Morgunblaðið - 21.01.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.01.2000, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000 37 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MBA-NAM HA- SKÓLANS VIÐSKIPTADEILD Háskóla íslands og Endurmenntunar- stofnun HÍ munu í haust bjóða upp á MBA-nám í fyrsta skipti hér á landi. Hingað til hafa íslenskir nemendur þurft að sækja slíkt nám erlendis. Hefur það haft þann ótvíræða kost að mik- il ný þekking hefur verið flutt inn í landið á sviði viðskipta- fræða eins og svo mörgum öðrum sviðum sem íslendingar hafa menntað sig á við erlenda háskóla. MBA-nám við Há- skóla Islands hefur hins vegar þann kost að vera íslenskt, lag- að að aðstæðum okkar og veruleika. Það má því gera ráð fyrir því að þar verði til ný hagnýt þekking á rekstri fyrirtækja í ís- lensku umhverfi. Áhersla verður lögð á að námið verði hagnýtt eins og fram kom í viðtali við stjórnendur MBA-námsins hér í blaðinu í gær. Þetta er ekki rannsóknarnám en mikið verður lagt upp úr öguðum vinnubrögðum og leiðum til að gera rekstur skil- virkari og árangursríkari. Þessi markmið eru í samræmi við það meginhlutverk sem náminu er ætlað að hafa en gert er ráð fyrir að nemendur stundi námið með vinnu eins og víða tíðkast. Inntökuskilyrði í námið eru og þau að fólk hafi há- skólagráðu af einhverju tagi og þriggja ára starfsreynslu að minnsta kosti. Enn er mikilvægt að fólk sæki nám af þessu tagi til er- lendra háskóla en hér mun vafalaust skapast grunnur að sér- þekkingu um íslenskar aðstæður. Sömuleiðis er augljóst að nokkur hagkvæmni felst í þessu námi fyrir bæði einstaklinga, fyrirtæki og þjóðfélagið í heild. Þetta nýja nám er því afar góð viðbót við annað viðskiptanám sem boðið er upp á hérlendis og má telja víst að einstaklingar og fyrirtæki nýti sér það. BYGGINGASAGA Við íslendingar höfum smátt og smátt eignast byggingar sem teljast til menningarverðmæta af ýmsum ástæðum. Stundum vegna þess sem gerzt hefur innan veggja þeirra en líka vegna hins, að í þeim er fólgin merkileg húsagerðarlist. Laugarnesskólinn í Reykjavík á sér ekki aðeins merkilega sögu sem barna- og unglingaskóli heldur og ekki síður er bygg- ingin sérstök sem slík. Síðustu daga hafa birzt í Morgunblaðinu fréttir þess efnis að áform séu uppi um að byggja við Laugarnesskólann. í ljósi þess byggingarsögulega gildis, sem Laugarnesskólinn hefur, verður að fara mjög varlega í öll slík áform. Þess eru vissulega dæmi að vel hafí tekizt til um viðbyggingar við eldri hús. Og nýlega hefur verið reist nýbygging við Melaskól- ann í Reylgavík, sem sómir sér vel. Nýbyggingin er sjálfstæð bygging, sem tengd er gömlu skólabyggingunni á hugvitsamleg- an hátt. Þess er að vænta að bæði skólayfírvöld Laugarnesskóla og borgaryfírvöld leggi áherzlu á að þannig verði staðið að fram- kvæmdum á lóð Laugarnesskólans, að hin gamla skólabygging, sem er einstök, haldi reisn sinni og virðingu um leið og vandi nýrra kynslóða nemenda, sem skólann sækja verði leystur með viðeigandi hætti. CDUIKREPPU FLOKKUR kristilegra demókrata í Þýskalandi, CDU, stendur frammi fýrir alvarlegum vanda. Á undanfömum vikum hefur varla liðið sá dagur að ekki hafa borist nýjar fregnir af ólöglegum greiðslum í sjóði