Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 28

Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Frá sýningn þeirra Gabríelu og Magnúsar í 101, Laugavegi 48b. Arto Paasilinna Frelsið í skóginum i:i:kii! Þýdd skáldsaga ÁRHÉRANS eftir Arto Paasilinna. Guðrún Sigurðardóttirþýddi. Mál og menning 1999 - 160 síður. ARTO Paasilinna er meðal þeirra finnsku höfunda sam- tímans sem vinsælda njóta víða, enda þýddur á mörg tungumál. Paasilinna er kannski ekki einn þeirra höf- unda sem beinlínis eru taldir í fararbroddi í heimalandi sínu, en menn geta verið sammála um að hann skrifar læsilega og er oft hugkvæmur. Ævintýri blaðamannsins Kaarlo Vatanen er efni Ars hérans. Vatanen er orðinn leið- ur á starfi sínu og langar að breyta tíl. Hann velur þann kost að hverfa til fundar við finnska náttúru eftir að hann finnur særðan héra úti í skógi. Hann og hérinn ferðast saman um Finnland og njóta lífsins en lenda í ýmsum tvísýnum ævin- týrum sem reyna á þá og Vat- anen er hvergi smeykur. Sá ásetningur (listrænn) að sýna fram á styrk söguhetj- unnar, mann sem ekki lætur hafa sig að leiksoppi, gengur vel upp innan sögunnar þótt margt sé með ólíkindum. Paasilinna sem sjálfur er frá Lapplandi gerir sér far um að sýna það hve litríkir Finnar eru og nær auðveldlega at- hygli annarra þjóða með þeirri kynningu (Ár hérans hefur selst í 80.000 eintökum á Italíu t.d.). Hann hefur verið nefndur í hópi þeirra undramanna frá Norðurlöndum sem hafa náð mikilli útbreiðslu með bókum sínum. Þar má nefna Danann Hoeg og Norðmanninn Gaar- der meðal annarra. Ykjuleg frásögnin nær tök- um á lesandanum. Þar með er ekki sagt að Paasilinna sé höf- undur án boðskapar því að í Ari hérans fær hann lesandan- um mörg umhugsunarefni. Frelsið, það að vera frjáls maður, er honum mikilvægt. Viðureignin við bjöminn, aumlegur og seinheppinn prestur í kirkju, eru meðal þeirra kátlegu mynda sem Pa- asilinna dregur upp. Finnskt hversdagslíf með skinhelgi sinni eins og annars staðar, er í uppáhaldi hjá honum. Og vit- anlega er Kekkonen forseti meðal fómarlamba kímninnar. Var hann alltaf sami Kekkon- en eða fékk hann staðgengii síðustu árin? Var hann 179 sentimetrar eða 181 senti- metri? Þýðing Guðrúnar Sigurðar- dóttur er yfirleitt góð með þeim fyrirvara að samanburð- ur við frumtexta er ekki á færi undirritaðs. Jóhann Hjálmarsson magg- ogabb í on- eoone MYNDLIST MáIverk, Ijóð og myndband flabríela Friðriks- dóttir og Magnús Sigurðarson GALLERÍ 101, LAUGA- VEGI 48B til 12. október. Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12-19; laugardaga frá kl. 12-16; og sunnudaga frá kl. 14-17. ÁÐUR hefur verið getið þess ág- æta framtaks fataverslunarinnar Gallerí 101, við Laugaveg, að sýna myndlist í salarkynnum sínum. Sýning Hallgríms Helgasonar var athyglisverð, og nú er hann aftur kominn, að þessu sinni í gervi list- spekingsins og gagnrýnandans í 35 mínútna myndbandi sem fjallar um samvinnuverkefni þeirra Gabríelu Friðriksdóttur og Magnúsar Sig- urðarsonar „listir“. Þau hafa stofn- að fyrirtæki kringum umsvif sín sem heitir maggogabb ehf., en að- alvettvangur þess er kaup, sala og lánastarfsemi. Við sjáum þau Gabríelu og Magnús mála sýningu sína í bíl- skúr í Austurbænum, þegar Hall- grímur Helgason kemur í heim- sókn og tekur að trufla þau með spumingum sínum