Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 64
J*
Heimavörn
SECURITAS
Sími: 580 7000
Drögum næst
12. okt.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MOBGVNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍM15691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKMFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKJJREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
ff *
Enn lækkar
verð á gærum
HORFUR eru á að í haust fáist
aðeins 40-100 krónur fyrir hverja
gæru að sögn Aðalsteins Jónsson-
ar, formann.s Landssamtaka
sauðfjárbænda, en árið 1997
fengu bændur um 650 krónur fyr-
ir hverja gæru og sl. haust voru
greiddar 250 krónur.
Aðalsteinn segist engu að síður
vera vongóður um að gærur muni
hækka í verði því á loðskinnaupp-
boði sem haldið var í Kaup-
mannahöfn í byrjun september
hafi verðið hækkað um allt að
60%. Hagur sauðfjárbænda hefur
farið versnandi á undanfomum ár-
um með minnkandi neyslu á kinda-
kjöti innanlands en í ár er gert ráð
fyrir um 200-300 tonna aukningu
miðað við sl. ár og er bændum gert
að selja 25% af þessa árs fram-
leiðslu á erlendum mörkuðum.
■ Lausn/34
Halli stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík bitnar á þjónustunni
Spara á tæplega 250
milljónir til áramóta
STJÓRNIR sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa gripið til margvíslegra að-
gerða vegna rekstrarvandans sem við blasir, en á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
vantar á þessu ári um 620 milljónir króna og 750 milljónir á Landspítala.
Við þessar tölur bætast um 400 milljónir sem áætlað er að breytingar
vegna vinnutímatilskipunar ESB kosti spítalana, en nokkur óvissa er þó
enn um þá upphæð. Stjómir spítalanna ráðgera að spara um 250 milljónir
króna til áramóta, m.a. með því að skerða þjónustuna.
Könnun meðal
iðnverkakvenna
Há tíðni
lungna-
krabba-
meins
LUNGNAKRABBAMEIN er tíðara
meðal iðnverkakvenna en annarra og
,^r|saina má segja um krabbamein í leg-
hálsi. Ymis önnur krabbamein, t.d. í
ristli, þvagblöðru, heila, bandvef og í
blóðfrumnamyndandi kerfí voru
einnig tíðari meðal iðnverkakvenna
en þær niðurstöður voru ekki töl-
fræðilega marktækar.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar
Hólmfríðar K. Gunnarsdóttur og Vil-
hjálms Rafnssonar sem gerð er
grein fyrir í nýjasta hefti Lækna-
blaðsins. Rannsóknin náði til 13.934
kvenna, sem greiddu í lífeyrissjóð fé-
lags verksmiðjufólks í Reykjavík frá
1970-1997.
„Krabbameinsmynstrið í hópnum
bendir til lagskiptingar í íslensku
þjóðfélagi eins og annars staðar hef-
ur sést. Krabbamein í lungum og
^leghálsi voru tíðari í rannsóknar-
hópnum en meðal annarra íslenskra
kvenna. Brjóstakrabbamein var á
hinn bóginn ekki fátítt eins og oft
hefur sést meðal ófaglærðra lág-
launakvenna," segir í greininni.
„Þótt aðalmarkmið rannsóknarinnar
hafí verið að kanna krabbameins-
mynstur kvenna í þessum þjóðfé-
lagshópi verður ekki framhjá því lit-
ið að ýmis áreiti í vinnuumhverfi iðn-
verkakvenna gætu stuðlað að tilurð
krabbameina i hópnum,“ segir enn-
fremur. Þá segir að vitað sé að reyk-
ingar séu algengai-i meðal þeirra
sem hafa litla skólagöngu að baki en
annarra. Ætla megi að iðnverkakon-
ur séu upp til hópa í þeim hópi. „Há
tíðni lungnakrabbameins kemur því
' 'ekki á óvart en hvort reykingar
skýra útkomuna að öllu leyti skal
ósagt látið,“ segir í greininni.
----------------------
83% vinnu-
lyftna án leið-
beininga
vinnulyftna hér á landi hafa
ekki leiðbeiningar á íslensku og leið-
beiningarmerki vantai- í 73% vinnu-
^yftna. Alls voru gerðar alvai’legar
' athugasemdir við fimmtu hverja
vinnulyftu hér á landi.
