Morgunblaðið - 23.12.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 55 \
BRÉF TIL BLAÐSINS
Missagnir í bókinni „Glymja
járn við jörðu“ leiðréttar
Frá Árna Gunnaissyni:
í UMRÆDDA bók mína sem fjallar
um Svein Guðmundsson hrossa-
ræktarmann á Sauðárkróki og kom
út fyrir síðustu jól, hafa slæðst
nokkrar meiniegar rangfærslur og
villur sem mér er skylt að leiðrétta
þótt seint sé.
Nú vill reyndar svo til að góð-
kunningi minn, Pálmi Jónsson á
Sauðárkróki, hefur að nokkru tekið
af mér ómakið í þessum efnum, enda
vai'ð hann til þess fyrstur manna að
benda mér á flestar af þeim skyss-
um sem um er að ræða og jafnframt
mælast til þess að ég kæmi leiðrétt-
ingum frá mér.
Laugardaginn 12. júní síðastliðinn
birti síðan Morgunblaðið greinar-
korn frá Pálma um þau atriði sem
okkur höfðu orðið að umræðuefni
undir fyrirsögninni: Ranghermi leið-
rétt. Má því segja að þar með hafi
því efni verið gerð viðhlítandi skil og
hef ég í sjálfu sér engu þar við að
bæta. Og ályktanir hans um meinta
tregðu mína eða trassaskap við að
koma þessu frá mér sjálfur hljóta að
teljast eðlilegar eftir atvikum, enda
hef ég oft fengið verri ofanígjafir
íyj'ir minni sakir. En nokkuð af því
efni sem þarna var rangt með farið
fékk ég eftir heimildum sem ég
leyfði mér að taka trúanlegar.
Allnokkru fyrir birtingu Morgun-
blaðsgreinar Pálma hafði ég unnið
þær leiðréttingar sem um var rætt
en vildi ekki senda þær frá mér fyrr
en að höfðu samráði við hann. Gerði
ég nokkrar árangurslausar tilraunir
til að ná tali af honum og því fór sem
fór. Þetta er auðvitað engin afsökun,
en aðeins ofurlítil skýring.
Ekki er þó ein báran stök þegar
þessi mál koma til umræðunnar og
enn er í nefndri bók sú rangfærsla
Þægileg herranáttföt
og peysur frá t
Wols&y
í miklu úrvali
<
I
Laugavegi 54 S. 552 2535
Flísfóðraðir anorakkar
kr. 4.990 .
|fUS JvtI
Laugavegi 54, s. 552 5201.
sem telja má hvað versta og var þó
ærið nóg fyrir.
Síðla árs 1950 tók Haraldur Arna-
son á Sjávarborg - þá nýlega út-
skrifaður búfræðikandídat frá
Landbúnaðarháskólanum í Zurich í
Sviss - við starfi búfjárræktarráðu-
nauts B.S.S. og gegndi því í tíu ár,
eða til 1960. A þeim áratug og í
starfstíð Haraldar voru stofnuð
hrossaræktarfélögin og hrossarækt-
ardeildirnar í Skagafirði sem síðan
voru sameinaðar í Hrossaræktar-
samband Skagfn'ðinga. Að þessum
málum vann Haraldur ötullega og
mun hafa þurft að beita nokkru
harðfylgi til að fá Hrossaræktar-
sambandið samþykkt af öllum þeim
fjórum embættum sem sækja þurfti
til. Það væri því fullkomlega ómak-
legt að skilja svo við sögulegan að-
draganda að skipulagi ræktunar-
starfs skagfirskra hestamanna að
láta Haraldar þar ógetið og gefa
öðrum þar allan heiður. Sá var auð-
vitað aldrei tilgangurinn. Og mér,
sem á þessum tima fylgdist nokkuð
með gangi þessara mála, var ekki
minna ætlandi en muna þetta nægi-
lega vel til að skýra rétt frá stað-
reyndum.
Það varð Skagfirðingum ómetan-
legur fengur og gæfa að fá til starfa
samtímis tvo unga, vel menntaða og
hæfa ráðunauta á þeim tímum upp-
gangs og umbrota í íslenskum land-
búnaði sem hófst um miðbik þessar-
ar aldar. Þar tel ég að þeir Haraldur
og Egill eigi óskilinn hlut, þótt starf-
stími Haraldar yrði skemmri en
mátt hefði verða öllum að skaðlausu
en hann hvarf til annarra starfa eftir
10 ára farsælan starfsferil í þágu
skagfirskra bænda.
Það batt þó ekki til fulls enda á
störf hans í þágu íslensks landbún-
aðar því árið 1970 tók hann við starfi
skólastjóra Bændaskólans á Hólum í
Hjaltadal og gegndi því um 10 ára
skeið. Þegar til þeirra átaka dró
milli Skagfirðinga og Húnvetninga
sem skýrt er frá í bókinni var Har-
aldur hins vegar hættur störfum og
Egill Bjarnason kominn með alla
þætti búfjárræktar hjá B.S.S. á sín-
ar hendur. I umfjöllun þess máls
hefur mér orðið meira niðri fyrir en
sæmilegt verður að teljast með því
að tengja aðild Egils að því lengra
aftur í tímann en rétt er. Það var
óhapp og engum til sæmdar; þó síst
sjálfum mér sem eins og fyrr er sagt
átti að vita betur.
Góðar viðtökur og mikil útbreiðsla
bókarinnar hefur verið mér ánægju-
efni. Þó skyggir þar á nú að mér
leyfist vart sú bjartsýni að ætla það
að þessi síðbúna tilraun mín til leið-
réttingar nái augum allra lesenda
hennar.
En að lokum bið ég alla hlutaðeig-
andi afsökunar á þeim mistökum
sem hér hafa verið rakin og vona að
sem flestir viti nú hið sanna í þess-
um málum.
ÁRNI GUNNARSSON
rithöfundur.
Jólaskór
Fyrlr mömmu
Verð 2.995
Tegund:425A9012
Litur: Svartur
Stærðir: 36—41
Fyrir pabba
Verð 4.995
Tegund:8059
Litur: Svartur
Stærðir: 41 —46
Fyrir barnið
Verð 2.995
Tegund:5196
Litur: Svartur
Stærðir: 24 — 33
Kíkið við 09 fáið ykkur kakó 09 piparkökur
Póstsendum samdægurs • 5% staðgreiðsluafsláttur
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
Lady Avenue
náttkj ólar
Mikið úrval af
náttfatnaði úr ekta
silki oe bómull
Jakkar ffá kr. 5.900
Buxur frá kr. 1.690
Pils ffá kr. 2.900
Blússur ffá kr. 2.800
Mikið úrval af kvenfatnaði
við öll tækifæri
Híá Svönu
Ný kvenfataverslun
Kirkjulundi 13, Garðabæ,
sími 565 9996.
Verið velkomin
ólagjöfin hennarl
Stuttir og síðir
pelsar í úrvali
ty m
//#
Pelsfóðurs-
kápur og -jakkar
Ullarkápur og
-jakkar með
loðskinni
Loðskinnshúfur
Loðskinnstreflar
Loðskinnshárbönd
Þar sem
vandlátir
versla
PELSINN
Kirkjuhvoli, sími 552 0160
Raðgreiðslur í allt að 36 mónuði
Klassískur
fatnaður
Bocace skór
(Appelsín
56
Appelsínuhúðin horfin - Keypti mér bikini!
1-
J