Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndaver á Flateyri
* Tilbúin gull
allt í kring
*
Við upptökur kvikmyndarinnar I faðmi
hafsins eftir Jóakim Reynisson og
Lýð Árnason þjónuðu Flateyrarbær og
nágrenni hans sem eitt allsherjar
kvikmyndaver. Egill Egilsson
fylgdist grannt með.
TIGNARLEG og há fjöllin skapa
umgjörð þessa litla þorps úti við
ysta sæ, þar sem lágreist en litrík
húsin bjóða ævintýramenn að sunn-
an velkomna, og fólkið opnar heimili
sín af mikilli gestrisni.
Upptökurnar stóðu yfír á Flat-
eyri við Önundarfjörð í nokkrar vik-
ur í sumar, auk nokkurra daga fyrir
} og eftir seinustu áramót.
„Pað var algjörlega ómetanlegt
hvernig fólkið í bænum brást fljótt
við þeim vandamálum sem upp
komu,“ segir Kristrún Lind Birgis-
dóttir framkvæmdastjóri kvik-
myndarinnar. „Og allir voru til í að
hlaupa undir bagga með nánast
hvað sem var.“
-Þannig að bæjarbúar þjónuðu
sem meira en aukaleikarar?
„Miklu meira. Þeir hjálpuðu til
við leikmyndina, lánuðu fullt af hlut-
- um og leystu ýmis mál, eins og að
búa til snjókomu. Það vissu allir í
þorpinu hvað var í gangi og fólk
sameinaðist um að aðstoða okkur.
Fólk vissi líka að ekki voru miklir
peningar í verkefninu, og gerði sér
grein fyrir því að það gæti breytt
svo miklu með svo litlu framlagi.
Við urðum öll eins og ein stór fjöl-
skylda.“
Brúðkaup í bæ
Sagan segir frá ungum skipstjóra
sem gengur að eiga unnustu sína en
hún hverfur á brúðkaupsnóttina og
skilur aðeins eftir sig brúðarkjólinn.
Handritið skrifuðu þeir Jóakim og
Lýður ásamt Hildi Jóhannesdóttur.
Með helstu hlutverk fara Hinrik
* Ólafsson, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Hilmar Jónsson, Sóley Elíasdóttir,
Halla Margrét Jóhannesdóttir, Sig-
rún Gerða Gísladóttir, Sigurður Hall-
marsson og Sigurður Kristjánsson.
Þá daga sem blaðamaður Morgun-
blaðsins íylgdist með upptökunum,
voru auk leikara mættir á tökustað
allmargir Flateyringar í sínu fínasta
pússi því nú skyldi gefa saman út-
gerðarmanninn Valda og unnustu
hans. Leikmyndadeildin skellir upp
nýrri altaristöflu, stráir blómum um
ganga, fólki er raðað í kirkjuna og
þegar allir eru komnir á sinn stað
hefjast upptökur. Að ganga til kirkju
og úr kirkju, gifta, henda blómum,
allt tekur það sinn tíma og það er
ekki oft sem brúðkaupsgestir sitja í
kirkjunni í átta klukkustundir, en
það gerðu Flateyringar með bros á
vör þó sumum hafí verið orðið heitt í
kinnum af sterkum ljósunum sem
Guðmundur Bjartmarsson tökumað-
ur og hans menn höfðu sett upp.
Óskadraumur leikarans
Það er Hinrik Ólafsson sem leik-
ur brúðgumann. „Já, ég leik Valdi-
mar, stórhuga íslenskan sjómann,
son þorpsins sem tekur við útgerð-
inni og er kjölfestan í atvinnulífínu.
Handritið heillaði mig við fyrsta
lestur, og ég ákvað strax að leika í
myndinni sem ég hef ekki séð eftir.
Þau Hildur, Lýður og Jóakim eru
nefnilega svo hugmyndarík og
framtakssöm að maður hrífst með.
Og hér getur maður einbeitt sér að
hlutverkinu. Þetta er óskadraumur
leikarans að fara á einhvem afvik-
inn stað, vera þar og ekki hugsa um
neitt annað á meðan á því stendur.
Og með því að fylgjast með
trilluköllunum fara út og koma inn
síðdegis fær maður efnivið í per-
sónuna sína. Það besta af öllu er
að maður fellur strax inn í bæjar-
braginn, verður eins og allir hin-
ir. Hér er gott að vera.“
-Hvernig gengur að vinna
undir stjórn Lýðs og Jóakims?
„Það hefur gengið alveg ótrú-
lega vel, þeir eru kröfuharðir
enda kynnt sér leikstjórn, bæði
í viðræðum við leikstjóra og
leikara. Og þetta er ekki þeirra
fyrsta mynd svo reynslan hefur
einnig kennt þeim ýmislegt. Við
tökur á þessari mynd eru allar góð-
ar hugmyndir reyndar á tökustað
en ekki fyrirfram afskrifaðar. Þetta
fær maður ekki alltaf að gera ann-
ars staðar.“
Reynslunni ríkari af Flateyri
„Eg leik Unni, og ég er örlaga-
valdur. Best er að segja ekki
meira,“ segir Margrét Vilhjálms-
dóttir sem leikur brúðina í fallega
brúðarkjólnum alsettum skeljum.
„Mér til mikillar gleði þá fann ég
héma á Flateyri stíg sem heitir
Unnarstígur, og komst að því að
Lýður, Jóakim og Hildur hafa tengt
nöfn sögupersónanna við hafíð,
enda er myndin um fólk sem býr við
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Margrét Vilhjálmsdóttir og Hinrik Ólafsson í hlutverkum Unnar og
Valdimars gefin saman af Einari Oddi Kristjánssyni.
