Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 46

Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 46
‘46 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dagur frímerkisins 1999 FRÍMERKl * Frímerkjasýning í Síðumúla 17. NÆSTKOMANDI fimmtudag, 7. þ.m., verður haldinn Dagur frímerk- isins 1999. Er þetta í annað skiptið, sem hann er haldinn í samvinnu við Islandspóst hf. Af því tilefni kemur að vanda út smáörk þennan dag með yfírverði, sem rennur í Frímerkja- og póstsögusjóð, en hann styrkir rannsóknarstarf varðandi íslenzka póst- og frímerkjasögu. Myndefni þessarar arkar er sótt til Skagafjarð- ar. Hönnuður arkarinnar er Hlynur Ólafsson, en myndefnið er teikning eftir danskan listmálara, Carl Emil Baagöe (1829-1902), sem dvaldist hér landi á árunum 1856-1857 og teiknaði margar myndir á ferðum sínum. Er myndin af dönsku kaup- mannaskipi, svonefndu Hofsósskipi, en nafn þess er ekki þekkt, segir í tilkynningu Póstsins. I baksýn má sjá Drangey og Þórðarhöfða, Skipið prýðir sjálft frímerkið, sem er 200 kr. til burðargjalds, en 50 krónur er yfirverðið. Þannig kostar örkin 250 krónur. Örkin er offset-prentuð hjá Cartor S/A. Þennan sama dag koma einnig út tvö frímerki til að minnast þess, að Reykjavík verður ein af níu menn- ingai’borgum Evrópu árið 2000. Á dagskrá verða um 200 viðburðir und- ir yfirskriftinni „Menning og nátt- úra“. Segir í tilkynningu Póstsins, að þetta verði „einn viðamesti menning- arviðburður í sögu íslenzku þjóðar- innar“. Hönnuðir merkjanna eru Hany Hadaya/Erró. Þau er einnig prentuð hjá Cartor S/A. Frímsýn 99 I tengslum við Dag frímerkisins verður sama dag opnuð lítil frí- merkjasýning, FRÍMSÝN 99, í húskynnum Félags frímerkjasafnara í Síðumúla 17. Hefst hún kl. 17 og verður opin tii kl. 21. Á föstudag verð- ur hún svo aftur opin á sama tíma, eða frá kl. 17-21 og loks á laugardag írá kl. 11-17, en þá iýkur henni. Sýningin er haidin í samvinnu við íslandspóst hf. og verður reynt að hafa sýningarefnið fjölbreytt, enda þótt sýningarrammar verði ekki nema rúmlega 30. Þar verður ýmiss konar efni, sem búast má við, að safnarar hafí áhuga á og höfði jafn- framt til þeirra, sem láta sig frímerki eitthvað varða. Þar má nefna sýnis- horn úr stimplasafni Hjalta Jóhann- essonar, sem oft hefur sýnt safn sitt hér heima og erlendis og hlotið verð- skuldaða viðm’kenningu fyrir. Eins eiga menn kost á að sjá margverð- launað safn Guðna Friðriks Árnason- ar um þann heimsfræga landkönnuð Kristófer Kólumbus. Umslög úr seinni heimsstyrjöld með ýmsum stimplum verða einnig á sýningunni. Af svonefndum mótíf-merkjum verða sýnd skákfrímerki. Þá verða sýnd jólamerki og eins stimpilmerki, en söfnun slíkra merkja er eins konar hliðargrein við sjálf frímerkin og hef- ur farið vaxandi á síðustu áratugum. Loks verður á FRÍMSÝN 99 ýmis samtíningur Sigurðar H. Þorsteins- sonai’, eins og það var svo óljóslega orðað í þeirri greinargerð, sem þætt- inum barst. Því verður ekkert frekar hægt að segja um það efni. Númeruð sýningarörk verður gef- in út, og gildir hún jafnframt sem happdrættismiði. 