Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 55
Heillandi heimur
bandarískra unglinga
VINSÆLASTA mynd vikunnar er
nýja unglingamyndin American Pie
en hún hefur notíð mikilla vinsælda
vestanhafs. Myndin í öðru sætínu á
sér einnig dygga stuðningsmenn af
yngri kantinum en þai' er sprellistelp-
an sænska, Lína Langsokkur, mætt í
annað skiptíð en þessi kjarkmikli
rauðhærði stelpuhnokki hefur lengi
heillað ungu kynslóðina.
Þrjár aðrar nýjar myndir koma inn
á lista vikunnar en fyiir utan topp-
mynd vikunnar fer þeirra hæst Dóttir
hershöfðingjans með John Travolta í
aðalhlutverki, en hún er í 3. sætí list-
ans. Teiknimyndin um tepparottm-n-
ai’ Rugrats fer í 8. sætíð og danska
barnamyndin Þegar mamma kemur
heim er í 15. sætí.
Ungfrúin góða og húsið er í fjórða
sæti listans, en myndin hefrn- hlotíð
góða dóma gagnrýnenda. Gaman-
myndin Stóri pabbi með Adam
Sandler í aðalhlutverid er í 5. sæti
listans, en toppmynd síðustu viku,
Með augun gallokuð, eða Eyes Wide
Shut er í 5. sætinu.
Athygli vekur að nýjasta dogma-
myndin, Síðastí söngur
Mifune, virðist ekki eiga
jafn góðu gengi að fagna
hérlendis og annars
staðar, en myndin hefur
fengið einróma lof alls
staðar þar sem hún hef-
ur verið sýnd nema hjá
íslenskum gagnrýnendum. Á síðustu
Berh'narhátíð hlaut leikstjóri hennai’,
Soren Kragh Jacobsen, silfurbjörn-
inn fyrir myndina og hafa margir
talið hana bestu dogma-myndina tíl
þessa.
Unglingsárin með öllu sem þeim fylgir er
yrkisefni vinsælustu myndar vikunnar,
American Pie.
VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR A ISLANDI
HELGIN
1.-3. OKI.
Nr. var vikur Mynd Framl./Dreifing
I. NÝ - American Pie (Sneið af Bandaríkjunum) Indie
2. 2 2 Lína Langsokkur 2 Svensk Filmindustrie
3. NÝ - The General’s Daughter (Dóttir foringjans) UIP
4. 7 2 Ungfrúin góðo og húsið Umbi/Pegasus
5. 4 6 Big Daddy (Stóri pabbi) Columbia TrFStar
6. l 3 Eyes Wide Shut (Gallokuð augu) Warner Bros
7. 5 4 Inspedor Gadget (Vel búna rannsóknarlöggan) Walt Disney Production
8. NÝ - Rugrats (Motturottur) UIP
9. 9 8 Star Wars Episode One (Stjömustríð l. hluti) Fox
10. 10 2 Prince Valiant Indie
II. 3 2 Killing Mrs. Tingle (Drepum frú Tingle) Miramox
12. 8 5 Analyze This (Sólgreindu þetta) Warner Bros
13. 6 2 The Out of Towners (Farin í fríið) UIP
14. ll 10 Notting Hill Working Titfe Film
15. NÝ - Nðr mor kommer hjem (Þegor mamma kemur heim) All Right Film
16. 14 8 All about my Mother (Allt um móður míno) G2
17. 13 2 Mifune (Síðasti söngur) Nimbus
18. 28 7 Idle Hands (Lator hendur) Columbio Tri-Star
19. 27 15 The Matrix (Draumaheimurinn) Warner Bros
20. 21 13 The Mummy (Múmían) UIP
xrtoc
Sýningarstaður
Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja bíó Ak„ Nýja bíó Kef„ Stjörnubíó
Laugarósbíó, Regnboginn, Borgorbíó Akureyri
Hóskólabíó, Laugarósbíó
Hóskólabíó, Nýja bíó Akureyri
Síjörnubíó, Bíóhöllin, Borgorbíó Akureyri, Bíóhöllin Akranesi
Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin, Nýja
Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja bíó Akureyri,
Hóskólabíó
Regnboginn, Bíóhöllin
Biohöllin
Regnboginn
i, Kringlubíó
Hóskólabíó, Höfn
Hóskólabíó
Hóskólabíó
Hóskólabíó
Borgarbíó Akureyri
Egilsstaðir
b . i a i m b » i rnMxinjjJiD
Frábærir
amkvæmiskjólar
og dragtir
til sölu eða leigu,
í öllum stærðum.
Ath! eitt í nr.
Fataleiga
Garðabæjar
\ Sími 565 6680
Opið 9-16, lau. 10-12
Hattar, húfur,
ALPAHÚFUR,
2 STÆRÐIR.
\c#HH5IÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kastala-
hófVil-
hjálms
VILHJÁLMUR Bretaprins hefur
boðið nokkrum íðilfögrum stúlk-
um í árþúsundafögnuð sinn í
Windsor-kastala í grennd við
London, að því er slúðurblaðið
Sun greindi frá á þriðjudag. Kom
fram að Elísabet Bretadrottning
hefði gefið 17 ára sonarsyni sín-
um leyfí til þess að halda gleð-
skap í kastalanum sem er nærri
Eton-framhaldsskólanum þar
sem hann stundar nám. Segir í
blaðinu að Vilhjálmur, elsti sonur
krónprinsins Karls og Díönu
prinsessu, hafi Iofað vinum sínum
minnisstæðu kvöldi. „Hann ætlar
að sjálfur að sjá um skipulagn-
ingrina og hefur boðið félögum
sínum að gista í herbergjum
kastalans," sagði heimildarmað-
ur blaðsins og bætti við: „Ég ef-
ast um að það verði mikið sofið
um nóttina."
