Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Forvarnadagur haldinn í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
Ekki töff
að vera
drukkinn
eða dópaður
FORVARNADAGUR var
haldinn í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ (FG) í gær, en
þetta er annað árið í röð sem
slíkur dagur er haldinn í skói-
anum, að sögn Elísabetar
Siemensen, forvarnafulltrúa
skólans. Skólinn átti einnig 15
ára afmæli og því var ákveðið
að samtvinna þetta tvennt,
þ.e. afmælið og forvarnirnar.
„Við höfum reynt að leggja
mikla áherslu á forvarnamái í
skólanum,“ sagði Elísabet.
„Markmiðið er að gera um-
ræðuna opnari þannig að þetta
sé ekki feimnismál lengur.“
Segja má að FG hafl að
ákveðnu leyti rutt brautina í
forvamamálum, þar sem hann
var fyrsti skólinn til að ráða
sérstakan forvarnafulltrúa til
starfa hjá sér, en það gerði
hann í fyrra. Að sögn Elísa-
betar hafa flestir framhalds-
skólanna nú farið að fordæmi
FG og lagt aukinn þunga í
forvarnamál með ráðningu
forvarnafulltrúa. Aður sáu
námsráðgjafarnir um mál er
tengdust forvörnum, en Elisa-
bet sagði að þeirra starf hefði
þegar verið nógu viðamikið og
því væri sú nýjung að ráða
forvarnafulltrúa aukin þjón-
usta við nemendur.
Fyrst og fremst rætt
um eiturlyf og áfengi
Elísabet sagði að hugmynd-
in að sérstökum forvarnadegi
hefði smám saman þróast inni
í skólanum. Hún sagðist
starfa með forvarnateymi og í
þeim hópi hefði komið upp
umræða um að gaman gæti
verið að taka einn dag frá til
fræðslu um vímuefni og af-
leiðingar þeirra.
Að sögn Elísabetar var leit-
að til Þórarins Eyfjörð leikara
og hann beðinn að skipuleggja
dagskrána, þar sem hann
hafði reynslu í að vinna með
ungu fólki. Þórarinn fékk
hljómsveitina Geirfuglana til
liðs við sig og á milli þess sem
hann fjallaði um gildi þess að
velja rétt í lífinu lék hljóm-
sveitin lög og skemmti. Elísa-
bet sagði að flestu ungu fólki
leiddist að hlusta á fyrirlestra
og því hefði verið ákveðið að
koma skilaboðunum á fram-
færi á þennan hátt. Hún sagði
að fyrst og fremst væri verið
að ræða um vímuefni, eiturlyf
og áfengi, og að umræðan
snerist um það að koma nem-
endunum í skilning um mikil-
vægi þess að velja rétt því líf-
ið snerist um það að
velja.
Dagskráin hófst
klukkan 10.30, þar
sem öllum nemend-
unum var smalað úr
stofunum og fram í
anddyri, þar sem
skemmtunin fór
fram. Dagskránni
lauk síðan í hádeg-
inu, en þá bauð
skólinn öllum i mat,
pottrétt með hrís-
grjónum og brauði.
Gunnhildur Ró-
bertsdóttir, 19 ára
nemandi á félags-
fræði-, tölvu- og
upplýsingabraut,
var mjög ánægð með fram-
takið.
Hópþrýstingurinn getur
haft ýmsar afleiðingar
„Þetta er alveg frábært,"
sagði Gunnhildur. „Það er
ákveðið stökk að fara í fram-
haldsskóla, maður verður
fullorðinn. Margir fara í
fyrsta skipti að heiman og
einnig byrja margir að um-
gangast eldri krakka og við
vitum að hópþrýstingurinn
getur haft ýmsar afleiðingar í
för með sér. Það er því mjög
gott að ungu fólki sé sýnt að
það er ekkert töff að vera
drukkinn eða dópaður.
