Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Flugleiðir undirrita samstarfssamning við SAS
Miðar að fjölgun farþega á við-
skiptamannafarrými Flugleiða
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Sigtirðsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar- og þróunarsviðs Flugleiða, sýnir hvernig tvíkennt flug
Flugleiða og SAS verður merkt flugnúmeri beggja flugfélaganna í framtíðinni.
Hlutabréf í Flug-
leiðum hækkuðu
um 10,3% í gær
FLUGLEIÐIR og SAS tilkynntu
samtímis í Reykjavík og Stokkhólmi
í gær um samning sem fyrirtækin
hafa gert sín á milli um aukið sam-
starf í fiugi á milli Skandinavíu og
Bandaríkjanna. I samningnum felst
að allt flug Flugleiða milli höfuð-
borga SAS-landanna þriggja og
þriggja borga í Bandaríkjunum
verður í nafni beggja félaganna. Að
auki verður flug SAS frá Kaup-
mannahöfn, Osló og Stokkhólmi til
sjö borga í Evrópu í nafni SAS og
Flugleiða. Þá verður samstarf vild-
arkerfa félaganna aukið.
Samningurinn tekur gildi 1. nóv-
ember næstkomandi og verður að
fullu kominn til framkvæmda 1. jan-
úar 2000. Flugleiðir munu fljúga í
nafni beggja félaganna milli Kaup-
mannahafnar, Oslóar og Stokkhólms
annars vegar og Boston, Minneapol-
is/St. Paul og Baltimore/Washington
hins vegar. SAS-flug frá Kaup-
mannahöfn, Osló og Stokkhólmi til
Hamborgar, Gautaborgar,
Múnchen, Dusseldorf, Brussel,
Ziirich og Vínar verður flogið í nafni
beggja fyrirtækjanna. Er þetta við-
bót við núgildandi samning félag-
anna, sem felur í sér að allt flug
Flugleiða milli íslands og höfuð-
borga Norðurlandanna er í nafni
beggja fyrirtækjanna.
Ferðum íjölgað
en verð helst óbreytt
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, sagði við kynningu samnings-
ins í gær að hann væri mikil viður-
kenning á því leiðakerfí sem Flug-
leiðir hefðu komið sér upp undanfar-
in ár en fyrirtækið væri með mikla
markaðshlutdeild á mörgum þessum
leiðum milli höfuðborga Norðurland-
anna og borga í Bandaríkjunum.
Hann sagði að ferðum Flugleiða
til Bandaríkjanna yrði fjölgað í kjöl-
far samningsins en reiknað væri
með að verð héldist óbreytt á þess-
um flugleiðum. Hann tók sem dæmi
að flogið yrði daglega til Boston og
Minneapolis allan ársins hring, en
fram að þessu hefði verið flogið
þangað sex sinnum í viku. Sigurður
sagði að samningurinn miðaði að því
að fjölga farþegum sem ferðast á
viðskiptamannafarrými í vélum
Flugleiða.
„Samningurinn er í samræmi við
stefnu okkar, að auka hlut farþega
sem ferðast á viðskiptamannafar-
rými milli Evrópu og Bandaríkj-
anna, með stoppi í Reykjavík," sagði
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, í gær.
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri stefnumótunar- og þróunar-
sviðs Flugleiða, bætti við þessi orð
Sigurðar að Flugleiðir hefðu þegar
náð töluverðum árangri á því sviði
og samningurinn við SAS styrkti fé-
lagið í þeirri sókn, þar sem það hefði
sterka stöðu á viðskiptamannamark-
aði. 65% af farþegum SAS ferðast á
viðskiptamannafarrými en 17% hjá
Flugleiðum.
„Samstarfíð styrkir bæði flugfé-
lögin. Flugleiðir geta nú boðið meiri
þjónustu í flugi innan Evrópu. Bæði
félögin geta boðið félögum í vildar-
klúbbum sínum, Saga Bonus og SAS
Eurobonus, aukin fríðindi og fjöl-
breyttari möguleika til að leysa út
punkta sína. SAS getur boðið far-
þegum sínum mun fullkomnara
leiðakei’fí á milli Skandinavíu og
Bandaríkjanna, en Flugleiðir eru
með stystan ferðatíma í flugi yfír
hafið,“ sagði Einar.
Hlutabréf Flugleiða hækkuðu
töluvert í gær, meðaltalshækkun var
10,3%. Jafnframt vora mest við-
skipti með bréf félagsins á Verð-
bréfaþingi íslands í gær, heildarvið-
skipti dagsins námu rúmum 136
milljónum króna.
Ögmundur Jónasson
Sprengja
í umræðuna
um virkj-
anamál
„VIÐ teljum brýnt að fá umræðu
um virkjanamálin inn á Alþingi á
næstu dögum ekki síst eftir þá
sprengju sem ríkisstjórnin kastaði
inn í umræðuna um þessi mál í gær
[fyrradag],“ segir Ógmundur Jón-
asson, þingflokksformaður Vinstri-
hreyfíngai-innar - Græns framboðs.
Þar vísar hann til yfirlýsingar
Finns Ingólfssonar iðnaðan-áð-
herra í umræðu á Alþingi á mánu-
dagskvöld um að hann hygðist
leggja fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um framhald fram-
kvæmda við Fljótsdalsvirkjun um
leið og skýrsla Landsvirkjunar um
umhverfísmat væri tilbúin.