Listin við
Barbie
HÁLFT hundrað listamanna á
borð við Stellu McCartney, Paul
Smith, Palomu Picasso og Rachel
Whiteread hefur ákveðið að taka
þátt í fertugsafmælisfögnuði Bar-
bie í desember. Listamenn, ljós-
myndarar og myndhöggvarar
munu túlka hana í verkum sínum
og tískuhönnuðir munu skapa og
klæða sína eigin Barbie í fuM
stærð og dúkkustærð. „Listin við
Barbie" er yfirskrift uppákomunn-
ar sem ætlað er að sýna hvers virði
hún er fyrir lista- og tískuheiminn.
Tískuhönnuðir á borð við Jean
Paul Gaultier, Prödu og Versace og
listamenn í líkingu við David
Bailey, Fionu Rae og Marc Quinn
hafa einnig meldað sig. Ellen Von
Unwerth myndar fyrirsætuna
Claudiu Schiffer sem lifandi eftir-
mynd sinnar Barbie á meðan Chris
Levine notar leysigeisla til að end-
urskapa sína. Állt verður þetta af-
hjúpað í Náttúrusögusafninu í
London 1. desember, á alþjóðlega
alnæmisdaginn, og verður til sýnis
fyrir almenning þangað til munirn-
ir verða boðnir upp. Ágóðinn renn-
ur til Alnæmisstofnunar Eltons
Johns.
Haukur Hrafnsson, leikstjóri og aðalleikari (Ó)eðlis.
Morgunblaðið/Þorkell
Yfírlýsing í
húðflúrinu
„HUGMYNDIN að sögunni kvikn-
aði bara eitt kvöldið," segir Hauk-
ur M. Hrafnsson sem gerði kvik-
myndina (Ó)eðli. Hún var frum-
sýnd í Háskólabíói í sumar og kom
út á myndbandi í viku liðinni.
Fjallar myndin um strák sem
kærastan hefur yfirgefið og hann
leitar hefnda; koma ást, svik, af-
brýði, eiturlyf og ofbeldi við sögu.
„Þetta þróaðist úr stuttsögu í
handrit þegar ég og kærastan mín
hættum saman og ég fór á sjó í
smátíma. Þá hugsaði ég allt, gott
og illt, og handritið er ávöxturinn
af því; það byggist þó auðvitað
ekki á sönnum atburðum heldur er
uppspuni af minni hálfu. Aðalatrið-
ið var að búa til góða sögu.“
Myndin er í fullri lengd en kost-
aði aðeins tvær og hálfa milljón, að
sögn Hauks, sem fer sjálfur með
aðalhlutvei’kið og fékk vini sína í
aukahlutverkin. „Ég komst einnig
upp með að taka hana ekki upp á
filmu sem er höfuðatriði.“ Hann
segist ekki ætla að gera meira með
þessa mynd í bili; nú stefni hann á
að senda inn handrit að annarri
mynd til Kvikmyndasjóðs og svo
sé hann líka að reyna að fá sjón-
varpsþætti framleidda.
Undir áhrifum Triers
(Ó)eðli er fyi’sta mynd Hauks og
einnig kvikmyndatökumannsins
Hákons Sverrissonar og segjast
þeir hafa orðið fyrir áhrifum frá
Thomas Vinterberg og Lars Von
Trier. Þeir ætla þó ekki að fá hana
samþykkta sem dogma-mynd. „Til
þess þurftum við að brjóta heldur
margar reglur. En það var samt
gaman að sjá að við uppfyllum þær
flestar nema hvað við erum ekki
með tónlist sem leikin er á staðn-
um, beitum sumpai’t lýsingu, not-
um gerviblóð og svo sést byssa í
tvær sekúndur. Við vorum ekkert
að reyna að gera dogma-mynd
heldur lögðum áherslu á að láta
líta út fyrir að um heimaupptökur
væri að ræða.
Óvænt endalok
Ef mai’ka má veruleika myndar-
innar getur lífið verið harðneskju-
legt. „Þetta er hálfmisheppnaður
persónuleiki," segir Haukur.
„Hann telur sig vera mikinn kall
sem er með allt á hreinu en er
langt leiddur í neyslu og eigin
hugsunum. Þetta gæti vel verið ís-
lenskur veruleiki í einhverjum til-
fellum." Að sögn Hauks gerði hann
allt sem hann gat til þess að búa til
óvænt endalok „og ég held að mér
hafi tekist það ágætlega".
Það fóru ekki margir á myndina
þegar hún var sýnd í bíói, segir
Haukur. „Flestir gagnrýnenda og
þeirra sem hafa orðið á vegi mín-
úm vora ánægðir með myndina.
Ég bjóst ekki við að myndin félli í
kramið hjá eldra fólki en það virt-
ist taka þessu vel. Myndbandaleig-
urnar era aftur á móti hræddar við
að kaupa myndbandið því það fær
litla umfjöllun og ég hef ekki efni á
auglýsingaherferð." Þótt Haukur
segist hafa uppgötvað sjálfan sig
sem leikara í myndinni ætlar hann
að einbeita sér að leikstjórn í
framtíðinni. „Húðflúrið á hnakkan-
um [sem hann fær sér í einu atrið-
inu] var yfírlýsing um að ég ætla
ekki að leika meira.“
Islenska myndin (O)eðli á myndbandi
Stutt
Mörkinni 6, s. 588 5518.