Morgunblaðið - 23.12.1999, Qupperneq 56
7 56 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Hluti vinningshafa á Jólapakkaskákmótinu.
165 krakkar á Jóla-
pakkaskákmdti Hellis
Skt k
llellisheimilíð,
Þönglabakka 1
FJÓRÐA JÓLAPAKKA-
SKÁKMÓT HELLIS
19. dcsember.
JÓLAPAKKAMÓT Taflfélags-
ins Hellis var haldið í fjórða sinn
um síðustu helgi. Þetta er eitt
fjölmennasta skákmót sem haldið
er hér á landi og 165 börn og ung-
lingar 15 ára og yngri tóku þátt í
mótinu. Keppt var í fjórum ald-
ursflokkum. Veitt voru verðlaun
fyrir þrjú efstu sætin í hverjum
aldursílokki. Auk þess var happ-
drætti um þrjá pakka í hverjum
flokki. I fyrra var tekin upp sú ný-
breytni að veita þremur efstu
stúlkunum í hverjum flokki sér-
stök verðlaun og var það einnig
gert að þessu sinni. Það var Skák-
húsið sem enn eitt árið styrkti
Jólapakkaskákmótið með afar
veglegum gjöfum.
Keppendur komu úr 43 grunn-
skólum, eða fjórum fleiri en í
fyrra. Flestir keppendui- komu að
sjálfsögðu úr Reykjavík, þótt
margir komi á mótið úr öðrum
sveitarfélögum. Þannig komu t.d.
keppendur frá Sólvallaskóla á Sel-
fossi og Barnaskólanum á Eyrar-
bakka og Stokkseyri. Keppenda
frá Akranesi (Grundaskóla og
Brekkubæjarskóla) var sárt sakn-
að að þessu sinni og það sama má
segja um Njarðvíkurskóla, en
mikill fjöldi keppenda kom frá
þessum skólum í fyrra. A þriðja
tug stúlkna tók þátt í mótinu, sem
er svipaður fjöldi og á síðasta ári.
Keppt var í 4 aldursflokkum:
Flokki fæddra 1984-6, flokki
fæddra 1987-8, flokki fæddra
1989-90 og flokki fæddra 1991 og
síðar. Reyndar voru yngstu þátt-
takendumir fæddir 1993 og því
aðeins sex ára gamlir. Tefldar
voru 5 umferðir með 10 mínútna
umhugsunartíma á mann. Urslit
urðu sem hér segir:
Fæddir 1984-6
1. Guðjón Heiðar Valgarðsson 5 v.
2. -3. Ólafur Gauti Ólafsson, Emil Hjörv-
ar Petersen 4 v.
v 4.-9. Grímur Daníelsson, Kristinn Sím-
on Sigurðsson, Örn Stefánsson, Sigur-
jón Kjærnested, Anna Margrét Sigurð-
ardóttir, Atli Rúnar Rristjánsson 3 v.
10.-15. Ivar Hlynur Ingason, Darri Ein-
arsson, Þorri Bryndísarson, Halldór
Guðmundsson, Hákon Jónsson, Birgir
Gylfason 2 v.
o.s.frv.
Fæddir 1987-8
1.-2. Dagur Amgrímsson 5 v.
1.-2. Víðir Smári Petersen 5 v.
3. -8. Guðmundur Kjartansson, Benedikt
Öm Bjamason, Hilmar Þorsteinsson,
Steinunn Kristjánsdóttir, Amljótur Sig-
urðsson, Bjarki Freyr Bjamason 4 v.
9.-11. Víkingur Fjalar Eiríksson, Aron
Ingi Óskarsson, Láras Helgi Ólafsson
3Vz v.
12.-27. Vilhjálmur Atlason, Anna Lilja
Gísladóttir, Margrét Jóna Gestsdóttir,
Sandra Bjamadóttir, Guðmundur Jó-
hannsson, Þorsteinn Pálsson, Stefán
Ingi Amarson, Ámi Júlíus Amarsson,
Birgir Þór Magnússon, Hafliði Hafliða-
son, Ámi' Jakob Ólafsson, Péto Orri
Ragnarsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
Helgi Rafn Hróðmarsson, Stefán Már
Möller, Garðar Sveinbjömsson 3 v.
28.-29. Alfreð Ellertsson, Agnar Logi
Kristinsson 2'Æ v.
