Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 23
*
Ovíst um stjórnarmyndun eftir kosningarnar í Austurríki
Haider gerir tilkall
til stj órnarþátttöku
HUGSKOT
Ba mamyndc\+öl<uf‘
1 0% afsláttur í október
Nethyl 2 S. 587 8044
Vín. Reuters.
RÍKISSTJÓRN Austumkis sagði
formlega af sér í gær, í kjölfar
mikils fylgistaps flokkanna
tveggja sem að henni stóðu í þing-
kosningum um helgina. Hún mun
samt vera áfram við stjórnvölinn
til bráðabirgða, unz ný hefur verið
mynduð. Jörg Haider, leiðtogi hins
hægrisinnaða Frelsisflokks sem
jók fylgi sitt til muna í kosningun-
um, lýsti yfir tilkalli sínu til setu í
næstu ríkisstjórn.
Frelsisflokkurinn varð annar
stærsti flokkurinn með yfir 27%
atkvæða. Haider sagði velgengni
flokksins ekki þýða hægrisveiflu
hjá austurrískum kjósendum og
hét „opnu, frjálslynu og umburðar-
lyndu“ stjórnkerfi.
„Við erum reiðubúnir að taka til
hendinni, við erum tilbúnir að setj-
ast í stjórn, við erum undir það
búnir að axla ábyrgð,“ tjáði Haider
fréttamönnum.
Viktor Klima kanzlari færði
Thomas Klestil forseta afsagnar-
bréf ríkisstjórnarinnar. Forsetinn
er byrjaður að kanna þá mögu-
leika sem eru á stjórnarmyndun í
stöðunni með því að kalla flokks-
leiðtoga á sinn fund. Kosningaúr-
slitin eru þess eðlis að alls óvíst er
hvernig stjóm verður mynduð.
Jafnaðarmannaflokkurinn (SPÖ)
og hinn íhaldssami Þjóðarflokkur
(ÖVP), sem hafa verið saman í
stjórn í 13 ár samfleytt, fengu í
kosningunum báðir verstu útkomu
sem sézt hefur frá endurreisn lýð-
veldisins eftir stríð.
Þar sem enn em ótalin um
200.000 utankjörstaðaatkvæði og
forskot Frelsisflokksins á ÖVP er
aðeins um 14.000 atkvæði er ekki
enn orðið fullljóst hvort honum
auðnaðist í raun að verða stærri en
ÖVP. Þetta veldur því að ekki
verður hægt að hefja neinar
stjórnarmyndunai-viðræður af viti
fyrr en í næstu viku, þegar endan-
leg úrslit talningar liggja fyrir.
Þjóðarflokkurinn, undir forystu
utanríkisráðherrans Wolfgangs
Schússels, er í lykilaðstöðu þar
sem hann gæti myndað stjórn
hvort sem er með jafnaðarmönn-
um eða Frelsisflokknum. Meðal
þess sem gera mun stjómarmynd-
unarviðræður flóknar er þó sú yf-
irlýsing Schússels frá því fyrir
kosningar, að missi flokkurinn
stöðu sína sem annar stærsti
flokkurinn muni hann kjósa að
verða í stjórnarandstöðu. I gær
vom málsmetandi flokksmenn þó
þegar farnir að hvetja til áfram-
haldandi stjórnarþátttöku. Skoð-
anir eru þar skiptar um hvort
frekar skuli áfram starfað með
jafnaðarmönnum eða hvort fýsi-
legra þyki að stofna til stjórnar-
samstarfs við Frelsisflokkinn.
„Sögulegar breytingar“
Haider, sem náði til sín fjölda
atkvæða frá hinum flokkunum með
því að reka áróður gegn innflytj-
endum en jafnframt boða skatta-
lækkanir og hækkun velferðar-
styrkja, sagðist í gær opinn fyrir
stjórnarsamstarfi við hvaða flokk
sem væri tilbúinn að hefja viðræð-
ur við Frelsisflokkinn. Sagðist
Haider búast við að Klestil færði
sér stjórnarmyndunarumboðið ef
Klima mistækist. Gera mætti ráð
fyrir að stjórnarmyndun tæki tvo
til fjóra mánuði. Sagði Haider úr-
slit kosninganna á sunnudaginn
marka „sögulegar breytingar í
pólitísku landslagi Austurríkis".
