Morgunblaðið - 23.12.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 27
LISTIR
Kammersveit Reykjavíkur.
Opid til kl. 22:00 alln daga til jóla
Tveir nýir geisladiskar frá
Kammersveit Reykjavíkur
KAMMERSVEIT Reykjavík-
ur hefur sent frá sér tvo
geisladiska á 25 ára afmælis-
ári sínu, annan með sögulegri upp-
töku frá árinu 1977 á Kvartett um
endalok tímans eftir Olivier Messia-
en, í útgáfu ARSIS, og hinn með
upptökum á efnisskrá sem sveitin
flutti á hundrað ára afmælistónleik-
um Jóns Leifs í Þjóðleikhúsinu 1.
maí á þessu ári, í útgáfu íslenskrar
tónverkamiðstöðar.
Á fyrrnefnda diskinum er upp-
taka frá tónleikum Kammersveitar-
innar í Bústaðakirkju í febrúarmán-
uði 1977 en það var í fyrsta skipti
sem verk Messiaens, Kvartett um
endalok tímans, var leikið á Islandi.
Flytjendur voru þau Rut Ingólfs-
dóttir, á fiðlu, Nina Flyer, selló,
Gunnar Egilson, klarinett, og Þor-
kell Sigurbjörnsson, sem lék á pí-
anó. „Verkið er mjög frægt fyrir
þær sakir að Messiaen skrifaði það
þegar hann var í fangabúðum nas-
ista og hljóðfæraskipanin miðaðist
við hvaða hljóðfæraleikarar voru
tiltækir þar. Hann spilaði sjálfur á
píanóið en á sellóið mun hafa vantað
einn streng, þegar verkið var frum-
flutt í fangabúðunum," segir Rut.
Strætisvagnar aka hjá
og flugvélar fljúga yfír
Þó að Ríkisútvarpið hafi tekið
tónleikana upp segir Rut að það
hafi ekki staðið til að gefa þær upp-
tökur út á plötu. „Núna er það
stundum gert þannig þegar gefnar
eru út tónleikaupptökur að það er
tekinn annar dagur í að bæta það
sem miður hefur farið en svo var
ekki í þessu tilfelli - það eru bara til
nákvæmlega þessar fimmtíu mínút-
ur sem verkið tekur. Það er ekki
hægt að bæta neitt og heldur ekki
að hreinsa út aukahljóð," segir hún
og nefnir sem dæmi um umhverfis-
hljóð sem heyra má á diskinum
strætisvagna sem aka eftir Bú-
staðaveginum og flugvélar sem
fijúga yfir.
„Ástæðan fyrir því að við vildum
samt gefa upptökurnar út var að
þessir tónleikar voru mjög sérstak-
ir. Ekki einungis fyrir það að þetta
var frumflutningur á íslandi, held-
ur vegna þess að það myndaðist
þessi stórkostlega sterka stemmn-
ing. Séra Ólafur Skúlason, sem þá
var prestur í Bústaðakirkju, las í
upphafi tónleikanna upp úr Opin-
berunarbókinni, en Messiaen notar
texta úr henni sem yfirskrift kafl-
anna. Sellóleikarinn Nina Flyer
kom með reykelsi, svo það var ilmur
í lofti, og úti var dásamlegt vetrar-
veður, sólskin og snjór. Það mynd-
aðist heilagt andrúmsloft í kirkj-
unni, sem var svo eiginlega ekki
hægt að brjóta í lok tónleikanna,"
segir Rut og lýsir því hvernig löng
stund leið eftir að lokatónarnir dóu
út og þar til áheyrendur fóru að
klappa.
Stemmningin á tónleikunum
kemst ótrúlega vel til skila
„Þessir tónleikar hafa lifað í
minningu þeirra sem voru viðstadd-
ir þá og margir þeirra hafa talað við
mig og spurt hvort ekki væri mögu-
leiki að gefa upptökuna út. Á end-
anum ákváðum við að hlusta á hana
hjá Útvarpinu og meta hvort okkur
þætti það koma til greina. Við viss-
um auðvitað sjálf að þessi eini flutn-
ingur hafði ekki tekist 100% hjá
okkur, það hafði ekkert okkar spil-
að verkið áður, en við vorum öll
fjögur sammála um að það væri al-
veg þess virði að gefa fólki kost á að
eiga þessa gömlu tónleikaupptöku.
Aðalástæðan var sú að okkur fannst
stemmningin á tónleikunum komast
ótrúlega vel til skila,“ segir Rut.
Henni þykir sérstaklega vænt um
að nú skuli leikur Gunnars Egilson-
ar vera kominn út á diski á vegum
Kammersveitar Reykjavíkur en
Gunnar var einn af stofnendum
Kammersveitarinnar og spilaði með
henni fyrstu árin, auk þess sem
hann var í stjórn. „Þegar hann dró
sig í hlé var geisladiskaútgáfa rétt
að byrja og við gáfum aldrei út
neina plötu. Það er ekki fyrr en með
tilkomu geisladiskanna að við för-
um út í útgáfu,“ segir hún. „Það er
líka gaman að því að Þorkell Sigur-
björnsson skuli spila á píanóið.
Hann var svo mikill píanóleikari, þó
að hann hafi ekki komið fram sem
slíkur í mörg ár.“
Á geisladiskinum sem ber nafn
Jóns Leifs eru fjögur verk, þrjú
fornkvæði og næturljóð, sem flutt
voru á afmælistónleikum í Þjóðleik-
húsinu 1. maí 1999 en þann dag
voru 100 ár liðin frá fæðingu tón-
skáldsins. Þetta er í fyrsta sinn sem
verkin eru gefin út en tvö þeirra,
Helga kviða Hundingsbana og
Grógaldr, voru frumflutt á tónleik-
unum. Hin verkin tvö höfðu hvort
um sig aðeins verið flutt einu sipni,
Guðrúnarkviða var frumflutt í Ósló
1948 og Nótt var frumflutt á minn-
ingartónleikum að Jóni Leifs látn-
um 1968. „Þannigað af þessum fjór-
um verkum hafði hann sjálfur aldrei
heyrt nema eitt flutt,“ segir Rut.
Þrjú verkanna eru innblásin af
Eddukvæðum, Guðrúnarkviða,
Helga kviða Hundingsbana og
Grógaldr, en Nótt samdi Jón við
ljóð Þorsteins Erlingssonar.
Einsöngvarar með Kammersveit-
inni á diskinum eru Þórunn Guð-
mundsdóttir mezzósópran, Guðrún
Edda Gunnarsdóttir alt, tenórarnir
Guðbjörn Guðbjörnsson, Einar
Clausen og Finnur Bjarnason,
bassarnir Guðjón Óskarsson og Jó-
hann Smári Sævarsson og Bergþór
Pálsson baríton. Stjórnandi var
sænski hljómsveitarstjórinn Johan
Arnell.
„Það er auðvitað alveg ótrúiegt
fyrir okkur tónlistarmennina að
vera að frumflytja verk eftir ís-
lenskt tónskáld svo löngu eftir
dauða þess. Og mér fannst það stór-
kostlegt að Kammersveitin skyldi
geta staðið fyrir þessum afmælis-
tónleikum og geisladiskinum í
framhaldi af þeim,“ segir Rut.
DYRARIKIÐ
...fyrir dýravini!
sími: 568 66 68
kr.pr.stk.
Fallegt á góðu verði
Komdu og sjáðu glösin okkar.
Frábær handavinna sem vert er að skoða.
Opið:
kl. 10-22 til jóla.
Þorláksmessa 10-23
Aðfangadag 10-12
Armúli 7 • sími 533 1007