flokksins. Þrátt fyrir bitra reynslu flokksins af Flick-hneykslinu á níunda áratugnum virðist sem forystumenn CDU hafi ekki lært af reynslunni. Fyrrverandi leiðtogi CDU, Helmut Kohl, er var kanslari Þýskalands í sextán ár, hefur nú sagt af sér sem heiðurs- formaður flokksins og verið stefnt fyrir opinbera rannsóknar- nefnd. Arftaki hans, Wolfgang Scháuble, hyggst hins vegar sitja áfram í embætti þótt hann hafí viðurkennt að hafa tekið við háum peningagreiðslum úr hendi vopnasalans Karlheinz Schreibers, sem hvergi er að fínna í bókhaldi flokksins. Flokksdeildir CDU í einstaka sambandslöndum hafa sömuleiðis orðið uppvísar að fjármálamisferli og Scháuble bað í gær þýska þingið formlega af- sökunar á hegðun flokksins. Það er erfítt að sjá hvemig CDU á að geta öðlast traust kjós- enda á ný án þess að allsherjar uppstokkun eigi sér stað á forystu flokksins. Yaridinn er hins vegar sá að enginn augljós leiðtogi annar en Scháuble er sjáanlegur. Rreppa ílokksins er jafnframt enn alvarlegri í ljósi þess hversu gífurlega sterka stöðu Helmut Kohl hafði í þýskum stjómmálum. Hann bar höfuð og herðar (og þá ekki einungis í bókstaflegri merkingu) yfír aðra stjómmála- menn landsins þau ár sem hann var við völd og má raunar segja að hann hafí verið sá stjórnmálamaður sem mest mark hefur sett á evrópsk stjómmál undanfarinn aldarfjórðung. Niðurlæging hans splundrar sjálfsmynd kristilegra demókrata. S Islenskur hópur kynnir sér þróun vetnistækni í bílum hjá Daimler-Chrysler Evrópsk rannsókn á söguvitund 14-15 ára unglinga V etms- áform gætu orðið lyfti- stöng Aðstandendur bifreiðaframleiðandans Daimler- Chrysler í Þýskalandi kynntu í gær rannsóknir þær, sem fyrirtækið hefur gert til að þróa og fram- / leiða vetnisknúnar bifreiðar, fyrir hópi Islendinga og sagði Klaus-Dieter Vöhringer, stjórnarmaður í fyrirtækinu, að þar væru bundnar miklar vonir við fyrirhugað tilraunaverkefni með vetnisknúna strætisvagna í Reykjavík. Karl Blöndal er í för með íslenska hópnum í Þýskalandi. STRÆTISVAGNINN rennur hljóðlaust af stað og eykur jafnt og þétt ferðina. Vagn- inn virðist láta að stjórn eins og venjulegur strætisvagn og er að- eins óvenjulegur að einu leyti þegar hljóðleysið er frátalið. Til þess að komast aftast í hann þarf að fara upp nokkur þrep. Það þýðir að farþegarn- ir sem þar sitja hafa betri yfírsýn yfir umhverfið en þeir, sem eru framar í vagninum, en ástæðan fyrir þessari upphækkun er hins vegar ekki sú að fólk eigi að njóta betur útsýnisins, heldur fyrirferðarmikil vetnisvélin, sem knýr vagninn áfram. Vagn þessi er í Nabern skammt frá Stuttgart þar sem Daimler-Chrysler er með 400 manns í vinnu við að þróa og rannsaka notkun vetnis til að knýja bifreiðar. Um borð í vagninum var hópur Islendinga, sem hingað er kominn til þess að kynna sér starf- semi fyrirtækisins og samstarfsaðila þess á sviði vetnisbíla með hliðsjón af fyrirhuguðu tilraunaverkefni, sem snýst um að þrír vetnisvagnar aki á vegum Strætisvagna Reykjavíkur í tilraunaskyni. Langtímamarkmiðið er að gera Island að vetnissamfélagi. í hópnum frá íslandi eru fulltrúar þeirra aðila sem að verkefninu munu koma fáist nægt fé til að ráðast í það. Fyrir hönd ríkisins eru hér Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, Páll