Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1918
226. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússar ná þriðjungi tsjetsj-
neskra landsvæða á sitt vald
Herlög sett
í Tsjetsjníu
Reuters
Stórslys í London
Hvatt til
„heilags stríðs“
gegn Rússum
Urus-Martan. Reuters, AFP.
RÚSSAR sögðust S gær hafa náð
þriðjungi Tsjetsjníu á sitt vald eftir
tíu daga loftárásir og innrás rúss-
neskra hersveita sem hófst í vikunni
sem leið. Þeir sögðu þó að því færi
fjarri að herinn hefði náð því mark-
miði sínu að koma upp öryggissvæði
í Tsjetsjníu til að hindra árásir
tsjetsjneskra skæruliða. Aslan
Maskhadov, leiðtogi Tsjetsjníu,
setti herlög, sem tóku gildi á mið-
nætti, og kvaddi alla vinnufæra
Tsjetsjena í herinn til að verjast
„yfírgangi Rússa“. Hann skoraði
ennfremur á trúarleiðtoga tsjetsj-
neskra múslíma að lýsa yfír
„heilögu stríði" gegn Rússum.
Rússneskar fréttastofur skýrðu
frá því að Tsjetsjenar hefðu skotið
niður tvær herþotur í fyrradag og
að minnsta kosti einn flugmaður
hefði beðið bana. Að sögn
Tsjetsjena tóku þeir annan flug-
mann til fanga.
Vladímíi' Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, sagði að fjórir hermenn
Færeysku fjárlögin
Fimm millj-
arðar
í afgang
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA landstjórnin lagði
fram fjárlögin í síðustu viku og þar
er gert ráð fyrir tekjuafgangi upp á
fimm milljarða ísl. kr. I þeirri miklu
umræðu, sem verið hefur um sjálf-
stæði Færeyja, hefur mikil áhersla
verið lögð á, að landsmenn sníði sér
stakk eftir vexti og sýni ábyrgð í
efnahagsmálunum. Má líta á fjár-
lögin sem mikilvæga yfirlýsingu
um, að landstjórnin hafí þetta
mai'kmið að leiðarljósi.
Uppgangurinn, sem verið hefur í
Færeyjum síðustu árin, skilar sér í
fjárlögunum. Búist er við, að tekj-
urnar verði 33 milljarðar ísl. króna
eða um 3,3 milljörðum meiri en í
fyrra. Útgjöldin eru einnig meiri
eða sem nemur 1,28 milljörðum ísl.
króna. í útgjaldaaukningunni vegur
þyngst launahækkunin, sem opin-
berir starfsmenn fengu í kjölfar
verkfalla í vor.
Færeyingar hafa tekjur af fleiru
en eigin umsvifum. Af tekjum upp á
33 milljarða ísl. króna nemur fram-
lag Dana til Færeyinga 10 milljörð-
um. Af þeim fara þó 3,2 milljarðar
strax til að greiða vexti af lánum
Færeyinga í Danmörku en beinar
afborganir af þessum lánum eru
1,28 milljarðar ísL kr.
hefðu fallið og 22 særst í átökunum
til þessa, hinum hörðustu í Tsjetsjn-
íu frá stríðinu á árunum 1994-96
sem lauk með auðmýkjandi ósigri
Rússa.
Stjórnin í Moskvu hefur kennt
tsjetsjneskum skæruliðum um
sprengjutilræði, sem hafa kostað
hartnær 300 manns lífið í rússnesk-
um borgum á undanförnum vikum,
og markmið hennar er að koma upp
öryggissvæði í Tsjetsjníu til að
hindra frekari árásir. Pútín sagði að
rússneski herinn hefði lagt undir sig
allt láglendið norðan við Terek-fljót,
eða um þriðjung Tsjetsjníu. „Því fer
víðs fjarri að þessum aðgerðum til
að koma upp öryggissvæði sé lokið,“
bætti hann þó við. „Lokamarkmið
okkar er að tortíma hermdarverka-
mönnunum og eyðileggja stöðvai’
þeirra í Tsjetsjníu.11
Þingið styður aðgerðirnar
Vladímír Ryzhkov, leiðtogi mið-
flokksins Heimili okkar er Rúss-
land, sagði að Pútín hefði tryggt
stuðning leiðtoga þingflokkanna við
hemaðaraðgerðii’nar á fundi í
fyrradag. Grígorí Javlinskí, leiðtogi
frjálslyndra þingmanna, sagði þó að
aðgerðirnar mættu ekki breytast í
allsherjarstríð.
Rúmlega 100.000 Tsjetsjenar
hafa flúið til nágrannahéraðanna
vegna árása Rússa og óttast er að
sú tala hækki í allt að 300.000 á
næstunni. Pútín kveðst stefna að
því að flytja allt flóttafólkið á rúss-
neska öryggissvæðið í Tsjetsjníu.