Valdi
Umar 0g bróðir han«
sjomn
þar sem sjórinn gefur og tek-
ur, og það er mikið brim í henni.
Annars finnst mér alveg frábært að
fá tækifæri til að leika í þessari
mynd, því þetta er fyrsta bíómyndin
sem ég leik í, og það er allt öðravísi
að leika í bíómynd en á sviði. Eg lék
örlítið hlutverk í íslenskri sjón-
varpsmynd, eiginlega örsmátt.
Reynsla mín af kvikmyndaleik er
því örsmá. Eg hef verið lánsöm að
leika í mörgum góðum stykkjum og
nú seinast í Sjálfstæðu fólki og er að
æfa aðalhlutverkið í Krítarhringum
frá Kákasus eftir Bertolt Brecht.
Þar að auki hef ég leikið Línu
Langsokk. Eg uppgvötaði eftir að
ég lék í Hárinu og Línu Langsokk
að minn aðalaðdáendahópur er á
milli þriggja og fimm ára. Eg kann
'arsonar.
hafa Jent í
best við þann
hóp, alveg prýðis hópur. Þetta er
nefnilega kröfuhai't og vinsamlegt
fólk.“
- Er þetta í fyrsta skipti sem þú
kemur til Flateyrar?
„Nei ég kom hingað fyrst fyrir
sex áram með Sniglabandið sem
átti að spila, en vildi endilega bjóða
upp á sýningu með Vatnadans-
meyjafélaginu Hrafnhildi, sem var
skipað nokkrum bekkjarsystram
mínum úr Leiklistarskólanum. Við
vorum svo auglýstar sem nekta-
dansmeyjar án þess að vita það, svo
húsið troðfylltist og allir voða
spenntir eftir að við færam úr fót-
unum. Við fluttum hins vegar okkar
undarlega og skemmtilega atriði
sem er sambland af ungmennafé-
lagsanda og skrautsýningu með
ljóðdansi. Vonbrigðin urðu mikil
þegar sýningunni lauk, fiestir vildu
fá endurgreitt enda engin nekt í
boði.“
Gullin hjörð snillinga
„Eg heiti Gabríela eða öðra nafni
Gabba Kan. Og ég tók það nafn upp
til að fá aukaorku. Ég kem úr öllum
áttum, að norðan og að vestan og ég
eyddi öllum mínum æskusumrum
inni í Hnífsdal. Afí minn Jóakim
Pálsson var útgerðarmaður í þar og
gerði ásamt fleiram út skipið Pál
Pálsson sem nefndur var eftir
langafa mínum. Annars er ég lítið
gefin fyrir svona ættarfróðleik.
Ég er myndlistarmaður og þetta
er í fyrsta sinn sem ég vinn með
svona hressilegu og skemmtilegu
kvikmyndaliði sem er allt sannkall-
að fagfólk úr ýmsum fögum, fjar-
skiptaverkfræðingur, læknir, tón-
listargúra, húsasmiður og leikarar í
gæðaklassa."
- Færðu frjálsar hendur með
leikmyndina?
„Ég er náttúralega í stöðugu
krónísku sambandi við leikstjórana
og þessa gullnu hjörð snillinga sem
fylgir þeim. Við ræðum málin, en ég
fer mínar leiðir við að túlka persón-
urnar sem eiga að koma fram í
myndinni, þá á ég við munina sem
þeir hafa í kringum sig, bæði
skreytingar og annað. Ég hef lagt
áherslu á að hver manneskja hafi
ákveðna hluti. Ég hef ekki þurft að
fara í nein söfn, öll þessi tilbúnu gull
liggja hér í kring.“
-Heldurðu að þú leggir þetta
fyrirþig?
„Ég veit ekkert um það, ég er
með svo lítinn heila að það rúmast
lítið í honum varðandi framtíð-
arplön. Annars er fólk númer eitt í
mínu lífi; ef það er skemmtilegt fólk
og gott, þá er mér nákvæmlega
sama hvaða verkefni ég vinn með
því. Einhver mjög andlegur maður
sagði femt skipta máli í lífinu. Fyrst
væri það góð heilsa, þá innri ró,
þriðja væri góðir félagar og fjórða
væri peningar. Þeir era líka nauð-
synlegir.“
- Hvernig er samstarfið við Lýð
ogJóakim?
„Það er frábært. Þeir era nefni-
lega eins og listamenn eiga að vera,
þeir fá frábæra hugmynd, fram-
kvæma hana og era ekki að hugsa
um ómöguleikann hverju sinni, því
slíkt heftir orkuna.
- Hvers vegna varst þú valin sem
leikmyndahönnuður?
„Ég er skyld Jóakim Reynissyni
leikstjóra, hann er hálfbróðir minn.
Þetta er ekkert annað en augljós
klíkuskapur. Þegar ég las handritið
á sínum tíma fékk ég þessa sterku
löngun til að fara með honum og
ráðskast með gerð myndarinnar.
Þær era ófáar stundirnar sem við
Jóakim höfum eytt saman við að
bollaleggja ýmsa hluti og rætt út í
það óendanlega um kvikmyndir og
bækur. Það var því sjálfgefið að ég
yrði með.“
- Hvað er framundan hjá þér í
myndlistinni?
„Ég held bara áfram að
þrjóskast. Annars finnst mér þetta
vera jafngóð myndlist og hvað ann-
að í lífinu.“
Jóakim leikstjóri gefur fyrirskipanir á tökustað,
Lýður leikstjóri stjórnar brúðkaupsvcislu með styrkri hendi.