Kom þessi skoðun fram í máli
Ögmundar á blaðamannafundi
flokksins í gær þar sem þingflokk-
urinn kynnti fyrstu sín þingmál í
vetur.
„Ólafur Örn Haraldsson, þing-
maður Framsóknarflokks og for-
maður umhverfisnefndai' Alþingis,
boðaði það nánast í útvarpsþætti á
laugardaginn var að gengið yrði
fram hjá umhverfisnefnd Alþingis
og hún sniðgengin í þessum efn-
um,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son alþingismaður ennfremur á
fundinum. Sagði hann að Ólafm’
hefði í útvarpsviðtalinu boðað að
„flutt yrði sýndartillaga af iðnaðar-
ráðherra eða ríkisstjórn og hún lát-
in ganga til iðnaðarnefndar.“ Tók
Steingrímur fram að þetta hefði í
raun og veru verið staðfest af Finni
Ingólfssyni iðnaðarráðherra og Da-
víð Oddssyni forsætisráðherra í
umræðum Alþingis á mánudags-
kvöld.
--------------
Handaskurð-
læknar hætta
áSHR
BÁÐIR handaskurðlæknamir á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur hafa sagt
upp störfum. Eru þeir einu handa-
skurðlæknarnir sem starfa á land-
inu, ásamt einum til viðbótar sem
starfar við Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
Jóhannes M. Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Sjúkrahúss Reykjavík-
ur, segir að uppsagnirnar skapi
vissan vanda fyrir sjúkrahúsið að
því leyti að þjónusta við þá sem
hljóta slys á höndum skerðist. Hann
segist reikna með að sjúkrahúsið
leiti til læknanna beggja þegar um
neyðartilfelli er að ræða en þeir
muni verða við störf í einkarekstri á
höfuðborgarsvæðinu. Með því móti
verði vandinn leystur til bráða-
birgða. Jóhannes reiknar með var-
anlegri lausn á næsta ári þegar að
öllum líkindum sé von á einum
handaskurðlækni, sem starfar er-
lendis, heim til starfa.
Morgunblaðið/Svavar G. Jónsson
Umsókn um léttvínsbar á Klapparstíg hafnað
Eigandi segir
kröfum fullnægt
Góð upp-
skera af
vetrarhöfrum
UM siðustu helgi voru bændur á
Iiunkubökkum í Vestur-Skafta-
fellssýslu að hirða vetrarhafra sem
sáð var til í vor. „Það var svo vond
tíð í september að við gátum ekki
náð þeim,“ sagði Björgvin Harðar-
son bóndi. Uppskeran í ár var góð
og fékkst mun meira en fyrri ár.
„Það er frekar óvenjulegt að við
séum að slá hafra svona seint,“
sagði hann. „Venjulega hefur fryst
um þetta leyti árs en þennan sama
dag voru nokkrir bændur á næstu
bæjum að hirða há.“
BORGARYFIRVOLD hafa ákveð-
ið að leyfa ekki veitingarekstur í
húsnæði við Klapparstíg sem áður
hýsti krána Grand Rokk. Rekstrar-
aðili staðarins, frönsk kona að
nafni Stephanie Caradec, segir að
hún hafi varið tveimur milljónum
króna í að gera upp staðinn og hafí
hann staðist allar kröfur heilbrigð-
is- og eldvarnareftirlits. Hún telur
neitun borgaryfirvalda ekki eiga
við nein rök að styðjast.
I fréttatilkynningu sem Caradec
sendi frá sér segir hún að ákvörðun
borgaryfírvalda sé löðrungur í and-
lit þeirra sem staðið hafa að þess-
um framkvæmdum á Klapparstíg.
Frá upphafi málsins hafi þess verið
gætt að ganga ekki í berhögg við
lög eða vilja borgaryfirvalda, en
þrátt fyrir það hafi verið tekin
ákvörðun um að veita ekki veit-
ingaleyfi. Til stóð að rífa húsið við
Klapparstíg og reisa þar byggingu
upp á 3^4 hæðir, en eigandi þess
ákvað að leigja Caradec það til
tveggja ára undir rekstur léttvíns-
bars með frönskum vínum. Þegar
bíði 900 vínflöskur þess á hafnar-
bakkanum að vera sóttar.
Allri samvinnu hafnað
„Eigandinn ákvað þrátt fyrir
fagurgala borgaryfírvalda að leigja
húsnæðið fremur til veitinga-
rekstrar," segir hún og að til
greina hafi komið að hún fengi að
kaupa húsnæðið að þeim tíma liðn-
um. „Þrátt fyrir að svokallað lýð-
ræði ríki, neitar borgarráð allri
samvinnu um verkefni sem nýtur
mikils stuðnings og áhuga allra
þeirra sem komið hafa að málinu.
Ekki er látið þar við sitja, heldur
hafa borgaryfirvöld tekið sér vald
til að gera þetta þrátt fyrir alla
andstöðu og þá staðreynd að þau
eiga ekki húsnæðið, auk þess sem
öll lagaleg atriði eru á þurru,“ seg-
ir ennfremur í tilkynningunni.