Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 44

Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HREFNA * RAGNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR + Hrefna Ragnheiður Magn- úsdóttir fæddist að Sæbóli í Aðalvík 17. ágúst 1908. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á fsa- firði 21. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá ísafjarðarkirkju 2. október. Elsku Hrefna mín! Örfáar línur til að þakka þér fyrir allt sem þú og Gummi gerð- uð fyrir mig. Það eru yndislegar minningar sem ég á um þann tíma þegar ég átti heima hjá ykkur á Hlíðarveginum. Seinna, þegar ég var flutt til Keflavíkur, var ég friðlaus nema ég kæmist vestur vor og haust. Við áttum góðar stundir saman í eldhúsinu á kvöldin og þó að þú værir kvöld- svæf léstu það eftir mér að sitja yfir kaffibolla og leggja kapal langt fram eftir kvöldi. Ekkert fannst þér sjálfsagðara en að færa mér kaffi og kökur í rúmið upp á svítu og setjast á rúmstokkinn og drekka með mér morgunkaffið og spjalla. Elsku Hrefna mín. Mikið mun ég sakna þín og þessara stunda okkar. Magnús, Guðrún og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur. Sólin blessuð sígur rauð til viðar, glóa á lofti gullin ský, grátklökk áin niðar. Haustið nálgast,hríð og vetrarrosinn, sennerekkisólarvon, senn er áin frosin. Himinn yfir. Huggast þú sem grætur Stjömur tindra, geislar guðs, gegnum vetrarnætur. Vetramóttin varla mun oss saka, fyrst að ljósin ofan að yfir mönnum vaka. (Stefán frá Hvítadal.) Þakka þér fyrir allt og guð geymi þig- Þín Judy Wesley. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA ÞÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR, Engjaseli 33, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 8. október kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega bent á heimahlynningu Krabba- meinsfélagsins. Ásbjörn Valur Sigurgeirsson, Steinunn Alda Guðmundsdóttir, Loftveig Kristín Sigurgeirsdóttir, Sveinn Ragnar Björnsson, Ágústa Sigurgeirsdóttir, Sigurjón Andrésson, Þórður Sigurgeirsson, Björg Magnúsdóttir, Gunnar Már Sigurgeirsson, Sólveig Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSA SIGURÐARDÓTTIR, Bláhömrum 13, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 8. október kl. 13.30. Þeim, sem víldu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Islands. Ingólfur Sveinsson, Halla Hjörleifsdóttir, Pálína Sveinsdóttir, Valgeir K. Gíslason, Ásmundur Sveinsson, Tammy Ryan, Jón Guðlaugur Sveinsson, Jóhanna Siggeirsdóttir, Baldvin Sveinsson, Sigurlína Helgadóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkaerrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SNJÓLAUGAR REYNISDÓTTUR, Engjaseli 70, Reykjavík. Ragnar Þorsteinsson, Reynir Ragnarsson, Halldóra Gísladóttir, Anna Nína Ragnarsdóttir, Þorsteinn Hreggviðsson, Þorsteinn Ragnarsson, Svava Sigurðardóttir, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, Ingimundur Einarsson, Snorri Ragnarsson, Elínborg Ragnarsdóttir, Michael Clausen, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Valdimar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. HELGA BJARGMUNDSDÓTTIR + Helga Bjarg- mundsdóttir fæddist í Suðurkoti á Vatnsleysuströnd 17. júní 1919. Hún lést á Reykjalundi 25. september síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 4. októ- ber. Gömlu félagamir í upprunalegum bar- áttusamtökum bprkla- sjúkhnga, S.