og ályktunum. Umræðan sem í hönd fer, og fylgj- ast má með á myndbandinu, er hin skemmtilegasta enda er mörgu gáfulegu velt upp í fjörugum sam- ræðum þremenninganna. Meðal þess efnilegasta er sú skoðun Ga- bríelu og Magnúsar að best sé að fá gagnrýnandann í heimsókn á meðan verkin eru í vinnslu. Þá er nefnilega hægt að koma í veg fyrir MYIVDLIST Lislasafn íslands MÁLVERK ÝMSIR Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 11-17. Sýningin stendur til 28. nóvember. LANDSLAGIÐ hefur verið áberandi í íslenskri list og virðist áhuginn á því ekki dofna. Hver ný kynslóð finnur nýjan flöt á þessu viðfangsefni og endurnýjar þann- ig tengsl lista og náttúru. Um leið endurnýjast líka samband þjóðar- innar - áhorfendanna - við nátt- úm landsins, því það hefur ekki síst verið í gegnum myndlistina, og þá einkum málverkin, að við upplifum og túlkum landið. Þótt landslagslist hafi verið nokkuð áberandi á meginlandinu á síðari hluta síðustu aldar og fyrstu íslensku málararnir hafí lært af því era landslagsmálverk Islendinga um margt ólík því sem tíðkast hefur meðal annarra evrópskra þjóða. Það sem fyrst greinir þau að frá hinum er að í þeim sést sjaldnar nokkuð sem er af manna höndum unnið. Þar sem meginlandsmálararnir vilja yfir- leitt hafa fólk í landslaginu eða að minnsta kosti brú eða fjallakofa, láta íslendingarir sér nægja nátt- úmna sjálfa, villt og óræktað landslag, fjöll, kletta og fossa. I Listasafni Islands hefur verið sett upp sýning sem ber yfir- skriftina Öræfalandslag þar sem margt feilsporið og jafnvel fá gagnrýnandann til að taka í pensil- inn með listamönnunum til að nagl- reka góða útkomu og umfjöllun þegar kemur að sjálfri sýningunni. Margt skondið ber á góma, enda tekur Hallgrímur sig út sem nestor þremenninganna og talar þá í sprenghlægilegum föður- og kenn- aratóni þess sem telur sig vita bet- ur en viðmælendurnir. Hann er ekki í vafa um að Magnús - en mál- verkin merkt jöfnum tölum á sýn- ingunni em eftir hann - máli karl- mannlega. Hallgrímur þykist sjá það á þörf hans fyrir að gæta raun- sæis og draga fram öll smáatriði, svo sem heiti tegundarinnar á smjördollu í kyrralífsmynd með flösku. Hann túlkar slíka ná- kvæmni sem karlmannlega ábyrgðartilfinningu; samviskusemi til áréttingar sektarkennd sem fylgi karlmanninum eins og skuggi. I hvert sinn áréttar Gabríela þá skoðun að konur séu ekki síður samviskusamar, en Hallgrímur andmælir og bendir á það hvernig sjá má sýnishorn af efnistökum íslenskra listamanna þegar þeir fást við hið hrjóstruga hálendi, óbyggð öræfi landsins, og er þar að finna verk frá allri öldinni. Dulmögn öræfanna birtast strax í myndum Þórarins B. Þorláksson- ar frá upphafi aldarinnar þar sem yfirnáttúruleg birta stafar frá ók- önnuðum jöklum og fjöllin rísa eins og goð upp af hrjóstmgu landinu. Hin mögnuðu birtuhrif óbyggðanna eru líka viðfangsefni Magnús dregur úr pensilfarinu og dvelur mun lengur við hvert atriði, sem sé rakin vísbending um að hann sé mjög samviskusamur mál- ari. Hallgrímur vill meina að graf- ískur stíll Gabríelu gangi á sveig við raunsæislega útfærslu. Þar megi kenna hið kvenlega eðli, jafn- framt hraðanum, en það að mála hratt sýni skort á alúð. Aftur hreyfir Gabríela mótbárum og neitar að viðurkenna ágæti nost- urslegra vinnubragða. Ef til vill kristallast andsvar