Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 20

Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Félag viðskipta- og hagfræðinga um fjárfestingar í erlendum félögum Hagkvæmast að byggja á dreifðum söfnum ÍSLENSKIR fjárfestar geta náð hærrí ávöxtun án þess að auka áhættu með því að bæta bréfum í erlendum félögum í hluta- bréfasafn sitt. I erindi sem Arni Jón Arna- son, viðskiptafræðingur hjá Landsbréfum, hélt á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær um fjárfestingar í erlendum félögum sagði hann unnt að þæta áhættudreifmgu og hagkvæmni fjárfesta til muna, með auknum fjárfestingartækifærum. Hann benti á að þó að íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefði hækkað nánast sleitulaust frá árinu 1993 væri skynsamlegra, öruggara og arðbærara að byggja fjárfestingar á dreifðum félögum á alþjóðlegum mörkuðum. Hann talaði einkum um Bandaríkin enda um að ræða langstærsta hlutabréfamarkað í heimi, með um 50% markaðshlutdeild á heimsvísu, en Japan kemur næst með 9,7%. Það liggi því beinast við fyrir Islendinga sem hafa hug á að horfa til erlendra fjárfestingar- kosta að beina augum sínum tO Bandaríkja- markaðar sem uppfyllir ílest þau skilyrði sem menn leggja til grundvallar við val á fjárfest- ingarkostum. Þar nefndi Arni atriði eins og pólitískan stöðugleika, skilvirkni markaða, hagvöxt o.s.frv. Morgunblaöið/Ámi Sæberg Meðal þeirra kosta sem hlutabréfavið- skipti á Netinu þykja hafa fram yfir hefð- bundnar leiðir í gegnum miðlara má nefna aukinn hraða auk þess sem þóknun- in er nokkuð lægri. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í gær. Hvað einstakar atvinnugreinar varðaði sagði Arni mikOvægt að taka tillit tO þess hvar þær væni á líftímakúrfunni, hvort þær væru í vexti, hvaða þættir knýi þann vöxt áfram og hvaða hagræðingarmöguleikar séu til staðar o.fl. I fjárfestingarferlinu sjálfu lagði hann áherslu á að fjárfestar setji sér takmörk m.t.t. áhættu og ávöxtunar sem til- tekin fjárfesting á að skila. Margir kaupa á Vefnum Á fundinum fjölluðu þeir Árni S. Péturs- son og Þorsteinn G. Ólafsson, viðskipta- fræðingar hjá Landsbréfum, um hlutabréfa- viðskiptþá Vefnum en frá því fyrr á þessu ári hafa Islendingar átt kost á því að stunda viðskipti á Wall Street í Bandaríkjunum í gegnum Kauphöll Landsbréfa á Netinu. Af samkeppnisástæðum vildu þeir ekki greina frá því hversu margir nýti sér þá þjónustu hér á landi í dag en sögðu að um verulegan fjölda væri að ræða sem færi stöðugt vax- andi. Meðal þeirra kosta sem hlutabréfaviðskipti á Netinu þykja hafa yfir hefðbundnar leiðir í gegnum miðlara má nefna aukinn hraða auk þess sem þóknunin er nokkuð lægri eða 29,95 bandaríkjadalir íyrir einstök viðskipti, sem samsvarar um 2.000 íslenskum krónum. Hlutafé íslandssfma 260 milljónir eftir lokað hlutafjárútboð Hlutafé aukið um 100 milljónir MP VERÐBRÉF höfðu umsjón með hlutafjárútboði Íslandssíma sem nú er lokið. Seld voru hlutabréf að nafnverði 100 milljónir á genginu 3, að sögn Margeirs Péturssonar hjá MP verðbréfum, og er hlutafé nú 260 milljónir að nafnverði. Hluthafar í Islandssíma eru á fjórða tug en þeirra stærstir eru Burðarás og fjárfestingarfélagið Þor, sem er í eigu Hag- kaupsfjölskyldunnar, hvort félag með um 20% hlut. Gestum frá Kanada kynnt viðskiptatækifæri LEGA íslands og aðgangur að Evrópumarkaði er meðal þess sem ætti að örva Kanadamenn til fjárfestinga hér á landi, en viðskipti milli landanna hafa verið minni hingað til en æski- legt er að mati íslenskra stjórn- valda. Þetta kom fram þegar fulltrúum úr kanadísku við- skiptalífí, sem staddir eru hér á landi í tilefni Kanadadaga sem nú standa yfir, voru kynntir möguleikarnir á auknum við- skiptum við íslendinga og fjár- festingum hér á landi. I erindi Finns Ingólfssonar iðnaðar- og viðskiptaráðherra var í stuttu máli gerð grein íýrir íslensku