Magnússon, aðstoðar- maður hennar, og Þorgeir Örlygsson, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytis- ins. Á vegum borgarinnar komu Helga Jónsdóttir borgarritari, Helgi Pétursson, sem situr í borgarstjórn, og Lilja Ölafsdóttir, forstjóri SVR. Einnig eru með í för Hjálmar Árna- son, formaður iðnaðarnefndar, Mar- grét Guðmundsdóttir, framkvæmda- stjóri markaðssviðs Skeljungs, Sigfús Jónsson, stjórnarmaður Landsvirkj- unar, Eymundur Sigurðsson, kerfis- stjóri Landsvirkjunar, og Guðmund- ur Þóroddsson, stjórnarmaður Vist- orku, eignarhaldsfélags þeirra íslensku aðila, sem eiga 51% í Islenskri nýorku, fyrirtæk- inu, sem stofnað var utan um verkefnið. Þá komu með Páll Ki\ Pálsson, stjórnarformað- ur Islenskrar nýorku, og Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Islenskrar nýorku, auk þess sem Ingimundur Sigfússon, sendiherra Islands í Berlín, fylgdi hópnum. Ánægð með að fyrsta ferð sé á sviði umhverfísmála Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði eftir að hafa hlýtt á kynningar á rannsóknum Daimler-Chrysler og samstarfsaðila þeirra í Nabern að þessi ferð hefði styrkt sig í þeirri trú að alvara búi að baki. Þá væri hún ánægð með að þetta væri sín fyrsta utanlandsferð í emb- ætti, ekki síst vegna þess að hún væri á sviði umhverfismála. „Við lítum á þetta í víðu samhengi," sagði Valgerður. „Þessi ferð er farin til þess að kynna sér starfsemi sam- starfsaðila okkar, Daimler-Chrysler. Þeir sjá þetta fyrir sér sem þróun til að skipta um orkugjafa og virðist vera samstaða meðal bílaframleiðenda um að þróa verði nýja orkugjafa. Þannig að þetta er stórkostlegt verkefni og það sýnir kannski best hvað er að baki að hjá fyrirtækinu eru 400 manns að störfum við að þróa nýjan orkugjafa í bílaframleiðslu." Hún ræddi hugmyndina um að gera ísland að vetnissamfélagi: „Auðvitað er mjög áhugavert fyrir okkur að taka þátt í því og stórkostlegt tækifæri, sem við hljótum að skoða til hlítar hvort við getum verið með í.“ Valgerður sagði að sér hefði þótt ferðin í vetnisstrætisvagninum nota- leg og hugguleg og tók sérstaklega til þess hvað vél vagnsins hefði verið hljóðlát. Sagði hún að kannanir hefðu enda sýnt að þar sem vetnisvagnar væru í tilraunanotkun kysi fólk frekar að fara með þeim, þótt það kostaði lengri bið á stoppistöðinni: „Eg hef á tilfinningunni að hið sama myndi ger- ast heima. Það eru allir meðvitaðir um að bílar, sem eru knúnir með olíu, menga.“ Hún sagði að ríkisstjórnin hefði lýst vilja sínum til að taka þátt í því verkefni að koma á vetnissamfélagi. Hins vegar væri ekki farið að tala um fjármuni í því sambandi, enda væri það seinni tíma mál. Valgerður sagði að ekki mætti heldur vanmeta þau áhrif sem þetta verkefni gæti haft á vísindasamfélagið á íslandi. „Ef við getum gert þetta setur það okkur á ákveðinn stall sem þjóðfélag, sem getur tekist á við svona verkefni." Klaus-Dieter Vöhringer, sem er einn af fjórtán stjórnarmönnum og ber ábyrgð á rannsóknum og tækni- málum, kvaðst fagna því að fá tækifæri til að kynna starfsemi Daimler-Chrysler á sviði vetnisorku fyrir ís- lenskum aðilum úr stjórn- málum og atvinnulífi. Daim- ler-Chrysler skrifaði fyrir tæpu ári undir samning við fyrirtækið