Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 31

Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 31 Ingvar E. Sigurðsson og Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverkum Bjarts og Rósu. Sýningar á Sjálfstæðu fólki hefjast 7. október. Sjálfstætt fólk á fjalirnar á ný í ÞJÓÐLEIKHÚSINU eru að hefj- ast á ný sýningar á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leik- ritið skiptist í tvo hluta, Bjart og Astu Sóllilju, sýningar á fýrri hlutan- um hefjast fimmtudag 7. október og á síðari hluta föstudag 8. október. Nokkrar mannabreytingar hafa orðið í sýningunni síðan í vor, Elva Ósk Ólafsdóttir hefur tekið við af Eddu Arnljótsdóttur í hlutverki Finnu og Edda Heiðrún Backman hefur tekið við af Ólafíu Hrönn Jónsdóttur í hlutverkum Rauðs- mýrarmaddömunar og Brynju. Einnig hefur orðið sú breyting í hljómsveitinni, að í stað Tatu Kantomaa er kominn Kristján Eld- járn. Aðrir leikendur í Sjálfstæðu fólki eru Ingvar E. Sigurðsson, Arnar Jónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Valdimar Örn Flygenring, Herdís Þorvaldsdóttir, Baldur Ti’austi Hreinsson, Bergur Þór Ingólfsson, Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld, Magnús Ragnarsson, Stefán Jónsson, Þór H. Tulinius og Randver Þorláksson. Atli Heimir Sveinsson semur tónlist við sýninguna. Leikstjóri er Kjartan Ragnars- son, en hann er um þessar mundir að leikstýra í Gautaborg leikgerð sinni að Grandavegi 7, sem hann leikstýrði í Þjóðleikhúsinu í hitteðfyrra. Fljótamenn á 19. öld BÆKUR Æ vi þætl ir SKAGFIRZKAR ÆVISKRÁR Tímabilið 1850-1890, VII. bindi. Að- alhöfundur: Guðmundur Sigurður Jó- hannsson. Umsjón og ritstjórn: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sögufélag Skagfirð- inga, Sauðárkróki 1999, 339 bls. ÞETTA bindi Skagfirzkra ævi- skráa er hið fjórtánda í röð hins mikla æviþáttasafns þeirra Skag- firðinga. Fjögur bindi hafa komið út fyrir tímabilið 1890 1910. Þrjú bindi eru komin út fyrir tíma- bilið 19101950 og er því tímabili enn ólokið og sjö bindi eru fyrir tímabilið 1850 1890 og er gert ráð fyrir að þættir þess tímabils verði í níu bindum alls. I því bindi, sem nú birtist, eru alls 147 ævi- þættir og hafa þá alls birst 1350 æviskrár fólks, sem uppi var og bú- andi í Skagafirði á árunum 1850-1890. Eins og á þessu bindi sést er ekki haldið alveg strangt við tímamörkin. Einstaka menn eru hættir búskap eða látnir 1850 og aðrir hafa lifað fram yfír 1890. Guð- mundur Sigurður Jóhannsson hef- ur samið alla þættina utan einn og er hann því hinn raunverulegi höf- undur þessarar bókar. Að þessu sinni fjalla langflestir þættirnir um fólk „út að austan", þ.e. úr Hjalta- dal, Höfðaströnd, Sléttuhlíð, Flóka- dal, Fljótum og Stíflu. Er þvi hér samankominn geysimikill fróðleik- ur um fólk af þessu svæði og ættir þess. Meginþungi hvers þáttar hvíl- ir á ættfærslu, dvalarstöðum og efnahag. Höfundur hefur augljós- lega lagt feiknamikla vinnu í að ættfæra fólk og tel ég víst að mikl- ar sjálfstæðar rannsóknir liggi að baki, því að fjölmargt nýtt hefur hann dregið fram í dagsljósið. Ekki er minnst um vert hversu margt hann leiðréttir af því sem í prentuð- um ritum stendur. Ættrakningarn- ar