30.-44. Guðjón Henning Hilmarsson,
Ari Baldur Baldursosn, Valdís Nína
Gylfadóttir, Ævar Örn Ómarsson, Haf-
þór Gunnlaugsson, Hjalti Freyr Hall-
dórsson, Birgir Öm Grétarsson, Ami
Traustason, Klara Kristjánsdóttir, Arn-
ar Sigurðsson, Kári Öm Hinriksson,
Guðmundur Þór Gunnarsson, Einar
Ingimar Helgason, Daníel Helgason,
Atli Gunnar Sigurðsson 2 v.
o.s.frv.
Fæddir 1989-90
1. Viðar Bemdsen 5 v.
2. -7. Atli Freyr Kristjánsson, Gylfi Da-
víðsson, Einar Orri Svansson, Baldvin
Páll Henrýsson, Viktor Orri Valgarðs-
son, Arnar Páll Gunnlaugsson 4 v.
8.-12. Bjarki Þór Steinarsson, Eggert
Freyr Pétursson, Sveinn Bergsteinn
Magnússon, Davíð Teitsson, Pétur
Freyr Pétursson 314 v.
13.-22. Kristján Óskarsson, Garðar Þór
Þorkellsson, Hjörtur Jónasson, Hinrik
Már Hreinsson, Gunnar Már Þorleifs-
son, Björn Orri Hermansson, Elsa
María Þorfinssdóttir, Vignir Már Lýðs-
son, Ami Gunnar Eyþórsson, Fannar
Már Flosason 3 v.
23. -27. Egill Þorvaldsson, Birkir Steinn
Ómarsson, Ólafur Páll Jónsson, Magn-
ús Freyr Norðfjörð, Andri Freyr Gylfa-
son 2!4 v.
28.-38. Kristófer Roy Helgason, Gunnar
Geir Helgason, Alexander Helgason,
Sigmundur Gylfason, Þorgrímur Smári
Ólafsson, Ingimar Bjami, Viktor
Traustason, Kistófer Jónsson, ,Guð-
mundur Óskar Kristinsson, Hlín Önnu-
dóttir, Dofri Snomason 2 v.
o.s.frv.
Fæddir 1991 og síðar
1.-2. Haraldur Franklín Magnús 4!4 v.
1.-2. Helgi Brynjarsson 4'A v.
3. -5. Einar Sigurðsson, Ivan Teitsson,
Hafliði Þór Pétursson 4 v.
6.-11. Kjartan Páll Kjartansson, Svan-
berg Már Pálsson, Rafn Erlingsson,
Ólafur Kjaran Amason, Denise Mar-
grét Hannesdóttir, Svanur Þór Svans-
son 3!4 v.
12.-16. Ómar Þór Amarsson, Tryggvi
Ragnarsson, Helgi Jónsson, Amór Vil-
hjálmsson, Hallgerður Helga Þor-
steinsdóttir 3 v.
17.-23. Baldur Yngvason, Guðmundur
Bjarnason, Benedikt Sigurleifsson,
Benedikt Andri Ágústsson, Tómas
Brynjarsson, Elín Þóra Elíasdóttir,
Þórann Bryndís Kristjánsdóttir 2‘/z v.
24. -31. Ólöf Brynja Aradóttir, Ágúst
Friðriksson, Dagur Snær Steingríms-
son, Finnbogi Fannar Jónsson, Halldór
Arnþórsson, Mattías Sigurbjömsson,
Halldór Arnarson, Dagur Gíslason 2 v.
o.s.frv.
Eftir að keppni lauk í öllum
flokkum var dregið um vegleg
aukaverðlaun, fullkomna skák-
tölvu að verðmæti kr. 15.000 sem
gefín var af Skákhúsinu. Þar áttu
allir keppendur jafna möguleika
án tillits til árangurs í mótinu.
Verðlaunin voru gefín var af
Skákhúsinu.
Taflfélagið Hellir er vel búið til
að halda svo fjölmenn skákmót,
þótt enn skorti félagið nægilegan
fjölda skákklukkna. Vegna fjölda
þátttakenda lánuðu Taflfélag
Reykjavíkur, Taflfélag Kópavogs,
Skákfélag Hafnarfjarðar, Skák-
samband Islands og Skákskóli Is-
lands klukkur til mótsins.
Skákhúsið var styrktaraðili
mótsins.
Jólahraðskákmót
TR 1999
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur fer fram 28. og 29.
desember og hefst taflmennskan
kl. 20 báða dagana. Fyrra kvöldið
verða tefldar undanrásir og síðara
kvöldið fara fram úrslit. Keppend-
um verður skipt í þrjá flokka og
tefldar verða 5 mín. hraðskákir.
