Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 2

Morgunblaðið - 23.12.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tekjur kvenna hækka meira ATVINNUTEKJUR kvenna hafa hækkað meira en tekjur karla á undanförnum árum sé stuðst við athuganir á skattframtölum. Til dæmis hækkuðu tekjur kvenna á milli ára 1997 og 1998 um 12,4% að meðaltali en tekjur karla ekki nema um 11%. Þessar upplýsingar er að finna í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar en þar kemur jafnframt fram að at- vinnutekjur kvenna hafi hækkað um 48% frá 1991 til 1998 en tekjur karla aðeins um 39%. Tekjur giftra kvenna hafa hækk- að meira en einhleypra og tekjur eldri kvenna meira en yngri. Segir í Hagvísum að líklega megi rekja þessa þróun til aukinnar atvinnu- þátttöku kvenna og lengri vinnu- tíma þeirra. Þá hafi „hefðbundnar kvennastéttir", þ.e. hjúkrunar- fræðingar og kennarar, fengið kjarabætur umfram aðrar að und- anförnu. Fram kemur hins vegar að þrátt fyrir að tekjur kvenna hafi hækk- að meira en tekjur karla þá séu meðalatvinnutekjur þeirra aðeins 52,9% af tekjum karla. Meðalat- vinnutekjur karla hafi numið 2.176 þús. kr. árið 1998 en aðeins ríflega 10% kvenna hafi náð þeim tekjum. Nöturleg aðkoma að íbúðinni sem stórskemmdist í bruna á Akureyri „Ætla að byggj a heimili mitt upp aftura „ÉG ætla að byggja heimili mitt upp og flytja hingað inn sem fyrst aftur ásamt sonum mínum,“ sagði Þóra Ilrafnsdóttir, eigandi íbúðarinnar við Tjarnarlund á Akureyri, sem nánast eyðilagðist í eldi sl. þriðju- dag. Þóra var ásamt sonum sínum tveimur, Guðbimi og Þorvaldi, og vinum og vandamönnum að hreinsa til í íbúðinni í gær. Óhætt er að segja að aðkoman sé nöturleg, enda er nánast ailt innbú ónýtt eftir brunann og mikið af persónulegum munum. Fjölskyldan var ekki heima er eldurinn kom upp, en talið er að kviknað hafi í út frá kertaskreytingu. Aðkoman á bruna- stað var Þóru það erfið að hún treysti sér ekki til að stíga út úr bfl sínum fyrir utan húsið. „Ég fór beint niður á sjúkrahús þar sem við öll þrjú fengum áfallahjálp og það var alveg yndislegt. Ég er farin að átta mig á því sem gerðist og trúlega hef- ur verið skilið eftir logandi kerti á baðinu, sem er allt of algengt víða á þessum árstíma og ég ekki heima til að tryggja að slökkt væri á kertum." Þóra sagði að það hefði reynst sonum sínum erfitt að missa nag- grísinn sinn, sem var í íbúðinni er eldurinn kom upp. Hún sagði að búið hefði verið að undirbúa hana áður en hún kom inn í íbúðina, „en ég gjörsamlega fraus þegar ég kom hingað inn. Og ég er enn hálffrosin yfir þessu og er hrædd um að ég eigi eftir að taka þetta út. Það er hins vegar alveg Ijóst að ég held ekki jól- in í íbúðinni." Margir vilja hjálpa íjölskyldunni Þóra sagðist vera með heimilis- tryggingu upp á tvær milljónir króna en að hún nægði ekki fyrir tjóninu. „Mér er sagt að ég fái íbúð- ina aftur þegar búið verður að gera hana upp og ég ætla að flytja hingað aftur sem fyrst. Hér er gott að búa, ég á yndislega nágranna og ég vil bara fá mitt heimili aftur.