Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Fjármálahneyksli kristilegra demdkrata í Þýzkalandi Flokksstjórnin skorar á Kohl að leysa frá skjóðunni Bonn. Reuters, AFP. Wolfgang Schauble, formaður CDU, og Angela Merkel, framkvæmda- sljóri flokksins, ræða við blaðamcnn að loknum flokksstjórnarfundi í Bonn í gær. FLOKKSFORYSTA kristilegra demókrata (CDU) hélt aukaíund í höfuðstöðvum flokksins í Bonn í gær til þess að reyna að finna leið út úr fjármálahneykslismálum í kringum Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlara og heiðursformann CDU. Skoraði flokksstjórnin á Kohl að skýra frá nöfnum þeirra sem létu honum í té fé sem rann inn á leyni- lega bankareikninga flokksins; þögn hans væri farin að skaða flokkinn. Nokkrir úr forystuliði flokksins voru í gær í fyrsta sinn opinber- lega harðorðir í garð kanzlarans fyrrverandi. Wolfgang Scháuble, arftaki Kohls sem llokksformaður, sagði að loknum fundinum í gær að Kohl væri sá eini sem gæti út- rýmt sögusögnum um spillingu sem sprottið hefðu upp í kjölfar þess að hann viðurkenndi að hafa í formennskutíð sinni tekið við sem nemur um 70 milljónum króna í óopinber framlög í flokkssjóðinn. Neitar að gefa upp nöfn gefendanna Kohl hefur ekki viljað greina frá því hverjir greiðendurnir voru því hann hefði heitið þeim nafnleynd. „Við höfum beðið hann að skýra frá þessu, í nafni velferðar flokks- ins og hans sjálfs,“ tjáði Scháuble fréttamönnum. „Það er algerlega nauðsynlegt að afstýra frekari skaða fyrir orðstír flokksins. Það er ekki um neitt annað að velja,“ sagði hann. I opnu bréfi sem birt var á for- síðu dagblaðsins Frankfurter All- gemeine Zeitung gagnrýndi Ang- ela Merkel, framkvæmdastjóri CDU, Kohl fyrir að neita að veita upplýsingar um hverjir stóðu að baki hinum leynilegu greiðslum. „Kohl hefur skaðað flokkinn," skrifar Merkel. Hún gefur í skyn í bréfinu að Kohl væri hollast að draga sig í hlé frá stjórnmálum. „Það er kannski til of mikils mælzt að krefjast þess að Helmut Kohl dragi sig í hlé frá stjórnmálum frá einum degi til annars eftir svo langan feril.“ Kohl hvattur til að draga sig í hlé En Merkel, sem sjálf má að miklu leyti þakka frama sinn innan CDU velvild Kohls, hvetur eind- regið til þess að flokkurinn slíti sig lausan frá arfleifð hans. „Það er enginn vafi að við verðum að taka framtíðina í okkar eigin hendur,“ skrifar hún. Berlingske stefnir á út- varpsrekstur Fleiri dönsk blöð sýna málinu áhuga Kaupmannahöfn. Morgunblaöiö. FORRÁÐAMENN eignarhaldsfyr- irtækis danska blaðsins Berlingske Tidende hafa sótt um leyfi til rekst- urs útvarpsstöðvar, sem næði til alls landsins. Möguleikinn er fyrir hendi eftir að Elsebeth Gerner Nielsen menningaiTáðheira lýsti því yfir í haust að veitt yi'ði leyfi til að reka útvarpssrás, er næði um allt land, sem yrði þá fjórða landstæka rásin. Yfirmenn danska ríkisútvarpsins hafa hins vegar lýst áhuga sínum á að fá leyfið. Sama er með TV2, sem er hin ríkissjónvarpsstöðin á móti danska ríkissjónvarpinu og ýmsa aðra er stunda útvarps- og sjónvar- psrekstur. Berlingske er fyrst til af blöðunum til að sækja um, en Jyl- ands-Posten hefur einnig áhuga. Fjórða rásin er þegar fyrir hendi og þar til fyrr á árinu hafði DR, danska ríkisútvarpið, afnot af henni og notaði til að flytja sígilda tónlist og svæðabundið efni. Um leið fóru fram viðræður DR við yfirvöld um skipan útvarpsmála, en er upp úr þeim slitnaði var ákveðið að bjóða rásina til afnota á frjálsum markaði. Þessi leikur var mótleikur gegn því að DR er að leggja alla fréttaþjón- ustu sína, bæði fyrir útvarp, sjón- varp og Netið, undir eina fréttast- ofu, sem þjónaði þá öllum miðlunum. Eins og er svífur rásin ónotuð í loftinu. Þetta er gert í hagræðingarskyni, þar sem DR á við mikinn fjárhags- vanda að etja. Menningarráðherr- ann lét þá í Ijós áhyggjur yfir að þar með væri hætta á einhæfari frétta- þjónustu en áður. Ráðið