Vist- orku ásamt Norsk Hydro og olíufé- laginu Skeljungi um að rannsaka í sameiningu möguleikana á því að vetni komi í stað bensíns og olíu sem orkugjafi á íslandi og sagði Vöhring- er í gær að aðstæður á Islandi væru einstakar, ekki síst vegna þess að endurnýjanlegir orkugjafar á borð við vatn og jarðvarma stæðu til boða. Það voru þessar aðstæður, sem vöktu athygli Daimler-Chrysler á ís- Alvara býr að baki verkefninu Morgunblaðið/Sverrir Klaus-Dieter Vöhringer, sem situr í stjórn Daimler-Chrysler, kveður Pál Kr. Pálsson, stjórnarformann íslenskrar nýorku. Fyrir miðju stendur Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra landi: „Það er okkar markmið að inn- leiða vetnisvélar í heiminum og við er- um í fararbroddi í þróun þessarar tækni. Þá vaknar spurningin hvernig framleiða eigi vetnið sem notað verð- ur á vélarnar, helst með sem minnst- um útblæstri koldíoxíðs (C02). I því sambandi er Island tilvalið og það er ástæðan fyrir því að við ákváðum að ganga til þessa samstarfs.“ Sannfærður um að gera megi ísland óháð olíu Vöhringer sagði að skilyrði fyrir því að það tækist að koma vetni að sem orkugjafa væri að gera kleift að framleiða Jjað með sem minnstri mengun: „Island er á góðri leið með að verða land sem er óháð olíu. Ef tækist að gera Island að hagkerfi sem er óháð olíu væri það góð fyrirmynd fyrir önnur lönd.“ Þegar hann var spurður hvenær mætti gera ráð fyrir að það yrði, svaraði hann af varkárni: „Við förum skref fyrir skref. Fyrsta skrefið er reynsluverkefnið með strætisvagna á Islandi. Eftir þrjú ár gæti komið að því að fyrstu vetnis- vagnarnir birtust á götum Reykjavík- ur. í fyrstu yrðu þeir þrú’ eða fjórir, en lokatakmarkið gæti orðið það að gera allan strætisvagnaflotann á ís- landi vetnisknúinn." Hann sagði að hjá fyrirtæki sínu væru menn sannfærðir um að á Is- landi væri hægt að skipta yfir í vetni í samgöngum og gera landið algerlega óháð olíu, hvenær sem það yrði. Hluti af því væri að taka íslenska fiski- skipaflotann og breyta honum þannig að hann yrði knúinn vetnisorku. Vöhringer sagði að hjá Daimler- Chrysler væri mikill áhugi á að taka þátt í því, þótt strætisvagnaverkefnið hefði nú forgang. Hann sagði að það væri engin spurning að fyrstu vagnarnir yrðu dýrir og samkvæmt útreikningum fyrirtækisins myndi hver vagn kosta 1,3 milljónir evra (um 95 milljónir króna). Það væri vissulega sýnu meira en venjulegur almenningsvagn kostaði en verið væri að stíga fyrstu skrefin í notkun nýrrar tækni. „Við munum ræða fjármögnun þessa kostnaðar í sameiningu og finna lausn,“ sagði hann. „Okkar fyrirtæki, Daimler-Chrysler, er vitaskuld reiðu- búið til að axla hluta af kostnaðinum við reynsluverkefni af þessu tagi.“ Eins og stendur leggur Daimler- Chrysler um 100 milljónir þýskra marka (3,7 milljarða króna) í rann- sóknir og þróun á vetnistækninni ár- lega og sagði Vöhringer að þegar komið yrði á fram- leiðslustig myndi þessi upp- hæð hækka mjög. Sennilega myndi fyrirtækið verja ein- um milljarði til þessarar tækni á þessum áratug. Ekki væri vit- að hversu stór hlutur færi í verkefnið á Islandi, en ef menn gæfu sér að rúmlega 100 vetnisknúna vagna þyrfti til að leysa hinn olíuknúna flota Strætisvagna Reykjavíkur af hólmi væri