Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN > Ljótur leikur R-listans UNDANFARNAR vikur höfum við for- eldrar á leikskólanum Njálsborg verið beðin um að sækja börn okk- ar eins snemma eftir hádegi og unnt er og nú var verið að til- kynna foreldrum að vikuna 27. september til 1. október yrði leik- skólanum lokað stund- víslega kl. 16 og for- eldrar beðnir um að sækja bömin fyrir þann tíma. Öll þessi óþægindi em sögð vegna manneklu en samt teljumst við þó mjög heppin miðað við ástandið í öðram leik- skólum borgarinnar eins og sjá má af orðum Guðmundu Valdísar Helgadóttur í DV föstudaginn 24. sept: „Þetta er óþolandi ástand og Dagvistarmál / Eg krefst þess að þess- um málum verði sinnt tafarlaust, segir Andrés Erlingsson, og að borgin skammist til að borga uppalendum barna okkar mann- sæmandi laun. mjög slæmt að þurfa að vera frá vinnu heilu og hálfu dagana út af því að barnið manns er sent heim úr leikskóla vegna starfsmanna- skorts,“ segir hún, en barn hennar er á leikskólanum Bakkaborg, sem er stór leikskóli í Reykjavík með yfir 100 börnum. Vegna starfs- mannaskorts hefur það ráð verið tekið að senda börnin af einstökum deildum skólans heim hálfu og heilu dagana. Þetta er tilkynnt for- eldmm með nokkram fyrirvara svo þeir geti gert ráðstafanir í tíma. *• Þetta er bara nýjasta dæmið! Hin hafa verið mýmörg undanfarnar vikur. Háttvirtur borgarstjóri, hvar era efndir fyrri loforða nú? Ég bara spyr. í stefnulýsingu R- listans 1998 segir orðrétt; „For- eldram allra bama sem eru eldri en eins árs verður veitt trygging fyrir öruggri, niðurgreiddri dag- vist.“ Ég get ekki séð það vera ger- ast nú, eða hvað? Ef ástand leik- skólanna í dag fellur undir tíma breytinga og nýjunga eins og segir í upphafi stefnulýsingarinnar, þá vona ég til guðs að öllum slíkum breytingum og nýjungum verði frestað um ókomna tíð. «*. 1 yfiriýstri steínu Dagvistar ' barna segir orðrétt; „Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og starfar eftir lögum um leikskóla frá 1994. Leikskólinn annast, að ósk foreldra, uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri undir hand- ieiðslu sérmenntaðs starfsfólks í leikskólauppeldi. Markmið leik- skóla er meðal annars að skapa bömum hollt og öraggt umhverfi sem veitir þeim tækifæri til að þroskast andlega sem iíkamlega og tækifæri tii að njóta bemsku sinn- ar.“ Tekið af heimasíðu Dagvistar barna (á síðu um leikskóla) 24. september 1999. Hvar er þetta sér- menntaða starfsfólk í leikskólun- um? Leikskólastjórar hafa birst hver á eftir öðram í útvarps- og sjónvarpsviðtölum undanfarið þar sem þeir kvarta hástöfum yfir því hversu erfitt sé að fá fólk til starfa ívegna þess hve laun á leikskólum eru lág og þeir sem hefji störf hjá þeim séu undantekningarlaust ófaglært fólk sem oft á tíðum hættir eftir mjög stuttan tíma vegna þess að þeir fá hærri laun annars staðar. Þannig má t.d. sjá í atvinnuauglýsing- um að ungt fólk á aldr- inum 16-22 ára bjóðast laun frá 92-109 þúsund krónur á mánuði við að afgreiða hamborgara. DV. Mánudagur 27. september 1999. Á meðan era grannlaun sérmenntaðra leik- skólakennara aðeins 84.979 þúsund á mán- uði. Hvað fá þá hinir ófaglærðu? Mér finnst nú að starfsmenn leik- skólanna eigi betra skilið en að störf þeirra með börnum okkar séu lægra metin en afgreiðsla á steikt- um kartöflum og hakkabuffi! Ég dáist að því fólki, faglærðu jafnt sem ófaglærðu, sem þó nú þegar starfa á leikskólunum fyrir það hugsjónastarf sem það vinnur, því ekki era það launin sem dregur það að starfinu. Morgunblaðinu barst eftirfar- andi yfirlýsing frá stjórn faghóps leikskólastjóra nú fyrir síðustu helgi: „Stjórn faghóps leikskóla- stjóra harmar það ástand sem skapast hefur á mörgum leikskól- um. Skortur á starfsfólki og sífelld óvissa um hvort leikskólastarfið verður með eðlilegum hætti frá degi til dags skapar óviðunandi óöryggi fyrir börnin." Morgunblað- ið. Föstudagur 17. september 1999. Ég er alveg sammála ofan- greindri yfirlýsingu stjórnar fag- hópsins, enda veit ég um mörg dæmi þess að þessar sífellu manna- breytingar á starfsliði leikskólanna hafa einmitt mjög slæm áhrif á