Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Forvitnileg dag-
skrá á haust-
þingi kennara
fræðslufundi í Höfðaskóla um hin
margvíslegustu efni í sambandi við
kennslu og uppeldi.
Námsgagnastofnun var að venju
með sýningu á þinginu á nýjum
námsgögnum stofnunarinnar. Þar
býðst kennurum tækifæri til að
skoða það allra nýjasta og fylgjast
með því sem Námsgagnastofnun
er að gera. Að loknum fræðslu-
fundunum voru síðan haldnir aðal-
fundir KSNV og SNV sem eru
stéttarfélög grunnskólakennara og
skólastjórnenda á svæðinu.
Formaður KSNV er Unnur Kri-
stjánsdóttir myndmenntakennari
en formaður SNV er Eyjólfur St-
urlaugsson, skólastjóri á Siglufirði.
Dagskrá haustþingsins lauk síðan
með vel heppnaðri árshátíð í Kán-
trýbæ um kvöldið.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Fjöldi hrossa er saman kominn og með lagni fær hver sitt stóð.
Mikill mannfj öldi í
hrossaréttum í Víðidal
Skagaströnd - Haustþing kennara
og skólastjómenda af Norðurlandi
vestra var haldið á Skagaströnd 1.
október. A þingið mættu kennarar
og skólastjórnendur af svæðinu frá
Siglufirði að Reykjum í Hrútafirði,
alls um 160 manns.
Haustþing kennara eru árviss
atburður þar sem kennarar koma
saman til endurmenntunar í einn
til tvo daga.
Að þessu sinni var þingið haldið
í félagsheimilinu og Höfðaskóla á
Skagaströnd. Boðið var upp á
vandaða og forvitnilega dagskrá,
sem hófst með fyrirlestrum í fé-
lagsheimilinu, þar sem fjallað var
um samvinnu grunn- og fram-
haldsskólans út frá hugtakinu ár-
angur. Þá skiptu kennarar sér eft-
ir áhugasviðum í 13 hópa og sóttu
Hvammstanga - Hrossarétt Víð-
dælinga í Húnaþingi vestra var
haldin laugardaginn 2. október. Að
vanda var samankominn mikill
mannfjöldi til að hittast við hefð-
bundna athöfn í sveitinni. Veðrið
lék nú ekki við mannfólkið, norðan
kaldi og hitinn 4-5 stig. Það var
mál manna að Víðidalsrétt sé
mesta hrossaréttin á landinu, með
800-1.000 hross.
Lífið gekk sinn gang þrátt fyrir
kuldann, karlarnir skröfuðu um
ágæti einstakra hrossa og supu á
pelum og í kaffiskúrnum veittu
kvenfélagskonurnar kaffi og með-
læti, einnig öl, pylsur og ís!
Sá vinnumáti er kominn á réttar-
störfin í Víðidal, að reknir eru í al-
menninginn smáhópar, tuttugu til
þrjátíu hross í hverjum. Hrossin
eru svo aðskilin og rekin í rétta
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn
flytur varaeintök safnsins í Borgarfjörð
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Frá afiiendingu viðurkenninganna, f.v. Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangárvallahrepps,
Erlingur Gíslason og Ragnheiður Jónasdóttir frá Gistiheimilinu Brennu, Jónas H. Jónasson og Sigríður
Hermannsdóttir frá Geldingalæk, Þóranna Finnbogadóttir og Geir Tryggvason á Hellu ásamt Þorgils
Torfa Jónssyni, formanni umhverfisnefndar hreppsins.
Viðurkenningar fyrir góða umgengni
Rangárvallahreppi - Umhverfisnefnd Rangárvalla-
hrepps veitti nýverið viðurkenningar fyrir góða
umgengni og snyrtimennsku á nokkrum stöðum í
hreppnum.
Fyrir fallegasta garðinn á Hellu hlutu viður-
kenningu hjónin Þóranna Finnbogadóttir og Geir
Tryggvason fyrir garð sinn á Þrúðvangi 29. Fyrir
snyrtilegustu sumarhúsalóðina í hreppnum hlaut
Sigrún S. Garðarsdóttir viðurkenningu fyrir sum-
arhús sitt og lóð í Ketilhúshaga 2 á Rangárvöllum.
í flokki býla hlaut Meðferðarheimilið á Geldinga-
læk viðurkenningu og í fiokki fyrirtækja Gisti-
heimilið Brenna á Hellu, en það hús hýsti áður
fyrr verkamenn sláturhússins á Hellu, en var gert
upp á árinu og innréttað sem gistihús af Ragnheiði
Jónasdóttur og Erlingi Gíslasyni á Hellu.