Núverandi Jólahraðskákmeist-
ari er Jón Viktor Gunnarsson.
Þátttaka í jólahraðskákmótinu er
opin öllum og er þátttökugjaldið
kr. 500 fyrir félagsmenn 16 ára og
eldri og kr. 300 fyrir félagsmenn
15 ára og yngri. Utanfélagsmenn
greiða kr. 700 og kr. 400.
Daði Örn Jónsson
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fjármál og
framfarir
FRAMFARIR í ferða-
mannaiðnaði gætu orðið
verulegar ef rétt er á mál-
um haldið. Má þar m.a.
nefna að það ætti að láta
Geysi gjósa með öllum til-
tækum ráðum, enda er um
ákveðna samkeppni að
ræða, bæði frá Nýja-Sjáy
landi og Bandaríkjunum. A
sumrin ætti að gera út vík-
ingaskip í öllum lands-
fjórðungum, en það gæti
gefið fólki tilefni til að
heimsækja staðina aftur
og aftur. Akveðinn hluta
hagnaðar af þeirri útgerð
ætti að láta renna í sjóð
sem síðan yrði notaður til
að fjármagna eftirlit og
hreinsun á umhverfi lands-
ins.
Islendingar ættu að
leigja út veiðiheimildir til
Japana á einhverjum
hvalastofni til að standa
undir rannsóknum á þess-
um þætti. Verkalýðsfélög
og lífeyrissjóðir ættu að
huga að fjárfestingum á
sumarhúsum í sólarlönd-
um, og halda þannig
eyðslu Islendinga að hluta
til innan íslenska hagkerf-
isins.
Frystitogarafloti Is-
lands ætti ekki að henda
einu einasta beini í sjó,
heldur nota þar til gerðar
vélar til að fullnýta allan
físk. Er það að mínu mati
mjög hagstætt fyrir landið
í heild að nota sér þess
háttar tækifæri, þó ekki
væri nema til að sýna Ut.
Þetta mundi borga sig á
tiltölulega stuttum tíma.
Þá finnst mér að koma
ætti á fót alþjóðlegri ráð-
gjafarstofu sem vinnur að
því að bjóða út lausnir í
sjávarútvegi sem og land-
búnaði og hvers konar iðn-
aði. Þessi stofnun gæti
aukið hróður Islands, en
hún þyrfti að vera ópóUtísk
og undir verndarvæng for-
seta íslands. Þessi stofnun
mundi skapa atvinnu og
auka útflutningstækifæri,
og um leið létta undir með
þeim sem eru að brölta á
eigin vegum.
Jón Pétur Kristjánsson,
Kirlqustræti 2, Rvík.
Slæm þjónusta
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
á framfæri kvörtun vegna
seinagangs hjá afgreiðslu-
fólki Islandspósts í Kringl-
unni. Segir hún að ekki
hafí verið opnað fyrr en
klukkan var rúmlega tíu.
Var fólkið sem beið í röð-
inni frekar óhresst með
þetta.
190923-4799
Þakkir
JÓHANNA hafði samband
við Velvakanda og viidi
hún taka undir það sem
birtist í Velvakanda fyrir
stuttu þar sem fyrrverandi
starfsfólki Bónusmynd-
bandaleigunnar á Nýbýla-
vegi voru færðar þakkir
fyrir vel unnin störf. Segir
hún það hafa haft einstak-
lega góða þjónustulund og
þess sé sárt saknað. Færir
hún starfsfólkinu sínar
bestu kveðjur og ósk um
gleðileg jól.
Tapað/fundið
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND týndist
í miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt laugardagsins 18.
desember sl. Armbandið
hefur mikið tilfínningalegt
gildi fyrir eigandann. Veg-
legum fundarlaunum heit-
ið. Upplýsingar í síma 553-
7936, 897-8465 eða 557-
6059.
Baby bom-dúkka
í óskilum
BABY born-dúkka fannst
í Arbæjarhverfi mánu-
daginn 20. desember sl.
Upplýsingar í síma 895-
9554.
Giftingarhringur
GIFTINGARHRINGUR
úr gulli fannst í Lyfju,
Lágmúla. Upplýsingar í
síma 533-2300.
Leðurbudda týndist
HINN 8. desember sl.
týndist svört og brún leð-
urbudda. I henni var arm-
band (bilað). Buddunnar
er sárt saknað af eigand-
anum. Skilvís finnandi vin-
samlegast hringi í Sigrúnu
í síma 551-2712 eða 862-
2712.