kostnaðurinn við það 50 milljónir evra (3,6 milljarðar kr.). Páll Kr. Páls- son, stjórnarformaður Islenskrar nýorku, sagði að talið væri að fyrsti þáttur verkefnisins myndi kosta um 10 milljónir evra (liðlega 700 milljónir kr.), en þar væri vitaskuld ekki tekinn með sá kostnaður, sem þegar hefði verið lagður í þróun tækninnar. Hjá Daimler-Chrysler er einnig verið að þróa einkabíla sem knúnir eru með vetni. Vöhringer sagði að það verkefni gengi mjög vel og búast mætti við að eftir þrjú til fjögur ár yrðu slíkir bílar komnir í sölu hjá fyr- irtækinu. Tæknilega gengi vel, en helsta vandamálið væri kostnaðurinn sem fylgdi því að vera að byrja. Þegar framleiðsla færi að aukast mætti hins vegar búast við því að kostnaður færi niður. Samvinna og samkeppni Nokkur samkeppni er milli bíla- framleiðenda í vetnistækni. Vöhring- er sagði að frá 1989 hefði fyrirtækið, sem þá hét Daimler-Benz, unnið að þessari tækni af kappi. „Við urðum þar með fyrstir til að gera ráð fyrir að þessi tækni yrði notuð í farartækj- um,“ sagði hann. „í millitíðinni hafa margir aðrir stórir bílaframleiðendur snúið sér að þessari tækni og varið til þess miklum peningum. Okkar markmið er að vera fyrstir ásamt okkar samstarfsaðilum. Nú er svo komið að nánast allir bílaframleiðend- ur telja þessa tækni mikilvæga. Skil- yi-ði fyrii’ því að hún ryðji sér til rúms á markaðnum er að ekki eitt heldur mörg fyrirtæki beiti sér í sameiningu. Ástæðan er sú að það þarf alla innviði, fólk þarf að opna sig fyrir þessari tækni, það þarf að setja upp dreifi- kerfi og því fögnum við því að bílaiðn- aðurinn skuli stefna í þessa átt.“ Hann sagði að á þessu sviði væri mikil samvinna milli bílaframleið- enda. „Ég nefni samstarf okkar við Ford, sem hefur snúist um þróun tækninnar. En vitaskuld hafa allir hug á því að treysta stöðu sína þegar ný tækni er annars vegar og það á einnig við hér.“ Að sögn Vöhringers er einhugur í stjórn Daimler-Chrysler um að fara þessa leið: „Við héldum fund í desem- ber og öll stjórnin ákvað að styðja þessa tækni og þetta átti einnig við um bandarísku stjórnarmeðlimina. Auðvitað eru enn spurningar, einkum varðandi kostnað, en verið er að vinna að því að leysa úr því.“ Ótti við óstöðugleika í olíu- framleiðslulöndum Hann sagði að ljóst væri að finna þyrfti annan orkugjafa en olíu í sam- göngumálum, en þar ætti ekki að hugsa í árum, heldur áratugum. „Ég lít svo á að á þessum áratug munum við sá fræjum þessarar tækni, hún mun taka að dafna á næsta áratug og á þriðja áratugnum verður hún samkeppnishæf.“ Eitt af því, sem skiptir máli þegar ný tækni er innleidd, er al- menningsálitið. Daimler-Chrysler hefur ekki látið gera skoðanakannan- ir, en fræðimenn hafa kannað málið fyrir fyrirtækið. Þar kom í ljós að vilji fólks til að nota nýja tækni til að nýta annan orkukost en olíu er talsverður, meðal annars vegna óttans um að það geti leitt til vandræða í framtíðinni að vera háður olíu vegna þess að olíu- lindir heimsins er að miklu leyti að finna í löndum þar sem hætta er á óstöðugleika. Markmiðið að vera fyrstir Islensk ungmenni hafa áhuga á sögu en ekki tekst að virkja hann Rannsókn á söguvitund íslenskra unglinga í sam- anburði við unglinga í öðrum Evrópulöndum bendir ekki til