Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kjördæmamálin til fyrstu umræðu á Alþingi
Kostir og gallar
við breytta skipan
Morgunblaðið/Jim Smart
Geir H. Haarde fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um
kosningar til Alþingis í fjarveru forsætisráðherra.
FRUMVARP til laga um kosningar
til Alþingis var tekið til fyrstu um-
ræðu á Alþingi í gærkvöldi og mælti
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
fyrir málinu í fjarveru Davíðs Odds-
sonar forsætisráðheira. Geir lýsti
þeirri von sinni að um málið mætti
nást breið samstaða á þingi en við
umræðuna í gærkvöldi lýstu nokkrir
þingmenn megnri óánægju sinni með
þær breytingar sem fyrirhugaðar
eru.
Fjármálaráðherra gerði í fram-
söguræðu sinni grein fyrir undirbún-
ingi málsins. Kom fram að sjálfur
hefði hann átt forsæti í nefnd þeirri
sem skipuð var síðastliðið haust til að
semja það frumvarp, sem nú hefur
verið mælt fyrir á Alþingi, en þai-
sátu fulltrúar bæði stjómarflokka og
stjórnarandstæðinga. Geir rakti for-
sendur nefndarstarfsins og rifjaði
síðan upp að meginmarkmið breyt-
inga á kjördæmaskipan og úthlutun
þingsæta væri að draga úr því mis-
vægi atkvæða milli landsvæða sem
búsetuþróun í landinu hefði valdið,
og sem farið hefði vaxandi undanfar-
in ár.
Sagði Geir að allir þeir stjómmála-
flokkar, sem lengst af síðasta kjör-
tímabils hefðu átt fulltrúa á Alþingi,
hefðu með einum eða öðrum hætti
ályktað um að þetta misvægi yrði að
jafna. Mælingar á viðhorfí kjósenda
sýndu jafnframt að meirihluti þeirra
væri sömu skoðunar.
Ráðherrann gerði ennfremur
grein fyrir því að í ljós hefði komið að
ekki yrði hægt að jafna vægi at-
kvæða þannig að um það n'kti sæmi-
leg sátt og öll skilyrði önnur væm
uppfyllt, án þess að hreyfa með nokk-
uð afgerandi hætti við skipan lands-
ins í kjördæmi og leita eftir gagnger-
um endurbótum á því kerfi, sem
kosið væri samkvæmt til Alþingis.
„Aðrar forsendur þessara breyt-
inga vora fólgnar í því, að heildar-
fjöldi þingsæta yrði óbreyttur, en
skipt niður á kjördæmi þannig að
þingsætafjöldi í hverju þeirra yrði
sem jafnastur. Jafnframt var á því
byggt að jöfnuður yrði á milli stjóm-
málaflokka á landsvísu þannig að
fjöldi þingsæta hvers flokks yrði í
sem fyllstu samræmi við kjörfylgi.
Síðast en ekki síst hefur verið leitast
við að gera kosningakerfið einfaldara
og auðskiljanlegra en verið hefur,“
sagði Geir m.a.
Mikilvægt að menn hlaupist
ekki undan merkjum
Að lokinni framsöguræðu Geirs
sté Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra í pontu. Hann sagði að
breytingum á kjördæmafyrirkomu-
laginu fylgdu vitaskuld kostir og
gallar og óþarfi væri að draga dul á
það að óánægja væri uppi í Fram-
sóknarflokknum með niðurstöðuna,
rétt eins og í öðrum flokkum. Þing-
menn flokksins myndu væntanlega
láta það í ljós í umræðunni en hitt
lægi fyrir að þingflokkur framsókn-
armanna myndi standa að málinu.
Sagði Halldór aðalatriðið vera
það að náðst hefði samkomulag í
málinu. Kvaðst hann ganga út frá
því að menn virtu það samkomulag,
enda væri mikilvægt að koma þessu
mikilvæga máli í höfn.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, kvaðst í andsvari við ræðu
utanríkisráðherra ekki eiga aðild að
neinu samkomulagi í þessu máli.