eru það sem gefur bókinni mest gildi, því að fremur lítið er um lýs- ingar á því fólki, sem um er fjallað, enda þótt því bregði fyrir. Að vísu eru umsagnir prestanna einatt til- greindar, en heldur lítið gef ég fyrir þær. Þetta er að vonum. Fólk, sem fætt var í kringum aldamótin 1800, er yfirleitt gleymt nú, nema það hafi á einhvern hátt skorið sig úr eða skarað fram úr. Fátækt hefur langflest þetta fólk verið, einatt hokrað með eina kú og nokkrar kindur. Margir bættu sér þó í búi af sjávargagni, þó að mannfórnir kostaði. Athyglivert þótti mér að lesa hversu margir höfðu matjurta- garða. Var það ekki heldur fátítt á þessum tímum? Óneitanlega eru þessir þættir nokkru svipminni en þeir, sem áður hafa birst um fólk framan úr firði. Þar hafa menn að líkindum verið meiri gleðimenn, ort meira, kannski drukkið meira og leikið sér á gæðingum og jarðvist margra þeirra stormasamari. Hér virðast menn hafa lifað kyrrlátara og viðburðasnauðara lífi. Þó voru þeir býsna iðnir við lausaleik og framhjátökur. Einn er sá æviþáttur, sem sker sig úr vegna lengdar og innihalds. Það er þátturinn um Sölva Helga- son. Hann er hvorki meira né minna en tólf blaðsíður, einkar vandaður og vel saminn. Hygg ég að það sé besta og nákvæmasta frá- sögn af lífi þessa sérstæða manns. Æviferill Sölva er rakinn í saman- þjöppuðu og hnitmiðuðu máli. í bók sinni um Sölva lét Jón Óskar þess getið, að þrátt fyrir mikla leit hefði honum ekki tekist að grafa neitt upp um ættir Sölva, hvorki móður- né föðurætt. Þar hefur Guðmundur Sigurður verið öllu fengsælli. Er bæði föður- og móðurætt Sölva rak- in marga ættliði aftur. Athuga ber að sú ættrakning er þó ekki í þætt- inum um Sölva, heldur í þættinum um seinni mann móður hans, Jón Illugason. Sömuleiðis er Júlíana, ástkona og barnsmóðir Sölva, vand- lega færð til ættar. Munu þessar ættfærslur vera nýjung í sögu Sölva Helgasonar. Þá eni og ártöl sums staðar leiðrétt. I heild sinni er þetta æviskrárbindi einkar vand- lega unnið. Itarlegar heimildatilvís- anir eru í lok hvers þáttar. Tilvísan- u’ mOli þátta, bæði innan þessa bindis og í önnur æviskrárbindi, eru fjölmargar. Þá eru í lok bókar skrár yfir prentuð heimildarit, óprentuð rit og heimildamenn. Nafnaskrá er mikil og löng. Próf- arkir virðast hafa verið vel lesnar. Útlit bókarinnar er að sjálfsögðu hið sama og á fyrri bindum. Það leiðir að sjálfsögðu af tímabilinu, sem um er fjallað, að mannamyndir eru ekki í þessu riti. Sigurjón Björnsson Lesið úr nýrri bók í Gerðarsafni ÞÓRÐUR Helgason, rithöf- undur og ljóðskáld, les úr nýrri unglingabók sinni, Allir fýrir einn, á morgun, fimmtu- dag, kl. 17. Upplesturinn er á vegum Ritlistarhóps Kópa- vogs og fer fram í Kaffistofu Gerðarsafns. Vetrardagskrá Gerðubergs Sjónþing, ritþing, sýningar og tónleikar í GERÐUBERGI er hafin vetrar- dagskrá og kennir þar að vanda ým- issa grasa. Nú þegar hefur bæði ver- ið haldið sjónþing og ritþing, hið fyrra helgað myndlist Þorvaldar Þorsteinssonar og hið síðarnefnda rithöfundarferli Guðrúnar Helga- dóttur. Næstkomandi laugardag verða gítartónleikar í Gerðubergi til heið- urs Gunnari H. Jónssyni, en hann er einn af frumkvöðlum klassískrar