„Eftir þriggja áratuga yfir-
burðastöðu jafnaðarmanna í ríkis-
stjórn og þrettán ára „stóru sam-
steypu“ hefur okkur tekizt að færa
Austurríkismönnum aftur svolít-
inn skammt af lýðræði," sagði
Haider.
„Móðursýkislegur" frétta-
flutningur
Hann vísaði á bug sem
marklausu hjali fréttaflutningi í
erlendum fjölmiðlum þess efnis, að
austurrískir kjósendur hefðu tekið
mikla sveiflu til hægii með því að
kjósa Frelsisflokkinn. Sagði hann
velgengni flokks síns þýða að
stjórnmál í landinu væru eina leið-
ina aftur til „eðlilegs ástands" eftir
að „stóru flokkarnir" tveir hefðu í
30 ár staðið í vegi fyrir umbótum.
Hvað varðar túlkunina á erlend-
um viðbrögðum við úrslitunum
hlaut Haider í gær stuðning úr
óvæntri átt - Alexander van der
Bellen, leiðtogi Græningja, sagði
fréttaflutninginn í útlöndum móð-
ursýkislegan. „Austurríki var ekki
nazistaland fyrir kosningarnar og
er það heldur ekki eftir þær,“
sagði hann.
Stefnuræða Nyrups
Ofbeldi, EMU og
Færeyjar meginefnið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÁN TITILS til þess hvaða leið
Færeyingar velja, munu Danir
reyna að gera sitt besta,“ sagði
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana, í stefnuræðu sinni
við þingsetningu í gær. Hann varði
drjúgum tíma í lokin til að ræða
færeysk-dönsk málefni en einnig
gerði hann Evrópska myntbanda-
laginu, EMU, og ofbeldi og inn-
flytjendum góð skil.
Nyrup lagði ríka áherslu á að
Færeyingar yrðu að velja eigin
leið en dró enga dul á að stjórnin
kysi að halda ríkjasambandinu,
þótt Færeyingar tækju fleiri mál-
efni í sínar hendur. Hann hvatti
landa sína til að styðja danska
EMU-aðild, því það væri í hag
Dana að vera með og hafa áhrif.^
I kjölfar ungmennaátaka í Óð-
insvéum í haust, þar sem innflytj-
endur komu við sögu, sagði hann
skýrt og skorinort að á þeim mál-
um yrði tekið af festu. Einnig und-
irstrikaði hann að það samræmdist
ekki dönskum hefðum að ungar
stúlkur væru þvingaðar til hjóna-
bands eins og tíðkast meðal sumra
innflytjenda. Almennt bar ræðan
þess merki að stjórnin stendur vel
og Danir búa við góðæri þessi árin.
AUKA
VELGENGNI
ÞÍNA?
DALE CARNEGIE ®
NÁMSKEÍÐIÐ HJÁLPAR PÉR AÐ:
♦ VERÐA HÆFARI í STARFI
♦ FYLLAST ELDMÓÐI
♦ VERÐA BETRI í
MANNLEGUM SAMSKIPTUM
♦ AUKA SJÁLFSTRAUSTIÐ
♦ VERÐA BETRI RÆÐUMAÐUR
♦ SETJA PÉR MARICMIÐ
♦ STJÓRNA ÁHYGGJUM OG KVÍÐA
VERTU VELKOMINN A
KYNNINGARFUND Á SOGAVEGI
FIMMTUDAGINN 7. OKT. KL. 20:
STJORNUNAR
SKÓUNN
SOGAVEGI 69 • 108 REYKJAVIK • SIMI 581 2411
;