börnin. Þau vita orðið ekkert hvaða manneskja tekur á móti þeim þeg- ar þau mæta á morgnana. Enda gefur að skilja að við svona tíðar breytingar á starfsfólki riðlast óhjákvæmilega það skipulag sem er á deildum bamanna og það gerir bömin óörugg. Þau þurfa sínar föstu reglur, annars líður þeim ekki vel. Það liggur í augum uppi. Svo til að slá öll met þá segir Guðmunda Valdís í fyrrnefndu við- tali við DV að samkvæmt upplýs- ingum sem þau foreldrar bamsins hefðu fengið frá Bergi Felixsyni yf- irmanni Dagvistar barna, þá væri óvíst að leikskólareikningurinn lækkaði neitt þrátt fyrir að leik- skólinn gæti ekki sinnt skyldu sinni að fullu. Það væri vegna þess að svo erfitt væri að draga einhverja klukkutíma frá heildar vistunar- tímanum í hverjum mánuði. DV. Föstudagur 24. september 1999. Hvers eigum við að gjalda fyrir þessa óreiðu á....fyrsta skólastig- inu í skólakerfinu" þar sem ..skapa á bömum hollt og öraggt umhverfi sem veitir þeim tækifæri til að þroskast andlega sem líkam- lega og tækifæri til að njóta bemsku sinnar" eins og segir svo fjálglega á heimasíðu Dagvistar barna? Eiga foreldrar að borga fullt gjald fyrir þjónustu sem ekki er svo hægt að bjóða upp á?! Ég yrði nú aldeilis hissa ef borgar- stjóri myndi sætta sig við að fá að- eins hluta af einhven-i þjónustu sem hann borgaði fullt gjald fyrir án þess að reka upp ramakvein. Sem borgarbúi og foreldri krefst ég þess að þessum málum verði sinnt nú tafarlaust og að borgin skammist til að borga uppalendum barna okkar mannsæmandi laun þannig að áhyggjum okkar, sem vistum börn okkar á leikskólum borgarinnar, verði eytt eigi seinna en strax! Höfundur er sagnfræðingur. Andrés Erlingsson Safnaðarstarf Vetrarstarf í Fíladelfíu NÚ ERU hin vinsælu súpukvöld byrjuð aftur í Fíladelfíu. Aðsókn er alltaf að aukast og nú hefur verið ákveðið að breyta aðeins til með súpuna og auka meðlætið. Verðið hefur því aðeins hækkað og kostar núna kr. 200, en hægt er að kaupa 10 miða kort á kr. 1.600. Súpukvöld- in eru á miðvikudögum kl. 18.30, en strax á eftir, eða kl. 19.30 hefst kennsla og þá skiptum við niður í deildir. I fyrsta lagi er um að ræða krakkaklúbb sem er fyrir börn 3-12 ára og skiptist sá hópur í þrennt, 3- 6 ára, 7-9 ára og 10-12 ára, ung- lingafræðslu og kennslu fyrir enskumælandi, biblíulestrar og bænastundir. Einnig verður Alfa- námskeið í boði á þessum tíma en það fjallar um grandvallaratriði kristinnar trúar. Hvert slíkt nám- skeið stendur yfir í tíu vikur. Samvera eldri borgara hefst fyrsta þriðjudaginn í október kl. 15 og verður alltaf fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Fólk getur hringt í safnaðarskrifstofuna og beðið um að verða sótt og síðan ökum við þeim heim aftur sem vilja eftir sam- veruna. Starfsemi systrafélagsins byrjar einnig í október og verður síðasta þriðjudagskvöld hvers mánaðar kl. 20. Menn með markmið, en svo nefnist karlastarf kirkjunnar, hitt- ast annan hvem þriðjudag kl. 20. Marita-samkomur era á mánudags- kvöldum kl. 20 en Marita er for- varnar- og hjálparstarf fyrir fíkni- efnaneytendur. I kirkjunni er öflugt unglingastarf og þau hittast á föstu- dagskvöldum kl. 20.30 ásamt því að fara oft eitthvað saman um helgar, m.a. á unglingamót í Kirkjulækjar- koti rétt austan við Hvolsvöll. Bænastundir era virkur þáttur í safnaðarstarfinu og þær era alla morgna kl. 6 og á laugardagskvöld- um kl. 20. Síðan era almennar sam- komur á sunnudögum kl. 16.30 og þar sér lofgjörðarhópur Fíladelfíu um söng og nú hefur sú nýbreytni verið tekin upp að bjóða uppá barnakirkju samhliða samkomunum fyrir börn 1-12 ára. Börnin era fyrst með foreldranum í u.