Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1999 51
_________AFMÆLI
BJÖRGVIN
FREDERIKSEN
Björgvin Frederik-
sen, vélvirkjameistari
og fyrrverandi forseti
Landssambands iðnað-
armanna, er 85 ára í
dag. Saga iðnaðarins á
Islandi á þessari öld
verður ekki skráð án
þess að naín Björgvins
Frederiksens verði
þar fyrirferðamikið.
Framlag hans til fram-
faramála iðnaðarins er
enda meira en svo að
unnt sé að gera skil í
stuttri afmælisgrein.
Neftia skal þó nokkur
atriði.
Halldór Björgvin Frederiksen
fæddist í Reykjavík 22. september
1914. Foreldrar hans voru Aage
Martin Christian Frederiksen og
Margrét Halldórsdóttir.
Björgvin nam við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk sveinsprófi í vél-
virkjun 1935. Fór síðan utan til
Danmerkur og nam í vélfræðiskóla
1935-36. Björgvin kynnti sér smíði
og uppsetningu frystivéla hjá Th.
Sabroe & Co. í Arósum og hlaut
þar meðmæli og réttindi til að setja
upp vélar þeirra. Hann hlaut
meistararéttindi í vélvirkjun 1938
og stofnaði um sama leyti eigið fyr-
irtæki í Reykjavík, vélsmiðju og
vélasölu sem hann rak til 1962. Ar-
ið 1939 fór hann aftur til Danmerk-
ur til að kynna sér byggingu og
rekstur dísilvéla. Meðan hann
dvaldist þar skall heimsstyrjöldin
á, sem gerði allar ferðir milli land-
anna nær óhugsandi. Björgvin var
þó ráðinn í að komast sem fyrst
heim og tókst með ótrúlegum
dugnaði og seiglu, ásapt nokkrum
öðrum valinkunnum Islendingum,
að brjótast gegnum allar hindranir
sem stríðsástandið skapaði, yfir
hafið og heim á htlum bát, „Frekj-
unni“, sem frægt er orðið og lengi
mun í minnum haft. Þrátt fyrir
þær hindranir sem styrjöldin skap-
aði fór Björgvin enn til útlanda á
stríðsárunum og nú til Bandaríkj-
anna til að kynna sér kæhtækni og
hraðfrystingu matvæla hjá York
Ice Machinery Corporation. Sú
ferð varð raunar upphafið að þeirri
byltingu sem varð hér á landi í
frystiiðnaði, en fyrirtæki Björgvins
sérhæfði sig í smíði og uppsetningu
frystivéla og setti upp fjölda slíkra
véla um allt land, auk algengrar
vélsmíði og smíði margskonar
tækja og varahluta.
Framlag Björgvins til framþró-
unar í kælitækni hér á landi verður
seint ofmetin. Hann kemur ungur
maður að utan með dýrmæta þekk-
ingu í þessum iðnaði sem gjör-
breytti allri aðstöðu okkar íslend-
inga til að meðhöndla útflutnings-
verðmæti okkar á þann hátt sem
nútíminn krafðist.
Kynni okkar Björgvins hófust
ekki að marki fyrr en um það bil
sem hann var farinn að draga sig
út úr hringiðu vinnu og félags-
starfs, en hann hafði þá lengi verið
í fylkingarbrjósti íslensks iðnaðar.
Mér býður í grun að ósérhhfni
Björgvins hafi oft leitt
hann til þess að vinna
lengri vinnudag í þágu
iðnaðarins en í sínu
eigin fyrirtæki. Per-
sónuleiki hans er ein-
faldlega þannig. En
maðurinn er ekki ein-
hamur. Það er ekki
eingöngu dugnaður
hans og elja við rekst-
ur fyrirtækisins og öll
þau margvíslegu fé-
lagsstörf sem lengi
munu halda nafni hans
á lofti. Hann er einnig
ósvikinn hstamaður og
hefur hannað og smíðað ódauðleg
listaverk. Mér eru til dæmis minn-
isstæðir gripir sem hann smíðaði
og gaf í tilefni af því að Eystra-
saltsþjóðimar lyftu af sér oki Sov-
étvaldsins. Þeir einkennast af
natni, formfegurð og yfirlegu hins
sanna hstamanns. Slíkir hlutir eru
fögur útkoma úr samspili hugar og
handa.
Þótt umsvif Björgvins
Frederiksens væru ærin við upp-
byggingu og rekstur fyrirtækis
nægði það honum ekki eitt og sér.
Björgvin áttaði sig snemma á því
að hann og fyrirtæki hans voru
hluti af heild sem verðugt var að
berjast fyrir. Ljóst er að Björgvin
hefur hlotið í vöggugjöf sérstaka
leiðtogahæfíleika og það sem meira
er, löng og farsæl ævi hefur tryggt
að þessir hæfileikar hafa fengið að
njóta sín. Björgvin var kosinn til
margháttaðra trúnaðarstarfa iyrir
iðnaðinn. Listinn er langur en það
nægir að nefna eftirtalið: Formað-
ur Meistarafélags jámiðnaðar-
manna, fulltrúi í Iðnráði og á Iðn-
þingum, forseti Landssambands
iðnaðarmanna 1952-1960, í skóla-
nefnd Iðnskólans í Reykjavík
1954-1974, í stjóm Iðnaðarmála-
stofnunar íslands og þar formaður
1967-1971. Auk þess sat hann í
borgarstjóm Reykjavíkur
1954-’62. Fyrir störf sín í þágu iðn-
aðarins hefur Björgvin hlotið
margar viðurkenningar. Hann var
kosinn heiðursfélagi Landssam-
bands iðnaðarmanna 1960 og hlaut
m.a. heiðursmerki Iðnaðarmanna-
félagsins í Reykjavík og gullmerki
Félags málmiðnaðarfyrirtækja.