efnahagslífi og við- skiptaumhverfi. Þai’ kom m.a. fram að viðskipti milli Islands og Kanada væru hlutfallslega minni en viðskiptin við Banda- ríkin. Þessu ætti að vera öfugt farið og vonandi stuðluðu Kana- dadagarnir að því að á þessu yrði breyting. HaOdór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands hf., sagðist telja að það sem fyrst og fremst hefði beint sjón- um manna hér á landi að við- skiptamöguleikum í Kanada væri sú framsýni Flugleiða að koma á flugsambandi milli land- anna, en þetta hefði gjörbreytt sýninni á mögulegt samstarfs milli landanna á viðskiptasvið- inu. I erindi sínu fjallaði Halldór um íslenskt viðskiptaumhverfi, efnahagsmál og bankastarfsemi. Hann sagði m.a. að hér hefði undanfarið ríkt góðæri sem ein- kennst hefði af fjárfestingum sem enn væru miklar, eða um 20% af þjóðarframleiðslunni. Verðbólga hefði að vísu farið vaxandi upp á síðkastið en stöð- ugleiki myndi væntanlega nást á nýjan leik á næsta ári. Þetta hefði leitt til hækkana skamm- tímavaxta. Halldór sagði að tækifæri væru til fjárfestinga hér á landi á ýmsum sviðum, og gat hann þess sérstaklega að fyrir Kanadamenn væri orkugeirinn hér á landi áhugaverður. Þeir hefðu langa reynslu af vatns- orkuöflun og þegar einkavæð- ing orkufyrirtækja hér á landi hæfist, væntanlega á næstu 4-5 ánim, yrðu margvíslegir mögu- leikar fyrir kanadísk fyrirtæki til að fjárfesta í þeim. Einnig væru möguleikar fyrir kanadísk fyrirtæki að selja hingað búnað í sambandi við aukna uppbyggingu í orkugeir- anum. Halldór sagði Landsbankann gera ráð fyrir að verðbólga hér á landi verði 3% á næsta ári. Hann sagði að háir skammtíma- vextir líkt og verðbólgan um þessar mundir yrðu ekki viðvar- andi, en hækkun þeirra hefði verið nauðsynleg til að slá á verðbólguna og styrkja krón- una. Raunvextir væru hins veg- ar í takt við það sem almennt gerðist í Evrópu. Samkvæmt upplýsingum frá Islandssíma fer eignarhlutur annarra hluthafa ekki yfir 10% en þeirra á meðal er fyrirtækið Skeifan í eigu Valfellsættar- innar og starfsmenn íslands- síma. Margeir segir útboðið hafa gengið vel. „Forkaupsréttar- hafar, auk starfsmanna Is- landssíma keyptu allt það sem í boði var en fyrri hluthafar áttu forkaupsrétt. Þetta seldist upp án þess að til auglýsinga þyrfti að koma,“ segir Mar- geir. „Starfsmenn og stjórnar- menn hafa mikla trú á fyrir- tækinu, það er ekkert launung- armál,“ segir Margeir. „Fyrir- tækið er ekki farið að hafa neinar tekjur ennþá en þegar góð reynsla er komin á starf- semina eru fjarskiptafyrirtæki mjög áhugaverður kostur íýrir almenning." Á vefsíðu Íslandssíma kem- ur fram að stefnt sé að skrán- ingu Íslandssíma á hluta- bréfamarkaði fyrst allra fjar- skiptafyrirtækja á íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu er miðað við að skrá félagið á markað á næsta ári. Tilgangur hlutafjárútboðs- ins var að auka hlutafé Is- landssíma til að fjármagna ljósleiðaranet sem Lína.Net, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, er að leggja um höfuðborgarsvæðið. Sam- kvæmt upplýsingum frá Is- landssíma er búist við að fyrsta áfanga ljúki fyrir ára- mót. VÞI hefur óskað eftir gögmim um viðskipti með ÍS MIKIL viðskipti með hlutabréf í íslenskum sjávar- afurðum áður en tilkynnt var um samruna félags- ins við SÍF hafa orðið tilefni at- hugunar af hálfu Verðbréfa- þings íslands í samráði við Fj ármálaeftirlitið. „Við höfum óskað eftir gögn- um frá þingaðilum um öll við- skipti með hlutabréf í íslensk- um sjávarafurðum frá þriðja ágúst. Við höfum fengið gögn frá allmörgum verðbréfafyrir- tækjum og vonumst til þess að fá afganginn á morgun [í dag] og munum þá eftirlitsins," seg- ir Stefán Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings Islands. Akvörðun um þessa gagna- öflun var tekin á fundi Fjár- málaeftirlitsins og VÞÍ eftir að til- kynnt hafði verið um sameiningu IS og SÍF. „Fjár- málaeftirlitið er þegar komið í málið með okkur, ákvörðun um gagnaöflunina var tekin í samráði við það. Við látum Fjármálaeftirlitinu gögnin í té og þar með er mál- ið komið í þeirra hendur,“ seg- ir Stefán. Páll G. Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir full- trúa VÞÍ og Fjármálaeftirlits hafa fundað um málið í síðustu viku. „Það veltur allt á því hvaða upplýsingar við fáum í hendur, hver næstu skref í málinu verða,“ segir Páll. „Við höfum átt fundi með fulltrúum VÞI, fyrst og fremst til að fylgjast með málinu." Björgólfur Thorsteinsson, framkvæmda- stjóri FBA-Ráðgjafar, mun láta af því starfi og snúa sér alfarið að verkefna- stjórnun. Jóhann Magnússon mun taka við starfi framkvæmdastjóra FBA-Ráð- gjafar hinn 1. desember nk. Nýr fram- kvæmdastjóri FBA-Ráðgjafar • JÓHANN Magnússon sem starfaó hefur sem framkvæmdastjóri Kers hf., dótturfé- lags Olíufélagsins hf., hefur veriö ráðinn framkvæmdastjóri FBA-Ráðgjafar og Björg- ólfur Thorsteinsson sem verið hefur fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins mun snúa sér alfariö að verkefnastjórnun. Jafnframt hafa tveir nýir starfsmenn verió ráðnir til félags- ins. í fréttatilkynningu kemur fram að FBA- Ráðgjöf hf. hyggst veróa leiöandi á sviði ráðgjafar við kaup, sölu, samruna og yfir- töku fyrirtækja hér á landi, og er nú eina fyrirtækið sem sérhæfir sig í slíkri þjón- ustu. „Starfsmenn fyrirtækisins búa yfir mikilli þekkingu á þessu sviði, og munu sem fyrr leitast við að finna hagkvæmar og skapandi lausnir á verkefnum fyrir við- skiptavini sína.“ Jóhann Magnússon er viðskiptafræðing- ur frá Háskóia íslands. Hann starfaði m.a. sem markaösstjóri hjá Vffiifelli hf. frá 1981-1985 og rekstrarráögjafi hjá Hag- vangi hf. frá 1985-6. Þá stofnaði hann ásamt öðrum eigiö ráögjafarfyrirtæki, Stuð- ul ehf., og starfaði þar til ársins 1998. Frá maí 1998 hefur Jóhann verið framkvæmda- stjóri Kers ehf., dótturfélags Olíufélagsins hf., og haft umsjón með eignarhaldi Olíufé- lagsins hf. í öðrum félögum. Jóhann hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, m.a. sem stjómarformaður. Hann hefur unnið að fjölda verkefna er varða samruna, yfir- tökur, kaup og sölu fyrirtækja og mun taka þátt í verkefnum FBA-Ráðgjafar á því sviði jafnframt því að sjá um daglega stjórn og skipulag fyrirtækisins. Jóhann mun taka við starfi framkvæmdastjóra 1. desember 1999. Björgólfur Thorsteinsson er rekstrarhag- fræðingur frá The Wharton School. Hann starfaði hjá fjármálastofnunum í London frá 1984, fyrst hjá Scandinavian Bank, síöan hjá Banque Paribas (1987-1990) og hjá Bank of Tokyo-Mitsubishi (1991-1998) áður en hann hóf stórf hjá FBA-Ráögjöf. Hjá Banque Paribas og Bank of Tokyo- Mitsubishi sérhæfði Björgólfur sig á sviöi kaupa og samruna fyrirtækja og beinna fjárfestinga í fyrirtækjum og mun vinna áfram sem sérfræðingur á því sviói hjá FBA-Ráógjöf. Aukin umsvif á sviði ráðgjafar Fjárfestingarbanki atvinnulífsins stofn- aði dótturfyrirtæki sitt FBA-Ráðgjöf hf. í lok síðasta árs í því skyni að efla þjónustu bankans á sviði kaupa og sölu fyrirtækja, samruna og yfirtöku. Jafnframt var mark- miðið aö aðgreina þjónustuna betur frá annarri starfsemi bankans í trúnaðarskyni við viöskiptavini og til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Á þessum tíma hefur fyrirtækið unnið að fjölda verkefna, nú síð- ast að kaupum SH á 20% hlut í sænska fyrirtækinu Scandsea AB og samruna Slippstöðvarínnar og Stálsmiðjunnar. Fljót- lega varð Ijóst að auka þyrfti umsvif fyrir- tækisins, enda gera æ fleiri íslensk fyrir- tæki sér grein fyrir verömæti þess að fá ut- anaökomandi aðila til ráögjafar við flóknar samningaviðræður, uppbyggingu verkefna, fjármögnun og verðmat, þegar um kaup, sölu og samruna fyrirtækja er að ræða, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.