þess að ís- lenskir nemendur búi yf- ir verri sögulegri þekk- ingu en erlendir nemendur. Þetta er með- al niðurstaðna úr rann- sókn á söguvitund 14-15 ára unglinga í Evrópu. AFYRRIHLUTA ársins 1995 voru ítarlegir spuminga- listar um sögu og söguvit- und lagðir fyrir nemendur í níunda bekk í 50 bekkjardeildum hér á landi. Könnunin var hluti af alþjóðlegu verkefni, en 30 evrópskar þjóðir tóku þátt í því. Niðurstöður könnunarinnar komu nýlega út í bók sem Gunnar Karlsson, prófessor í sögu, og Bragi Guðmundsson, háskólakennari á Ak- ureyri, rituðu. Gunnar átti frumkvæði að því að könnunin var lögð fyrir ís- lenska nemendur, en auk hans vann Eggert Þór Bernharðsson sagnfræð- ingur að verkefninu. Meðal landa sem tóku þátt í könnun- inni voru öll Norðurlöndin, allmargar nýfrjálsar þjóðir í A-Evrópu og allflest lönd Evrópusambandsins. Samtals voru spurningar lagðar fyrir 31.611 nemendur og 1.273 kennara, en sér- stakur spurningalisti var lagður fyrir kennarana. Meðalaldur þátttakenda var 15,03 ár, en meðalaldur íslensku nemend- anna var hins vegar aðeins 14,25 ár. Meðalaldur þátttakenda á hinum Norðurlöndunum var nærri ári hærri en íslensku nemendanna. Nauðsynlegt er að hafa þennan mun í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. fslenskir sögukennarar með minni sérmenntun Sérstök könnun var lögð fyrir 47 ís- lenska kennara sem kenna sögu í grunnskólum. Aðeins 16 konur voru í þessum hópi og yar hlutfall kvenna óvíða lægra en á Islandi. Menntun ís- lensku kennaranna var allgóð, en 42 af 47 kennurum voru með háskóla- eða kennaraskólamenntun. Hins vegar höfðu aðeins 25% íslensku kennaranna aflað sér sérmenntunar í sögu, en með- al skandinavískra kennara var þetta hlutfall 53%. Þetta hlutfall var 67% ef litið er til allra landanna. 55% íslensku kennaranna höfðu kennt viðkomandi bekk í aðeins eitt ár, en þetta hlutfall var 26% á hinum Norðui’löndunum. Fjöldi kennslustunda í sögu í viku hverri á Islandi var mjög svipaður meðaltalinu í allri könnuninni. Is- lensku nemendurnir áttu hins vegar að baki heldur styttra nám í sögu en nem- endur í flestum hinna landanna og skýrist það að einhverju leyti af því að íslensku nemendumir voru yngri. fslendingar álíka trúaðir og kaþólikkar Kennararnir voru spurðir um þýð- ingu trúarinnar fyrir þá og benda nið- urstöðurnar til þess að trúin hafi tals- vert meiri þýðingu fyrir íslenska kennara en kennara í Skandinavíu. Svipuð niðurstaða kom fram í svörum íslensku nemendanna. Gunnar Karls- son bendir á að íslendingar sýni þarna mikla sérstöðu. Þeir séu eina mótmæl- íslensku nemendumir áttu erfitt með að svara spurningum um atburðina sem urðu í A-Evrópu á síðasta áratug og bendir flest til að þar skorti veru- lega á þekkingu þeirra. endaþjóðin í könnuninni sem segist meta trúa sína álíka mikið og kaþólsk- ar þjóðir. Ahugi íslensku kennaranna á stjórn- málum var hins vegar heldur minni en kennara í Skandinavíu. Kennarar voru spurðir um helstu erfiðleika í starfi sögukennarans. Flestir íslensku kenn- aranna nefndu að of lítill tími væri ætl- aður í námsskrá til sögukennslu. Einn- ig skáru þeir sig frá starfsbræðrum sínum á Norðurlöndum að því leyti að nefna að lág laun yllu þeim erfiðleikum í starfi. Mestur áhugi