Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 29
LISTIR
Um vopn
o g menn
BÆKUR
Þýðing
ENEAS ARKVIÐA
eftir Virgil. Þýðing: Haukur Hann-
esson. Mál og menning, Reykjavík
1999. 338 bls. Leiðb. verð: 4.480 kr.
í ÞVÍ mikla bókaflóði, sem ein-
kennii' útgáfu hér á landi fyrir jólin
ár hvert, er mikið fagnaðarefni að
fagurbókmenntir hafi að þessu
sinni ekki verið látnar sitja á hak-
anum, heldur hafi mörg öndvegis-
verk fornrar menningar nú litið
dagsins ljós í þýðing-
um. Sem fræðimaður
og lesandi form'a bók-
menntaverka, get ég
ekki annað en glaðst
yfir því, að ráðist hafi
verið í að þýða með
framúrskarandi ár-
angri það verk, sem
hvað mest hefur haft
áhrif á þróun og við-
gang menningar í
vestanverðri Evrópu;
Eneasarkviðu eftir
meistara Virgil.
Virgill, réttu nafni
Publius Vergilius
Maro, fæddist árið 70
f.Kr. í Andes, í ná-
grenni Mantúu á Pó-sléttunni og
var af stórbændum kominn.
Skemmst er frá því að segja að á
miklum umbrotatímum í sögu Róm-
ar á 1. öid f.Kr., náði bókmennta-
frægð hans svo miklum metum, að
hann varð goðsögn í lifanda lífi.
Enn í dag er hann talinn mesta
skáld, sem Rómverjar hafa eignast
á langii og farsælli ritsögu sinni, en
nafni hans, sem á íslensku breyttist
í Virgil, var á miðöldum jafnað við
nöfn spámanna kristninnar, og var
hann þá orðinn eins konar mál-
fræði- og stílfræðimeistari, skyldu-
lesning í öllum menntasetrum álf-
unnar og „autorítet", sem enginn,
hvorki leikm- né lærður, gat komist
hjá að lesa. Fyrstu orð Eneasar-
kviðu; Arma virumque cano...
(„kveð ég um hervopn og þann
mann...“), eru órjúfanlegur partur
af bókmenntaarfleið mannkynsins.
En hvað var það, sem gerði
skáldið Virgil ódauðlegan í nærri
tvær árþúsundir, og heldur frægð
hans uppi enn þann dag í dag?
Virgill samdi hjarðljóð (Bucolica),
búnaðarbálk (Georgica), en eitt er
víst, að Eneasarkviða hans (Aen-
eis), sem samanstendur af tólf bók-
um, er án efa það verk, sem hvað
mest hefur glatt og brætt hjarta
lesenda allar þessar aldir. Kviðan
tilheyi’ir bókmenntagrein, sem að
fornu hét epos (sagnaskáldskapur,
en epos þýðii’ á grísku ,,orð“), og
hafði það hlutverk, að
segja frá ævintýrum
og hættuförum eins
manns eða fleiri, í við-
leitni hans eða þeirra
til að ná einhverju
æðra lokatakmarki.
Fyrstu verk þessarar
gerðar, er komist hafa
í heild sinni alla leið til
okkar, eru Hómers-
kviðurnar frægu, en
eins og flestir vita
þýddi Sveinbjörn Eg-
ilsson þær meistara-
lega á síðustu öld og
leitar þýðing Hauks
Hannessonar, sem hér
er um rætt, fanga hjá
honum í mjög ríkum mæli.
Rómversk epík var frábrugðin
þeim grísku af mörgum ástæðum,
en fyrst ber að nefna að hjá Róm-
verjum til forna varð epík hápóli-
tísk bókmenntagrein, sem skáld
notfærðu sér til að komast í mjúk-
inn hjá voldugum keisurum og vin-
um þeirra. Auk þess var epík hjá
þeim bianda af hetjuljóðum og
söguljóðum, þar sem hins vegar hjá
Grikkjum gerast sögurnar nánast
alltaf í forsögulegum heimi forynja
og skrímsla og lítið er um hreinar
og beinar staðreyndir.
