Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ferðamenn sofa á borðum á bryggju í ferðamannabænum Marmaris í Tyrklandi eftir jarðskjálfta sem
reið þar yfir í fyrrinótt. Fólk var skelfingu iostið eftir skjálftann og þorði ekki að sofa í húsunum.
Rúmlega 100 slasast í skjálfta í Tyrklandi
Stukku skelfingu
lostin af svölunum
Réttarhöldin
yfír Anwar
Ibrahim í Malasíu
Ddmari
hafnar
ásökunum
um eitrun
Kuala Lumpur. AP, AFP.
DÓMARI í Kuala Lumpur kvað í
gær upp þann úrskurð að Anwari
Ibrahim, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra Malasíu, hafi ekki
verið byrlað eitur í fangelsinu þar
sem hann dvelur vegna ákæru um
saknæma kynhegðun. Réttarhöld-
um í máli Anwars vai- frestað 10.
september vegna gruns um að bágt
heilsufar hans mætti rekja til
arsenikeitrunar. Anwar hefur hald-
ið því fram að pólitískir andstæðing-
ar hans hafi reynt að ráða sér bana
með því að eitra fyrir sér. Hann hef-
ur verið þjakaður af margs konar
óþægindum og bæði lést og misst
hár síðan hann var fangelsaður í
september á síðasta ári. Þvagsýni
sem rannsakað var í Astralíu í síð-
asta mánuði innihélt mun meira
magn arseniks en eðlilegt telst í lík-
ama manns.
Einkenni benda til eitrunar
Samkvæmt skýrslu sem fjórir
læknar við ríkisrekið háskóla-
sjúkrahús í Malasíu hafa unnið, hef-
ur Anwar ýmis einkenni sem þykja
geta bent til þess að honum hafi
verið byrlað eitur. Verjandi Anwars
hefur krafist þess að dómarinn lesi
alla skýrsluna og hefur einnig farið
fram á að forstjóri sjúkrahússins fái
að bera vitni fyrir rétti, en þeirri
beiðni hefur verið hafnað.
Skýrslan byggir meðal annars á
áliti sérfræðinga frá Bandaríkjun-
um og Bretlandi. Mahathir Mo-
hamad, forsætisráðherra Malasíu,
hefur lýst ásökunum Anwars sem
„út í hött“ og segir að Anwar hafi
getað orðið fyrir arsenikeitrun af
því að borða sjávarfang í fangelsinu.
MENNINGARSAMSKIPTI land-
anna tveggja standa að sögn að-
standenda samráðsfundarins með
miklum blóma um þessar mundir.
Lögð var áhersla á að æskilegt væri
að dýpka núverandi samstarf enn-
fremur, samhliða því að huga að
fleiri samstarfssviðum.
Fulltrúar landanna hittast reglulega
til að ræða samstarfið og á umrædd-
um fundi var farið yfir ýmis sam-
skipti á sviði menningar-, mennta-
og rannsóknarmála. Rætt var um
eflingu þýskukennslu á íslandi og ís-
lenskukennslu í Þýskalandi.
Einnig voru rædd samskipti í til-
efni af hátíðahöldum á íslandi árið
2000 þegar Reykjavík verður ein
menningarborga Evrópu, en sýning
um tengsl hansaborgarinnar
Bremen og íslands, sem opnuð verð-
ur í maí næstkomandi, er eitt dæmi
um samstarfsverkefni landanna.
Starfsemi Goethe-Zentrum
í Reylgavík
Lögð var áhersla á hlutverk og starf-
semi Goethe-Zentrum í Reykjavík og
segir í fréttatilkynningu að aðilar séu
sammála um að starfsemin hafi verið
árangursrík frá stofnun þess árið
1998. Formaður þýsku sendinefndar-
innar skýrði íslenska menntamála-
ráðuneytinu og starfsmönnum
Goethe-Zentrum frá því að stjórn
Ezmir. Reuters.
RÚMLEGA 100 manns slösuðust
þegar jarðskjálfti reið yfir vinsælan
ferðamannastað í suðvesturhluta
Tyrklands í fyrrinótt, sjö vikum eftir
að öflugur skjálfti varð rúmlega
15.800 manns að bana í landinu.
Skjálftinn í fyrrinótt mældist 5,2
stig á Richters-kvarða og upptök
hans voru nálægt ferðamannabæn-
um Marmaris.
Einn maður slasaðist lífshættu-
lega og 103 til viðbótar fengu að-
hlynningu á sjúkrahúsi í bænum
Þýskalands myndi hækka framlög til
starfseminnar á næsta ári um 50% úr
100.000 í 150.000 þýsk mörk, sem eru
andvirði sex milljóna íslenskra króna.
Aukningin á, að sögn Hans-Bodo
Bertram, að gera Goethe-Zentrum
kleift að efla starfsemi sína til muna.
Bertram sagðist vera mjög bjart-
sýnn á framtíð starfsemi Goethe-
Zentrum í Reykjavík, sem nú heyrii'
undir Goethe-stofnunina í Stokk-
hólmi. Hann benti sérstaklega á
spamaðaráform þýsku ríkisstjómar-
innar og sagði að menningardeild
þýska utanríkisráðuneytisins væri
vegna minni meiðsla. Flestir þeirra
slösuðust eftir að hafa stokkið skelf-
ingu lostnir af svölum eða úr glugg-
um húsa sinna.
Tyrkir minnast enn stóra skjálft-
ans 17. ágúst með hryllingi og
hlaupa enn út á göturnar við hvern
eftirskjálfta, sem hafa skipt hund-
mðum.