Í,B.S., kveðja nú sterka og trygga þján- ingarsystur og samstarfsfélaga um árabil, Helgu Bjargmundsdóttur frá Suðurkoti á Vatnsleysuströnd. Æði-ulaus gekk hún þrautabraut- ina við hlið okkar, baráttuglöð og bjartsýn, þótt oft syrti í álinn. Helga Bjargmundsdóttir var ósérhhfinn liðsmaður í samtökun- um allt frá stofnun þeirra, þá á unglingsaldri. Þegar foreldrar mín- ir fluttust að Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd með bamahóp- inn sinn, kynntist ég Helgu í Suð- urkoti. Þá vomm við báðar á barnsaldri. Helga var aðeins átta ára, en hvíti dauðinn hafði þá þegar lostið litlu fjölskylduna hennar höggi sem æ síðan sveið undan. Bjarg- mundur, faðir hennar, hafði látist vorið 1927, langt um aldur fram, eftir snögga og harða baráttu við berklana. Þá stóð móðirin ein uppi með litlu dæturn- ar tvær, Ingu sex ára og Helgu, tveimur ár- um eldri. Lífsbaráttan var hörð og miskunn- arlaus. Þótt ég bæri þá, barn að aldri, lítið skyn á annir og afrek móður telpnanna, sá ég þó að hún vann ein öll störf á búi sínu, líka þau sem venjulega vom kölluð karlmannsverk, en góðir ná- grannar veittu henni lið þegar þannig stóð á. Helga ólst upp við iðjusemi og æðmleysi og þannig var hún. Föðurmissirinn var henni eðlilega sár sorg, hin mesta allt fram að þeim degi sem hún þurfti að segja móður sinni þá niðurstöðu læknisrannsóknar sem hljóðaði upp á hælisvist hennar sjálfrar um ófyrirsjáanlegan tíma. Helga óttað- ist að það myndi buga móður sína. En hvorug bugaðist og baráttan hélt áfram um árabil. Helga vann félagi sínu dyggilega á sjúkdómsáranum, seldi happ- GUÐRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR + Guðrún Aðal- steinsdóttir fæddist á Vað- brekku í Hrafnkels- dal 25. maí 1923. Hún lést 24. sept- ember siðastiiðinn og fór útför hennar fram frá Egilsstaða- kirkju 2. október. Elsku amma mín! Þegar pabbi færði mér fréttir af andláti þínu var mér mjög brugðið. Þetta var ekki frétt sem mér fannst vera á næsta leiti. Þú varst nýbúin að vera fyrir sunn- an í heimsókn og ekki vom þá nein teikn um að það væri í síðasta skipti sem ég sæi þig á lífi. Þær eru margar minningarnar sem upp koma tengdar þér. Þú bjóst yfir sterkri réttlætiskennd, varst ósérhlífin í hvívetna og barst vinnuseminni merki er árin færð- ust yfir. Þú varst fuh af fróðleik og hafðir ákaflega gaman af því að segja frá og einstaklega skemmti- leg áheyrnar. Þú varst líka góður hlustandi og barst mikla virðingu fyrir skoðunum annarra, þótt þær væru algjörlega á öndverðum meiði við þínar eigin. Frá því ég man fyrst eftir mér var það alltaf jafn spennandi að koma til þín og afa í Utgarðinn á Egils- stöðum. Þú lumaðir alltaf á einhverju góð- gæti og varst alltaf mjög virk í að lauma því að okkur systkin- unum. Þú fylgdist aUtaf vel með okkur barnabörn- unum, hvort sem var í leik eða starfi og hafð- ir mikinn metnað fyrir okkar hönd. A áram mínum í menntaskólanum á Egils- stöðum bjó ég um tíma hjá ykkur afa og kynntist ég þá enn betur hve metnaður þinn í minn garð var mikill. Ekki það að ég væri að vinna nein afgerandi afrek, en í þínum augum var hver áfangasigur í mínu lífí partur af þínu. Þú varst matráðskona í ME meðan ég var þar við nám og var ég ákaflega stoltur af þér. Enda varstu mjög vel liðin af nemendum og samstarfsfólki og fyrir þér borin mikil virðing. Meðal nemenda áttir þú marga vini og kunningja og hafðir ætíð mikla samkennd með framgöngu þeirra í námi og dag- legu lífi. Til þín var alltaf hægt að GUÐRÍÐUR ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR + Guðríður Erna Guðmunds- dóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 4. mars 1963. Hún lést í Trönsberg í Noregi 24. septem- ber siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Selfosskirkju 2. október. Drottinn gaf og drottinn tók, yndisleg gjöf þegar fæðist fyrsta barn ungra foreldra, fyrsta barna- barn afa og ömmu, við öll glöð í vaxandi fjölskyldu. Litla stúlkan dafnar og er eins og maður getur best óskað sér, eignast lífsföranaut og tvær dætur, enn er okkur gefið og ættartréið vex. Það er komið haust, blómin fella