Sagði hann það algerlega rangt hjá
ráðherranum að um þetta ríkti sátt í
landinu. Svaraði Halldór því til að
þingmenn VG hefðu margir verið áð-
ur í Alþýðubandalaginu, sem átt
hefði hlut að uppranalegu samkomu-
lagi. Ef þeir ætluðu nú að hlaupa frá
öllu saman gæfi það ekki tiiefni til að
bera til þeirra traust.
Guðmundur Ámi Stefánsson,
þingmaður Samfylkingar, sem sæti
átti í nefnd þeirri sem fjármálaráð-
herra fór fyrir, tók upp þráðinn þar
sem frá var horfið hjá Halldóri og
skaut fóstum skotum að VG. Guð-
mundur fór yfir helstu atriði framv-
arpsins og sagði hér miða í rétta átt
þó því færi fjarri að þessi niðurstaða
væri fullkomin. Minnti hann t.a.m. á í
því sambandi að stefna Samfylking-
arinnar væri sú að landið skyldi gert
að einu kjördæmi. Menn hefðu hins
vegar þurft að mætast á miðri leið.
Sagði Guðmundur að ábyrgir stjórn-
málaflokkar myndu standa við þau
markmið sem sett vora fram í upp-
hafi, þ.e. að draga úr misvægi at-
kvæða.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, sem eins og Guðmundur átti
sæti í nefnd fjármálaráðherra, sagð-
ist telja að þó að fyrirhugaðar breyt-
ingar hefðu sína kosti þá væra gall-
arnir meiri. Var Steingrímur afar
óánægður með orðahnippingar Guð-
mundar Árna í garð VG enda gæti
vart talist óeðlilegt að skiptar skoð-
anir væra um jafn stórt mál og þetta.
Kynnti Steingrímur sérálit sitt úr
nefndinni, sem hann sagði sína við-
leitni til að koma fram með betri
kosti en endanlega niðurstöðu. Taldi
Steingrímur m.a. furðulegt að ætla
að skipta Reykjavík í tvennt. Undir
þá skoðun tók m.a. Vigdís Hauks-
dóttir, þingmaður Framsóknarflokks
í Reykjavík.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
flokksformaðm- framsóknarmanna,
og Guðjón Guðmundsson, Sjálfstæð-
isflokki, lýstu ennfremur mikilli
óánægju sinni með fyrirhugaðar
breytingar og sagðist Guðjón vart
hafa hitt einn einasta mann sem
ánægður væri með niðurstöðuna.
Honum fyndist niðurstaðan röng og
gæti einfaldlega ekki stutt hana.
Veðurstofan á
ekki að vera und-
anþegin málrækt
FJÖRUGAR umræður urðu á Al-
þingi í gær um íslenska málrækt og
notkun íslenskra veðurhugtaka hjá
Veðurstofu íslands en þingsálykt-
unartillaga Krisljáns Pálssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks, um
þetta efni kom þá til seinni umræðu.
Mátti skilja af umræðunni að skipt-
ar skoðanir eru um þá ákvörðun
Veðurstofunnar að taka upp notkun
alþjóðlegs einingakerfis til að lýsa
veðurhæð á kostnað gamalla ís-
lenskra veðurheita.
Umhverfisnefnd, sem fékk málið
til umfjöllunar, klofnaði í afstöðu
sinni til þess og skar sá klofningur á
allar flokkslínur. Meirihluti nefnd-
arinnar leggnr þó til að tillagan
verði samþykkt en hann skipa þau
Kristján Pálsson, Katrín Fjeldsted
og Gunnar Birgisson, þingmenn
Sjálfstæðisflokks, Þórunn Sveinbj-
amardóttir og Katrín Andrésdóttir,
þingmenn Samfylkingar, og Vigdís
Hauksdóttir, þingmaður Framsókn-
arflokks. Minnihluti nefndarinnar
leggur hins vegar til að tillagan
verði felld, og standa þau Ásta Möl-
ler, Sjálfstæðisflokki, ísólfur Gylfi
Pálmason, Framsóknarflokki, og
Kolbrún Halldórsdóttir, Vin-
strihreyfingunni - grænu framboði,
að því áliti.
