Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR NefndarsMpan ráðherra gagnrýnd Sjárarútvegsráðherra gagnrýndar fyrir sláp- aa kvötanefnðarinnar - frjálslyndir litilokað StfcSNlUNlD Við þurftum bara ekkert á ykkur að halda í nefndina, það á engu að breyta, herrar mínir. ERU ÞEIR AÐ FA’ANN? Klakveiðin gengur vel VEIÐI er lokið í Stóru Laxá í Hreppum og veiddust um 170 lax- ar. Það er mun lakara en oft áður, en svona tölur hafa þó oft sést í ánni og raunar er með ólíkindum hversu vel aflaðist miðað við hve stór hluti veiðitímans var ónýtur vegna hlaupvatns í Hvítá og Ölfusá sem tafði göngur langt fram eftir sumri. Það var drjúg veiði um haustið sem bjargaði því sem bjargað varð. Þessa dagana er veitt í klakkistur í Stóru Laxá og er það svo vinsæl iðja, að það sem bændur gerðu með netum á einum degi hér áður er nú gert á drjúgmörgum dögum af stangaveiðimönnum sem hafa gam- an af því að veiða og sleppa ... þ.e.a.s sleppa laxi ofan í kistur bænda. Nokkur veiði hefur verið, enda slatti af laxi á svæðinu frá Kóngsbakka upp í Kálfhagahyl. Fyrir skemmstu fengust tveir einn daginn, þrír annan og fjórir þann þriðja. Stærsti klaklaxinn um helg- ina var 18 punda hrygna, en nokkrir mjög góðir laxar eru reiðubúnir í klakið og meðalþyngd góð. Það er mál manna að mun meira vit sé í svona klakveiði heldur en þeirri aðferð að fai'a með net í hylji þar sem mikið er af laxi og hreinsa upp úr þeim. Seint á haustin er lax- inn yfírleitt búinn að para sig og velja hrygningarbletti. Ef þeir eru ekki í hylnum sjálfum eru þeir á svæðum nærri honum og laxinn leit- ar þangað þegar húmar. Sýnist að með þessu sé verið að svíkja ána um mikið náttúrulegt klak, en skila til baka eldisseiðum. Amerískur rSM m Dýnustærð 135x190 cm þykkt15cm SUÐURLANDSBRAUT 22 SÍMI: 553 60 I I - 553 7 I 00 Málstofa um þjóðréttarstöðu Austur-Tímor Hver er kjarni deilunnar? Margrét Heinreksdóttir Mannréttinda- skrifstofa ís- lands stendur í dag fyrir málstofu um þjóðréttarstöðu Austur- Tímor. Málstofan hefst klukkan 17.15 í Litlu- Brekku, sal Lækjar- brekku, og er öllum opin og ókeypis. Fyrirlesari er Margrét Heinreks- dóttir lögfræðingur. En hvað skyldi hún aðallega fjalla um í sínum fyrir- lestri? „Fyrirlesturinn bygg- ist á meistaraprófsrit- gerð minni sem ég varði við lagadeild Háskólans í Lundi og Raul Wallen- berg-stofnunina í Mann- réttinda- og mannúðar- löggjöf. Ritgerðin fjallar um þjóðréttarstöðu Austm’- Tímor í ljósi þróunar sjálfsá- kvörðunarréttarins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna úr pólitísku prinsippi í þjóðréttarreglu. Aust- ur-Tímor var portúgölsk ný- lenda í rúmai’ fjórar aldir. Þegar bundinn var endi á hálfrar aldar einræði í Portúgal 1974 fóru stjómvöld þar að búa nýlendur sínar undir nýja framtíð. Angóla og Mósambík fengu fljótt sjálf- stæði, enda höfðu þeir barist fyr- ir þvi árum saman, en framtíðar- staða Austur-Tímor var aldrei ráðin vegna þess að Indónesar gerðu innrás í landið í desember 1975 og gerðu landið að 27. hér- aði Indónesíu. Eg mun í erindinu rekja þessa sögu stuttlega í tengslum við réttarstöðu lands- ins sem fyrrverandi nýlendu. Sjálfsákvörðunarréttur þess var viðurkenndur en ágreiningur stóð um hvort Austur-Tímorbú- ar hefðu þegar neytt þessa rétt- ar vegna þess að hluti íbúa landsins hafði beinlínis óskað eftir íhlutun Indónesa. Það hefur verið þjóðréttarlegur kjarni deil- unnar um Austur-Tímor.