Rómverskri epík var einnig ætl-
að að spá fyrir framtíðinni, og lýk-
ur sögum yfirleitt ekki í síðustu
línu verkanna. Odysseifur, hetja
Odysseifskviðu Hómers, hrekst í
tuttugu ár í leit að heimaey sinni,
fjölskyldu sinni, og þegar hann loks
kemst heim, er sagan öll, eða hér
um bil. En annað gegnir um Eneas,
hetjuna miklu hjá Virgli: hann á
ekki eingöngu að komast til Italíu
til að stofna nýja Trojuborg ásamt
syni sínum, heldur er hann talinn
forfaðir allra Rómverja, upphafs-
maður þess mikla veldis, sem er að
fara að leggja heiminn undir sig, í
þann mund og verk Virgils sér
dagsins ljós. Eneas er því hetja
upphafs og enda, sá maður sem
sameinar fortíð, nútíð og framtíð í
augum þeirra Rómverja, sem uppi
voru á 1. öld f.Kr. Örlög hans eru
ákveðin fyrirfram af vilja guðanna,
og ekki má gleyma að Eneas er
sonur Venusar ástargyðju, er tald-
ist formóðir Júlíu-ættarinnar. Júl-
íus Sesar, Ágústus keisari kjörson-
ur hans, og fleiri keisarar tilheyrðu
Júlíu-ætt og notuðu goðsagnir
óspart til að réttlæta tilveru sína
sem einráða mesta heimsveldis
fornaldar. Eneas, eins og keisar-
arnir, er ósigrandi hálfguð, er skil-
ur eftir sig slóð sigraðra, ekki ein-
ungis á vígvellinum, heldur einnig í
ástamálum. Dídó, drottning Kar-
þagóboi'gar, fremur sjálfsmorð, er
Eneas, sem hafði deilt með henni
ást og rúmi um tíma, yfirgefur
hana til að hlýða æðri köllun guð-
anna.
Rómversk epík er einnig frá-
brugðin þeirri grísku hvað varðar
stíl og orðaval. Hómerskviður eru
ritaðar nánast á „alþýðumáli"
þeirra tíma, stfllinn rís aldrei hátt
og galdur þeirra felst fyrst og
fremst í einfaldleika og hnyttni.
Allt öðru máli gegnir um latneskan
sagnaskáldskap, þar sem lesendur,
eða réttara sagt hlustendur, gerðu
kröfur um stíl, sem átti í senn að
vera stórbrotinn (magnus), þung-
vægur (gravis), harðgerður (durus)
og háfleygur (altus). Munnlegur
flutningur í heyranda hljóði, sem
tíðkaðist á þeim tíma er verkið kom
út, skýrir einnig bæði hvers vegna
Eneasarkviða, eins og öll önnur
verk af svipuðu tagi, er í bundnu
máli, og líka hvers vegna í henni
tvinnast saman margir ólíkir stfls-
mátar, sem tengjast öðrum sviðum,
eins og hai-mljóðum, háðsádeilum,
fræðiskáldskap o.fl.
Til að skilja Eneasarkviðu þarf
nútímalesandi að hafa allt þetta í
huga, og einnig eftirfarandi. Fyrstu
sex bækur verksins líkja eftir
Odysseifskviðu Hómers, og er þar
lýst hrakningum Eneasar frá Tróju
til Ítalíu. Síðustu sex bækurnar
eiga sér beinar hliðstæður í II-
ionskviðú Hómers, þar sem megin-
viðfangsefni er stríð og vopnaskak.
En margt ber á milli Virgils og
Hómers í vali á viðfangsefni hverju
sinni. Eneasarkviða er ættjarðar-
ljóð, en hetjur Hómers eru ekki
bundnar við neitt ákveðið land,
Iþaka Odysseifs er meira fjarlægur
draumur en fastur raunveruleiki.