“ Margir hafa boðist til að leggja Þóru lið á einn eða annan hátt. Nágrannakona hennar sem varð vitni að brunanum keypti sængur og sængurver handa strákunum. Bóka- búð Jónasar sendi þeim nýjar skóla- töskur, KA ætlar að færaþeim KA- galla og Sundfélagið Óðinn sund- skýlur. Þá eru pakkar með notuðum Morgunblaðið/Kristján Þóra Hrafnsdóttir með sonum sfnum Guðbimi og Þorvaldi í íbúð fjöl- skyldunnar sem stórskemmdist í bruna á þriðjdag. fötum á leiðinni að sunnan, auk þess sem staðið var fyrir söfnun til handa fjölskyklunni í úfyarpinu, svo eitt- hvað sé nefnt. „Ég er umvafin góðu fólki, ekki bara mfnu fólki, heldur fólki alls staðar." Skemmdir í íbúðinni á móti Húsnæðisskrifstofan á Akureyri bauð fjölskyldunni íbúð úti í Skarðs- hlíð og kunningi fjölskyldunnar bauðst til að flylja út úr sinni íbúð fyrir hana. „Ég reikna því með að geta komist í aðra íbúð fljótlega." Éinnig urðu töluverðar skemmdir af reyk í ibúðinni andspænis íbúð Þóru, svo og í stigagangi. Hurðin imi í íbúð þeirra Herdísar Ólafs- dóttur og Torfa Sverrissonar var brotin upp og þar var aðkoman slæm. Herdís var í gær að taka niður gardínur og hreinsa skápa, auk þess sem skemmdir urðu á teppum. „Ég var loksins búin að þrífa tímanlega fyrir jól og það er alveg ömurlegt að lenda í þessu,“ sagði Herdís. RARIK kaupir dreifíkerfí Rafveitu Hveragerðis Á FUNDI bæjaryfirvalda í Hvera- í yfirlýsingu frá Hálfdáni gerði og RARIK í gær var gengið frá Kristjánssyni, bæjarstjóra í Hvera- sölu á dreifikerfi rafveitu bæjarins gerði, og Kristjáni Jónssyni, sem er til RARIK. Kaupverð er 215 milljón- forstjóri RARIK, kemur fram að ir króna og greiðist upphæðin við af- verðskrá verði óbreytt í fyrstu en hendingu, sem fer fram 1. janúar • muni síðar aðlagast verðskrá næstkomandi. RARIK. Morgunblaðið/Þorkell Bækur í jóla- pakkann ÞAÐ er mikill handagangur f öskjunni fbókabúðum Iandsins um þessar mundir eins og hér sést. Þessi stúlka er fótgönguliði í því mikla verðstríði á bókamarkaðnum sem er skollið á. Keppast hefð- bundnar bókaverslanir og stór- markaðir um athygli bókakaup- enda nú si'ðustu dagana fyrir jól. Tveir af hverjum þremur styðja ríkis- stjórnina samkvæmt könnun Gallups Vinstri græn- ir orðnir næststærstir VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð er næststærsta stjórnmála- aflið á eftir Sjálfstæðisflokknum ef marka má niðurstöðu skoðanakönn- unar Gallups á fylgi stjórnmálaflokk- anna. Hún var gerð dagana 21. nó- vember til 6. desember sl. Samkvæmt könnuninni fá Vinstri grænir meira en fimmtungs fylgi eða 20,5%, og bæta við sig meira en fimm prósentustigum frá sambærilegri könnun Gallups frá því í október/- nóvember sl. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú 46,8% fylgi samkvæmt könnuninni, litlu minna en í síðustu könnun en þá mældist fylgið 47,4%. Þá hefur Frjálslyndi flokkurinn nú 3% fylgi sem er heldur meira en í síðustu könnun er hann mældist með 0,8% fylgi. Samfylkingin og Framsóknar- flokkurinn hafa á hinn bóginn tapað fylgi frá síðustu skoðanakönnun. Samfylkingin fer úr rúmlega 19% fylgi niður í rúmlega 14% fylgi og Framsóknarflokkurinn fer úr 17,5% fylgi niður í tæplega fjórtán prós- enta fylgi. Um 17% voru óákveðin eða neit- uðu að svai'a, en 5% kváðust ekki myndu kjósa eða skila auðu. Stuðningur við ríkis- stjórnina mikill Samkvæmt könnuninni er stuðn- ingur við ríkisstjórnina enn mikill þar sem tveir af hverjum þremur styðja stjórnina eða 67,8%. í síðustu könnun Gallups mældist fylgið 68,3%. Samanlagt fylgi stjórnar- flokkanna er hins vegar 60,7% en var í síðustu könnun 64,8%. Úrtakið í könnun Gallups var 1.122 manns af öllu landinu á aldrin- um 18 til 75 ára sem valdir voru með tilviljun úr þjóðskrá. Af þeim svör- uðu tæplega 70%. Vikmörk eiu 2 til 4%. Sérblöð í dag Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is ; Christian Mayer vann síð ; asta stórsvig ársins / C2 l Eiður Smári getur bjargað l fjárhag Boiton / C1 Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnulíf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.