Ég held að að svona um-
ræða hafi áhrif og skili sér til
þeirra sem eru eitthvað að
hugsa um þetta. Einnig held
ég að þetta fái þá sem þegar
eru í neyslu til að hugsa sinn
gang.“
Guðmundur Rögnvalds-
son, 16 ára nemandi á nátt-
úrufræðibraut, leist í heild-
ina litið mjög vel á framtak-
ið, þótt honum hefði fundist
að hægt hefði verið að bæta
ýmislegt.
„Það hefði kannski verið
hægt að skipuleggja þetta
eitthvað betur, því helmingur-
inn af nemendunum fór út,“
sagði Guðmundur. „Kannski
hefði verið sniðugra að taka
einn bekk fyrir í einu og ræða
við hann um þessi mál. Þá
fannst mér að umræðan hefði
mátt vera aðeins vísindalegri,
það hefði til dæmis mátt vísa í
rannsóknir sem gerðar hafa
verið um áhrif vímuefna."
Ekki farið í áfengislaust
partý síðustu tvö ár
Martin Leifsson, 16 ára
nemandi á félagsfræðibraut,
sagðist aðspurður aldrei hafa
orðið var við eiturlyf en að
Kópavogur
SKÓLANEFND Mennta-
skólans í Kópavogi (MK) hef-
ur sent bæjaryfirvöldum
beiðni, þar sem farið er fram
á að skólinn verði stækkaður
um 3.000 fermetra. Þetta
kom fram í samtali Morgun-
blaðsins við Margréti Frið-
riksdóttur skólastjóra.
„Það gefur augaleið að í
ört stækkandi sveitarfélagi,
þar sem grunnskólum er sí-
fellt að fjölga verður einnig
langflestir drykkju áfengi.
Jón Kristinn Jónsson, 16 ára
nemandi á náttúrfræðibraut,
tók undir orð Martins og
sagði að flestir vinir sínir
drykkju áfengi. Gunnhildur
sagði að áfengið væri allstað-
ar og að meira væri af eitur-
lyfjum í umferð en fólk gerði
sér grein fyrir og var Guð-
mundur sammála.
„Ég hef ekki farið í áfengis-
laust partí síðustu tvö ár,“
sagði Guðmundur. „Vinir mín-
ir og félagar kunna sér hins-
að vera hægt að bjóða upp á
framhaldsskólamenntun,“
sagði Margrét. „Það er því
til umræðu að stækka skól-
ann til að mæta aukinni
þörf.“
Menntaskólinn í Kópavogi
er nú í 10.000 fermetra hús-
næði á milli Digranesvegar
og Hávegar. Margrét sagði
að um 1.300 nemendur væru í
skólanum, sem væri fullset-
inn, en ef skólinn yrði stækk-
aður um 3.000 fermetra
myndi hann geta tekið við 300
vegar hóf og eru það ábyrgir
að þeir eru ekki í eiturlyfum.
Ég héld að það sé að mörgu
leyti þessu að þakka að ég er
ekki í neinu rugli.“
Gunnhildur sagði að Elísa-
bet foivarnafulltrúi væri að
gera frábæra hluti í sínu starfí.
„Hún nær mjög góðu sam-
bandi við nemendurna og það
er hlustað á hana,“ sagði
Gunnhildur. „Hún talar við
nemendur eins og manneskj-
ur í stað þess að vera með ein-
hverjar prédikanir."
til 400 nemendum í viðbót.
Gunnar I. Birgisson, for-
seti bæjarráðs í Kópavogi,
sagði að um tvo möguleika
væri að ræða í stöðunni, ann-
ars vegar að byggja við
Menntaskólann í Kópavogi
og hins vegar að byggja nýj-
an framhaldsskóla í Sala-
hverfi, sem er fyrir suðaust-
an Lindahverfið. Hann sagði
að búið væri að senda
menntamálaráðuneytinu
bréf, en málið væri annars á
frumstigi.
Morgunblaðið/Kristinn
Forvaraadagrtr var haldinn í Fjölbrautaskólanuni í Garðabæ í gær og á milli þess sem Þórarinn Eyfjörð leikari ræddi um
mikilvægi þess að velja rétt í lífinu lék hljómsveitin Geirfuglarnir og skemmti.