Virgill nálgast viðfangsefni sitt á
siðferðilegan hátt, og er Eneas ein-
att einkenndur sem „hinn trúi“
(pius), þar sem Odysseifur var aft-
ui' á móti „hinn ráðagóði“ (poiki-
loV), en það ber með sér engan sið-
gæðislegan merkingarblæ. Bókinni
má einnig skipta í þrjá hluta, fyrstu
fjórar bækurnar eru um ástarsögu
Eneasar og Dídóar, drottningar
Karþagóborgar, ásamt frásögnum
úr Trójustríðinu úr munni Eneasar.
Næstu fjórai' eru um komu Eneas-
ar til Ítalíu og heimsókn hans í
undirheimum, til að spyrjast frétta
um framtíð Rómaborgar. Síðustu
fjórar eru um stríð milli Tróju-
manna undir stjórn Eneasar og It-
alíumanna undir stjórn Túrnusar.
En skemmtilegast er líklega að
vita fyrir nútímalesanda, að bækur
kviðunnar er einnig hægt að skoða
í „pörum“. Oddabækurnar (1., 3., 5.
o.s.frv.) lýsa atburðum og mikið er
þar um frásagnir og ræður. Jöfnu
bækurnar (2., 4., 6. o.s.frv.) eru
hins vegar hádramatískar og inni-
legar, og ná oftast hámarki með
morðum eða voveiflegum dauðsföll-
um, eins og t.a.m. í fjórðu bók, er
Dídó bindur enda á líf sitt með
sjálfsvígi.
Þýðing Hauks Hannessonar sver
sig í ætt við þýðingar Sveinbjarnar
Egilssonar á Hómerskviðum, en
þær hafa fest sig í sessi sem eitt
mesta bókmenntaafrek íslendinga
fyn' og síðar, og er hún í engu
síðri. Hann fær mikið lof fyrir afar
nákvæmt og hnitmiðað málfar, og
nær prósaþýðing hans að koma
frumtextanum til skila í öllu verk-
inu. Hér er á ferðinni næmur og
vandaður þýðandi, sem er annt um
verkið og skilur blæbrigði latnesks
máls með afbrigðum. Við vonum að
hann sjái sér fært að halda áfram á
þessari braut og ráðast í fleiri af-
rek af þessu tagi.
I jólaösinni er gott að flýja í svo-
litla stund inn í heim fornra goð-
sagna og láta hugann reika um ást-
ir, átök, svik og siðferðisspurn-
ingar, og komast í snertingu við
heim, sem enn í dag setur sterkan
svip á menningu Vesturlanda.
Paolo Turchi
Haukur Hannesson
Leikur að eldi
BÆKUR
Þýdd skáldsaga
AMSTERDAM
eftir Ian McEwan. Uggi Jónsson ís-
lenskaði. Bjartur, Reykjavík 1999.
146 bls.
„TVEIR af fyrrum elskhugum Moll-
yar Lane biðu utan bálstofu-
kapellunnar og sneru baki í napran
febrúargjóstinn. Allt hafði þegar
verið sagt, en þeir sögðu það samt á
ný.“ Þetta er upphaf nýjustu bókar
Ians McEwans, Amsterdam, en fyr-
ir hana hlaut hann best auglýstu
bókmenntaverðlaun Breta, Booker-
verðlaunin. Hún er nýkomin út í
Neón bókaröð Bjarts í þýðingu
Ugga Jónssonar.
Þessi fyrsta málsgrein sögunnar,
þar sem mynd er brugðið upp af
tveimur mönnum í skugga dauðans,
ber með sér keim endaloka og
hnignunar. Sú tilfinning ágerist eft-
ir því sem líður á verkið og siðferði-
leg viðmið leysast upp. Reyndar
hefur dauðinn í ýmsum myndum
verið eitt helsta viðfang McEwans
allt frá fyrstu skáldsögunni sem
hann skrifaði árið 1978, Stein-
steypugarðinum, sem fjallaði um
munaðarlaus börn sem grafa móður
sína í kjallaranum, til þeirrar
næstnýjustu, Eilífrar ástar, sem
hefst á dauðsfalli. I millitíðinni hef-
ur hann gefið út minniháttar meist-
araverk eins og Vinarþel ókunnugra
sem fjallar um dauða í Feneyjum
með vísun til Thomasar Mann.