Dýrahald
GSM-sími týndist
GSM-sími týndist á Kaffi
List laugardagskvöldið 18.
desember sl. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 896-6250.
Kettlingur í óskilum
KETTLINGUR, læða inn-
an við eins árs gömul, er í
óskilum síðan í nóvember.
Hún er með hvítar lappir,
kinnar og maga og smá-
blesu, annars steingrá,
smábröndótt. Upplýsingar
í síma 557 8078.
Kettlingar fást gefíns
TVEIR tíu vikna gamlir
kettlingar, fress og læða,
fást gefins á gott heimili.
Kassavanir og vanir börn-
um. Læðan er svört, en
fressið er svart og hvítt.
Upplýsingar í síma 567-
6569.
Víkverji skrifar...
ORLÁKSMESSA er sá dagur
ársins sem er einna erfiðastur í
lífi Víkverja. í dag þarf hann að
kaupa jólagjöf handa konunni. Allan
desember hefur Víkverji verið að
velta fyrir sér hvað hann geti keypt
til að gleðja konuna; eitthvað sem
lýsir ást hans til hennar; eitthvað
fallegt og um leið frumlegt, en um-
fram allt eitthvað sem hana langar
til að eiga og nota. Núna, einum sól-
arhring áður en fjölskyldan safnast
saman til að taka upp jólapakka, er
Víkverji engu nær um hvaða gjöf
hann á að gefa konunni. Framundan
er því erfiður dagur þar sem Vík-
verji fer búð úr búð að leita að ein-
hverju sem hann veit ekki hvað er.
Konan hefur skilning á þessari erf-
iðu leit Víkverja og segir fyrir jól að
hann þurfi ekkert að gefa sér jóla-
gjöf. Víkverji veit hins vegar að
undir niðri vonast hún eftir fallegri
gjöf. Eftir jól verður konan spurð
um hvað hún hafði fengið frá eigin-
manninum og eins og jafnan mun
Víkverji vafalaust fara halloka í
þeim samanburði sem þá hefst.
FYRIR nokkrum dögum birtist
merkileg frétt á forsíðu Morg-
unblaðsins þar sem greint var frá
breskri rannsókn á notagildi jóla-
gjafa. Niðurstaða rannsóknarinnar
var sú að fjórðungur af öllum jóla-
gjöfum kæmi ekki að neinum not-
um. Rannsóknin staðfesti það sem
Víkverja hefur lengi grunað, að
mikil sóun ætti sér stað í kringum
jólagjafakaup. I einhverjum fjöl-
miðli var fullyrt að Islendingar
eyddu 10 milljörðum í gjafir fyrir
jólin. Ef þessi tala er rétt og hlið-
sjón er höfð af bresku rannsókninni
kaupir þjóðin gjafír fyrir 2,5 millj-
arða sem ekki koma að neinum not-
um. Þetta er ógnvekjandi sóun og
ætti að verða hverjum manni hvatn-
ing til að draga úr þessu óhóflega
jólagjafaflóði sem lengi hefur við-
gengist hér á landi. Hagfræðingar
hafa í haust lýst yfir miklum
áhyggjum af þróun efnahagsmála
vegna mikillar þenslu í efnahagslíf-
inu. Hún er ekki síst til komin
vegna mikillar einkaneyslu og inn-
flutnings. Þjóðin ætti því að reyna
að halda aftur af sér um þessi jól og
reyna þannig að stuðla að því að við
njótum áfram þeirrar velgengni í
efnahagslífinu sem við höfum notið
á síðustu árum.
xxx
OTT jólin séu að mörgu leyti
skemmtilegur tími er það skoð-
un Víkverja að óhóflega margar og
dýrar jólagjafir spilli fyrir jólagleð-
inni. Gjafainnkaupin valda stressi
og álagi, burtséð frá því álagi sem
gjafímar valda fjárhag heimilanna.
Síðan þegar kemur að því að opna
jólapakkana verður gleðin einnig oft
blandin því ekki eru allir ánægðir
með það sem kemur upp úr pökkun-
um. Það sækir oft depurð að Vík-
verja að kvöldi aðfangadags þegar
hann sér allt það dót sem borist hef-
ur inn á heimilið og finna þarf pláss
fyrir og allan þann jólapappír sem
fer beint í ruslatunnuna. Ósk Vík-
verja til þessarar þjóðar, sem þess-
ar vikurnar er gagntekin af löngun
til að bæta og vemda umhverfið, að
hún gefi færri og ódýrari jólagjafir.