Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 2

Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mýrdalsjökulssvæðið í gjörgæslu Veðurstofu og Qrkustofnunar Jarðskjálfta- og vatns- mælar í stöðugu sambandi SÉRFRÆÐINGAR og tæknimaður frá Veðu- stofu Islands vinna nú að uppsetningu síritandi jarðskjálftamælis við Láguhvola rétt sunnan við Vatnsrásarhöfuð skammt frá Höfðabrekku- jökli. Er mælinum komið fyrir eins nálægt Kötlu og mögulegt er á láglendi, en tilgangur- inn með uppsetningunni er að auka líkurnar á að geta varað við gosi úr Kötlu á grundvelli jarðskjálfta og óróa sem líklegt er að verði nokkrum klukkustundum fyrir gos úr jöklinum. Upplýsingar um ástandið á Kötlusvæðinu berast úr mælinum með útvarpsbylgjum sem sendar eru upp á Háfell í nágrenni Víkur og tengjast þar við símamastur og gagnanet Landssímans og berast þannig Veðurstofunni. Að sögn Ragnars Stefánssonar, jarðskjálfta- fræðings á Veðurstofu Islands, er búist við að mælirinn verði kominn í gagnið í vikunni, en að auki er hafin uppsetning á GPS-stöðvum til að fylgjast stöðugt með landbreytingum á svæð- inu. Er stefnt að því að setja þær upp á 3-4 stöðum í nágrenni Kötlu. GPS-stöðvarnar verða settar eftir föngum í samband við það jarðskjálftaefti iiitskerfi sem fyrir er í nágrenni við Mýrdalsjökul og er þannig stefnt að því að fá allar upplýsingar um landbreytingar og jarðskjálfta á einn stað, þ.e. á Veðurstofu íslands til að fá sem gleggsta mynd af því sem er að gerast við Kötlu. Vandlega fylgst með vatnsföllum Auk jarðskjálfta- og landmælinga á Mýrdals- jökulssvæðinu hafa nokkur vatnsföll í nágrenni jökulsins verið sett undir eftirlit þar sem fylgst er með ýmsum breytingum, sem gætu haft for- spárgildi um gos. Voru settir upp mælar við Hólmsá og Markarfljót í síðasta mánuði, en íyrir voru mælar við Jökulsá á Sólheimasandi og Múlakvísl. Innan hálfs mánaðar stendur að auki til að setja upp mælitæki við Skálm eða Leirá. Tilgangurinn með vatnamælingunum er þrí- þættur, að sögn Arna Snorrasonar, forstöðu- manns vatnamælinga Orkustofnunar. Fylgst er með vatnsrennsli frá Mýrdalsjökli og kannað hvort það vatn sem talið er að hafí bráðnað vegna jarðhitavirkni í jöklinum í sum- ar renni jafnóðum fram eða safnist saman. Einnig er íylgst með vatnsföllunum til að geta varað við atburðúm áþekkum þeim sem áttu sér stað í Jökulsá á Sólheimasandi í sumar en Ummæli heilbrigðisráðherra vöktu vangaveltur á Alþingi Sameining er ekki endilega a dofinm Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Bergur Bergsson, rafniagnstæknifra-ðingiir Veðurstofu íslands, og Halldór Ólafsson, tæknimað- ur hjá Norrænu eldfjallastöðinni, festa niður stand fyrir GPS-sendi í nágrenni Mýrdalsjökuls- svæðisins. I bakgrunni er Kötlujökull. þá kom stórt hlaup sem hefði hæglega getað valdið skaða. Síðast en ekki síst er fylgst með vatnsföllunum til að geta varað við Kötluhlaupi ef til þess kemur. Hringja sjálfkrafa í vaktmann Orkustofnunar Mælarnir, sem eru sex talsins, eru allir í NMT-símasambandi við Orkustofnun og fer eftirlitið þannig fram að hringt er sjálfvirkt í mælana að morgni sérhvers dags þar sem upp- lýsingar um vatnsleiðni, hitastig og vatnshæð eru lesin af þeim, en að auki hefur ákveðið við- vörunargildi verið forritað inn í mælana sem virkar með þeim hætti að þeir hringja sjálf- krafa í síma vaktmanns Orkustofnunar, ef leiðnin, hitastigið eða vatnshæðin fara yfir ákveðin mörk. Að sögn Árna Snorrasonar hefur forvinna við mælingarnar verið unnin í samstarfi Orku- stofnunar og Vegagerðarinnar en auk þess komu að verki Viðlagatrygging íslands, RANNÍS, Raunvísindastofnun Háskóla ís- lands, verkfræðistofan Vista og ríkisstjórn ís- lands sem fjármagnaði verkefnið samkvæmt beiðni Orkustofnunar. VIÐ íyrstu umræðu um fjárlaga- frumvarp ríkisstjórnarinnar á Al- þingi í gær spurði Rannveig Guð- mundsdóttir, þingmaður Samfylk- ingar, hvort túlka bæri ummæli sem Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra lét falla á mánu- dagskvöld, við umræður um stefnuræðu Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra, á þann veg að ríkis- stjómin stefndi að sameiningu stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík. Mat Rannveig svör sem hún fékk á þann veg að svo langt væru menn ekki komnir í stefnumörkun sinni í heilbrigðisgeiranum. I ræðu sinni á mánudag hafði heilbrigðisráðherra sagt að fjórar leiðir væru færar til að ná niður halla í heilbrigðisþjónustunni. „Við getum fækkað læknisverkum, við getum lækkað laun starfsfólks, við getum látið sjúklingana greiða meira og við getum sameinað dýr- ustu einingamar og náð fram mjög mikilli fjárhagslegri hagræðingu,“ sagði Ingibjörg. Heilbrigðisráðherra bætti því við að reyndin væri sú að flestir svöraðu fyrstu þremur spurning- unum neitandi. Þetta þýddi hins vegar aðeins eitt. Annaðhvort yrði heilbrigðisþjónustan látin þróast óbreytt eða skipulögð upp á nýtt. „Við lögðum grann að nýrri framtíðarstefnu þegar ráðinn var einn forstjóri yfir stóru sjúkrahús- in í Reykjavík. Sú ráðstöfun tókst vel og við höldum ótrauð áfram á sömu braut,“ sagði Ingibjörg á mánudag. Ummæli heilbrigðisráðherrans urðu Rannveigu Guðmundsdóttur tilefni til að spyrja hvort það væri stefna ríkisstjórnarinnar að halda áfram á sömu braut og að samein- ing stóra sjukrahúsanna stæði fyr- ir dyram. í svari Jóns Kristjáns- sonar, þingmanns Framsóknar- flokks og formanns fjárlaganefnd- ar, kom hins vegar fram að hann teldi að hægt væri að ná fram mik- illi hagræðingu með því að sam- reka stóru sjúkrahúsin án þess að það þýddi endilega að sameining þeirra væri á döfinni. Hætt við skýrslu- tökur fyr- ir dómi EKKERT varð úr fyrirhuguð- um skýrslutökum fjögurra gæsluvarðhaldsfanga í stóra fíkniefnamálinu fyrir dómi í gær. Hafði lögreglustjóra- embættið fengið heimild til að taka skýrslu af fjórum sak- borningum, sem handteknir voru saman hinn 10. septem- ber og hafa setið lengst í gæsluvarðhaldi af þeim níu mönnum sem eru í varðhaldi. A grandvelli heimildar um skýrslutökuna voru fangamir fluttir úr gæsluvarðhaldsfang- elsi í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem til stóð að láta þá staðfesta fyrri skýrslur hjá lögreglu, einn í senn að við- stöddum verjanda. Verjendur annarra gæsluvarðhaldsfanga vora þá mættir í dómsal og kröfðust þess að fá að vera við- staddir skýrslutökurnar. Full- trúi lögreglustjóraembættisins mótmælti því og fékk dómara til að kveða upp þann úrskurð að vísa verjendunum úr dóm- sal. Af hálfu verjenda var úr- skurðurinn kærður til Hæsta- réttar og verður því ekkert að- hafst að nýju fyrr en Hæsti- réttur tekur afstöðu til úr- skurðar dómara. Roger Whittaker tii Islands HINN heimskunni söngvari Roger Whittaker er væntan- legur til landsins í febrúar á næsta ári. Mun hann halda þrenna tón- leika á veit- ingastaðn- um Broad- way, dag- ana 1., 2. og 4. febrúar. R o ger Whittaker fæddist í Nairobi í Kenýa árið 1936. Hann kom fyrst fram á tón- leikum árið 1958 og hefur síð- an komið fram á tónleikum og í sjónvarpi um allan heim. Hann hefur sjálfur samið um 500 lög sem komið hafa út á plötum og diskum. Áætlað er að plötur hans hafi selst sam- tals í um 50 milljónum ein- taka. Þar af seldist platan „The Last Farewell" í 11 milljónum eintaka. Plötur hans hafa selst í stórum upp- lögum hér á íslandi. Á tónleikunum á Broadway mun Whittaker syngja og blístra öll sín þekktustu lög í gegnum tíðina. Roger Whittaker Sérblöð í dag i-—---—----------;------1---i---J ►í VERINU í dag er sagt frá samningaviðræð- um SIF við verslunarkeðjuna Wal-Mart, í Banda- rikjunum, spjallað við Albert Haraldsson, skip- sljóra í Chile, og sagt frá rannsóknum á átu við Island. Ennfremur eru í blaðinu hefðbundnar upplýsingar um aflabrögð og markaði. • •••••• •• ••••••• :.• • •••••#••• Pressan oll a heimsmeisturum Frakka/C4 Þorvaldur Örlygsson ráðinn þjálfari KA/C1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.