Amsterdam einkennist þó fyrst
og fremst af miklum gálgahúmor,
mun meiri en finna má í áðurnefnd-
um bókum. Höfundur bregður á leik
og stingur á nokkur þjóðfélagskýli
milli þess sem hann spinnur sögu
sem að lokum reynist nokkuð hrylli-
leg, þó á sama tíma sé erfitt að halda
aftur af hlátrinum. Bókin snýst að
verulegu lejdi um samskipti og sam-
band fjögurra persóna, þeirra Cliv-
es, Vernons, Garmonys og Mollyar
en það er einmitt við útför hennar
sem sagan hefst. Molly hafði látist
úr hrörnunarsjúkdómi og gat sér
enga björg veitt síðustu mánuðina,
ekki einu sinni bundið enda á eigin
þjáningar. Það verður tveimur fyrr-
um elskhugum hennar, þeim Clive
og Vernon, en það voru einmitt þeir
sem hér að ofan biðu fyidr utan bál-
stofukapelluna, mikið umhugsunar-
efni og segja má að Molly vaki yfir
frásögninni þó fjarverandi sé.
Clive er mikils metið tónskáld og í
óða önn við að semja árþúsundasin-
fóníu fyrir bresku ríkisstjórnina.
Vinur hans Vernon er æsifrétta-
maður í hjarta sínu en hefur slysast,
án þess að kunna skýringu á því
sjálfur, til að gegna stöðu ritstjóra á
stóru en fjárhagslega aðkrepptu
dagblaði. Andúð þeirra á Garmony,
utanríkisráðherra og hugsanlega
næsta forsætisráðherra, er mikil og
sameiginleg. Viðkvæmar ljósmyndir
sem Vernon áskotnast af Garmony
gætu vel eyðilagt pólitískan feril
hans en verða þó til þess að reyna á
vinskap þeirra Clives.
Stílbrögð McEwans eru lipur og
málfar kjarnyrt, þó afar litríkt, og
bókin í raun sýnidæmi um gífurlega
fjölfærni höfundar. Það er sama
hvar gripið er niður í textann, lævi
blandinn ritstjórnarfund hjá Vern-
on eða sturlaða sköpunarvímu Cli-
ves, alltaf iðar hann af lífi. Starf-
svettvangi þessara manna er líka
lýst af miklum trúverðugleika og
persónusköpun er hlý þótt sjálfs-
birgingsháttur og hégómi vinanna
tveggja sé á köflum mikill. Báðir
gangast þeir undir mikið siðferðis-
próf á síðum bókarinnar, en falla.
Hvorugur gerir sér þó grein fyrir
því í eigin tilfelli en dæmir hinn
þeim mun harðar. Um er að ræða
gamla sannleikann um bjálkann og
flísina. Sögufléttunni verður þó vart
lýst sem trúverðugri heldur jaðrar
hún við að vera skopstæling á hefð-
bundnum spennusögum, svo ólík-
indaleg er hún á köílum. Þetta er
alls ekki galli á verkinu, formgerð
þess er hnitmiðuð og söguþráðurinn
gengur fullkomlega upp á eigin for-
sendum.
Mikilvægustu hvörf fléttunnar
eru þegar Clive og Vernon gera með
sér samning um gagnkvæmt líknar-
morð ef þeir skyldu nokkru sinni
lenda í sporum Mollyar en með
frekari uppljóstrunum um sögu-
þráðinn væri væntanlegum lesend-
um enginn greiði gerður. Verður því
látið nægja að segja að bókin dregur
nafn sitt af þeim stað í heiminum
sem auðveldast er að fá slíku ætlun-
arverki framgengt.