hennar best í ljóðinu gegn „gnæfunni", en svo nefndi Þorsteinn Thorarensen klassísku stefnuna í listasögu þeirri sem hann þýddi fyrir útgáfu sína Fjölva. Það fylgja nefnilega ljóð með hverju málverki þeirra Gabríelu og Magnúsar og þau em prentuð í sýningarskránni, tuttugu og tvö að tölu, enda standa þau jafnframt sem titlar og ritrænir staðgenglar málverkanna. Panelinn sem tví- eykið málar á er sagaður til þannig að hvert verk er í ætt við mjúkt skýjabólstur líkast því sem stígur þeirra Ásgríms Jónssonar og Eyj- ólfs Eyfells. Þegar expressjónis- minn fer að hafa áhrif hér á landi breytast efnistök málaranna. Þeir færa sig þá gjarnan nær viðfangs- efninu en draga líka skýrar fram þann ógnandi frumkraft sem býr í náttúrunni. Þetta má sjá í óbyggðamyndum Jóns Stefáns- sonar en kannski enn betur í máL verkum Sveins Þórarinssonar. Á sýningunni eru magnaðar myndir eftir þann síðarnefnda, til dæmis upp af höfði myndasögupersóna þegar sýna skal að þær hugsi. Slík „mjúk“ umgjörð, í ætt við lífræna fleka Gabríelu frá fyrri sýningum, er einkar vel til fundin. Þannig er komist hjá þeim leiðindaálögum að fígúratíf verk, eins og flestar myndir þeirra Gabríelu og Magn- úsar, minni á glugga að öðrum heimi. Þótt málverkin séu mun snarp- ari en ljóðin - lýsingar þeirra - er tilraun tvímenninganna fersk og heillandi. Gáskinn sem svífur yfír vötnum er hvorki heftur af fuðr- andi meiningum né puntlegum herpingi. Þau Gabríela og Magnús vinna verk sín líkt og músíkantar sem æfa sig í bílskúrnum heima. Útkoman er eins og dægurflugur, en nota bene með kúlnagötum, sem sýnir að hún - útkoman - er mark- sækin með afbrigðum, enda kveður hér við nýjan frelsistón í endalausu stríði málverksins við helsi hefðar- innar, sem vill endanlega fjötra það við „gnæfuna" og öll hin „gömlu góðu gildin“. Halldór Björn Runólfsson myndin af Dettifossi frá 1923 til 1926 sem hér er birt og ótrúlega kraftmikil mynd af Herðubreið frá 1926 til 1928. Á sýningunni má að sjálfsögðu sjá verk Jóhannesar Kjarvals og Guðmundar Einars- sonar frá Miðdal. Guðmundur málaði ekki aðeins óbyggðirnar heldur var hann líka frumkvöðull um ferðir á þessi svæði, gekk um landið þvert og endilangt, kleif fjöll og kenndi öðrum fjalla- mennsku. Nokkrir yngri listamenn eiga verk á sýningunni, þau Brynhild- ur Þorgeirsdóttir, Georg Guðni, Halldór Ásgeirsson, Hrafnkell Sigurðsson og Olafur Elíasson. I verkum þeirra birtist allt önnur nálgun eins og gefur að skilja og þar má greina meiri íhugun og gagnrýnni efnistök en hjá eldri listamönnunum. í orðabók sinni skýrir Ásgeir Blöndal Magnússon orðið „öræfi“ svo að það merki óhóf' eða eitt- hvað yfirgengilegt. Á öræfum verða náttúruhrifin svo sterk að maðurinn stendur orðlaus gagn- vart þeim og fær ekki skilið eða túlkað þau til _ hlítar. Nálægð óbyggðanna á Islandi á líklega stóran þátt í því að móta sjálfs- skilning okkar sem hér búum og á sýningunni í Listasfni íslands má sjá hvernig myndlistamenn hafa nálgast þessa yfirgengilegu nátt- úru og miðlað henni. Sýningin er vel saman sett og er jafnframt skemmtilegt og markvisst innlegg í þá þörfu umræðu sem nú fer fram um öræfin og gildi þeirra. Jón Proppé Mynd Sveins Þórarinssonar af Dettifossi frá árunum 1923 til 1926. Obyggðir listarmnar s $ f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.