Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 19
VIÐSKIPTI
F.jarskiptafyrirtækið MCI kaupir Sprint fyrir 129 milljarða dala
LANGSTÆRSTI
SAMRUNIFYRIR-
TÆKJA TIL ÞESSA
New York. Reuters.
MCI WorldCom Inc., næststærsta
langlínufélag Bandaríkjanna, ætlar
að kaupa þriðja stærsta langlínufé-
lagið, Sprint Corp., með samningi
upp á 129 milljarða dollara, eða
9.159 milljarða íslenskra króna,
sem er mesta yfirtaka í fyrirtækja-
sögunni.
Nýja fyrirtækið, sem verður
kallað WorldCom, fær um 30%
hlutdeild á 90 milljarða dollara
langlínumarkaði Bandaríkjanna og
verður skæður keppinautur AT%T
Corp, sem hefur forystu á mark-
aðnum.
Tilboð MCI WorldCom í Sprint
var tekið fram yfir boð er barst á
síðustu stundu frá BellSouth Corp.,
voldugasta símafélagi suðaustur-
hluta Bandaríkjanna.
í tilkynningu frá MCI
WorldCom í Clinton í Missisippi
segir að fyrirtækið mundi greiða 76
dollara í hlutabréfum fyrir hvert
Sprint-bréf. Fyrir hvert hlutabréf í
þráðlausri símadeild Sprints á að
fást eitt nýtt forgangshlutabréf í
WorldCom PCS og 0,1547 bréf fyr-
ir almennt hlutabréf í MCI
WorldCom.
Samkvæmt þessum tölum er
hlutabréfaþáttur samningsins 115
milljarða dollara virði. MCI
WorldCom tekur
einnig við 14 milljarða
dollara skuld og rusl-
bréfum þannig að
heildarverðmæti
samningsins verður
129 milljarðar dollara
sð sögn fyrirtækisins.
Mun stærri samning-
ur en Exxon og Mobil
Svo verðmætur er
samningurinn að hann
skyggir á alla aðra,
sem gerðir hafa verið
til þessa. Þar á meðal
er fyrirhugaður samn-
ingur um að olíurisinn
Exxon Corp. kaupi
keppinautinn Mobil
Corp. fyrir 80 millj-
arða dollara og 72
milljarða dollara
samningur landshluta-
símafélagsins SBC Commun-
ications Inc. og Ameritech Corp.,
sem hefur ekki verið samþykktur.
Áhugi MCI WorldCom á Sprint
stafaði af því að fyrirtækið vildi
komast yfir langlínuþjónustu
Sprint og fullnægja þörf á þráð-
lausu kerfi. Það kerfi Sprint er í
örum vexti og nær til um 180 millj-
óna Bandaríkja-
manna.
Búizt er við að
samningurinn verði
orðinn að veruleika á
síðari helmingi næsta
árs og ekki er gert ráð
fyrir að hann muni
rýra arð WorldCom af
hlutabréfum að sögn
fyrirtækisins.
Eftir samrunann
verður forstjóri
Sprint, William Esrey,
stjórnarformaður
WorldCom. Aðalfram-
kvæmdastjóri MCI,
Bernard Ebbers,
verður aðalfram-
kvæmdastjóri hins
sameinaða fyrirtækis.
Deutsche selur
Jafnframt hefur
Deutsche Telekom AG í Þýzka-
landi skýrt frá þeirri ætlun sinni
að selja 10% hlut sinn í Sprint fyr-
ir um 9,2 milljarða Bandaríkjadala.
France Telecom á einnig 10% hlut
í Sprint.
Talið er að eftirlitsyfirvöld fari
rækilega ofan í saumana á samn-
ingnum.
AP
Bernhard Ebbers,
aðalframkvæmda-
stjóri MCI, verður
aðalframkvæmda-
stjóri hins samein-
aða fyrirtækis.
Efi um gildi
Sprintsamnings
Washingfton. Rcuters.
WILLIAM Kennard, yfirmaður
bandaríska fjarskiptaeftirlits-
ins FCC (Federal Commun-
ications Commission), brást
hart við fréttum um að MCI
WorldCom Inc. hyggist kaupa
Sprint Corp. fyrir $115 milij-
arða dollara og sagði aö fyrir-
tækin bæru þá ábyrgö að sýna
að samningurinn væri almenn-
ingi til góðs.
„Samkeppni hefur leitt til
verðstríðs á langlínumarkaði,“
sagði Kennard fréttamönnum
er hann hafði haldið ræðu.
„Þessi samruni virðist vera
uppgjöf. Hvernig getur það ver-
ið neytendum til góðs? Máls-
aðilar verða að axla þá þungu
ábyrgð að sýna hvernig samn-
ingurinn getur orðið neytend-
um að liöi.“
Qpið hús - Opið hús
Framnesvegur 1
Fallegt 190 fm einbýli á
góðum stað í vestur-
bænum. Húsið nýlega
standsett að utan,
múrað og málað. Parket
og flísar. í húsinu eru 4
svefnherb. og 4 stofur.
Gott hús á góðum stað.
Verð 14,9 millj. 3876.
Opið hús frá kl 18-20.
ValhSII fasteígnasala, síml 588 4477.
NOATUN
Haustslatrun 99
r
Sláturtíð í Nóatúni!
Ódýrmatur-
hlaðinn
bætielnum!
® slátun
2.788.-
NOATUN
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • HÓLAGARÐI • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERHOLTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
HEIMASÍÐA NÓATÚNS WWW.noatun.'lS