Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 25
ERLENT
Stríðsglæpamaður frá dögum seinni heimsstyrjaldar dæmdur
hans voru,“ sagði Zuroff í tilefni af
dómnum en bætti við að hann
hefði gert sér vonir um að Sakic
hlyti einnig dóm fyrir þjóðarmorð.
Baer sagði að fórnarlömbin frá Ja-
senovac hefðu loks fengið sinn
skerf af réttlætinu. Hann lýsti því
einnig yfir að dómurinn væri
Króatíu til sóma og sýndi að
„Króatar eru ekki hræddir við að
horfast í augu við fortíðina og
draga lærdóma af sársaukafullum
kafla í sögu sinni.“
Málið viðkvæmt í Króatíu
Ýmsir höfðu haft efasemdir um
að réttarhöldin gætu leitt til sak-
fellingar yfir Sakic vegna þess hve
málið er viðkvæmt í Króatíu. I
seinni heimsstyrjöld var landinu
stjómað af fasistaforingjanum An-
te Pavelic og fylgismönnum hans,
sem voru hliðhollir þýskum nasist-
um, en margir Króatar börðust
gegn yfirráðum hinna illræmdu
svartstakka, Ustasha. Franjo Tu-
djman, núverandi forseti, hefur
meðal annars verið sakaður um að
ala á sams konar þjóðemisremb-
ingi og einkenndi stjórnartíð Pa-
velic.
Nokkuð hefur borið á mótmæl-
um í tengslum við réttarhöldin yfir
Sakic og á mánudag voru nokkrir
mótmælendur handteknir utan við
dómshúsið í Zagreb eftir að til
átaka kom milli fylgjenda og and-
stæðinga hans.
Stjórnaði
„Auschwitz
Króatíu“
Zagreb. AP, AFP.
FYRRVERANDI yfirmaður
fangabúða í Króatíu á árum seinni
heimsstyrjaldar var á mánudag
dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir
„glæpi gegn mannkyninu, fyrir að
vanvirða alþjóðlega sáttmála og
fyrir glæpi gegn óbreyttum borg-
urum“. Almennt er talið að maður-
inn sé síðasti stríðsglæpamaðurinn
frá tímum heimsstyrjaldarnnar
sem takast mun að leiða fyrir rétt.
Hinn sakfelldi, Dinko Sakic að
nafni, er 74 ára gamall Króati sem
frá lokum styi-jaldar hefur verið
búsettur í Argentínu en var nýlega
handtekinn þar og framseldur til
Króatíu. Akæruatriði gegn honum
vörðuðu illa meðferð, pyntingar og
morð á um 2.000 föngum í Ja-
senovac-fangabúðunum en þær
hafa verið kallaðar „Auschwitz
Króatíu". Alls starfrækti lepp-
stjórn Þjóðverja 20 fangabúðir í
Króatíu á árum seinni heimsstyrj-
aldar þar sem hundruð þúsunda
Serba, gyðinga, sígauna og stjórn-
arandstæðinga létu lífið.
Klappaði við dómsupp-
kvaðninguna
„Samviska mín er hrein og ég sé
ekki eftir neinu,“ sagði Sakic við
réttarhöldin. Hann hefur staðfast-
lega neitað að hafa gert nokkuð
rangt og segist aðeins hafa gert
það sem var landinu fyrir bestu.
Alls báru um 30 eftirlifandi fórn-
arlömb vitni gegn Sakic við réttar-
höldin en hann er sagður hafa
forðast að horfa í augu þeirra og í
Reuters
Dinko Sakic hlustar á framburð vitna í dómsalnum í Zagreb.
einu tilfelli skellt upp úr þegar
fórnarlamb lýsti aðbúnaði í Ja-
senovac-búðunum. Þegar dómar-
inn kvað upp úrskurð sinn brást
Sakic hins vegar við með lófataki.
Lögfræðingur hans hefur sagt að
dómnum verði áfrýjað til hæsta-
réttar Króatíu vegna „ónákvæmni
í dagsetningum hinna meintu
glæpa“.
Efraim Zuroff, forstöðumaður
Simon Wiesenthal-stofnunarinnar
í Jerúsalem, var viðstaddur rétt-
arhöldin og einnig Tommy Baer,
sem er forseti alþjóðlegra sam-
taka gyðinga. Báðir hafa um ára-
bil barist fyrir því að réttað yrði
yfir Dinko Sakic. „Við erum mjög
ánægðir með dóminn. Eg tel að
það sé mjög mikilvægt að hann
Forsætisráðherra Japans mynd-
ar nýja þriggja flokka stjórn
Lítilla breyt-
inga vænzt
Tókýó. Reuters.
KEIZO Obuchi, forsæt-
isráðherra Japans,
kynnti í gær nýja ríkis-
stjórn sína eftir róttæka
uppstokkun í kjölfar
þess að þriðji flokkurinn
bættist í stjórnarsam-
starfið. Nokkur gamal-
kunn andlit halda sér í
lykilembættum og lítilla
breytinga er vænzt á
efnahagsstefnunni.
