gert er í nafni þess,“ sagði Piris. Til viðbótar ofangi’eindum atriðum nefndi Ph'is að grandvallarmunur væri á Evrópusambandinu og ein- stökum aðildarríkjum að því leyti að ekki væri til evrópskt þjóðemi, að ESB hefði ekkert fullveldi og tak- markað vald til að koma fram sem gerandi á alþjóðavettvangi. „Stofn- sáttmálarnir byggjast á þeiiri for- sendu að innan ESB era 15 þjóðir og Evrópusambandið hefur ekkert vald annað en það sem því hefur skýrt og greinilega verið veitt í sáttmálunum. Fullveldi ríkis felst í því að það hefur sjálft vald til að ákvarða og skilgreina valdsvið sitt. Þetta hefur Evrópusam- bandið ekki og sama á við um getu þess til að koma fram í samskiptum ríkja á alþjóðavettvangi.“ Ennfremur benti Piris á að mikil- vægt væri að hafa í huga að Evrópu- sambandið hefði ekki þegið vald sitt beint úr hendi þegna ríkjanna. ESB hefði fengið allt vald sitt frá aðildar- ríkjunum og þau væm þar af leiðandi „herrar sáttmálanna", en ekki al- menningur í aðildarrfkjunum beint og milliliðalaust. Ekki raunhæfur möguleiki Að mati Piris fer fjarri því að þróun ESB bendi eindregið í átt til myndun- ar ríkis í eiginlegum skilningi. „Það er enginn raunhæfur möguleiki á því í fyrirsjáanlegri framtíð vegna þess að ríkin eru ekki tilbúin að breyta sátt- málunum í þá veru að ESB verði ríki. Ástæðan er sú að til þess að það mætti verða þyrftu ríkin fyrst að svara nokkram mjög erfiðum spurn- ingum. I fyrsta lagi er það spurningin um valddreifingu milli Evrópusam- bandsins og aðildarríkjanna. Því hef- ur verið haldið fram að Evrópudóm- stóllinn hafi notað aðstöðu sína til að færa sameiginlegum stofnunum meira vald á kostnað aðOdarríkjanna. Þetta átti við áður fyrr en hefur breyst á síðasta áratug, en þó einkum á síðustu 5 árum. Bæði í Maastrieht- sáttmálanum og Amsterdam-sáttmál- unum má finna ákvæði sem miða að því að standa vörð um fullveldi aðild- arríkjanna. Á ýmsum sviðum hefur samræming laga þannig verið útilok- uð. Dómstóllinn hefur einnig á síðustu árum reynt að gæta þess að mörk mUli valdsviða ESB og aðildarríkj- anna séu virt. Eg tel þó að mjög erfitt sé að ákvarða þessi mörk mjög skýrt vegna sérstöðu Evrópuréttarins og þeirrar staðreyndar að hann er „sinn- ar tegundar." Annað vandamál sem Piris nefndi í þessu sambandi er að aðildarríkin myndu eiga ei'fitt með að koma sér saman um að skapa raunveralegt stjómkerfi fyrir ESB. Stofnanakerfi Evrópusambandsins sé byggt á að- greiningu valdsins en stofnanir þess samsvari ekki stjórnkerfi í lýðræðis- ríki. Raunveruleg ríkisstjóm þurfi að 9 hafa lýðræðislegt umboð og vandinn fyrir aðildarríkin felist í því að koma sér saman um aðferð til að mynda þetta umboð og ákveða hvaða stofn- anh' eigi að koma þar við sögu. Piris telur einnig að ríkin ættu erfitt með að koma sér saman um að veita Evrópusambandinu vald til að koma fram fyrir þeirra hönd á al- þjóðavettvangi. Á þeim tíma sem gerð Amsterdam-sáttmálans stóð yfir hafi komið skýrt fram að aðildarríkin eru ekki reiðubúin að gera þetta. Ennfremur sé það ljóst að ríkin yrðu treg til að gefa eftir vald sitt sem „herrar sáttmálans" tO almennings í aðOdarríkjunum. Að mati hans er óraunhæft að ætla að þegnar aðildar--, ríkjanna muni fá tækifæri til að kjósa um, með eða á móti, stjórnarskrá fyr- ir Evrópusambandið. Verkefni framtíðarinnar að leita jafnvægis Um þessar mundir er í undirbún- ingi ný ríkjaráðstefna um endurskoð- un stofnsáttmálanna, sem mun hefj- ast í Lissabon á næsta ári. Piris segir að á dagskrá ráðstefnunnar séu eink- um atriði er tengjast stækkun Evr- ópusambandsins og að myndun ríkis í Evrópu sé þar ekki á dagskrá. Hann segist fylgjandi þeim sem vOja koma á gagngerum umbótum á stofnana- kerfi Evrópudsambandsins en að það feli ekki í sér að ESB þróist í átt tii ríkis. „Að mínu mati stefnir Evrópu- sambandið ekki að því að verða sam- bandsríki eða að því að afmá aðOdar- ríkin sem mynda það. Hins vegar hef- ur Evrópusambandið orðið annað og meira en miOiríkjasamtök og hefur ekki einungis víðtækt vald til að taka ákvarðanir er varða ríkin sem heildir, heldur einnig einstaklinga innan ríkj- anna. Þess vegna er brýnt að ESB styðjist við skýrar reglur sem vernda hagsmuni bæði ríkjanna og þegna þeirra svo að tryggt sé að ákvarðanir sameiginlegra stofnana séu teknai' með hugsjónir réttarríkisins, lýðræð- is og mannréttinda að leiðarljósi. Þetta er hið raunverulega verkefni framtíðarinnar, ekki að skapa evr-. ópskt yfimki heldur reyna að leita að jafnvæginu milli þess að virða hags- muni ríkjanna og mæta þeim kröfum sem alþjóðavæðingin gerir til þeirra og ekkert þein-a getur svai’að eití síns liðs ,“ sagði Piris að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.