Þetta kom fram í skoðunarátaki
sem gert var samtímis á öllum Norð-
urlöndum og Vinnueftirlitið tók þátt
í hérlendis. Vinnulyftur eru mikið
notaðar við byggingaframkvæmdir,
•júsamálun, gluggaviðgerðir og fleira
JRg fer vinnan gjarnan fram í mikilli
hæð. Skoðaðar voru 154 lyftur hér á
landi.
Morgunblaðið/Júlíus
2.000 rúmmetrar
bjargs sprengdir
„ÞAÐ verður aðallega mikill há-
vaði sem kveður við þegar haftið
splundrast vegna alls þess
sprengiefnis sem verið er að
klára að troða í allar þær holur
sem búið er að bora marga
metra niður í haftið,“ sagði Torfi
Ólafsson, eftirlitsverkfræðingur
við Sultartangavirkjun, þegar
fulltrúar Morgunblaðsins höfðu
þar viðdvöl í gær.
Sprengiefnasérfræðingar voru
þá að leggja lokahönd á að bora
sprengiholur í bergstallinn milli
lónsins og inntaksmannvirkisins.
Síðasta haftið milli Sultartanga-
lóns og ganganna, sem vatnið
verður Ieitt um að virkjuninni,
verður sprengt í dag ef allt
gengur að óskum. Að sögn Torfa
eru um tvö þúsund rúmmetrar
klappar í haftinu sem mun kurl-
ast við sprenginguna.
Með Sultartangavirkjun er
virkjað fall Þjórsár milli Sultar-
tangalóns og Búrfellsvirkjunar.
Frá inntaksmannvirlqum við
lónið er vatnið Ieitt um 12 metra
há og 3,4 km löng göng niður að
virkjun, en þar knýr það tvær
60 megavatta túrbínur þegar
virkjun verður komin í full af-
köst.
„Megnið af Þjórsá fer í gegn-
um túrbínurnar tvær, og síðar
rennur vatnið héðan niður í
gegnum Búrfellsvirkjun. Það er
margbúið að vinda allan mátt úr
henni þegar hún rennur þar út,“
sagði Torfi.
Ráðgert er að hleypa vatni á
fyrri rafhverfil Sultartangavirkj-
unar 18. október næstkomandi
en áætlað er að raforkufram-
leiðsla hefjist í henni 15. nóvem-
ber.
Magnús Pétursson, forstjóri rík-
isspítalanna, segir sumt af þeim að-
gerðum sem grípa á til vegna
sparnaðar á næstu mánuðum koma
illa við starfsemina, til dæmis á al-
mennum skurðstofum beggja
sjúkrahúsanna og að biðlistar
kunni að lengjast í sumum tilvik-
um. Landlæknir hefur óskað eftir
upplýsingum um hvaða áhrif
rekstrarerfiðleikarnir kunni að
hafa á þjónustu við sjúklinga.
Magnús segir að honum verði svar-
að í næsta mánuði.
Stjórn Ríkisspítala telur að
spara megi um 180 milljónir fram
að næstu áramótum og á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur er áætlað að
spara um 62 milljónir. A báðum
sjúkrahúsunum verða til dæmis að-
eins fjórar af sex skurðstofum í
notkun næstu mánuði eins og verið
hefur undanfarið vegna sumarlok-
ana og vegna þess að hjúkrunar-
fræðinga hefur vantað.
Á Landspítalanum er almennur
rekstrarvandi upp á 440 milljónir
króna og er uppsafnaður vandi
vegna fyrri ára alls 315 milljónir
króna. Nauðsynlegt hefur reynst
að stofna til útgjalda vegna sér-
greindra málefna sem nema alls
310 mOljónum króna. Þá kostar ný
vinnutímatilskipun ESB spítalann
líklega um 270 mOljónir króna.
Aðhald með nýráðningum
og yfirvinnu
Dæmi um sparnað á Landspítal-
anum segir Magnús meðal annars
vera að legudeild 11E verður
áfram rekin með handlækninga-
deild 11G eins og vei-ið hefur og
sparast þar um 40 milljónir króna.