Tyrknesk yfirvöld skýrðu frá því í
gær að skjálftinn í ágúst, sem mæld-
ist 7,4 stig á Richters-kvarða, hefði
orðið 15.826 að bana og 43.953 hefðu
ekki undanskilin niðurskurði, enda
þyrfti hún að mæta sparnaðarkröf-
um sem hljóða upp á 70 milljónir
marka.
Fylgifiskur sparnaðar er, að mati
Bertrams, í mörgum tilvikum aukin
hagkvæmni í kjölfar endurskipulags
og segir hann starfsemina í Reykja-
vík jafnvel hafa eflst fyrir vikið. En
nýjungar í starfsemi Goethe-Zentr-
um í Reykjavík eru m.a. tungumála-
kennsla og hugmyndavinna sem
miðast að verkefnasköpun ungs
fólks frá báðum löndum. Eins verð-
ur bókasafnið tengt upplýsinga-
slasast. Rúmlega 112.000 tjöld hafa
verið reist á skjálftasvæðinu þar sem
um 213.000 íbúðir skemmdust eða
eyðilögðust.
Bæjarstjórinn í Marmaris sagði að
sprungur hefðu myndast í nokkrum
byggingum i skjálftanum í fyrrinótt.
Ibúar Marmaris eru um 50.000 en
þúsundir ferðamanna dvelja þar á
sumrin, aðallega Bretar.
Að sögn bæjarstjórans eyðilögðust
engar byggingar í nálægum þorpum
og engin meiðsl urðu þar á fólki.
banka Þjóðarbókhlöðu, Lands- og
Borgarbókasafns og ætti því að vera
aðgengilegra fyrir þá er leita þýskra
heimilda eða bókmennta. Bertram
segist vona að ósáttir aðilar á Is-
landi geti sameinast um að efla
starfsemina ennfremur.
Nýting styrkja til náms í
Þýskalandi
Bertram segir þýsku sendinefndina
hafa auk annarra málefna lagt mikla
áherslu á tungumálakennslu í skól-
um, enda sé tungumálakunnátta
fólks forsenda góðra menningar-
legra samskipta landanna á milli. En
til að vekja áhuga skólafólks á þýsku
tungumáli þarf að sjálfsögðu, að
hans sögn, að efla upplýsingamiðlun
og styrkja reglulegar ferðir náms-
manna og -hópa til Þýskalands.
Bertram segir þýska sendiráðið og
Goethe-Zentrum vinna að eflingu
þessara þátta.
Þýska sendinefndin kom ennfrem-
ur á framfæri vonbrigðum sínum
vegna þess að aðsókn íslenskra
náms- og fræðimanna í styrkveiting-
ar þýskra stjórnvalda til náms og
rannsókna í Þýskalandi hafa farið
mjög dvínandi síðastliðin ár. Telur
Bertram mjög mikilvægt að finna
skýringar á ástæðum þess og að leita
lausna, sem aukið gætu aðsóknina að
nýju.
AP
Israelar og Palest-
ínumenn
Semja um
opnun
öruggs
vegar
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELAR og Palestínumenn
undirrituðu í gær samkomulag
um opnun „öruggrar leiðar“
milli sjálfsstjómarsvæða Pa-
lestínumanna á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu. Verður
vegurinn opnaður í næstu viku
og geta Palestínumenn þá í
fyrsta sinn ferðast að vild milli
svæðanna.
Aformað hafði verið að opna
veginn á sunnudag, en ágrein-
ingur reis um öryggisráðstafan-
ir og lausn náðist ekki fyrr en á
mánudagskvöld. Greindi ísra-
ela og Palestínumenn á um hver
ætti að gefa út sérstök vega-
bréf, sem gera Israelum kleift
að fylgjast með því hverjir ferð-
ast um veginn. Sátt náðist um
að Palestínumenn gætu lagt
umsóknir um vegabréfin inn til
fulltrúa sjálfsstjórnarinnar,
sem síðan kæmu þeim áleiðis til
ísraelskra yfirvalda, sem fram-
kvæmdu öryggisrannsókn.
Gáfu Israelar einnig tryggingu
fyrir því að Palestínumenn yrðu
ekki teknir höndum á leiðinni.
Þeir Palestínumenn sem Israel-
ar gruna um aðild að hryðju-
verkum munu aðeins geta ferð-
ast milli svæðanna í sérstökum
rútum sem fara tvisvar í viku.
Vegurinn liggur milli Gaza-
svæðisins og suðurhluta Vest-
urbakkans, en í næstu viku
verður samið um opnun annars
vegar, sem liggja mun til norð-
urhluta Vesturbakkans. Líta
Palestínumenn á opnun veg-
anna sem mikilvægt skref í átt
til stofnunar sjálfstæðs ríkis.
Upphækkuð hraðbraut
verður byggð
Margir Israelar óttast að
hryðjuverkamönnum verði auð-
velduð innkoma í landið með
opnun vegarins, og hafa mót-
mælt henni harðlega. Ehud
Barak, forsætisráðherra ísra-
els, sagði í ræðu á ísraelska
þinginu í gær að vegurinn sem
verður opnaður í næstu viku
yrði aðeins til bráðabirgða, því
til stæði að byggja upphækkaða
hraðbraut á milli sjálfsstjórnar-
svæðanna til að minnka hætt-
una á hryðjuverkjum og spennu
milli þjóðanna.
Þýsk-íslenskur samráðsfundur um menningarmál
Ahersla á mikilvægi tvfliliða
menningarsamskipta
Samráðsfundur um mikil-
vægi þýsk-íslenskra menn-
ingartengsla var haldinn í
Reykjavík fyrir skömmu.
Rósa Erlingsdóttir ræddi
við Hans-Bodo Bertram,
skrifstofustjóra menning-
ardeildar þýska utanríkis-
ráðuneytisins, sem fór fyr-
ir þýsku sendinefndinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hans-Bodo-Bertram.