þ.b. 30 mínút- ur en fara svo ásamt kennaranum í annan sal þar sem þau fá efni við sitt hæfi. Það eru alltaf allir velkomnir í Hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu. Veiðimanna- messa í Strand- arkirkju NÆSTKOMANDI sunnudag verð- ur messa í Strandarkirkju og er það svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þetta er hin svo- kallaða veiðimannamessa. Þá fjöl- menna veiðimenn þeir sem hafa Hlíðarvatn í Selvogi á leigu til messu. Aðrir fjölmenna líka en yfir- leitt er fjölmenni við messu í Strandarkirkju. Að þessu sinni pré- dikar ungur guðfræðingur, Magnús Magnússon frá Staðarbakka í Mið- firði. Ekki er annað vitað en að T- bærinn verði opinn en vinsælt er að fá sér kaffi þar hjá Sigfríði eftir messu. Baldur Kristjánsson. Frá fyrstu íslensku biskupunum ALMENN samkoma verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58, í dag miðvikudaginn 6. október, kl. 20.30. Sr. Guðmundur Karl Brynjars- son, sóknarprestur á Skagaströnd, prédikar og flytur jafnframt þátt úr kristnisögu, segir frá fyrstu ís- lensku biskupunum. Þetta er eitt þeirra erinda sem haldin era einu sinni í mánuði í Kristniboðssalnum í tilefni af væntanlegu afmæli kristni- tökunnar á næsta ári. AUir era vel- komnir samkomuna. Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr- aðra hefst í dag. Farið verður að Nesjavöllum, virkjun skoðuð og kaffiveitinga notið í Nesbúð. Uppl. í kirkjunni í síma 553 8500. Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður með ung böm kl. 10.30-12 í safnað- arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10 í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á efth'. Grensáskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur, sam- verastund, kaffiveitingar. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Hreinlætisuppeldi. Sign'ð- ur Jóhannesdóttir, hjúkranarfr. Náttsöngur kl. 21. Opið hús frá kl. 20-21 í safnaðarsal. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr- irbænir kl. 18. Langholtskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur, handavinna. Kaffí og meðlæti kl. 15. Djákni flytur hugvekju. Söngstund undir stjórn Jóns Stefánssonar org- anista. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kii-kjuprakkarar kl. 14.30. St- arf fyrir 7-9 ára börn. TTT kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferming- artími kl. 19.15. Unglingakvöld kl. 20 á vegum Laugarneskirkju, Þrótt- heima og Blómavals. Nýtt og spennandi tilboð fyrir unglinga í Laugarneshverfi. Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10- 12. Kaffi og spjall. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15-17. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Starf fyrir 11-12 ára börn kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnað- arins. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkai-- ar, starf fyrir 7-9 ára böm kl. 16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og kirkjunnar kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fímmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir- bænir. Léttur hádegisverður. KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Beðið fyrh- sjúk- um, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi- stund, spil og kaffi. Vídalínskirkja. F oreldramorgunn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr- irbænir, léttur málsverður á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl. 13. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest- ur. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 20-22 opið hús í KFUM & K húsinu. Borðtennis, vídeó, fótboltaspil og fleira og fleira. Ath. breyttan dag. KFUM og KFUK v/Holtaveg. Mál- þing í kvöld kl. 20. Hvað hafa starfs- greinar félaganna að gefa hver annarri? Geta starfsgreinar KFUM og KFUK í Reykjavík eitthvað gef- ið eða þegið af móðurfélögunum? Frummælendur: Sigurbjörn Þor- kelsson, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík, Ólafur Sverrisson, formaður Skógarmanna KFUM, Sigurbjört Kristjánsdóttir, foi-maður sumarstarfs KFUK í Vindáshlíð, sr. Jóna Hrönn Bolla- dóttir, miðbæjarprestur KFUM og K, María Sighvatsdóttir, leikskóla- stjóri KFUM og K, og Helgi Gísla- son, æskulýðsfulltrúi KFUM og KFUK. Eftir kaffihlé verða pall- borðsumræður, stjómandi Sigvaldi Björgvinsson, verslunarmaður. Stutta hugvekju í lokin flytur sr. Ólafur Jóhannsson, formaður KFUM í Reykjavík. Hvitasunnukirkjan Fíldadelfía. Súpa og brauð kl. 18.30. Kennsla kl. 19.30, krakkaklúbbur, unglinga- fræðsla, kennsla fyrir enskumæl- andi, biblíulestur og Alfa-námskeið. Allir hjartanlega velkomnir. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.