Það er óhætt að segja að Amster-
dam komi lesendum sífellt á óvart,
ef ekki með úthugsaðri en stórkost-
lega undarlegri fléttunni, þá í
tungumálinu sjálfu sem er lifandi og
óútreiknanlegt. Þýðing Ugga á hrós
skilið. Þetta er ekki þungvægasta
bók McEwans hingað til en stór-
skemmtileg lesning.
Björn Þór Vilhjálmsson
wmm/m-su)
Úrval jólagjafa
DEMANTAHÚSÍ
Nýju Kringlunni, sími 588
Iþrótta-
álfur á
harð-
spjöldum
BÆKUR
!t a r n a b æ k u r
ÍÞRÓTTAÁLFURINN Á
FERÐ OG FLUGI; MAGGI
MJÓIBORÐAREKKI
MAT; SIGGI SÆTI BJARG-
ARTÖNNUM;NENNI
NÍSKI VILL EIGA ALLT;
SOLLA STIRÐA NÆR
EKKI í TÆRNAR; HALLA
HREKKJUSVÍN GENGUR
LAUS; GOGGI „MEGA“
VILL EKKI SOFNA;
GLANNI GLÆPUR SEGIR
ALDREI SATT.
eftir Magnús Scheving
Lazytown, 1999.
ÞAÐ er ekki að spyrja að Magnúsi
Scheving, leikskáldi og íþróttaálfi.
Nú er hann búinn að semja heilar
átta bækur fyrir lítil börn, þessi á
harðspjaldaaldrinum. Já, bækurnar
eru prentaðar á þykk spjöld og eru
fyrir vikið nokkuð þungar - fínar til
að þjálfa litla vöðva. Og það er ör-
ugglega í anda íþróttaálfsins, sem
hefur haft það að markmiði undan-
farin ár að koma börnum í skilning
um að það sé gaman að hreyfa sig
og hafa svolítið fyrir hlutunum.
Bækurnar fjalla auðvitað um
íþróttaálfmn og íbúana í Latabæ.
Iþróttaálfurinn birtist þegar í óefni
er komið og kennir börnum nýja og
betri siði en þau hafa fram að því
tileinkað sér. Solla fer að æfa sig og
Siggi lærir að bursta tennurnar.
Nenni lærir að deila með öðrum,
Halla hættir að hrekkja og Goggi
slakar á og fer að sofa. Maggi hætt-
ir að borða ruslfæði og Glanni fær
makleg málagjöld. Lífið er einfalt
og skemmtilegt í Latabæ og bæk-
urnar átta lýsa því á fjörlegan og
litríkan hátt.
Teikningarnar og litagleðin í
bókunum undirstrika kátínuna og
lífsþróttinn sem geisla frá höfund-
inum og boðskap hans. Ekkert
stendur um hver teiknar, sem er
synd því myndskreytingarnar eru
jafnmerkilegar og textinn og þær
eru það sem grípa athygli barn-
anna.
Það er ekki að undra hversu vel
Magnús nær til barna, svona leiftr-
andi fjörugur sem íþróttaálfurinn,
sköpunarverk hans, er. Þeir eru
líka ófáir litlu íslensku íþróttaálf-
arnir sem hafa farið í fötin hans,
stokkið upp á borð og bekki í græn-
um buxum og bláum bol, með app-
elsínugula húfu á höfðinu. Mynd-
bandið um Latabæ hefur rúllað ótal
sinnum á heimilum landsbarna og
ekki sjaldnar hefur verið sungið há-
stöfum með. Yngstu börnin eru
heitustu aðdáendurnir - þau hafa
ekki enn uppgötvað bandarískar
hasarstjörnur á borð við Batman og
Supei-man, hvað þá Jedi-hetjur úr
Stjörnustríði. Harðspjaldabækurn-
ar eiga ái'eiðanlega eftir að hitta í
mark hjá þeim sem og foreldrum
þeirra, til þess eru bækurnar alveg
mátulega langar.
María Hrönn Gunnarsdóttir
Treflar, húfur,
hattar, töskur og
fleiri fallegar :
sérvörur frá |
1
Mk ■ í
Barbour j
^x^Laugavegi 54 S. 552 2535