I framsöguræðu Kristjáns Páls-
sonar með nefndaráliti meirihlutans
kom fram að markmiðið með tillög-
unni væri að hvetja til þess að ís-
lensku veðurhugtökunum verði við-
haldið samhliða því að alþjóðlegt
einingakerfi sé notað til að lýsa veð-
urhæð. Þannig sé lögð áhersla á að
viðhalda íjölbreytileika íslenskrar
tungu samhliða notkun alþjóðlegra
skilgreininga. Sagði Krisfján að
umhverfisnefnd hefðu borist um-
sagnir vegna málsins frá 21 aðila og
þar af hefðu 17 mælt með því að til-
lagan yrði samþykkt.
f nefndaráliti minnihlutans, sem
Ásta Möller mælti fyrir, var hins
vegar tekið undir þá skoðun Veð-
urstofunnar að það væri vandséð að
það væri hlutverk Veðurstofunnar
að stunda þá málvernd sem þings-
ályktunartillagan virtist leggja
henni á herðar. Ásta tók fram að
málvemd væri vissulega þarft verk-
efni en minnihlutinn teldi hins veg-
ar ekki eðlilega stjómsýslu að Al-
þingi fæli umhverfísráðherra að
beina því til faglegrar undirstofnun-
ar ráðuneytisins að breyta ákvörð-
un sem byggðist á faglegum rökum.
Margir á mælendaskrá
er umræðu var frestað
Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði í andsvari
við ræðu Ástu að það hlyti að vera
hlutverk allra, stofnana sem ein-
staklinga, að stunda málrækt. Sfst
af öllu ætti Veðurstofan að vera þar
undanskilin. Hafnaði hann þeim
rökum Ástu að almenningur sklldi
ekki fslensku veðurhugtökin og
lýsti þeirri skoðun sinni að það væri
ekki skynsamlegt að fóma gömlum
góðum hugtökum ef ekkert sérstakt
mælti með því. Það yrði menningar-
legt slys, að vísu e.t.v. í litlum mæli,
en margt smátt gerði hins vegar eitt
stórt.
Flokksbræður Tómasar, Halldór
Blöndal og Guðmundur Hall-
varðsson, tóku í sama streng í and-
svari við ræðu Ástu og töldu miður
ef íslensk veðurheiti glötuðust úr
tungunni og þar með verðmæt
blæbrigði hennar.
Nokkuð fjör hljóp í þessar um-
ræður og beið fjöldi þingmanna á
mælendaskrá þegar umræðu um
málið var frestað að ósk Sighvats
Björgvinssonar, þingmanns Sam-
fylkingar. Hafði hann vakið athygli
á því að þingstörfum færi senn að
ljúka og að mörg mikilvægari mál
en þetta biðu afgreiðslu þingsins.
Rætt í annað sinn um framkvæmd tiltekinna þátta í varn-
arsamstarfí fslands og Bandarfkjanna
Sjóflutningar Atlants-
skipa í brennidepli
Stjórnarandstaðan vill gefa fyrirtækinu aðlögunartíma
SJÓFLUTNINGAR Atlantsskipa
ehf. fyrir varnarliðið í Keflavík
voru enn til umræðu á Alþingi í
gær þegar frumvarp utanríkisráð-
herra um framkvæmd tiltekinna
þátta í varnarsamstarfi Islands og
Bandaríkjanna var tekið til ann-
arrar umræðu. Meirihluti stjórn-
arflokkanna í utanríkismálanefnd
leggur til að frumvarpið verði
samþykkt en fulltrúar stjórnar-
andstæðinga telja Ijóst að frum-
varpinu sé bókstaflega beint gegn
Atlantsskipum, og leggur 1. minni
hluti utanríkismálanefndar til að
fyrirtækinu verði í það minnsta
veittur aðlögunartími.
Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hafði mælt fyrir
nefndaráliti meirihluta utanríkis-
málanefndar sem leggur til að
frumvarpið verði samþykkt með
fáeinum breytingum, sem lítið
snerta helsta deiluefnið. Þó er lagt
til að bráðabirgðaákvæði II verði
umorðað svo merking þess verði
skýr. I ákvæðinu er kveðið á um að
áður en samningar við varnarliðið,
sem gerðir hafa verið fyrir gildis-
töku laganna og ekki sætt forvals-
meðferð, komi til framlengingar sé
heimilt, að tillögu forvalsnefndar,
að ákveða að fram skuli fara forval
og hæfir aðilar samkvæmt lögun-
um tilnefndir. Sé heimildin nýtt
gildi ákvæði laganna um það.
í nefndaráliti 1. minnihluta utan-
ríkismálanefndar, sem þeir Sig-
hvatur Björgvinsson og Jóhann Ár-
sælsson, þingmenn Samfylkingar,
standa að, er hins vegar lagt til að
umrætt bráðabirgðaákvæði öðlist
ekki gildi fyiT en við upphaf ársins
2001. Sagði Sighvatur í framsögu-
ALÞINGI
ræðu sinni að hér væri um sjálf-
sagða málamiðlunartillögu að ræða
sem gæfi viðsemjendum, Atlants-
skipum og varnarliðinu, kost á að
framlengja samning þann sem
rennur út 31. október næstkomandi
um eitt ár til viðbótar ef þeir óska
þess og gæfist Atlantsskipum þar
með ráðrúm til að laga sig að þeim
kröfum sem framvarpið gerir til
fyrirtækja sem teljast mega kalla
sig íslensk.
Áhöfn skuli vera íslensk og
skip sigli undir íslenskum fána
Sighvatur sagði m.a. að augljóst
væri að frumvarpinu væri bókstaf-
lega beint gegn einu ákveðnu fyrir-
tæki, þ.e. Atlantsskipum. Hann
sagði að vissulega mætti deila um
hvort Atlantsskip hefði í raun ver-
ið íslenskt fyrirtæki - þ.e. í ís-
lenskri eigu og undir íslenskri
stjórn - þegar varnarliðið gerði
upphaflega samning við það um
flutningana en þær breytingar
hefðu hins vegar orðið á eignar-
haldi þess að ekki væri annað
hægt að sjá en að það væri nú
ótvírætt í íslenskri eigu.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, mælti að þessu
loknu fyrir nefndaráliti 2. minni-
hluta utanríkismálanefndar en í
því kemur fram að VG ætli í raun
ekki að blanda sér í þessi mál enda
liggi fyrir Alþingi þingsályktunar-
tillaga frá flokknum um brotthvarf
bandaríska varnarliðsins frá Is-
landi. Sagði hann að VG myndi ekki
taka þátt í afgreiðslu málsins. Hins
vegar væri ekki hægt annað en
vekja athygli á ýmsum undarlegum
ákvæðum frumvarpsins, t.d. bráða-
birgðaákvæðinu sem valdið gæti
afturvirkni laganna í tilteknum
skilningi.
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, gerði
grein fyrir breytingartillögu sem
hann hefur lagt fram við frum-
varpið en í henni er lagt til að
skýrt sé kveðið á um að það fyrir-
tæki sem hefur sjóflutninga með
höndum fyrir íslands hönd skuli
vera með íslenska áhöfn á skipum
sínum, og sigla undir íslenskum
fána. Taldi Guðmundur óeðlilegt
að ákvæði sem þessi væru í samn-
ingi íslendinga og Bandaríkja-
manna hvað varðaði bandarískan
hluta flutninganna en ekki um
þann íslenska. Gerði hann að sér-
stöku umtalsefni tregðu íslenskra
kaupskipaútgerðarfyrirtækja til
að sigla skipum sínum undir ís-
lenskum fána. Guðmundur féllst
hins vegar á þá ósk, sem Sighvat-
ur Björgvinsson hafði sett fram,
að draga breytingartillögu sína til
baka við aðra umræðu um málið,
þannig að utanríkismálanefnd gæti
rætt hana sérstaklega áður en mál-
ið kæmi til þriðju umræðu.