Héraðsskólinn í
Reykholti færður í
upprunalegt útlit
dilka. Aflagður er sá vinnuháttur,
að hrossin séu handsömuð og dreg-
in í dilka. Óneitanlega var það oft
tilkomumeira, en þessi háttur fell-
ur betur að þeirri ímynd sem
hrossabændur hafa skapað í kring
um hestamennsku og ræktun
hestsins.
Hrossum smalað niður
með sauðfénu
Reykholti-Nú er unnið að þvi að
fjarlægja vinnupalla af framhliðum
gamla Héraðsskólans í Reykholti,
en viðgerðir á húsinu hafa staðið yf-
ir undanfarna mánuði.
Leitast hefur verið við að færa
útlit hússins sem næst upprunalegri
mynd og hefur það verið málað í
hvítum og ljósgráum litum. Glugga-
karmar eru í ljósgráum lit eins og
mun hafa verið í byrjun, en glugga-
umbúnaður vai' þó ekki færður í
upprunalegt horf. Núverandi glugg-
ar hafa færri pósta en hinir upphaf-
legu. Byggingarfyrirtækið Sólfell er
verktaki að framkvæmdunum, en
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
yfinimsjón með verkinu í heild
sinni.
Landsbókasafnið hefur fengið
austurálmu hússins undir varaein-
tök safnsins og er verið að stand-
setja þann hluta innandyra. Allt tré-
verk og milliveggir hafa verið rifnir
niður og er húsnæðið hannað með
það fyrir augum að búa bókum sem
best skilyrði. Þil, eða innveggir,
verða reist innan við útveggi húss-
ins til að stuðla að jafnvægi á raka
og hita. Helgi Hafliðason er arki-
tekt að þessum endurbótum og seg-
ir hann í samtali við blaðið að fram-
kvæmdir gangi vel og að skiladagur
verksins sé 1. febrúar á næsta ári.
Húsið hafi verið illa farið að innan
og veggjaskipan breytt frá upphaf-
legri mynd.
I samtali við Morgunblaðið segir
Einai' Sigurðsson landsbókavörður
markmiðið vera að flytja inn á
næsta ári og verði húsnæðið fyrst
og fremst ætlað fyrir varaeintaka-
safn stofnunarinnar, þ.e. gögn sem
ekki er mikil hreyfing á. Gert er ráð
fyrir viðbótarrými fyrir vöxt þessa
safns I framtíðinni og verði annað
Morgunblaðið/Sigríður Krstinsdóttir
Gamla skólahúsið í Reykholti
hefur fengið upprunalegt útlit.
efni svo geymt á staðnum eftir því
sem rýmið leyfir. Hann segir að
heimamenn hafi viljað halda eftir
norðurálmu hússins fyrir hugsan-
lega notkun Snorrastofu eða aðra
aðila í héraði, en ekki séu komin
nein framtíðaráform um frekari
starfsemi Landsbókasafns í Reyk-
holti.
Samráð haft við
fornleifafræðinga
Þegar litast er um innandyra er
fátt sem stendur eftir í austurálm-
unni nema ber steinninn. Frá upp-
hafi lá hitaveitustokkur fyrir hverf-
ið í gegnum skólahúsið, en hita-
veitulagnir hafa nú verið leiddar út
fyrir. Fallegt stigahandrið með
handlista úr tré heíúr þó fengið að
standa eftir. Helgi Hafliðason segir
að samstarf hafi verið mjög ánægju-
legt við alla þá aðila sem að málinu
koma. Hann segir að verið sé að
leita lausna við frágang á lóð baka-
til, þar sem aðalinngangur hússins
verður. Vegna þessa hefur samráð
verið haft við ýmsa aðila í Reyk-
holti, ekki síst fomleifafræðinga
sem þar eru að rannsaka gömul
bæjarstæði og Snorragöng.
Víðdælingar reka enn hross á af-
rétt og er þeim smalað niður með
sauðfénu um miðjan september.
Þau eru síðan sett í afgirt lönd,
milli heiðar og byggðar, svonefnd
Króks-, Stóruhlíðar- og Gaflslönd.
Þaðan er stóðinu svo smalað, degi
fyrir réttirnar. Sú hefð hefur skap-
ast að fjöldi fólks kemur að smöl-
uninni og rekstri til réttar og er
allt gistirými í Víðidal undirlagt af
aðkomufólki, sem fysir að taka þátt
í réttarundirbúningi og störfum
heimamanna. Að kvöldi réttardags
er síðan réttardansleikur í Víðihlíð
og er hans beðið með eftirvænt-
ingu af mörgum.
Morgunblaðið/Ólafur
Kennarar og skólastjórar á Norðurlandi vestra hittust á haustþingi á
Skagaströnd nýverið.