gít- artónlistar hér á landi. Á tónleikun- um koma fram gítarleikararnir Pét- ur Jónasson, Páll Eyjólfsson, Símon H. Ivarsson, Einar Kristján Einars- son og Kristinn H. Árnason. Önnur sýningin í röðinni Þetta vil ég sjá hefst 23. október nk. Þær sýn- ingar eru frábrugðnar öðrum mynd- listarsýningum hússins að því leyti að þar eru leikmenn og áhugamenn um myndlist fengnir til að velja verk eftir núlifandi listamenn til sýningar í Gerðubergi. Að þessu sinni verður það Friðrik Þór Friðriksson kvik- myndaleikstjóri sem velur verkin á sýninguna. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands, velur verk á þarnæstu sýningu Þetta vil ég sjá, en sú sýning verður opnuð 15. janúar á næsta ári. Annað sjónþing vetrarins, 20. nóv- ember nk., er helgað myndlistarferli Eh'íks Smith og á hinu þriðja, 12. febrúar, er röðin komin að verkum Önnu Líndal. Lestrarhestar, ljóðatónleikar og ljósmyndasýning Viltu lesa fyrir mig? er heiti dag- skrár sem Gerðuberg boðar til sunnudaginn 28. nóvember en þá gefst bókaormum og lestrarhestum á öllum aldri kostur á að hlýða á barnabókahöfunda lesa úr nýút- komnum verkum sínum. Hinir fyrstu í röð þrennra ljóða- tónleika undir yfirskriftinni íslenska einsöngslagið verða 30. janúar nk. í samvinnu við Tónskáldafélag Islands og Reykjavík, menningarborg Evr- ópu árið 2000. I samvinnu við menn- ingarborgina verður einnig sýning Hana Jakrlova-Kirkpatrick á ljós- myndum frá öllum menningarborg- um Evrópu árið 2000. í Gerðubergi er ennfremur boðið upp á félagsstarf fyrir fólk á öllum aldri, svo sem bókband, postulíns- málun, tréskurð, glerskurð, brids, boccia og dans. Þar eru einnig mynd- listarklúbbur, kór, sjálfboðaliðahóp- ar, helgistundir, Tónhornið og mynd- listarsýningar. Tölvunámskeið í sam- vinnu við Viðskipta- og tölvuskóla Is- lands er nýjung í félagsstarfinu í vet- ur. Hægan Elektra í Þjóð- leikhúsinu ÆFINGAR hófust fyrir helgina á hinu nýja leikriti Hrafnhildar Guð- mundsdóttur Hagalín, Hægan Elektra, sem frumsýnt verður á Litla sviði Þjóðleikhússins í lok janúar. Á myndinni eru frá vinstri; Snorri Freyr Hilmarsson leik- mynda- og búningahönnður, Edda Heiðrún Backman, Viðar Eggerts- son leikstjóri, Guðný María Jóns- dóttir aðstoðarmaður, Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, Stcinunn Óhna Þorsteinsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson. Tónlistarsljóm er í höndum Valgeirs Sigurðssonar. til útlaada -auðvelt dð muod SÍMINN www.simi.is Helgarrispa 14. og 28. okt. til London með Heimsferðum frá kr. 29. London-ferðir Heimsferða hafa fengið hreint ótrúlegar viðtökur og nú þegar er uppselt í fjölda ferða. Heimsferðir kynna nú einstök helgartilboð helgarnar 14. og 28. október í Ijórar nætur, þar sem þú getur notið hins besta af heimsborginni á hreint frábærum kjörum og nýtur traustrar þjón- ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð kr. 29.990 Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 14. og 28. okt. Hug afla fin ðaga og mam október i nóvemö Ferð frá fimmtudegi til mánudags, Grand Plaza-hótelið í Bayswater, tvær stjömur, m.v. 2 í herbergi með morgunmat. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.