gegn því væri að hleypa nýjum aðilum að í rekstri landstækrar útvarpsstöðvar. Joachim Malling, framkvæmda- stjóri eignarhaldsfélags Berlingske, segir að veiting leyfisins verði prófraun fyrir stjórnmálamenn um hvort þeir kjósi í raun frelsi á fjöl- miðlamarkaðnum eða ekki og hvort vilji væri fyrir að hleypa öðrum að en ríkisfjölmiðlunum, einkum varð- andi útvarpsfréttir. Fjármögnuð með auglýsingum Ætlun Berlingske er að reka út- varpsstöð, sem eingöngu yrði fjár- mögnuð með auglýsingum. Fyrir- tækið á tvö stór og mörg lítil svæðisbundin blöð, sem nýtt yrðu við fréttaöflun, en frágangur yrði í höndum starfsfólks hinnar nýju út- varpsstöðvar. Markhópurinn er að sögn Mallings ungt fólk og hug- myndin er að þjóna hlustendum á sem fjölbreyttastan hátt, ekki sem ríkisútvarp í smækkaðri mynd, heldur á annan hátt en gert er, bæði með tónlistar- og fréttaefni. Nánar vill hann ekki lýsa stöðinni. Berlingske er enn sem komið er eina blaðið, sem sent hefur inn um- sókn, en forráðamenn Jyllands- Posten, stærsta danska blaðsins, hafa einnig áhuga á að spreyta sig á útvarpsrekstri. Einnig þeir hefðu áhuga á samstarfi við svæðablöð um fréttaöflun. Þar á bæ halda menn þó að sér höndum og hyggjast fylgjast með þróun mála, áður en þeir kasta sér út í samkeppnina um fjórðu út- varpsrásina. Ef svo færi að Berlingske fengi leyfið munu aðstæður á dönskum fjölmiðlamarkaði breytast mjög. Þær hafa verið markaðar hefðbund- inni skiptingu í einstaka geira, þar sem ríkisstöðvarnar hafa haft yfir- burða stöðu á sjónvarps- og út- varpsmarkaðnum, en blöðin síðan haldið sig í sínum geira. Með Berl- ingske sem útvarpsstöð gæti stefnt í uppstokkun í hefðbundna fjölmið- lageiranum. Dvergar óskast f BRETLANDI er hefð hjá leikhúsum að sviðsetja barna- leikrit yfir jólahátíðina og er það vinsæl skemmtun hjá breskum krökkum. Mjallhvít og dvergamir sjö er vinsælasta leikritið um þessi jól, en verkið verður á fjölum 18 leikhúsa og hafa því margir leikstjórar lent í erfið- leikum með að finna dverg- ana sjö, að því er fram kemur í breska blaðinu The Guardi- an. Löngu er uppbókað hjá umboðsskrifstofum dvergvax- inna leikara og var sums stað- ar fullbókað þegar í vor. Sumir leikstjórar hafa því gripið til þess ráðs að notast við brúður eða börn í hlut- verk dverganna, á meðan aðrir leita nú logandi ljósi hjá umboðsskrifstofum í Evrópu að dvergum Mjallhvítar. Leiðtogafundur ESB og Kína Lítill áranorur tiner. AP. AFP. Peking. AP, AFP. FUNDUR æðstu talsmanna Evrópusambandsins (ESB) með leiðtogum Kína fór fram í Peking á mánudag og þriðjudag án þess að nokkur sýnilegur árangur næðist í viðræðum þeirra um helztu dag- skrármálin - umsókn Kína um aðild að Heimsviðskiptastofnuninni (WTO) og stöðu mannréttindamála í Kína. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjómar ESB, hvatti til á fundi með kínverska forsætisráð- herranum Zhu Rhongji að kínversk stjómvöld legðu sig betur fram við að uppfylla sett skilyrði fyrir inn- göngu landsins í WTO. Ekki samdist um hvenær næsti fundur fulltrúa ESB og Kínastjómar færi fram um málið. ESB-fulItrúarnir - sem ásamt Prodi voru Paavo Lipponen, forsæt- isráðherra Finnlands og starfandi formaður ráðherraráðs ESB, og Chris Patten, sem fer með utanríkis- mál í framkvæmdastjóm ESB (og var áður ríkisstjóri Breta í Hong Kong) - vöktu einnig máls á erfiðum ágreiningsmálum er varða meðferð mannréttinda í Kína. ítrekuðu þeir áskomn um að Kína fullgilti tvo sátt- mála Sameinuðu þjóðanna um borg- araleg réttindi, sem Kínastjórn hef- ur skrifað undir. Sagði Zhu það aðeins „tímaspursmál" hvenær kín- verska þingið staðfesti samningana. A blaðamannafundi að viðræðun- um loknum sagði Lipponen Zhu hafa neitað að ræða afnám dauðarefsing- ar í Kína; hún væri að hans sögn nauðsynlegt verkfæri til að halda fé- lagslegum stöðugleika í landinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.