Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elskuleg amma okkar, RÁÐHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, elli- og hjúkrunarheimiiinu Grund, áður til heimilis á Ásvallagötu 10, lést fimmtudaginn 30. september. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstu- daginn 8. október kl. 15.00. Valdimar Jónsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Ásdís Inga Jónsdóttir, Elín Margrét Jónsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HALLDÓR BEN ÞORSTEINSSON, Brúarási 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju á morg- un, fimmtudaginn 7. október, kl. 15.00. Sólveig S. Sigurðardóttir, Þorsteinn Halldórsson, Ásthildur Halldórsdóttir, Þórarinn Hafberg, Bára Rós Björnsdóttir og barnabörn. María Loknar, Gústaf Fransson, Sigrún Jónsdóttir, Ómar Fransson, Sveinbjörg Jónsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, FRANS FRIÐRIKSSON, Melasíðu 4d, Akureyri, verður jarðsunginn frá Höfðakapellu, Akureyri, föstudaginn 8. október kl. 11.00. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, RAGNAR ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Eyri, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstu- daginn 8. október kl. 14.00. Freygerður S. Jónsdóttir, Kristín Ragnarsdóttir, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sæunn Kristinsdóttir, Ágúst Björnsson. + Maðurinn minn, ÓLAFUR GISSURARSON frá Byggðarhorni, Bólstaðarhlíð 15, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 29. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 8. október kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jóna Guðmundsdóttir. + Eiginmaður minn og faðir, GUÐBJÖRN SNÆBJÖRNSSON, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 7. október kl. 13.30. Þuríður Ragnarsdóttir, Ragnar Guðbjörnsson. SVEINN JÓNASSON + Sveinn Jónas- son fæddist að Borg í Reykhóla- sveit 18. nóvember 1923. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 26. september síð- astliðinn eftir langvarandi veik- indi. Foreldrar hans voru Jónas H. Sveinsson, bóndi að Borg, f. 3. apríl 1877, d. 14. júní 1943, og Kristín Guðmundsdóttir kona hans, f. 1. desember 1883, d. 9. febrúar 1927. Sveinn var næstyngstur níu systkina: Arn- dís, Guðmundur, Ingunn, Sig- ríður, Hákon, Sigurður, Kristín og Oddur. Ingunn og Kristín lifa bróð- ur sinn. Sveinn kvæntist Ellen S. Emilsdóttur, f. 2. maí 1929, hinn 30. ágúst 1952. Börn þeirra eru Jónas Helgi, kvæntur Jós- efínu S. Þorbjörns- dóttur; Berglind Ruth, gift Trausta Gunnarssyni; Óttar Bjarki, kvæntur Sigrúnu Sigurðar- dóttur og Brynjar Gauti, kvæntur Sig- ríði Birgisdóttur. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru þrjú. Utför Sveins fór fram í kyrr- þey. „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylg- ir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins (Jóh. 8.12.). Sunnudaginn 26. september sl. and- aðist tengdafaðir minn, Sveinn Jón- asson, 75 ára að aldri. Hann var viljasterkur og ákveðinn og hafði alltaf alla sína hluti á hreinu, og bar hag fjölskyldu sinnar mjög fyrir brjósti. Sveinn var bifreiðastjóri á BSR, snyrtimenni mikið og báru bflar hans merki um það. Hann gekk bæði vel um eigur sínar og bar virð- ingu fyrir hlutunum, það var sama hvort um skrifstofuna eða geymsl- una var að ræða. Sveinn var glæsilegur maður, skemmtilegur, barngóður og hafði gaman af því að taka lagið. Hann var ávallt tilbúinn að veita hjálpar- hönd ef með þurfti. Sveinn og Ellen bjuggu í Brúnalandi 38 í Reykjavík, þegar ég kynnist 15 ára gömul yngsta syni þeirra, Brynjari Gauta. Sjálf átti ég heima í næstu götu. Hafði hann oft á orði þvflík forrétt- indi ég hafði að hafa aðgang að tveimum matseðlum, því hann vissi að stúlkan var gikkur á mat. Þegar við svo eignuðumst okkai' fyrstu íbúð fann ég hve stoltur og ánægður hann var fyrir okkar hönd. Síðan hafa tveir drengir litið dagsins ljós, Amór Ingi og Sveinn Bjarki, sem sjá nú á eftir afa sínum allt of snemma. Fyrir u.þ.b. níu árum veiktist hann og urðu örlögin þau að hann átti ekki heimangengt eftir það. Hann dvaldi lengst af á Hjúkrunar- heimilinu Eir, þar sem hann fékk RANNVEIG INGIBJÖRG SIG UR VALDADÓTTIR + Rannveig Ingi- björg Signr- valdadóttir fæddist á Eldjárnsstöðum í Blöndudal 11. febr- úar 1928. Hún lést í Sjúkrahúsi Reykja- víkur 24. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Grensáskirkju 1. október. Guð þig geymi góða systir, gleði þinnar ávallt naut. Þeir búa um sem fara fyrstir, á feti troðin ókunn braut. (Þorbjöm Haraldsson.) Þín systir, Guðrún Sigurvaldadóttir. Það er með söknuði sem við kveðjum hana Rannveigu Sigur- valdadóttur frá Eldjámstöðum. Það er einu sinni svo að þegar kemur að kveðjustund þá minnumst við allra þeirra yndislegu stunda sem við höfum átt með okkar elskulegu frænku. Rannveig var alla tíð okkur sem önnur mamma, hlýja hennar í okkar garð, ákveðni og yndislegi hlátur er sem greypt í minningunni. Ekki vantaði dugnað- inn í hana og minnumst við þess að oftast kom hún gangandi til okkar á Bragagötuna úr vest- urbænum. Það var ein- hvern veginn þannig þetta sérstæða sam- band sem hún átti við okkur að við voram meira en tflbúnir til að gera allt fyrir hana Rannveigu og ósjald- an fylgdum við henni áleiðis heim í vesturbæinn þegar rökkva tók og máttum við þá hafa okkur alla við á göngunni þar sem Rannveig gekk ávallt mjög greitt, og kvöddumst við síðan öðra hvoram megin við Hljómskálagarðinn. A uppvaxtarár- um okkar kom hún ósjaldan til Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréf- inu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfín Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. frábæra umönnun. Eftir erfið veik- indi fékk hann loks hvfldina sem hann var farinn að þrá. Sveinn minn, með hlýjum hug þakka ég þér fyrir samfylgdina og bið góðan Guð að blessa þig. Sigríður Birgisdóttir. Þegar ég leystur verð þrautunum írá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá - það verður dásamleg dýrð handa mér. Dásöm það er dýrð handa mér, dýrð handa mér, dýrð handa mér, er ég skal fá Jesú auglit að sjá, það verður dýrð, verður dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson.) Þessi sálmur var ofarlega í huga tengdaföður míns síðustu árin og að hans ósk sunginn þegar ástvinir hans fylgdu honum síðasta spölinn. Það var vel við hæfi þar sem hann hafði átt við mikla vanheilsu að stríða síðastliðin níu ár. Nú þegar litið er um öxl eru það ekki þessi síðustu erfiðleikaár sem standa uppúr í minningunni, heldur öll góðu árin sem fjölskyldan átti með honum. Það er sama hvort hugsað er „heim“ í Brúnalandið, eða til ferðalaganna sem við fórum í innan- lands og utan, þá eru þetta allt góð- ar minningar. Tengdapabbi var heiðarlegur og hreinskilinn maður sem gott var að treysta á og ef hann tók að sér eitthvert verkefni fyrir mann þá var það ekkert hálfkák, verkið skyldi klárað. Hann var líka mjög ákveðinn, og ekki vorum við alltaf sammála en það var allt í lagi því bæði höfðum við lúmskt gaman af því að þrasa svolítið. Við vissum alltaf hvar við höfðum hvort annað. Mig langar til að kveðja góðan tengdaföður með þakklæti og virð- ingu, minningarnar um hann ylja, megi hann eiga góða heimkomu. Með kærri vinarkveðju, Sigrún. hennar mömmu og var boðin og bú- in til að aðstoða hana við hin ýmsu verk og mátti einu sæta hvort það var Rannveig eða mamma sem gáfu okkur uppeldislegar ráðleggingar, þá var farið eftir þeim. Það skiptast á skin og skúrir í lífi okkar allra en þegar upp er staðið er það bjartsýnin og óbilandi trú á betri tíma sem heldur okkur öllum gangandi. Ekki vantaði hvatningar- orðin frá Rannveigu til okkar er framtíðaráform okkar bræðra vora rædd. Rannveig hafði gaman af söng og kunni marga texta og þegar hennar eftirlætislög voru leikin í út- varpi söng hún ævinlega með af ein- stakri innlifun. Það má segja að þegar við voram í heimsókn hjá þeim Rannveigu og Jóni fengum við mátulegan skammt af bæði þjóð- legri og klassískri tónlist að ógleymdu harmonikkuspili hans Jóns. Það er nú einu sinni svo að þegar við hugsum til baka þá voram við þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að lifa með Rannveigu og læra af henni, því öll höfum við heilmikið að gefa. Rannveig var alla tíð mjög ákveðin, sagði sína meiningu sama hvað öðr- um fannst um það. Þessu ásamt fjölmörgu öðru hefur hún miðlað til okkar. Elsku Rannveig, þú háðir þína lokabaráttu og það af sama krafti og mætti sem áður en við eigum ekki svar við öllum þeim áföllum sem á okkur geta dunið. Tíminn er oft fljótur að líða en svo er eins og hann standi í stað þegar slík barátta er háð. Við sendum Jóni Karlsyni og öðrum ættingjum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að gefa ykkur styrk í ykkar sorg. Að lokum viljum við vitna í orð okkar elskulegu móður; „megi guð á himnum geyma þig, elsku Rannveig okkar“. Þegar á oss sótti efinn, ávallt stóðst þitt vinarþel. Dýrðardagur drottni gefin, dvöl þín reyndist okkur vel. (Þorbjörn Haraldsson.) Þínir systursynir, Sigurvaldi Rafn, Óskar, Ásgeir, Siguijón, Þorbjörn, Hallgrímur og Þórhalli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.