á samtímasögu Könnunin leiðir í ljós að íslensku nemendumir fengu ámóta mikla kennslu í miðaldasögu og aðrir, en ís- lensku nemendumir fengu hins vegar talsvert minni kennslu en aðrir í sögu nýlendutímabilsins, iðnbyltingunni, Hitler og síðari heimsstyi’jöldinni og þeim breytingum sem orðið hafa í A- Evrópu frá 1985, en spurt var sérstak- lega um þessi efni. Fram kemur hins vegar að nemend- ur virðast almennt hafa talsvert meiri áhuga á samtímasögu en sögu fyrri alda. íslensku nemendurnir skáru sig ekki frá öðmm hvað þetta varðar. Þeg- ar spurt var um áhugasvið vom svörin á þann veg að nemendurnir sýndu sögu fjölskyldu sinnar og sögu sér- stakra fyrirbæra (t.d. sögu bíla, kirkna, tónlistar eða íþróttar) mestan áhuga. Af þeim áhugasviðum sem spurt var um var minnstur áhugi á þró- un lýðræðis og myndun ríkja. Nokkuð góð samsvömn var milli íslensku nem- endanna og þeirra erlendu hvað þetta varðar. Talsverður áhugi reynist vera á stríðum og harðstjómm, en umtals- verður munur var þó milli kynja, því piltar sýndu stríðsátökum mun meiri áhuga. Tiltölulega lítill áhugi reyndist á hversdagslífi venjulegs fólks og segir Bragi Guðmundsson í bókinni að þetta hljóti að valda skólafrömuðum nokkr- um áhyggjum því eitt af meginmar- kmiðum endurskoðunar námsefnis í samfélagsgreinum undanfarna áratugi hafi einmitt verið að beina sjónum að hinum hversdagslegri þáttum mann- lífsins. Bragi bendir einnig á að lítill áhugi á þróun lýðræðis og ríkjamynd- un veki athygli í ljósi þess hve fyrir- ferðamikil þessi viðfangsefni séu í op- inberri umræðu og fréttaflutningi. Mikill áhugi á Hitler Athygli vekur að af einstökum efn- um sem spurt var um í könnuninni sýndu íslensku nemendurnh- spurn- ingu um Hitler sérstakan áhuga og að- eins fáir slepptu því að svara spurn- ingu um hann. Ennfremur er athyglis- verður kynbundinn munur á afstöðu til íslenskir nemendur virðast hafa mikinn áhuga á Adolf Hitler. Is- lenskir piltar segja að hann hafi að vísu verið harðstjóri sem beri ábyrgð á þjöðarmorði, en jafn- framt hafi hann verið hæfileika- ríkur leiðtogi. Hitlers. Þótt íslensku nemendumir lýsi Hitler sem kaldlyndum harð- stjóra sem sé sekur um þjóðamorð taka piltar nokkuð undir þá lýsingu á Hitler að hann hafi verið hæfileikarík- ur ræðumaður, skipuleggjandi og leiðtogi en stúlkurnar höfnuðu því al- gerlega. Nemendum var bent á að þau gætu sleppt því að svara spumingum ef þau teldu sig ekki hafa forsendur til að svara þeim. Mun færri treystu sér til að svara spurningu um áhrif breyting- anna í A-Évrópu eftir 1985 en spum- ingu um Hitler og bendir það til þess að þekking nemendanna á atburðun- um sé verri en á þeim sem gerðust fyrir tilstuðlan Hitlers í síðari heims- styrjöldinni. Raunar var svarhlutfall íslensku nemendanna lakast við spumingunni um áhrif breytinganna í A-Evrópu, en best við spurningunni um Hitler. Spurt var um einstaka þætti sem hefðu haft og myndu hafa mest áhrif á líf fólks. Svörin vom eindregin á þann veg að vísindi og tækni hefðu haft og myndu áfram hafa mest áhrif. Al- mennt höfðu íslensku ungmennin þá fortíðarsýn að hér hefði verið friðsælt. Þeir sáu ekki fyrir sér þéttbýlisvanda- mál, mengun, átök milli fátækra og ííkra né heldur mismunandi