“ -Hvers vegna valdir þú þér þetta efni? „Ahugi minn á Austur-Tímor vaknaði verulega við heimsókn José Ramos Horta, sem kom til íslands 1997 í boði Mannrétt- indaskrifstofu íslands og Kvennalistans. Hann hafði hlotið friðarverðlaun Nóbels 1996 ásamt Carlos Felipe Ximenes Belo, biskupi Austur-Tímorbúa. Þess má geta að Horta var til- nefndur af þingkonum Kvenna- lista til friðarverðlauna og bisk- upinn af írskum konum. Horte hélt fyrirlestur í Norræna húsinu sem var afskaplega eftirminni- legur. Ég ræddi tals- vert við hann meðan hann var hérna og það sem hann hafði að segja hafði mikil áhrif á mig og vakti ýmsar spurningar. Það kom til að ég skrifaði grein um málið fyrir Mannréttindarskrifstofu Islands. Til að kynna mér það nánar fór ég til Lundar og fékk aðgang að bókasafni Raul Wallenberg- stofnunarinnar, því meira sem ég las þar þeim mun fleiri spurning- ar vöknuðu og ég fann það iljótt að það sem ég hafði sjálf lesið um mannréttindamál var of tak- markað og gerði mér jafnframt grein fyrir því hversu þröngar umræður hér heima höfðu yfir- leitt verið um mannréttindamál. Þetta vakti hjá mér löngun til þess að fara í framhaldsnám á þessu sviði og það gerði ég í fyrrahaust, fékk ársleyfi frá störfum sem ég notaði til náms- ►Margrét Heinreksdóttir fæddist 1936 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík, stærð- fræðideild, árið 1955. Hún starfaði sem blaða- og frétta- maður í tutt ugu ár, lengst af við Morgunblaðið en síðan við Ríkisútvarpið, Hljóðvarp og Sjónvarp. Tók kandidatspróf í lögum frá Háskóla Islands 1986 og hefur starfað sem lög- fræðingur frá 1987, nú við embætti sýslumanns í Hafnar- firði. Hún hefur auk þess tekið talsverðan þátt í félagsmálum. Var m.a. stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Is- lands 1995-’98 og hefur átt sæti í ýmsum opinberum nefndum. Margrét á tvær dæt- ur og þrjú barnabörn. ins. Guðmundur Alfreðsson þjóð- réttarfræðingur, sem nú er tek- inn við sem aðalforstjóri stofnun- arinnar, hvatti mig óspart til þess að gera þetta og er ég hpn- um mjög þakklát fyrir það. Ég vil hins vegar geta þess að Mannréttindaskrifstofa íslands gaf í fyn-a út bækling sem að meginefni til er grein eftir José Ramos Horta, byggð á fyrirlestr- inum sem hann hélt í Norræna húsinu. í bæklingnum er einnig stutt grein eftir Guðmund Al- freðsson um Austur-Tímor í al- þjóðarétti og formála skrifaði Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrver; andi þingkona Kvennalistans. 1 þessum bæklingi er líka mann- réttindayfirlýsing sjálfstæðis- hi-eyfingarinnar í Austur-Tímor, sem var samþykkt á fundi full- trúa fjölmargra samtaka Austur- Tímorbúa, bæði heima fyrir og erlendis, sem haldinn var í Portúgal 25. aprfl 1998.“ - Ætlar þú að ræða um mannrétt- indabrot Indónesa á Austur-Tímorbúum í fyrirlestri þínum? „Ég mun að sjálfsögðu koma inn á þau en ritgerðin fjallar ekki um það efni. Það er hins vegar ljóst að Indónesar hafa brotið á Austur-Tímorbúum nánast allar reglur alþjóðlegra mannréttinda- samninga síðasta aldarfjórðung og þeir brugðust hrapallega því hlutverki sem þeir höfðu tekist á hendur samkvæmt samningi sem þeir gerðu við stjórn Portúgal og framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd þjóðar- atkvæðagreiðslu sem fram fór á Austur-Tímor 30. ágúst sl. en samkvæmt honum tóku þeir að sér að sjá um öryggismál á eyj- unni meðan verið væri að ráða framtíð þjóðarinnar til lykta.“ Indónesar brugðust hrapallega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.