Ekki verður ráðist í frekari við-
haldsverkefni á spítalanum í haust
vegna þenslu á vinnumarkaði og
eiga þannig að sparast um 30 millj-
ónir króna. Af þeim sökum er ýms-
um verkefnum frestað, m.a. inn-
réttingu á nýrri einingu á kvenna-
defld sem kölluð hefur verið með-
ganga, fæðing, sængurlega og inn-
réttingu á lungnarannsóknastofu.
Þá verða eignakaupum settar mjög
þröngar skorður að sögn Magnús-
ar, aðhald með nýráðningum verð-
ur aukið svo og aðhald vegna yfír-
vinnu.
Reynt að skerða ekki
bráðaþjónustu
Á SHR er almennur rekstrar-
vandi að upphæð 320 milljónir
króna en frá áramótum til ágúst-
loka var hann orðinn 220 milljónir.
Þar vantar einnig 300 milljónir í
sértæk málefni og um 150 milljónir
til að mæta ákvæðum vinnutímatil-
skipunar ESB. Áætlað er að spara
um 62 milljónir á SHR næstu mán-
uði og segir Magnús því verða náð
með frestún tækjakaupa og skerð-
ingu á ýmsum þáttum í starfsem-
inni. Hann segir að reynt verði þó
að gæta þess að skerðingin rýri
ekki bráðaþjónustu sjúkrahússins
við landsmenn. Ætlunin er að
spara um 20 milljónir á rekstrar-
og tæknisviði SHR m.a. með því að
draga úr yfirvinnu, hagræða 1 eld-
húsi, hækka matarverð til sam-
ræmis við verðlagshækkanir og
draga saman í starfsmannahaldi. Á
lyflækningasviði verður fyrir-
komulag vinnu á barnadeild end-
urskoðað í þeim tflgangi að draga
úr yfirvinnu, sömuleiðis vinnufyr-
irkomulag lækna með tilliti til
vinnutímatilskipunar ESB og á
endurhæfingar- og taugasviði
verður dregið úr valinnlögnum.
SIF semur við
Wal-Mart-keðjuna
SlF hefur samið við bandarísku
verslunarkeðjuna Wal-Mart í
Bandaríkjunum um þjónustu og
vöruúrval, sem getur hentað öllum
markaðssvæðum bandarísku keðj-
unnar. Wal-Mart í Brasilíu hefur
keypt um 100 tonn af saltfiski frá
SÍF á ári en SÍF hefur haft áhuga
á að færa enn út kvíarnar á mark-
aðnum vestan hafs og hafði því
samband við höfuðstöðvar Wal-
Mart með þeim árangri að samn-
ingar hafa tekist um aukna sam-
vinnu.
Wal-Mart er stærsta verslunar-
keðja heims en hagkvæmt inn-
kaupa- og dreifingarkerfi gerir það
að verkum að hún getur boðið upp
á lágt verð. Fyrir tæplega tveimur
árum keypti fyrirtækið þýsku
verslunarkeðjuna Wertkauf með
21 verslun og bætti 74 verslunum í
Þýskalandi við skömmu fýrir liðin
áramót með kaupum af Spar
Handels. Wal-Mart er með 15%
markaðshlutdeild á þýska mark-
aðnum og er fjórði stærsti smásal-
inn. Um miðjan júní sl. var kauptil-
boði Wal-Mart í ASDA, stærstu
verslunarkeðju Bretlands, tekið og
eftir yfirtökuna er keðjan með um
4.000 verslanir.
„I rauninni er SIF eina íyrirtæk-
ið vestan hafs sem getur boðið aflt
sem Wal-Mart þarf varðandi þjón-
ustustig og vörubreidd," segir Olaf-
ur Þorsteinsson, markaðs- og sölu-
stjóri Sans Souci Seafood, dóttur-
fyrirtækis SIF í Kanada, en hann
hefur staðið í viðræðunum við
stjómendur Wal-Mart í Bandaríkj-
unum. „Viðræðumar hafa skilað sér
í samningum en um er að ræða salt-
aðan, þurrkaðan fisk í neytendaum-
búðum og eins í umbúðum fyrir sölu
í afgreiðsluborði þai- sem neytand-
inn velur sér sjálfur og fær vörana
vigtaða. Síðan erum við að þróa fyr-
ir þá vörulínu í neytendaumbúðum
sem fellur mjög vel að þeirra þörf-
um og vonandi byrjum við að vinna
með hana seinna í vetur.“
■ Aukið samstarf/Bl