krónur sínar og tréin lauf og nú tekur drottinn stúlkuna sem hann gaf fyrir rúm- lega þijátíu og sex árum. Gleðin breytist í sorg og spurn; af hverju hún? En gaf hann ekki mikið að gefa okkur þessa ungu konu og tvær efnilegar dætur? Jú, vissu- lega, en eigingirni okkar er mikil. Við viljum ekki missa þá sem við elskum og svo sannarlega var Gurrý elskuð af fjölskyldu og vin- um. Fyrstu vindar vetrar leika um sumarblómin okkar og fella þau til jarðar. Sama gerðist með Gurrý okkar, fáeinir dagar og allt búið, en drottinn hafði gefið tvær ungar dætur sem verða huggun sínum nánustu í þeirra miklu sorg og sál- drættismiða, blöð og merki S.I.B.S., oft á götum úti, hvernig sem viðraði. Þá lagði hún við hlið félaga sína lífið að veði enda barist fyrir lífíð sjálft. Það ævintýri lagði margan ósérhlífinn kappann í rúm- ið og suma kannski í gröfina. Helga slapp og þegar Vinnuheimilið að Reykjalundi reis naut hún þess sér tH heilsubótar og þjálfunar, en gerðist síðan starfsmaður þess uns hún gekk í hjónaband og stofnaði eigið heimih. Maður hennar, Aðalsteinn Sig- urðsson, var einn af iðnmeisturan- um við húsbyggingarnar á Reykja- lundi og þar kynntust þau. Hann lést fyrir 20 árum. Eftir það stóð hún ein og studdi börn sín til náms og dáða. Helga var félagslynd með ágætum, en þá list kunni hún besta að hlúa að fjölskyldulífinu. Helga naut ætíð frábærrar um- önnunar og þjálfunar á Reykja- lundi. A þeim kæra stað leið henni vel, þar átti hún hlut að máli, þar átti hún heima síðustu mánuðina uns yfir lauk, umvafin hlýju starfs- fólksins og kærleika barna sinna. Hún kvaddi sæl og sátt, þakklát fyrir langt og gott líf í stríði og friði. Börnum hennar, Sólveigu, Ólaf- íu, Örvari og Ævari og fjölskyldum þeirra, vottum við samúð á saknað- arstund, en gleðjumst með þeim yfir gæfuríku lífi góðrar móður. Ég kveð bernskuvinkonu mína með virðingu og þakklæti. Rannveig I. E. Löve. leita eftir þeirri hjálp sem þú gast veitt eða bara til að spjalla. Það var líka oft mikið líf hjá þér í eldhúsinu þar sem þú fékkst margar heim- sóknir og hin ýmsu dægurmál fengu þar nýja fleti í kjarnmiklum umræðum. Seinni árin höfðu samskipti okk- ar minnkað mikið, enda ég fluttur til Reykjavíkur, fyrst til náms og svo til vinnu. Við hittumst þó oftast þegar ég kom austur með fjöl- skyldu mína. Ég mun aldrei gleyma hvað þú tókst henni Töru Osp, fósturdóttur minni, vel og leist strax á hana sem langömmu- barnið þitt. Það var mér ómetan- legt. Það er mér líka ómetanlegt að þú skyldir hafa komist í skírn yngri dóttur minnar, Emblu Óskar, nú í sumar. Við hittum þig í síðasta sinn í matarboði hjá Rósu frænku fyrir mánuði þar sem við vorum saman- komin nokkur af barnabörnunum og langömmubörnunum þínum. Þú hafðir á orði við mig hvað það væri nú stórkostlegur hópur afkomenda sem þú bærir ábyrgð á. Þú varst stolt af því sem þú hafðir áorkað á lífsleiðinni! Kristbjörg, konan mín, hafði á orði að með þér væri farin einhver stórkostlegasta mannseskja sem hún hefði kynnst. Ég held að allir sem nutu þeirra forréttinda að hafa haft af þér kynni, geti tekið undir það. Elsku amma mín, þú verður mér og minni fjölskyldu eilíflega kær! Tjörvi. arkulda. Megi guð og góðar vættir vaka yfir manni, dætrum, foreldr- um, afa og öllum öðram sem sárt syrgja. Þau Ijós sem skærast lýsa, skína líka glaðast, bera mesta birtu og brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur, er dauðans dómur fellur og þann dóm enginn sldlur. En skinið logaskæra, sem skamma stund oss gladdi, það leiddi ást og yndi, öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum, nú hverfi ljósið bjarta, þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik G. Þorleifsson) Dóra Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.