þjóðem- ishópa. Nemendurnir vom fremur óvissir um hvort þjóðin hefði sætt er- lendri kúgun og gátu ekki ímyndað sér að velmegun og auðlegð hefðL einkennt þjóðlífið. Áþekk söguþekking nemenda Nokkrar spurningar vora lagðar fram þar sem reynir sérstaklega á söguþekkingu og þann hæfileika nem- enda að draga ályktanir. Þar vora um að ræða spurningar um atburði sem nemendur áttu að raða í tímaröð og álykta um skipagerðir og fatnað. Nið- urstaða spurninganna er sú að ís- lensku nemendumir hafi áþekka þekkingu á því sem spurt var um og nemendur í öðram Evrópulöndum þrátt fyrir að vera nokkuð yngri en flestir samanburðarhóparnir. Útkom- an var almennt verst við spumingu sem varðaði atburði á 20. öldinni. Rétt rúmlega helmingur skilaði réttum' svöram, en þetta hlutfall var rétt inn- an við helmingur fyrir ísland. Við öðr- um spurningum reyndust um 70-80% svara rétt. Bragi dregur þá almennu ályktun af svörum íslensku nemendanna að þeir hafi jákvæð viðhorf til sögunnar og sýni sögukennslunni heldur meiri áhuga en nemendur á hinum Norður- löndunum. Markmið kennara með sögukennslunni nái hins vegar illa til nemendanna. Margt bendi til þess að meiri einhæfni hafi ríkt í sögukennslu hér á Iandi en víða annars staðai’. „Vinna með námsbók er lang- algengasta kennsluaðferðin í sögu hérlendis og kennurum gengur held- ur illa að láta námsgreinina heilla nemendur sína, þótt það sé það mark- mið sem þeir setja fremst,“ segir Bragi. Við þetta bætist að nokkuð ein- dregin andúð virðist gæta hjá nem- endum á kennslubókum í sögu. Lítill áhugi á stjórnmálum hér á landi íslensku nemendumir sýndu stjórnmálum fremur lítinn áhuga í samanburði við nemendur í öðram löndum. Áhugi stúlkna er þó mun minni en pilta. íslensku ungmennin tóku ennfremur frekar dauflega undir þá fullyrðingu að pólitískar umbætur og pólitískar byltingar í fortíð og framtíð hafi áhrif á líf fólks. Þá sýndu íslendingarnir því minni áhuga að taka þátt í stjómmálum en nágrannar þeirra. Gunnar Karlsson bendir á að hér þurfi að hafa í huga að íslensku nemendumir vora nokkra yngri en nemendur í flestum hinna landanna. Ólíklegt sé þó að það skýri frekar neikvæð viðhorf íslensku nemend- anna til stjórnmála. En þrátt fyrir lít- inn pólitískan áhuga höfðu íslensku nemendurnir meiri mætur á lýðræði en aðrir. Ekki var veralegur munur á af- stöðu Islendinga og annarra Norður- landabúa til Evrópusamstarfsins. ís-' lendingar lýstu hins vegar nokkuð eindreginni samstöðu með fátækum ríkjum. Gunnar ályktar út frá öðram svöram að þessi samstaða risti fremur grunnt. íslensku nemendurnir töku í svör- um sínum frekar vinsamlega afstöðu til innflytjenda í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir. I könnuninni var spurt nokkurra al- mennra spurninga um fjölskylduað- stæður og fleira. Niðurstöðurnar sýna m.a. að foreldrar íslensku nemend- anna era talsvert minna menntaðir er foreldrar barna á hinum Norðurlönd- unum. Áhugi íslensku nemendanna á að afla sér ft’amhaldsmenntunar er hins vegar heldur meiri en nemenda á hinum Norðurlöndunum. Áhugi nem- enda á landsbyggðinni á að að afla sér framhaldsmenntunar er hins vegar umtalsvert minni en nemenda á höf- uðborgarsvæðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.