Með myndun nýju
stjórnarinnar, sem
Obuchi hafði ætlað sér
að kynna sl. föstudag en
frestaði vegna kjarn-
orkuslyssins sem varð
daginn áður, hefur loka-
hnúturinn verið bundinn á samstarf
þriggja flokka, sem til samans hafa
þægilegan meirihluta í báðum þing-
deildum. Stjóm Obuchis hafði allt
frá því hann tók við embætti fyrir
rúmu ári verið í minnihluta í efri
deildinni.
Obuchi hélt hægri hönd sinni í
efnahagsmálunum, Kiichi Miyazawa,
sem var forsætisráðherra 1991-1993,
í embætti fjármálaráðherra, sem og
•Taichi Sakaiya í embætti yfirrnanns
Efnahagsáætlunarstofnunar stjórn-
arinnar (EPA). Annað kunnuglegt
nafn í nýju stjórninni er Yohei Kono,
fyrrverandi utanríkisráðherra, sem
féllzt á beiðni Obuchis um að hann
gegndi embættinu á ný, ekki sízt til
að leggja sitt af mörkum til að vel
takist til með leiðtogafund G8-hóps-
ins í Japan á næsta ári.
Tsutomu Kawara fékk annað
tækifæri til að spreyta sig sem varn-
armálaráðherra, en hann var knúinn
til að segja því embætti af sér árið
1988, í kjölfar þess að kafbátur jap-
anska flotans lenti í árekstri við
fiskibát.
Flokkarnir þrír sem standa að
stjórninni eru Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn (LDP), flokkur Obuchis,
sem fram til ársins 1993 sat óslitið í
38 ár að völdum í Japan, smáflokkur-
inn Frjálslyndi flokkurinn sem gekk
til liðs við stjórnina í janúar, og loks
Nýi Komeito-flokkurinn, sem sam-
tök búddista standa að
baki. Obuchi ákvað að
mynda nýja stjórn
þessara þriggja flokka
eftir að forystumenn
þeirra náðu samkomu-
lagi um helztu stefnu-
mál á mánudaginn.
Obuchi aldrei vin-
sælli
Stjórnmálaskýrend-
ur sögðu í gær að
óánægja almennings
með það hvernig
stjómvöld bragðust við
slysinu í kjarnorkuelds-
neytisverksmiðjunni
Tokaimura, 140 km frá
Tókýó, sem olli því að 55 manns urðu
fyrir geislun, myndi að öllum líkind-
um ekki valda ríkisstjórn Obuchis
varanlegum skaða.
Reyndar sýndu niðurstöður skoð-
anakönnunar sem birtist í dagblað-
inu Mainichi Shimbun í gær að vin-
sældir Obuchis væru enn á uppleið.
Nú lýstu 48% stuðningi við hann sem
stjórnarleiðtoga, sem er mesti stuðn-
ingur sem mælzt hefur frá því hann
tók við sem forsætisráðherra í lok
júlí í fyrra. Skoðanakönnunin sýndi
hins vegar einnig, að 54% aðspurðra
leizt miður vel á hina nýju þriggja
flokka stjórn.
Að sögn stjórnmálaskýrenda er
ekki von á mikilli stefnubreytingu
eftir breytingarnar á stjórninni. Að-
ur hafði stjórn Obuchis boðað fjár-
aukalög sem miðuðu að því að auka
opinber útgjöld verulega á yfir-
standandi fjárlagaári, en því lýkur í
lok marz. Markmiðið með þessu er
að stuðla að því að hjól efnahagslífs-
ins fari aftur að snúast og það nái
sér upp úr því samdráttarskeiði sem
hrjáir það.
Þar sem halda verður þingkosn-
ingar í Japan í seinasta lagi í októ-
ber að ári telja stjórnmálaskýrendm-
einnig að Obuchi sé vandi á höndum
að viðhalda samstöðu í stjórnarlið-
inu. Þetta geti spillt fyrir stöðug-
leika í starfi hinnar nýmynduðu
stjórnar.
Keizo Obuchi
/ /
HEIMABI0
Nýjasta og fullkomnasta tækni á einstöku verði!
Fallegt útlit
vönduð hönnun
Super-5 Digital Blackline
myndlampi
Digital Comb Filter
165 W eða 180 W magnari
6 framhátaiarar
2 bassatúbur
2 bakhátalarar
Öflugur miðjuhátalari
2 Scarttengi að aftan,
SuperVHS (DVD)og
myndavéiatengi að framan
Glæsilegur skápur
á hjólum með innbyggðum
miðjuhátalara
T0SHIBA
heimabíósprengjan
kostar aðeins:
28” Kr 124.740stgr*
33” Kr 188.91 Östgr*
með þessu öllu !!
T0SHIBA Pro-Logic tækin
eru margverðlaunuð af
tækniblöðum í Evrópu og
langmest seldu tækin í Bretlandi!
T0SHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN
Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins -
DVD mynddiskakerfisins og Pro-drum myndbandstækjanna.
RFSÍBIIY
DHHR
WWÖSK
Önnur T0SHIBA tæki fást í
stærðunum frá 14” til 56”
-Staðgreiðsluafslðttur er 10%
FAÐU ÞER FRAMTIÐARTÆKI HLAÐIÐ 0LLU ÞVI BESTA
ÞAÐ B0RGAR SIG!
//// Einar Farestveit&Co.hf
MMM Borcartúni 28 S: 562 2<M)I & 562 2900