10 vinningar verða dregnir út. Venja hefur verið að gefa út slíkar arkir í tengslum við frí- merkjasýningar, og eru þó nokkrir, sem safna þeim. í þetta sinn er myndefni ai’karinnar 40 aura merki úr Alþingishátíðarseríunni frá 1930. Hafa þá öll merki úr þeirri seríu ver- ið notuð á sýningararkir. Pósthús verður opið á sýningar- tíma á fimmtudeginum. Þar má fá Sniáörk á Degi frímerkisins 1999. Sýningarörk FRÍMSÝN 99. nýju smáörkina stimpiaða og einnig þau tvö önnur frímerki, sem koma út þennan sama dag. Af framansögðu má vera ljóst, að efni sýningarinnar getur ekki orðið margbrotið. Engu að síður ættu safnarar og aðrir þeir, sem áhuga hafa á frímerkjum og öðru þeim tengt, að heimsækja FRÍMSÝN 99 þá daga, sem sýn- ingin verður opin. Þeim tíma er ekki illa varið, sem fer í þá heimsókn. Vafa- laust verða svo ýmsir félagar FF á sýningarstað, sem veitt geta ungum sem gömlum marg- víslega fræðslu um áhugamál frí- merkjasafnara. Vart þarf að taka það sérstaklega fram, að aðgangur er ókeypis svo sem venja er orðin á innlendum frí- merkj asýningum. Rétt er svo að endingu að minna safnara á það, að svonefndur Safn- aradagur verður í félagsheimili FF í Síðumúla sunnu- daginn 17. október frá klukkan 13-17. Dagurinn er hald- inn í samvinnu við Myntsafnarafélag Islands. Hefur alltaf tekizt vel til með þennan dag, en hann er haldinn tvisvar á ári, vor og haust. Þangað koma safnarar og kaupmenn með gamalt sem nýtt efni. Áðgangur er að sjálfsögðu öllum heimill. Jón Aðalsteinn Jónsson TILKYNNINGAR ‘,#rSkipylags stofnun Vegur nr. 56 yfir Vatna- heiði eða Kerlingarskarð á Snæfellsnesi Mat á umhverfisáhrifum - niðurstöður annarrar athugunar og úrskurður skipulagsstjóra ríkisins Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskuröaö sam- kvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfis- áhrifum. Fallist er á, með skilyrðum, endurbæt- ur á vegi um Kerlingarskarð á Snæfellsnesi og lagningu vegar yfir Vatnaheiði eins og þeim er lýst í matsskýrslu og viðbótargögnum fram- kvæmdaraðila. Úrskurðurinn í heild liggurframmi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is. Úrskurð skipulagsstjóra má kæra til umhverfis- ráðherra og er kærufresturtil 3. nóvember 1999. Skipulagsstjóri ríkisins. Auglýsing um deiliskipulag íbúða- og frístunda- byggða í Biskupstungum. Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag frí- stundabyggða í landi Brekku og að Eiríksstöð- um, Biskupstungnahreppi, og deiliskipulag fyrir íbúðar- og útihús á jörðinni Miðhús. Einnig tvö deiliskipulög í Laugarási, við Lang- holtsveg og garðyrkjulóðir við Skyrkletta. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu ,irBiskupstungnahrepps, Aratungu, frá 8. október til 5. nóvember 1999. Skriflegum athugasemd- um við skipulagstillögurnar skal skila á skrif- stofu sveitarfélagsins. Þeir, sem ekki gera at- hugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Biskupstungum, 1. október 1999. v Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri. Styrkir til atvinnumála kvenna Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið aukaút- hlutun þeirra fjármuna sem eftir eru af ráðstöf- unarfé ársins 1999, sem eru sex milljónir, til atvinnumála kvenna. Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á verk- efni fylgi með umsókn, sundurliðuð kostnaðar- áætlun, svo og að fram komi hvort leitað hafi verið til annarra um fjárstyrk. Vakin er athygli á því, að um takmarkaða fjár- muni er að ræðá og gæti komið til synjunar á styrkveitingum á grundvelli þess. Forgangs njóta verkefni á þeim atvinnusvæð- um þar sem atvinnuleysi er mikið meðal kvenna og fábreytileiki í atvinnulífi kvenna. Styrkirnir verða veittir til verkefna sem auka fjölbreytni í atvinnulífi og einkum til verkefna sem eru á vegum hópa eða félagasamtaka. Styrkirnir verða veittirtil atvinnuskapandi verk- efna sem njóta síðurfyrirgreiðslu í hefðbundn- um lánastofnunum. Hámarksstyrkur í þessari aukaúthlutun er kr. 500.000. Skilyrði fyrir umsókn. • Styrkir eru ekki veittir til verkefna sem eru í samkeppni við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á landsvísu. • Til að verkefni sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn þarf fyrir að liggja greinargerð vegna fyrri styrkveitinga. • Ekki eru veittir rekstrarstyrkir. • Ekki eru veittir styrkir til listiðnaðar en tekið er tillit til nytjalistar. • Ekki eru veittir styrkir til einstakra verkefna sem eru ekki atvinnuskapandi til lengri tíma litið. • Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem eru á hugmyndastigi. • Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25% af stofnkostnaði til véla- og tækjakaupa og einnig vegna húsnæðis til hópa. • Að öðru jöfnu nemur framlag af hálfu ríkis- ins ekki meir en 50% af heildarkostnaði við verkefnið. Umsóknareyðublöð fást hjá Vinnumálastofn- un, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 511 2500 og á heimasíðu stofnunarinnar www.vinnumalastofnun.is. Umsóknarfrestur ertil 10. nóvember 1999. KENNSLA HÁMARKS ÁRANGUR s: 557 2450 • www.sigur.is HEILSUSETUR ÞÓRGUNNU Námskeið í „Hómópatíu" — smáskammtalækningum til heimanotkunar, verður helgina 9.—10. okt. frá kl. 10—14 báða dagana. Kennarar Þór- gunna Þórarinsdóttir og Lilja Steingrímsdóttir, LCPH. Uppl. og innritun á Heilsusetri Þórgunnu, Skipholti 50c, simar 896 9653 og 562 4745. FELAGSLIF □ HELGAFELL 5999100619 IVA/ I.O.O.F. 9 = 1801067'/. = Rk. „ SAMBAND ÍSLENZKRA IjŒJjt KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson talar. Allir hjartanlega velkomnir. http://sik.torg.is/ Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. □ GLITNIR 5999100619 I I.O.O.F. 7 = 180100619 = Rk. too KFUM KFUK 1 8 9 9 - 1 9 9 9 KFUM og KFUK í Reykjavík Aðalstöðvar við Holtaveg Málþing kl. átta í kvöld. Hvað hafa starfsgreinar félag- anna og að gefa hver annarri og hvað geta þær gefið og þegið af móðurfélögunum? Frummælendur: Sigurbjörn Þorkelsson, framkvæmdarstjóri, Ólafur Sverrisson, formaður Skógarmanna, Sigurbjört Kristj- ánsdóttir, formaður Hlíðarmeyja, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, mið- bæjarprestur, María Sighvats- dóttir, leikskólastjóri og Helgi Gíslason, æskulýðsfulltrúi. Kaffihlé — pallborðsumræður. Stjórnandi: Sigvaldi Björgvins- son, verslunarmaður. Stutt hugvekja í lokin: Sr. Ólafur Jóhannsson, form. KFUM í Rvík. Allir félagsmenn KFUM og KFUK eru hvattir til að sækja mál- þingið. augl@mbl.is Sparaðu þér umstang og tíma með því að senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar í Morgunblaðinu með tölvupósti. Notfærðu þér tæknina næst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.