Elísabet Siemsen, forvarnafulltrúi í
FG, sagði að markmiðið með for-
varnadeginum væri að opna umræð-
una um vímuefni.
Menntaskólinn í Kópavogi fullsetinii
Vilja stækka skólann
Garðabær
Alklætt íjölbýlishús
við Hringbraut
Hafnarfjörður
HAFNAR eru framkvæmdir
við nýtt fjölbýlishús við Hr-
ingbraut 4, þar sem meðal
annars verslunin Hringval
stóð áður. Húsið verður tvær
hæðir og ris og í því verða
10 íbúðir. Búið er að steypa
sökklana að húsinu, sem
verður að öðru leyti byggt
úr forsteyptum einingum
sem framleiddar eru hjá
Forsteypunni ehf. Bygging-
araðili er Listakjör ehf. og
hönnuðir eru Björn Einars-
son innanhússarkitekt og
Trausti Leósson byggingar-
fræðingur.
Fjórar íbúðir í húsinu
verða um 100 fm og eru á
tveimur hæðum. í norðvest-
urenda hússins verða tvær 75
fm íbúðir, einnig á tveimur
hæðum. Gert er ráð fyrir að
hægt verði að innrétta eina
íbúð í vesturenda hússins
fyrir hreyfihamlaða. Fjórar
íbúðir verða á annarri hæð og
í risi um 80 fm að stærð. A
baklóðinni verður bfla-
geymsla fyrir 10 bfla og ofan
á henni verður garður og
leiksvæði fyrir böm.
Að utan verður húsið ein-
angrað með steinull og klætt
með áli. A álinu er inn-
brennd lituð húð. Björn Ein-
arsson arkitekt segir að álið
hafi orðið fyrir valinu vegna
þess að það á vera viðhalds-
frítt. Hann segir að upphaf-
lega hafi staðið til að klæða
húsið með bárujárni, en síð-
an verið ákveðið að taka
frekar álið. Það efni er eitt-
hvað dýrara en það er sama
vinnan við klæðninguna og
þá á húsið að verða viðhalds-
frítt.
Búið er að setja álið utan á
nokkur hús hér á landi, t.d.
við Skúlagötu og hefur
reynst mjög vel, að sögn
Björns. Hann segir að menn
sjái að álið ryðgi ekki og sé
góður valkostur eftir allar
þær steypuviðgerðir á fjöl-
býlishúsum sem víða hefur
þurft að standa í undanfarin
ári. Nýjustu húsin í Smáran-
um verða klædd með áli og
Björn telur að álið sé klæðn-
ing sem muni ryðja sér til
rúms hérlendis á næstunni.
Bjöm telur að stfllinn á
húsinu falli vel inn í byggðina
í þessu rótgróna hverfi. Til
stendur að ljúka við bygging-
una í maí næsta vor. Hann
segir að fjölmargir hafi
spurst fyrir um íbúðirnar í
húsinu, en þær eru ekki
komnar á sölu ennþá. Bjöm
segist fyrst vilja sjá hvort
Suður Austur
Nýtt fjölbýlishús er nú að rísa við Hringbraut. Á efri tcikningunni sést hliðin sem snýr að
Hringbrautinni, en neðri tcikningin sýnir gafi hússins eins og hann kemur til með að sjást
frá Lækjargötu.
áætlanir geti staðist varðandi
afhendingartíma, áður en
farið verður að selja íbúðirn-
ar. Það ætti að koma í ljós
þegar séð verður fyrir end-
ann á framleiðslu forsteyptu
eininganna, enda sé tiltölu-
lega lítið eftir þegar þær eru
komnar á staðinn. Gluggarn-
ir í húsið koma tilbúnir með
góðri hljóðeinangrun frá
Noregi, en flestir gluggar í
húsinu verða með hliðaropn-
un, sem á að auðvelda þrif og
fjölga flóttaleiðum.