Fréttaskýrendur segja að markmið-
ið með þessu sé að reka fieyg milli
leiðtoga Tsjetsjena og flóttafólks-
ins, koma á fót nýrri tsjetsjneskri
stjóm og skipta Tsjetsjníu í tvennt.
AÐ minnsta kosti 26 menn létust og
139 slösuðust, þar af 26 alvarlega,
er tvær farþegalestir rákust saman
skammt frá Paddington-brautar-
stöðinni í London í gærmorgun.
Tók það langan tíma að ná sumum
þeirra, sem komust lífs af, út úr
brakinu og að sögn lögreglunnar
var búist við, að allt að sólarhring-
ur gæti liðið áður en fullljóst yrði
hve margir fórust. Ekki er vitað
hvað slysinu olli en víst er, að það
mun kynda enn undir gagnrýni á
breska lestakerfið en óhöpp hafa
verið mjög tíð síðan það var einka-
vætt fyrir tveimur árum.
■ Mannskætt/22
Ríkis-
stjórn
Austur-
ríkis seg-
ir af sér
Vín. Reuters, AFP.
VIKTOR Klima, kanzlari Austur-
ríkis, gekk í gær á fund Thomas
Klestils forseta og færði honum
afsagnarbréf
ríkisstjórnar
sinnar. Stjórnin
situr samt áfram
til bráðabirgða
unz ný stjórn
hefur verið
mynduð, en það
kann að taka
langan tíma þar
sem báðir flokk-
arnir sem starf-
að hafa saman í stjórn undanfarin
13 ár töpuðu töluverðu fylgi í
þingkosningunum um helgina.
Otvíræður sigurvegari kosning-
anna, hægrimaðurinn Jörg Haider
og Frelsisflokkur hans, lýsti því yf-
ir í gær á fundi með fréttamönnum,
að velgengni hans þýddi ekki að
austurrískir kjósendur hefðu tekið
mikla sveiflu til hægri. Öllu heldur
þýddu þessi úrslit áfanga í réttlæt-
isátt, þar sem „stóru flokkarnir“
tveir hefðu nú í þrjá áratugi setið
að öllum völdum í landinu og stæðu
í vegi fyrir nauðsynlegum breyt-
ingum.
Haider sagði flokk sinn reiðu-
búinn til stjórnarþátttöku ef end-
anlegar tölur - eftir að um
200.000 utankjörstaðaatkvæði
hafa verið talin - sýndu að hann
væri sannarlega annar stærsti
flokkurinn. Samkvæmt bráða-
birgðatölum skilja aðeins um
14.000 atkvæði Frelsisflokkinn og
Þjóðarflokkinn að.
■ Haider/23
Spenna á landamærum Austur- og Vestur-Tímors
Carlos Belo biskup
snýr heim í dag
Dili. AFP.
CARLOS Belo biskup, trúarlegur leiðtogi Aust-
ur-Tímorbúa og einn forystumanna sjálfstæðis-
hreyfíngarinnar á eynni, snýr til A-Tímors í dag
að sögn Davids Wirmursts, talsmanns Samein-
uðu þjóðanna. Er heimkoma biskupsins talin til
marks um aukna trú á að friðargæsluliði SÞ und-
ir forystu Astrala takist að tryggja frið í hinu
stríðshrjáða landi.
Alþjóðlegir friðargæsluliðar féllu í gær frá
kröfu sinni um að skæruliðar, er barist hafa fyrir
sjálfstæði A-Tímors, létu vopn sín af hendi. Var
ákvörðunin tekin eftir að spenna magnaðist mjög
á landamærum Austur- og Vestur-Tímors en
vestanmegin landamæranna hafa andstæðingar
sjálfstæðis safnast saman og hóta skæruhernaði
yfir landamærin.
Ástralskar hersveitir, sem eru nærri landa-
mænmum, voru við öllu búnar á mánudagskvöld
er þær urðu varar við ferðir manna er voru að
grennslast fyrii- um aðstöðu hersveitanna. Hafa
Astralar fengið þær upplýsingai' að árás sé yfir-
vofandi og að liðsmenn vígahópanna séu afar vel
búnir, m.a. klæðist þeir herbúningum og séu vel
þjálfaðir. Ekki er ljóst hvort hersveitir Indónesa
hafi staðið fyrir njósnaferðinni á mánudagskvöld
en heimildamenn AFP segja að þar til þing
Indónesíu samþykki sjálfstæði A-Tímors geti
Indónesíuher farið inn yfir landamærin að eigin
vild.
Talið er að um eitt þúsund vígamenn séu í
þorpinu Haekesak, vestanmegin landamæranna.
Sagt er, að foringi sveitanna hafi fyrirskipað
þeim að vera búnir undir árás á ástralskar her-
sveitir innan tveggja daga.
Reuters
Tvær a-tímorskar konur gráta er þær biðjast
fyrir við styttu af Maríu mey á fyrrum heim-
ili Carlos Belos biskups í Dili. Af húsinu
standa aðeins veggirnir uppi.
Viktor
Klima