Björgvin var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu 1.
janúar 1989.
Þegar ég lít yfir þau margvís-
legu og ánægjulegu samskipti sem
við Björgvin höfum átt kemur
margt í hugann. Það vom sannköll-
uð forréttindi fyrir ungan mann
eins og mig sem var að feta mín
fyrstu skref í félagsmálum að
kynnast Björgvini Frederiksen.
Bjartsýni hans, þekking og áhugi á
öllu því sem til framfara horfði á
sér fáar hliðstæður. Þegar við bæt-
ist afburða ræðumennska og ein-
stök, en um leið dálítið sérstök frá-
sagnarlist, er ekki að undra að
hann hafi víða verið valinn til for-
ustu. Islenskt atvinnulíf og þá ekki
síst iðnaðurinn stendur í mikiUi
þakkarskuld við þennan aldna
FRÓÐENGI — 3JA ÁSAMT BÍLSKÚR
Glæsileg 100 fm íbúð á 2. hæð ásamt góðum 22 fm bílskúr. Parket,
vandaðar innréttingar, útsýni. Ákveðin sala. Verð 10,5 m.
ÞANGBAKKI — 3JA
Vorum að fá í einkasölu ca 80 fm íbúð á 7. hæð (suðaustur). Stutt í alla
þjónustu og samgöngutæki. Góð íbúð á eftirsóttum stað.
Laus fljótlega.
LINDASMÁRI — RAÐHÚS
Glæsilegt nýl. 208 fm raðhús á þessum eftirsótta stað. Húsið skiptist í
126 fm aðalhæð, 26 fm bílskúr og 56 fm óinnréttað risloft með mögul.
á 3 herb. o.fl. Stutt í skóla og alla þjónustu. Ákv. sala. Áhv. 6,6 m.
Verð 16,5 m.
FASTEIGNASALAN KJÖRBÝLI,
Nýbýlavegi 14, Kópavogi, sími 564 1400.
heiðursmann fyrir þá leiðsögn sem
hann veitti um árabil. Persónulega
vil ég þakka honum margar
ánægjulegar stundir og alla þá vin-
semd sem hann hefur sýnt mér í
gegnum árin. Þótt árunum fjölgi er
hugurinn enn fullur af hugsjónum
um málefni sem orðið gætu ís-
lenskum iðnaði til framdráttar.
Mér verða lengi minnisstæð við-
brögð hans þegar til stóð að breyta
félagaformi iðnaðarmanna með því
að hætta starfsemi Landssam-
bands iðnaðarmanna og stofna í
þess stað Samtök iðnaðarins með
samruna alls iðnaðarins í landinu.
Þar fór greinilega maður sem var
ekki fastur í gömlum hefðum ef
hann sá breytingar geta orðið til
framfara.
Ég færi heiðursmanninum
Björgvini Frederiksen bestu af-
mæliskveðjur og óska honum alls
góðs.
Haraldur Sumarliðason,
formaður Samtaka iðnaðarins.
A ÍÞróttaskóli
Breiðabliks
BREIÐABLIK
Æfingar fyrir alla aldurshópa
íþróttaskóli fyrir börn: 3ja - 4 ára og 5-6 ára
Laugardaga: kl. 10.00 - 10.50 kl. 11.00 -11.50
Foreldraleikfimi Breiðabliks og Smáraskóla.
Mánudaga og miövikudaga frá kl. 16.30 - 17.30 og 17.30-18-30,
föstudaga kl. 17.30 -18.30
Leikfimi fyrir 60 ára og eldri._______________________________
Þriðjudaga og föstudaga kl. 9.00 - 10.00
Liðkandi og styrkjandi æfingar. Frábær aðstaða.
Leiðbeinendur: Aðalsteinn Jónsson og
Guðbjörg Finnsdóttir, íþróttakennarar.
Góð aðstaða, speglasalur, tækjasalur, heitur pottur og gufubað.
Boðið er upp á kaffi og spjall í félagsaðstöðu Breiðabliks
að loknum tíma.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 564 1990
S)/\DU
'' r j \V^
Laugavegi 40
Sími 561 Q075
nw
til utlaada
-auðvelt að muria
www.simi.is
Lagerlausnir
Bjóðum allar
tegundir lagerlausna.
Lagerlausn frá Ofnasmiðjunni
er góð fjárfesting til framtíðar.
CONSTRUCTOR GROUP
GLOBAL STORAGE SOLUTIONS
^ ^Oinasmiðjan
Háteigsvegi 7 ♦ 105 Reykjavík ♦ Sími 511 1100
^y^Cyv Brúðhjón
Allur borðbiinaður - Glæsileg gjafavara - Briíðhjönalistar
ViáVCXV verslunin
Latigavegi 52, s. 562 4244.
skóli ólafs gauks
Sí>ustu innritunardagar
Nú eru súustu forvö> a> láta innrita sig. Nokkur pláss eru ennflá laus í byrjenda-
Vi> bjó>um upp á skemmtileg og gagnleg námskei>um.
námskei> fyrir alla aldursflokka, bæ>i Innritun stendur til og me> 25. sept.,
byrjendur og lengra komna. kennsla hefst 27. sept.
V/SA
HÆGT A< FA LEIG A
HEIMAGÍTARA
KR. 2000 Á ÖNN
588-3730
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17